Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Qupperneq 4
E
itt af dótturfélögum út-
gerðarrisans Samherja fékk í
janúar rúman milljarð króna
afskrifaðan hjá Glitni vegna
opinna gjaldmiðlaskipta-
samninga sem félagið átti við bank-
ann. Félagið gekk þá frá tæplega
1.660 milljóna króna skuld við Glitni
með eingreiðslu upp á 360 milljónir
króna. Þetta kemur fram í ársreikn-
ingi félagsins sem skilað var til árs-
reikningaskrár ríkisskattstjóra þann
16. nóvember síðastliðinn.
Félagið heitir Axel ehf. , áður
Katla Seafood, og var upphaflega
stofnað til að kaupa Afríkuútgerð
Sjólaskipa á vormánuðum 2007.
Eignir Kötlu Seafood, meðal annars
verksmiðjutogarar sem veitt hafa við
strendur Vestur-Afríku, hafa síðan
runnið inn í félagið Polaris Seafood
og heldur það félag utan um Afríku-
útgerð Samherja í dag.
DV hefur á þessu ári fjallað
ítarlega um Afríkuveiðar Samherja.
Eigendur Samherja eru frændurnir
Þorsteinn Már Baldvinsson og Krist-
ján Vilhelmsson en útgerðin er sú
langstærsta á Íslandi og er með starf-
semi sem fer fram að 60 prósenta
leyti erlendis.
Mótmæltu skuldinni
Í ársreikningi Axels kemur fram að
eftir bankahrunið 2008 hafi komið
upp ágreiningur á milli Samherja
og Glitnis um gjaldmiðlaskipta-
samninga Axels en samkvæmt þeim
skuldaði félagið bankanum tæplega
1.660 milljónir króna í lok þess árs.
Vegna þess ágreinings er fyrirvari um
rekstrarhæfi Axels í ársreikningi fé-
lagsins en vegna gjaldmiðlaskipta-
samninganna var eigið fé félagsins
neikvætt um rúmlega 1.800 milljónir.
Orðrétt segir um deiluna í skýrslu
stjórnar Axels: „Í október 2008 yfir-
tók Fjármálaeftirlitið (FME) stjórn
Glitnis banka hf. Félagið var með
opna gjaldeyrissamninga við bank-
ann þegar yfirtakan fór fram og í var-
úðarskyni var staða framangreindra
samninga færð til skuldar í efnahags-
reikningi miðað við uppreiknaða
stöðu hjá bankanum í árslok 2008,
undir liðnum skuldir við lánastofn-
anir, samtals 1.657,2 millj. kr. Stjórn-
endur félagsins litu svo á að forsend-
ur samninganna hafi brostið við
yfirtöku FME á bankanum þar sem
bankinn varð þá ófær um að efna
samningana fyrir sitt leyti. Stjórn-
endur félagsins andmæltu kröfum
bankans þar sem það var eindregin
skoðun þeirra eftir ítarlega athugun
að þær ættu sér enga lagastoð.“
Því var uppi ágreiningur um
skuldina sem Samherji taldi Axel
ekki eiga að greiða vegna falls Glitnis.
Eingreiðsla og niðurfærsla
Í janúar á þessu ári komust Samherji
og Glitnir hins vegar að samkomu-
lagi um uppgjör á skuldinni sem
fól í sér eingreiðslu upp á 360 millj-
ónir króna og niðurfærslu á nærri
1.300 milljónum króna. Orðrétt
segir um þetta: „Í janúar 2012 var
undirritað samkomulag við Glitni
hf. um uppgjör á framangreind-
um samningum með eingreiðslu að
fjárhæð 360,0 millj. kr. Félagið mun
því bakfæra áður gjaldfærð upp-
gjör samninganna að hluta og nem-
ur bak færslan samtals 1.297,2 millj.
kr. Áætluð heildaráhrif af uppgjöri
samninganna á rekstrarniðurstöðu
og eigið fé félagsins nema 1.037,8
millj. kr. að teknu tilliti til tekjuskatts.“
Þrátt fyrir þessa niðurfærslu gerir
endurskoðandi Axels, KPMG, hins
vegar ennþá fyrirvara við rekstrar-
hæfi félagsins. Í áritun KPMG segir:
„Eins og fram kemur í skýringu nr.
