Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Síða 11
„Ég er dópisti“ Fréttir 11Mánudagur 26. nóvember 2012 n Sveddi tönn segist saklaus og er búinn að áfrýja n Segist bara hafa verið að kaupa sér dóp peningana, alla fangelsisvistina og stóð mig bara með prýði í fangelsinu og stundaði nám, kom fjölda fólks á rétta braut. Svo þegar ég kom úr fangelsinu þá var alveg sama hvort ég fór í banka eða hvert í fjandanum sem ég fór þá voru Dagblaðið, Vísir og alls konar fjölmiðlar búnir að eyðileggja mig og mitt líf. Ég hef vit- anlega kannski eyðilagt líf einhverra ungra krakka sem hafa endilega viljað kaupa dóp. En fjölmiðlar eru búnir gefa afkáralega mynd af mér þannig að ég fæ 22 ára dóm núna,“ segir hann. „Fjölmiðlar ásamt eit- urlyfjum eru búnir að eyðileggja líf mitt eins og ég hef kannski eyðilagt líf margra annarra sem hafa endilega viljað kaupa dóp.“ „Af hverju er þá ekki búið að hirða mig?“ Sverrir neitar því að hafa verið við- riðinn þau smyglmál sem hann hefur verið sagður tengjast á undanförn- um árum. Það hefur verið sagt frá því í fjölmiðlum að hann sé talinn tengj- ast ýmsum smyglmálum frá Brasilíu og Spáni. „Af hverju er þá ekki búið að hirða mig?“ segir hann og segir að lögreglan hafi alla tíð vitað hvar hann hafi haldið til. „Þetta er orðinn svo mikill brandari að það hálfa væri nóg. Það er búið að vera að ljúga því í öllum blöðum að mín hafi verið leit- að úti um allar trissur en Interpol og löggan er búin að vita upp á hár hvar ég er búinn að eiga heima allan tím- ann. Það hefur verið skrifað að ég sé með heilu geymslurnar af eiturlyfj- um hingað og þangað og nefna húsin og ég veit ekki hvað og af hverju er þá ekki löngu búið að hirða mig?“ spyr hann. Segist hættur að sýsla með dóp Aðspurður hvort hann muni þá ekki sækja rétt sinn vegna þessara röngu ásakana sem hann telur sig hafa orðið fyrir segir hann svo ekki vera. „Ég hafði bara hugsað mér að koma sem minnst nálægt Íslandi eins og ég hef bara gert. Ég hef engin tengsl við Ísland, ég hef haldið mest til í Amsterdam, þar er þetta meira og minna leyfilegt.“ Sverrir segist ekki vera hættu- legur. „Er ég hættulegur? Ég myndi ekki segja það, nei. Ég er dópisti. Ef félagar mínir leita til mín og spyrja hvort ég geti reddað dópi þá þekki ég yfirleitt alltaf eitthvert fólk sem á dóp. Að því leytinu til er kannski hægt að kalla mig hættulegan, ég er ekki handrukkari, ég er hættur að sýsla með dóp. Ég á einhverja smá peninga. Íslenska ríkið, það þvoði fyrir mig milljón evrur á sínum tíma. Þegar þeir dæmdu mig fyrir þetta stóra fíkniefnamál þá gerðu þeir upptækar flestar eignirnar mínar og áætluðu á mig fíkniefnagróða upp á einhverjar 30 milljónir. Ég borgaði milljónirnar og fékk allt dótið mitt til baka. Svo þegar ég losnaði út úr fangelsinu þá voru þessar þrjátíu milljónir orðnar 100. Ríkið í raun- inni hreinsaði peningana mína. Ég hef haft það alveg ágætt án þess að vera mikið að smygla dópi eftir það. Ég er enginn engill, ég kem stund- um með puttana nálægt svona hlut- um, redda fólki stundum og svona. Ég er ekki að smygla. Ég nota þetta dóp, það er eiginlega það eina sem ég geri.