Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Side 2
2 Fréttir 26. nóvember 2012 Mánudagur
Þ
að var ónýtt, ég varð bara að
láta rífa það,“ segir Unnur
Guðjónsdóttir, gjarnan
kennd við Kínaklúbb Unnar,
sem lét á föstudaginn rífa
hús í sinni eigu við Njálsgötu í Reykja-
vík. Húsið var sýkt af veggjatítlu og
hafði að hennar sögn verið úrskurð-
að ónýtt. Hún fékk því menn til þess
að jafna húsið við jörðu.
„Það var ekkert annað hægt að
gera,“ segir Unnur.
Algjörlega ónýtt
„Ég keypti húsið í fyrra og ætlaði að
láta gera það upp. Byggingarmeist-
arinn minn vildi láta athuga þetta
og tók niður nokkrar fjalir og fór
með þær upp í Náttúrustofnun Ís-
lands – og þær gátu svo bara labb-
að heim sjálfar því það var svo mik-
ið af veggjatítlum í fjölunum. Svo fór
hann að athuga á fleiri stöðum og þá
kom í ljós að húsið var bara algjör-
lega ónýtt,“ segir hún.
Töluverðan tíma tók að rífa húsið
niður. Bæði tók tíma að koma tækj-
um fyrir þar sem húsið er bakhús
og einnig þurfti að fara varlega að
niðurrifinu vegna húsanna í kring.
Kostnaðarsamt
veggjatítluævintýri
Húsið sem um ræðir var byggt árið
1907 og var mjög illa farið. Annað
hús var byggt við og það er líka í eigu
Unnar. „Ég ætla ekki að láta rífa það
því að það er steinhús og því engar
títlur í því.“
Hún segist hafa keypt húsið í því
ástandi sem það var í og standi því
sjálf kostnað af þessu. „Þetta kost-
aði mig náttúrulega heilmikið. Ég
stend sjálf að öllum kostnaði á þessu
veggjatítluævintýri mínu,“ segir
hún en vill ekki gefa upp kaupverð
hússins.
Unnur ætlar að láta byggja nýtt
hús í stað þess gamla en í öðrum
stíl, meira í líkingu við húsið sem var
samfast því gamla. „Nýja húsið verð-
ur líkara því. Þau voru ólík húsin þó
þau stæðu saman.“ Hún veit þó ekki
hvenær bygging hússins hefst. „Það
þarf að fá leyfi fyrir teikningum og
margt fleira það tekur sinn tíma.“
Opnar Kínasafn
Unnur hyggst svo stofna Kínasafn
í viðbyggingunni en hún hefur um
árabil kynnt menningu Kínverja fyrir
Íslendingum og farið til Kína með
landa sína. „Ég ætla að búa til Kína-
safn. Nú eru komin tuttugu ár frá því
að ég byrjaði að fara í Kínaferðirn-
ar og svona ætla ég að fagna afmæli
Kínaklúbbsins, með því að opna
safn.“
Unnur er bjartsýn á að Íslendingar
muni sýna safninu áhuga. „Það fer
náttúrulega eftir því hvað ég verð
dugleg að sinna því. Ég hef í mörg ár
frætt Íslendinga um sögu Kína og er
ekki hætt. Þetta er svo merkileg saga
og ég hef svo gaman af þessu.“ n
Veggjatítluhús
jafnað við jörðu
n Lét rífa hús sem var ónýtt vegna veggjatítlna n Ætlar að byggja Kínasafn
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Við húsið Unnur fyrir
framan húsið í þann
mund sem niðurrif
þess hófst.
Veggjatítlur
n Veggjatítla er skordýr af ætt
bjalla. Veggjatítlur eru brúnar að lit
og staflaga. Þær veggjatítlur sem
fundist hafa á Íslandi eru um 2,8–4,8
millimetrar. Bjöllurnar klekjast á sumrin
úr púpum inni í viðnum. Þær grafa sig
út á yfirborðið og við það myndast
borgöt í viðinn sem eru um 1–2 mm
í þvermál. Þar skríða þær um
og fljúga jafnvel og leita
sér að nýjum við til að
leggja undir sig. Þetta
gerist þó bara í lok
júní og fyrri hluta
júlí. Þær lifa ekki lengur
en í tvær vikur en þá þeim tíma ná þær
að makast og kvendýrin verpa 20–60
eggjum sem þær koma fyrir í götum eða
sprungum í viðnum. Þegar eggin klekjast
út éta lirfurnar sig inn í viðinn. Ef hiti og
rakastig er hagstætt geta títlurnar lagst
á alls kyns tréverk.