7 gerði félagið í janúar samkomu-
lag við Glitni banka hf. um uppgjör
á skuldum við bankann sem leið-
ir til þess að öðru óbreyttu að eig-
infjárstaða félagsins og veltufjár-
staða mun batna um 1.037,8 millj.
kr. Þrátt fyrir þetta leikur verulegur
vafi á áframhaldandi rekstrarhæfi fé-
lagsins.“
Miðað við stöðu Axels í dag, og
þrátt fyrir afskriftina á skuldum fé-
lagsins, gæti félagið samt farið í þrot
enda eru litlar sem engar eignir inni
í félaginu miðað við þær skuldir sem
voru inn í því – tæpar 30 milljónir. Fé-
lagið var, líkt og áður segir, stofnað til
að kaupa Afríkuútgerð Sjólaskipa en
heldur ekki lengur utan um þá fjár-
festingu.
Stjórnarformaðurinn
starfsmaður Glitnis
Líkt og komið hefur fram í DV fjár-
magnaði Glitnir kaup Samherja á
Afríkuútgerðinni árið 2007. Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, varð svo stjórnarformað-
ur bankans í febrúar 2008 og átti
að taka til í rekstri hans. Eiríkur S.
Jóhannsson, sem verið hefur einn
nánasti samstarfsmaður Þorsteins í
Samherja um árabil, var sömuleiðis
ráðinn til bankans eftir að hafa starf-
að meðal annars hjá Baugi og FL
Group.
Eftir fall Glitnis gerðist Eiríkur
S. Jóhannsson starfsmaður skila-
nefndar Glitnis ásamt því að vinna
ennþá með Samherjamönnum.
Eiríkur er til dæmis stjórnarfor-
maður Samherja og Kaldbaks, fjár-
festingarfélags Samherja. Eiríkur
er enn þann dag í einn af lykil-
starfsmönnum þrotabús Glitnis og
stýrir mörgum þeirra félaga sem
bankinn hefur tekið yfir vegna
skulda, meðal annars Gnúpi, Vafn-
ingi, Svartháfi og Hnotskurn.
Þetta þrotabú Glitnis, sem Eiríkur
S. starfar hjá, hefur nú veitt Sam-
herja, félaginu sem hann stýrir og
hefur unnið með um árabil, skulda-
afskrift upp á meira en milljarð
króna. n
fær 1.300 milljóna
afskrift hjá Glitni
4 Fréttir 26. nóvember 2012 Mánudagur
„Brjálæðislega snortin og þakklát“
n Hildur Lilliendahl viðurkennd fyrir baráttuna gegn ofbeldi
S
tígamót verðlaunuðu á föstu-
dag tíu konur fyrir starf í jafn-
réttismálum og baráttu gegn
ofbeldi. Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir var þeirra á meðal
en hún var einnig ljósberi í árlegri
Ljósagöngu UN Women sem fram
fór á sunnudagskvöld og mark-
aði upphaf 16 daga átaks gegn of-
beldi. Hildur var afar þakklát fyrir
þessa viðurkenningar. „Ég hef aldrei
nokkurn tímann áður hlotið neina
formlega opinbera viðurkenningu
fyrir það að vera femínisti. Mér
finnst það ótrúlega merkilegt, ég er
brjálæðislega snortin og þakklát,
mér finnst þetta svo fallegt. Þetta er
alveg ofboðslega hvetjandi. Svona
lagað heldur manni gangandi í
þessu öllu saman. Ég gæti ekki gert
þetta ef það væri ekki fyrir hvatn-
ingu frá fólki. Ég gæti ekki staðið
upprétt ef fólk væri ekki svona dug-
legt að hvetja mig áfram.“
Hildur hefur verið afar umdeild
fyrir framgöngu sína í jafnréttis-
baráttunni og ekki síst fyrir albúm-
ið Karlar sem hata konur þar sem
hún endurbirti ummæli karla sem
tala niðrandi til kvenna á netinu.
Fyrir vikið hefur hún þurft að þola
harða gagnrýni og jafnvel hótanir.
Og það getur tekið á. „Ég bugast
í stuttan tíma í einu í góðra vina
hópi þegar ég þarf á því að halda en
er alltaf meðvituð um að ég muni
halda áfram daginn eftir. Meðvit-
und um óréttlæti, ofbeldi sem konur
verða fyrir, ekki síst fyrir þær sakir að
vera femínistar drífur mig áfram og
styrkurinn sem ég fæ frá fólki hvet-
ur mig áfram. Endanlegt markmið
er útrýming félagslegs óréttlætis.
Ég kýs að trúa því að komandi kyn-
slóðir muni ná því en einhvers stað-
ar verður að byrja. Ég reyni að vekja
fólk til umhugsunar og meðvitund-
ar um hatrið og ofbeldi sem þrífst
fyrst og fremst í skugga þagnarinn-
ar. Þegar fólk segir ekki neitt við því
þá er það að samþykkja það. Ég vil að
við segjum eitthvað við því, ég vil að
við mótmælum því og séum hávær,“
segir Hildur.