“ Dópistar verða sér úti um dóp Hann segist þekkja fólk sem smygli því hann sé sjálfur háður eiturlyfj- um og þess vegna tengist hann inn í þennan heim. Hann sé þó ekki tengdur þessum málum sem hann hefur verið sagður tengjast. „Ég skal segja þér satt, ég þekki allt þetta fólk. Ég þekki dópsala og smyglara því ég er dópisti og þegar þú ert dópisti þá verður þú að verða þér úti um dóp. Þannig að ég umgengst margt svona fólk. Og ég á alveg peninga til að dópa þangað til ég drepst. Ég hef gaman af þessu öllu saman. Ef vinir mínir biðja mig um að gera sér greiða þá á ég til að segja já, ég þekki mann sem selur dóp. En ég er ekki að selja dóp eða ég er ekkert að hagnast á eiturlyfjasölu. Ég er vina- legur karl og vinsæll karl, ég þekki mikið af svona fólki,“ segir hann. „Ég er dópisti, nota mikið af dópi, redda stundum vinum mínum en ég er ekki svona hrikalega vondur smyglari eins og talað er um.“ n S verrir Þór Gunnarsson var dæmdur til 22 ára fang- elsisvistar í Brasilíu fyrir skipulagningu á smygli á um 50.000 e-töflum til landsins. Er það um fjórðungur alls þess sem brasilísk tollayfirvöld lögðu hald á í fyrra. Framsalssamningur er ekki í gildi milli Íslands og Brasilíu þannig að Sverrir mun afplána dóminn úti. Hann ætlar að áfrýja en mælst var til þess að hann fengi ekki að ganga laus á meðan dóms væri beðið. Hann flúði frá Spáni eftir að hann fékk níu ára fangelsisdóm þar og var eftirlýstur af spænskum yfirvöldum. Við komuna til Rio de Janeiro gaf Sverrir Þór upp falskt nafn og þótt- ist vera 43 ára Breiðhyltingur. Það var ekki fyrr en brasilískir fjölmiðlar birtu myndir af hinum grunuðu að borin voru kennsl á Sverri. Stóra fíkniefnamálið Sverrir er fæddur árið 1972 en brotaferill hans hófst þegar hann var sextán ára. Næstu árin á eftir hafði lögregla ítrekað afskipti af honum vegna umferðar- og fíkniefnabrota. Smám saman urðu afbrot Sverris skipulagðari og stórtækari og á ár- unum 1991–1995 hlaut hann fjóra dóma fyrir þjófnað, fjársvik og fíkni- efnabrot. Í undirheimum Reykja- víkur var Sverrir ævinlega þekkt- ur undir viðurnefninu Sveddi tönn vegna tannlýtis. Þekktastur er Sverrir líklega fyrir að vera einn höfuðpauranna í Stóra fíkniefnamálinu svokallaða en dómur í því máli féll árið 2000. Þar hlaut hann næsthæsta dóminn í málinu eða sjö og hálfs árs óskil- orðsbundinn fangelsisdóm. Þar að auki voru 20 milljónir gerðar upp- tækar hjá honum. Í dómnum var honum gefið að sök að hafa mót- tekið 105 kíló af kannabisefnum yfir nokkurra mánaða tímabil. Stóra fíkniefnamálið teygði anga sína til Danmerkur, Hollands og Banda- ríkjanna og varðaði innflutning á gífurlegu magni kannabisefna, am- fetamíns, kókaíns og e-taflna. Að auki voru gerðar upptækar hagla- byssur, handjárn, loftrifflar og raf- stuðbyssur. Í kjölfar málsins var einnig dæmt í fyrsta skipti fyrir pen- ingaþvætti fyrir íslenskum dóm- stólum en Sverrir skipulagði það í gegnum kjötvinnslufyrirtækið Rimax. Í Sönnum íslenskum saka- málum kom fram að Sverrir Þór lifði hátt, átti miklar eignir, góða bíla og gekk í dýrum fatnaði. Brasilískar vændiskonur Frá því að Sverrir lauk afplánun á Litla-Hrauni hefur hann búið er- lendis og er sagður umsvifamikill í glæpaheiminum. Íslensk lög- regluyfirvöld hafa lengi grunað Sverri um að standa að baki fíkni- efnasmygli til landsins, en hann hefur haldið tengslum við landið. Hann hefur til að mynda átt fasteignir víða, meðal annars hús í Ármúlanum þar sem lögreglan gómaði hóp af vændiskonum frá Brasilíu sem höfðust þar við árið 2006. Brasilísku