n Í uppvextinum éta lirfurnar sig hægt
og bítandi í gegnum viðinn og við það
myndast gangar fram og til baka inni
í honum. Þegar lirfurnar éta ganga
ómeltar leifar aftur af þeim og mynda
mjög fínan hvítan salla sem sáldrast
gjarnan út um borgötin sem fullorðnu
dýrin hafa gert þar sem mikil umferð
er á bak við. Þar sem veggjatítlur hafa
hafst við óáreittar í langan tíma verða
ummerki augljós, þ.e. yfirborðið alsett
borgötum líkt og skotið hafi verið á það
með fínum haglaskotum og dufthrúgur
undir götunum. Í mörgum gömlum
húsum má merkja gömul ummerki
eftir veggjatítlur sem hafa horfið vegna
breyttra aðstæðna, þ.e. viðgerðir hafa
tekist vel og leitt til þess að viður hefur
þornað og orðið óhæfur fyrir veggjatítl-
ur. Langtímaatlaga veggjatítlna getur
veikt burðarvirki húsa og þar með valdið
alvarlegum skaða og miklu fjárhagslegu
tjóni.
HeiMild: NÍ, erliNg ÓlAfssON
Allt að gerast Rétt
áður en húsið var rifið.
Tók tíma Töluverðan tíma tók að rífa hús-
ið. Bæði var erfitt að komast að því vegna
þess að það er bakhús og eins þurfti að fara
varlega vegna húsanna í kring.
MyNdir sigTryggur Ari
Þjófnaður og
innbrot
Um miðjan sunnudag var lög-
reglunni á höfuðborgarsvæð-
inu tilkynnt um ölvaða konu
sem hafði farið í tvær verslanir í
miðbæ Reykjavíkur og stolið þar
smávarningi. Hún var handtekinn
og færð í fangaklefa.
Lögreglan segir að eigendur
verslananna muni gera refsikröfu
á konuna. Konan var undir áhrif-
um vímugjafa þegar hún náðist
en lögreglan sagði í tilkynningu að
hún myndi taka af henni skýrslu
þegar af henni rynni.
Þá segir lögreglan að skömmu
eftir hádegi á sunnudag hafi lög-
regla verið kölluð að húsi við
Furu grund í Kópavogi vegna inn-
brots. Ekki var ljóst hvort ein-
hverju var stolið.
Útlendingar í
sjálfheldu
Björgunarsveitinni Lífsbjörg í
Snæfellsbæ barst á sunnudag
beiðni um aðstoð vegna öku-
manna sem voru í sjálfheldu í bíl-
um sínum vegna hálku. Um var
að ræða tvo bíla, annar var við
Arnarstapa en hinn við Hnausa á
sunnanverðu Snæfellsnesi og voru
erlendir ferðamenn í þeim báð-
um. Björgunarsveitin fór á stað-
inn og voru bílarnir á um fjögurra
kílómetra löngu hálkubelti sem
náði frá Hnausum að Hellahrauni.
Björgunarmenn óku bílunum af
hálkubeltinu en þeir voru báðir á
afar lélegum dekkjum.
Víða óhöpp
vegna hálku
Mikið var um umferðaróhöpp á
vegum landsins á sunnudag vegna
mikillar hálku.
Bílvelta varð á Biskupstungna-
braut við Tannastaði undir
Ingólfs fjalli á hádegi á sunnudag.
Engin slys urðu á fólki en bifreiðin
skemmdist töluvert.
Harður árekstur varð við hring-
torgið í Þorlákshöfn um þrjúleytið
á sunnudag. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglunni á Selfossi
urðu minniháttar meiðsl á fólki
en báðir bílar eru stórskemmdir.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni er áfram hætta á hálku-
myndun á vegum um allt land. Út-
lit er fyrir að hálka verði á vegum
víða um land næstu daga.