Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Síða 8
8 Fréttir 26. nóvember 2012 Mánudagur Straumur kærður fyrir markaðsmisnotkun n Komið til saksóknara n Grunur um óeðlileg viðskipti með eigin hlutabréf E mbætti sérstaks saksókn­ ara hefur nú fengið inn á sitt borð rannsókn á mögulegri markaðsmisnotkun fjár­ festingarbankans Straums­ Burðaráss með hlutabréf í bankan­ um fyrir hrunið 2008. Þetta herma heimildir DV. Kæra barst frá Fjár­ málaeftirlitinu vegna málsins fyrr á þessu ári. Björgólfur Thor Björg­ ólfsson fjárfestir var stærsti hlut­ hafi Straums fyrir hrunið og fór fyrir stjórn bankans. Kæran mun snúast um viðskipti Straums með hlutabréf í bankanum sjálfum og leikur grunur á að bank­ inn hafi keypt og selt bréf í honum til að hafa áhrif á verðmyndun bréf­ anna. Sams konar markaðsmisnotk­ un hefur verið til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara í stóru viðskiptabönkunum þremur. Í til­ felli Straums beinist grunurinn mest að árunum 2007 og 2008. Talið er að rannsókn málsins sé skammt á veg komin. Ekki rætt við Björgólf Aðspurður segist Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, ekki geta tjáð sig um málið, hvort kærur í tiltekn­ um málum hafi borist frá Fjármála­ eftirlitinu eða ekki. Ljóst er hins vegar að ekki hefur verið greint frá húsleit vegna kærunnar á opinber­ um vettvangi. DV hefur ekki heim­ ildir fyrir því hvaða fyrrverandi starfsmenn Straums voru kærðir en út frá þeim staðreyndum sem liggja fyrir um eðli kærunnar má leiða að því líkur. Ragnhildur Sverrisdóttir, tals­ kona Björgólfs Thors, segist ekki hafa heyrt um kæruna frá Fjármála­ eftirlitinu. Hún segir að embættið hafi ekki haft samband við Björgólf Thor vegna hennar og bætir því við að hann hafi einungis verið boðaður til sérstaks saksóknara sem vitni en ekki sem grunaður maður. Falla óhjákvæmilega undir grun Einn af þeim fyrrverandi starfs­ mönnum Straums sem liggur óhjá­ kvæmilega undir grun í málinu er Bretinn William Fall, fyrrverandi forstjóri Straums. Fall var ráðinn til Straums í lok 2007 og tók þá við af Friðriki Jóhannessyni sem þá hafði gegnt forstjórastarfinu í tæpt ár eftir að Þórður Már Jóhannesson lét af störfum. Í öllum markaðsmisnotk­ unarmálum bankanna fyrir hrun hafa forstjórar þeirra legið undir grun um aðild að brotunum. Þá hafa undirmenn forstjóranna, þeir verðbréfamiðlarar sem sáu um viðskipti með eigin bréf bankanna, einnig legið undir grun en það eru þessir aðilar sem sáu um kaup og sölu á hlutabréfunum sem bankarn­ ir áttu í sjálfum sér. Benedikt Gísla­ son var til dæmis framkvæmdastjóri markaðsviðskipta og eigin viðskipta Straums­Burðaráss. Hann starfar í dag hjá MP Banka. Í sambærilegum málum hinna bankanna hjá sérs­ tökum saksóknara hafa þessir fram­ kvæmdastjórar markaðsviðskipta og eigin viðskipta bankanna alltaf verið meðal þeirra einstaklinga sem eru undir í rannsóknunum. ,,Vísvitandi áhrif“ Heimildarmaður DV segir að kær­ an snúist um umræddan grun: að starfsmenn bankans hafi búið til falska eftirspurn eftir hlutabréfum í Straumi og þar með haft áhrif á verð­ myndun bréfanna. „Þetta snýst allt um að hafa vísvitandi áhrif á verð með hlutabréf í STR með fjölda til­ boða rétt fyrir lokun viðskiptadaga,“ segir hann. Fjölmörg slík markaðsmisnotk­ unarmál hafa verið til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara eftir bankahrunið 2008. Búið er að gefa út ákæru í einu markaðsmisnotk­ unarmáli, al Thani­málinu svokall­ aða sem snýst um sölu Kaupþings á fimm prósenta hlut í bankanum í september 2008. Þá hefur Stím­ málið verið til rannsóknar hjá emb­ ættinu. Auk þess hefur embættið rannsakað mál hjá öllum bönkun­ um sem tengjast viðskiptum bank­ anna sjálfra með eigin bréf á árun­ um fyrir hrun sem talin eru hafa átt að hafa áhrif á verðmyndun bréf­ anna. Í einhverjum tilfellum voru stór viðskipti með hlutabréf bank­ anna fyrir hrun byggð á því að bank­ arnir voru búnir að kaupa svo mikið af hlutabréfum í sjálfum sér að þeir urðu að losa sig við verulegt magn bréfa þar sem fjármálafyrirtæki mega ekki eiga nema ákveðna pró­ sentu af eigin bréfum. Þetta átti til dæmis líklega