Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.2012, Qupperneq 18
Hollustan
sett í jóla-
baksturinn
Nú gætu einhverjir verið farnir
að huga að jólabakstri og farnir
að líta á girnilegar smáköku-
uppskriftir. Þeir sem vilja gæta
að hollustunni geta auðveldlega
breytt uppskriftunum svo góð-
gætisins sé hægt að njóta með
betri samvisku.
1 Minni sykur Það má alltaf minnka sykurmagn um
helming án þess að það komi að
sök. Venjulega er óhóflega mikið
af sykri í smákökuuppskriftum.
Notið agave-síróp eða stevía-
sætuefni í stað sykurs.
2 Minna af hvítu hveiti Notið spelt eða heilhveiti,
hrísmjöl, maísmjöl, kókosmjöl,
möndlumjöl, kjúklingabauna-
mjöl eða bókhveiti. Möguleikarn-
ir eru miklu fleiri en þú heldur.
Prófaði þig áfram.
3 Olía eða mauk í stað smjörs Jú, það má skipta
út smjörinu og þá sérstaklega
smjörlíkinu, sem er afar óhollt,
fyrir góðar og hollar kaldpress-
aðar olíur. Til að minnka fitu má
einnig nota mauk, epla- eða ban-
anamauk, jafnvel barnamauk úr
krukkum.
4 Minna af eggjarauðu Ef þið viljið draga úr óæski-
legu kólesterólmagni í eggjarauð-
um er hægt að notast eingöngu
við eggjahvíturnar. Tvær eggja-
hvítur eru notaðar í staðinn fyrir
eitt egg.
Ráð gegn 5 hvim-
leiðum kvillum
18 Lífsstíll 26. nóvember 2012 Mánudagur
Skera tærnar af
n Nýjasta trendið í fegrunaraðgerðum
U
pp með hönd sem á glæsi-
lega hælaskó inni í skáp
sem aldrei eru notaðir.
Samkvæmt Times of India
eru dæmi um að konur gangi svo
langt til að passa í þokkafulla skó
í rétta númerinu að þær hreinlega
láti skera af sér tærnar. Aðrar velja
að láta lækni sprauta efni undir il-
ina á sér til bólstrunar og þæginda.
Dr. Nathan Lucas, fótsnyrtir í
Memphis, hefur unnið við slíkar
„fegrunaraðgerðir“ síðustu 15 árin
og segir æ fleiri konur velja þenn-
an kost. Síðasta árið hafi hann
fengið 30 konur til sín á skurðar-
borðið. Sjálfur finnst honum kon-
ur ganga of langt þegar þær vilja
láta fjarlægja heila tá til að komast
í skó. „Það er svolítið ýkt. Ég sker
tærnar ekki af nema það sé algjör
nauðsyn. En ef konurnar eru fastar
á sínu sendi ég þær áfram til lækn-
is sem ég veit að er til í það.“
Einn skjólstæðinga Lucasar
biður fólk að dæma sig ekki. „Ef
þú þekkir ekki þetta vandamál
skilurðu það ekki. Ef þú kannast
ekki við að finna þér skó og ef þú
finnur ekki stanslaust til þegar þú
treður þér í skó skaltu ekki dæma
mig.“
Margir eru eflaust á því að kona
í háum hælum sé glæsilegri en
kona í flatbotnaskóm en það er
spurning hversu langt skal ganga
fyrir útlitið. Fyrir utan það hversu
undarlega útlits fæturnir eru eftir
slíkar „viðgerðir“.
Hælaskór Fallegir
en ekki þeir þægi-
legustu.
n Vissir þú að melónur og gúrkur valda vindgangi? n Þurrt fæði gegn ógleði
Þ
jáist þú af hægðatregðu er
fyrsta skrefið að auka neyslu
á grófu heilkorni, borða
meira af grænmeti og ávöxt-
um og drekka meira af vatni.
Ef þú drekkur nægilega mikið af
vatni er heldur ólíklegt að þú þjáist af
hægðatregðu. Drekktu átta glös á dag
og bættu hreyfingu við lífsstíl þinn.
Niðurgangur
Bananar, hrísgrjón, eplamauk og
ristað brauð. Mundu þessar fæðu-
tegundir næst þegar þú þjáist af
þessum afskaplega hvimleiða kvilla.
Allt kolvetnaríkar fæðutegund-
ir sem líkaminn þarf ekki að reyna
mikið á sig til að vinna úr. Munið að
halda áfram að drekka mikið af vatni
en bætið við orkudrykk á borð við
Gatorade til þess að bæta upp stein-
efnatap.
Ógleði
Til að muna hvaða fæðutegundir
róa órólegan maga, hugsið þá hvað
læknar sjóveiki. Þurrt land! Þurr
matur á borð við saltkex. Morg-
unkorn án mjólkur, ristað brauð
virkar vel gegn ógleði. Heldur til-
breytingalaust fæði en virkar vel.
Vindgangur
Því miður þá er það svo að nær-
ingarríkasti og hollasti maturinn á
það til að valda vindgangi. En það
má reyna að borða ekki alla skað-
valdana saman á einum degi: Baun-
ir, spergilkál, blómkál, rósakál, kál,
melóna, eggaldin, paprika og gúrka
eiga það til að valda vindgangi. Það
kemur síðan á óvart að frosin jógúrt
veldur miklum vindgangi og minna
kemur á óvart að gos valdi smá-
sprengingum út um óæðri endann.
Mestu prumphænsnin geta reynt að
drekka piparmintu-, kamillu- eða
engiferte og tyggja anís eða fennel-
fræ.
Brjóstsviði
Þeir sem lifa á ljóshraða eiga það til
að fá brjóstsviða. Þeir gera allt hratt,
tyggja hratt, drekka hratt og hugsa
hratt og það veldur óþægindum.
Reynið að taka meiri gæðatíma í
að borða og þeir sem eiga við veru-
leg vandræði að stríða geta prófað
að sleppa alkóhóli, tei, kaffi, gosi,
súkkulaði, súrum söfum, tómatsós-
um, piparmintu og krydduðum
mat. n
Prumphænsn athugið
Þótt hollt sé getur kálið
valdið vindgangi.
Þurrt fæði Til að muna hvaða fæðutegundir róa órólegan maga, hugsið þá hvað læknar
sjóveiki. Þurrt land! Þurr matur virkar ágætlega á ógleðina.