Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Side 13
Erlent 13Mánudagur 26. nóvember 2012
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
n Fjörutíu mínútur voru liðnar af vopnahléi þegar 15 ára drengur var myrtur
Á
stralski kolabaróninn Nathan
Tinkler varð á fáeinum árum
ríkasti maður undir fertugu í
Ástralíu. Fyrir níu árum starf-
aði hann sem rafvirki, fyr-
ir hálfu ári var auður hans metinn á
um 150 milljarða króna. Nú virðist
sem hið mikla veldi, sem hann hafði
byggt upp á svo skömmum tíma, sé
að hruni komið. Áhættufíknin sem
kom honum svo langt virðist vera að
steypa veldinu í glötun.
Áhættusækinn
Tinkler hóf ferilinn á táningsárun-
um, þá starfaði hann sem rafvirki í
kolanámu norðan við Sydney-borg í
Ástralíu. Tvö hundruð þúsund króna
mánaðarlaun heilluðu ekki og vann
hann því jafnt og þétt að því að stofna
sitt eigið fyrirtæki.
Tuttugu og sex ára að aldri átti
hann félag sem sá um viðhald á véla-
búnaði í kolanámum, og gekk allt
vel. En Tinkler stefndi hærra. Fjórum
árum síðar, árið 2006, lagði hann allt
í sölurnar – fékk 120 milljóna króna
lán út á heimili sitt og fyrirtæki og
landaði samningi um leigu á kola-
ríku landi, gegn því að útvega 3,6
milljarða frá fjárfestum.
Gæfan var honum hliðholl
„Ég drap á hverjar dyr í Ástralíu og
reyndar margar erlendis til þess að
safna þessum fjármunum. Loks tókst
það,“ sagði hann við CNBC árið 2010.
Honum tókst að laða fjárfesta að
þegar fyrstu niðurstöður komu úr
borununum; fundust höfðu kol, og
mikið af þeim.
Gæfan var honum enn hliðholl –
næstu tvö árin tvöfaldaðist heims-
markaðsverð á kolum og honum
tókst að selja hlut sinn í félaginu sem
sá um rekstur kolanámunnar á 34,5
milljarða árið 2008 – gegn því að fá
tíu prósenta hluta í kaupfyrirtækinu.
Enn hækkaði verðið á kolum og því
seldi hann einnig tíu prósenta hlut
sinn í kaupfyrirtækinu með miklum
ágóða.
Kaupæði
Þá gekk kaupæði á Tinkler. CNN
greinir frá því að hann hafi keypt fót-
boltalið, rúbbílið, veðhlaupahesta-
ræktun og ýmsar eignir – einkaþotu,
glæsivillu og stofnað svo sitt eigið
námufyrirtæki – Aston Resources árið
2010.
Fyrirtækið var hans mikla von um
frekari auðæfi, það sameinaðist síð-
ar kolafyrirtækinu Whitehaven Coal.
En kolaverð fer nú lækkandi og sam-
kvæmt spám verður það nú í janú-
ar næstkomandi orðið svipað því sem
var árið 2006 – þegar það hóf að hækka
hratt og raunar tvöfaldaðist. Helsta
tekjulind hans er kolafyrirtækið.
Dökkar blikur
Í dag er Tinkler 36 ára og skuldar 80
milljarða. Á sama tíma er auður hans
metinn á 50 milljarða króna. Skuld-
irnar fara sífellt hækkandi enda
fer eftirspurn eftir kolum minnk-
andi og verðið einnig. Þann 20.
nóvember fór hans persónulega
eignarhaldsfélag í þrot og einka-
þota hans hefur verið tekin upp
í skuldir. Það var einnig gert við
hrossaræktarveldi hans.
Hunter Sports Group, félagið
sem sér um íþróttafélögin hans, á
í vandræðum með að borga laun
leikmanna tveggja stærstu félaga
hans, og hafa ekki getað greitt leigu
á leikvöngum sínum. En þessa dag-
ana býr Tinkler í Singapúr ásamt
fjölskyldu sinni, en er varla á flæði-
skeri staddur enda með Porcshe-
bíl í innkeyrslunni. En víst er að
viðskiptaveldi hans riðar á fótun-
um. n
n Áhættusækinn kolabarón lagði allt í sölurnar n Gæfan greiddi leið hans
Kolaveldið
riðar til falls
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Uppboð Veðhlaupahestar í
eigu Tinklers hafa verið seldir á
brunaútsölu upp í skuldir.
Áhættusækinn Nathan Tinkler lagði
allt í sölurnar til að verða ríkur. Gæfan
brosti við honum og hann varð einn ríkasti
maður Ástralíu.
Stórbruni
banar verka-
mönnum í
Bangladess
Að minnsta kosti 110 létust í
eldsvoða sem kom upp í fata-
verksmiðju í Daka, höfuðborg
Bangladess. Verksmiðjan var á níu
hæðum og slökkviliðsmenn voru
um fimm tíma að ráða niðurlög-
um eldsins.
Þegar eldurinn kom upp á
fyrstu hæð hússins flúðu margir
starfsmenn verksmiðjurnar upp
á efstu hæðina og sátu þar fastir.
Margir létust þegar þeir köst-
uðu sér út um glugga til þess að
flýja eldslogana. Eldsupptök má
rekja til skammhlaups í rafmagn-
inu en rannsókn stendur yfir á
orsökum þess. Samkvæmt frétta-
manni Al Jazeera eru slík atvik
alls ekki óalgeng á svæðinu. Frá
árinu 2006 hafa 600 einstaklingar
dáið vegna eldsvoða og skorts á
öryggi í yfirfullum verksmiðjum. Í
Bangladess eru um 4.500 starfandi
verk smiðjur sem framleiða með-
al annars fatnað fyrir fyrirtæki á
borð við H & M, Tesco, Wal-Mart,
JC Penny, Marks og Spencer og
Kohl‘s. Tískufatnaðurinn nemur
um 80 prósentum af útflutnings-
tekjum þjóðarinnar.
Þá segir fréttamaður Al Jazeera
að samkvæmt verkalýðsfélög-
um séu verksmiðjurnar ekki með
sama öryggi fyrir starfsmenn sína
og vestræn fyrirtæki alla jafna
krefjist. „Ef þú talar við fram-
leiðendur segjast þeir vera und-
ir þrýstingi um að framleiða eins
mikið af fötum með eins litlum
tilkostnaði og hægt er,“ segir hann.
„Undir slíkum kringumstæðum
er öryggið ekki alltaf sett í fyrsta
sætið.“