stúlkurnar voru kynlífsþrælar og var þeim ekið milli manna sem tilbúnir voru að greiða fyrir afnot af líkama þeirra að því er fram kom í umfjöllun DV 2006. Aldrei var þó ákært í vændismáli tengdu húsnæðinu. Einnig fund- ust fíkniefni á staðnum og íslenskt par sem hélt þar til var sakfellt fyrir fíkniefnainnflutning frá Spáni. Karlmaðurinn var vinur Sverris og hafði leyfi hans til að nota húsið. Félagar Sverris úr Stóra fíkniefnamálinu héldu sumir uppteknum hætti eftir að fangelsis- vistinni lauk. Nokkrir þeirra voru handteknir aftur og dæmdir fyrir kókaínsmygl. Í einu smyglmáli kom fram að smyglarinn hefði millifært tugi milljóna króna til félags í eigu Sverris Þórs í Panama. Smyglarinn sagði í héraðsdómi að greiðslan hefði verið vegna byggingafram- kvæmda í Brasilíu. Verðir með vélbyssur „Á tímabili átti hann rosalega villu í Brasilíu og þarna voru verðir með vélbyssur og sundlaug og allt. Al- gjört glæsihýsi,“ sagði viðmælandi DV í sumar. Nokkrir af félögum Sverris voru sagðir hafa heimsótt hann til Brasilíu á síðustu árum og dvalið þar í góðu yfirlæti. Aðspurður hvort Sverrir hafi lifað hátt sagði heimildarmaður DV að það væri all- ur gangur á því: „Hann tekur svona syrpur, græðir eitthvað, klúðrar ein- hverju, græðir, klúðrar – þetta er svona upp og niður. Stundum hefur hann ekki átt fyrir mat.“ Þá virtist margt benda til þess að Sverrir ætti hatursmenn og væri misvel liðinn í undirheimum hér landi. Samkvæmt heimildum blaðsins mun hann einnig hafa lent í vandræðum í Brasilíu: „Á tímabili var hann kominn í vesen þarna úti, skuldaði hér og þar og gat ekkert verið í Brasilíu.“ Sverrir hefur búið víðar en í Brasilíu, meðal annars á Spáni, í Hollandi og Danmörku. „Sverrir er enginn aumingi, hann er bara á millistiginu og hefur eflaust haft það bara ágætt síðustu árin,“ er haft eftir viðmælandanum. „En hann er nátt- úrulega búinn að étast alveg upp.“ n MargdæMdur glæpaMaður n Hefur hlotið dóma á Íslandi, Spáni og í Brasilíu Hátíð miðað við Brasilíu Fangelsin á Íslandi eru hátíð miðað við fangelsið í Brasilíu þar sem Sverrir er núna. Hann deilir klefa með þrettán föngum og einn sefur á gólfinu. Hann segist þó fljótt hafa tekið yfir bestu kojuna og látið strákana vita að það væri hann sem réð klefanum. Með mútum væri hægt að gera fangelsisvistina bærilega. Skelfilegar aðstæður í fangelsum Brasilíu Nokkrir Íslendingar hafa afplánað fangelsisdóm í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls og eru frásagnir þeirra allar á sama veg: Aðstæður í brasilískum fangelsum eru vægast sagt ömurlegar og sam- kvæmt úttekt Amnesty International eru mann- réttindi þverbrotin í brasilískum fangelsum. Hlynur Smári Sigurðarson var árið 2006 dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Brasilíu er kókaín fannst í fórum hans. Hann greindi frá því hvernig samfangi hans hefði reynt að drepa hann fyrir sígarettu og sagðist ganga með tálgaðan tannbursta á sér ef ske kynni að einhver réðist á hann á ný. Hlynur deildi þar tveggja manna klefa með tíu föngum og fékk ekkert nema myglað brauð og ormafullt vatn sér til næringar. n Gekk með tálgaðan tannbursta á sér til að verjast árásum „Mér finnst voða gott að fá mér kók í nefið, ég er alveg sjúk- ur í þetta. En ég er ekki að hagnast á eiturlyfjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.