við um al Thani­við­ skiptin, sem og Stímmálið í Glitni og Imon­málið í Landsbankanum. Viðskipti bankanna sjálfra með eigin hlutabréf og stórar sölur þeirra á eigin bréfum eru því tvær hlið­ ar á sama peningi sem báðar eru til rannsóknar sem lögbrot í einhverj­ um tilfellum. Straumur lánaði ekki með veði í eigi bréfum DV hefur heimildir fyrir því að William Fall hafi sagt, á 120 manna starfsmannafundi hjá Straumi í september 2008, að al Thani­mál­ ið væri eitthvert skýrasta dæmið um markaðsmisnotkun sem hann hefði séð. Fall sagði að í Bretlandi og Bandaríkjunum, þar sem hann starfaði um árabil hjá Bank of Amer­ ica, hefðu eftirlitsaðilar samstundis handtekið stjórnendur banka sem seldi svo stóran hluta í sjálfum sér með láni frá bankanum sem væri með veði í bréfunum. Þá hefur DV einnig heimildir fyrir því að Straum­ ur hafi ekki stundað það að lána fyr­ ir eigin hlutabréfum einungis með veði í bréfunum sjálfum – Fall er sagður hafa talið slíkar lánveitingar vera markaðsmisnotkun. Kæran snýst því ekki um slíka meinta markaðsmisnotkun, líkt og í tilfelli al Thani­viðskiptanna eða Stímsviðskiptanna, heldu um hina gerð misnotkunar: Viðskipti bank­ ans sjálfs með eigin bréf á hluta­ bréfamarkaði á forsendum sem grunur leikur á að hafi ekki verið viðskiptalegar. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Stærsti hluthafinn Björgólfur Thor Björgólfsson var stærsti hluthafi Straums fyrir hrun. Nú hefur sérstök- um saksóknara borist kæra vegna markaðsmisnotkunar bankans. Forstjórinn William Fall var forstjóri Straums frá árinu 2007 og fram að hruni bankans. Kæran mun óhjákvæmilega beinast gegn honum að einhverju leyti. „Þetta snýst allt um að hafa vísvitandi áhrif á verð með hlutabréf Ögmundur og Katrín efst Prófkjör Vinstri­grænna fóru fram í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi um helgina. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra náði fyrsta sætinu naumlega í Suðvestur­ kjördæmi en skammt á eftir hon­ um kom Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og bæjarfulltrúi í Kópavogi. Í þriðja sætinu var Rósa Björk Brynjólfsdóttir sem mun færast upp fyrir Ólaf Þór vegna kynja­ reglu. Í Reykjavík sóttust þrír þing­ menn eftir efsta sætinu. Það voru þau Katrín Jakobsdóttir mennta­ málaráðherra, Svandís Svavars­ dóttir umhverfisráðherra og Björn Valur Gíslason, þingmaður Norð­ austurkjördæmis og formaður fjárlaganefndar. Skemmst er frá því að segja að Björn Valur var afar langt frá settu marki og hafnaði í sjöunda sæti. Þar með er þing­ mennsku hans að öllum líkindum lokið í bili. Katrín hlaut flest atkvæði í fyrsta sætið en Svandís hafnaði í öðru sæti. Þær munu því leiða lista Vinstri­grænna í Reykjavíkur­ kjördæmunum tveimur. Þing­ mennirnir Árni Þór Sigurðsson og Álfheiður Ingadóttir höfnuðu í þriðja og fjórða sæti en afar mjótt var á mununum því Árni Þór hlaut aðeins tveimur atkvæðum meira en Álfheiður. Í Suðurkjördæmi fór ekki fram prófkjör hjá Vinstri­ grænum heldur var framboðslisti sam­ þykktur af kjördæmisráði. Vara­ þingmaðurinn Arndís Soffía Sigurðardóttir mun leiða listann og tekur því stöðu Atla Gíslason­ ar sem yfirgaf þingflokk Vinstri­ grænna á kjörtímabilinu. Rjúpnaskytta í sjálfheldu Björgunarsveitir frá Álftaveri, Skaftártungu og Vík í Mýrdal voru á sunnudagseftirmiðdag kallað­ ar út til aðstoðar manni sem var í sjálfheldu í klettum norðan megin í Rjúpnafelli, austan Mýrdalsjökuls að því er kemur fram í frétta­ tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Maðurinn, sem er rjúpnaskytta, var á ferð með félaga sínum. Sá var staddur neðar í fellinu og þegar honum varð ljóst að aðstoð hans dygði ekki til hringdi hann eftir aðstoð björgunarsveita. Veðr­ ið á svæðinu var þokkalegt. Í tilkynningunni kom jafnframt fram að sjálfhelda í fjöllum og klettum er ekkert gamanmál. Þegar fólk lendir í einni slíkri þurfa björgunarmenn oftar en ekki að nálgast það ofan frá, það er fara ofar í fjallið og síga niður að fólki. Krefst það töluverðrar línuvinnu og traustra festinga. Því þarf yfirleitt nokkurn mannskap í slík verk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.