Auk hennar fengu viðurkenn-
ingu þær Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra, blaðakonurnar Björk
Eiðsdóttir og Erla Hlynsdóttir, Halla
Kristín Einarsdóttir kvikmynda-
gerðarkona, Hanna Björg Vilhjálms-
dóttir kynjafræðingur og listahópur-
inn Kviss Búmm Bamm. n
ingibjorg@dv.is
„ Í janúar 2012
var undirritað
samkomulag við Glitni
hf. um uppgjör á framan
greindum samningum
með eingreiðslu að fjár
hæð. 360,0 millj. kr.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Stjórnarformaður Samherja vinnur hjá Glitni Stjórnarformaður Samherja, Eiríkur S. Jóhannson, sést hér lengst til hægri á myndinni
en hann starfar líka hjá skilanefnd Glitnis. Eigendur Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson sjást einnig á myndinni
ásamt forsvarsmönnum Sjólaskipa.
n Afskrifað hjá dótturfélagi Samherja n Deila um gjaldmiðlaskiptasamninga
Á veiðum í
þjóðgarði
Rjúpnaskyttur voru eftir hádegi á
sunnudag gripnar við að ganga til
rjúpna á Þingvöllum. Lögreglunni á
Selfossi barst tilkynning um athæfi
mannanna – en ólöglegt er að veiða
í þjóðgarðinum. Svo fór að þyrla
Landhelgisgæslunnar var send í
loftið og fann hún mennina fljót-
lega. Mennirnir mega eiga von á
kæru fyrir vopnalög, ef að líkum
lætur. Þeir gátu ekki gefið hald-
bærar skýringar á ferðum sínum,
en annar þeirra bar því við að hann
hafi ekki vitað að hann væri innan
þjóðgarðsmarka.
Í gær, sunnudag, var síðasti
dagurinn sem rjúpnaskyttur halda
til fjalla en aðeins mátti skjóta rjúp-
ur í níu daga í ár, eins og í fyrra. Eft-
ir því sem DV kemst næst var veiði
almennt dræm á tímabilinu enda
stofninn í lægð. Þá gerðu slæm veð-
ur skyttum erfitt fyrir, sérstaklega
fyrstu tvær helgar vertíðarinnar.
Vilja jákvæða
umfjöllun
Landssamband hestamannafélaga
og Félag hrossabænda vill að að-
eins verði fjallað á jákvæðan hátt
um hestamennsku. Þetta má lesa
úr tilmælum frá félögunum sem
birtust á lhhestar.is um helgina.
Ill meðferð á hrossum og
meiðsli sem dýrin verða fyrir í
keppnum hafa verið til umræðu
undanfarið. Fram hefur komið
að rúmur helmingur hrossa sem
kepptu til úrslita á stórmótum í ár
hafi reynst vera með áverka, þar
af 16 til 34 prósent með alvarlega
áverka.
Í tilmælunum beina félögin
því til allra sem fjalla um hesta-
mennsku að „gæta fyllstu varúðar
við umfjöllun sína opinberlega“,
eins og það er orðað. Öll umfjöllun
sé ímyndarskapandi og því sé
nauðsynlegt að hún sé málefnaleg
og vel ígrunduð. „Hagsmunaaðilar
hestamennskunnar og hestamenn
í landinu þurfa allir að leggjast á
það sama, að njóta, virða og aug-
lýsa hestinn og hestamennskuna á
sanngjarnan og jákvæðan hátt eins
og aðrar íþróttir.“ Velferð hestsins
skuli ávallt höfð að leiðarljósi.
Íslendingar
svikust um
Íslensk stjórnvöld hafa svikist
um að standa við skuldbindingar
sínar vegna baráttu fátækari ríkja
gegn loftlagsbreytingum. RÚV
greindi frá þessu á sunnudag en
þar er vitnað í Economic Times
sem hefur eftir óháðri og ný-
útkominni skýrslu að Ísland hafi
aðeins greitt helming þess fjár
sem lofað var árið 2009.
Það var á loftslagsráðstefnu
í Kaupmannahöfn 2009 sem
ákveðið var að veita 30 milljörð-
um dollara til að styrkja fátæk ríki
í baráttu við loftslagsbreytingar.
Ríkin höfðu þrjú ár til að standa
við samningana sem gerðir voru.
Úttektin er á vegum Sameinuðu
þjóðanna en Íslendingar, Banda-
ríkin og Evrópusambandið eru
þeir aðilar sem ekki hafa staðið
við sitt. 23 milljarðar af 30 hafa
skilað sér.