Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað
m.dv.is
Lestu fréttir DV í farsíman
um þínum!
Græðir en
fær afskrifað
Eignar-
haldsfélagið
Fjörur ehf., sem er
í eigu útgerðarfyr-
irtækisins Skinn-
eyjar-Þinganess
á Höfn í Horna-
firði, á eignir upp
á um 5,5 millj-
arða króna. Annað
dótturfélag Skinneyjar-Þinganes,
Nóna ehf., fékk afskrifaða 2,6 millj-
arða króna af skuldum sínum við
Landsbankann. Skinney-Þinganes,
og þar af leiðandi Nóna, er fjölskyldu-
fyrirtæki Halldórs Ásgrímssonar,
fyrrverandi formanns Framsóknar-
flokksins. Á sama tíma og Skinney-
Þinganes fékk 2,6 milljarða afskrifaða
í einu dótturfélagi, á annað dóttur-
félag þess eignir upp á meira en fimm
milljarða.
Léttist og
græddi fúlgur
Hrönn
Harðardótt-
ir, 47 ára banka-
starfsmaður og
hjólreiðakappi,
hefur farið allra
sinna ferða á
reiðhjóli frá árinu
2008. Ástæða
þess að Hrönn
ákvað að hefja hjólreiðar var sú að
hún var í slæmu líkamlegu formi, að
eigin sögn. „Ég hef núna hjólað allt
sem ég fer í þrjú ár,“ sagði Hrönn í
DV á miðvikudag. Hrönn segist finna
mikinn mun á líkamlegu formi ár
frá ári og að hún komist í sífellt betra
form. Nú sé svo komið að hún sé
meðlimur og stjórnarmaður í Fjalla-
hjólaklúbbnum, sem sé skemmti-
legur félagsskapur fyrir hjólreiðafólk
af öllu tagi.
Auðmaður pantaði
kraftajötna
Rússneskur
auðmaður
pantaði aflrauna-
sýningu frá þekkt-
um íslenskum
kraftajötnum þeg-
ar hann var stadd-
ur hér á landi árið
2008. Auðmað-
urinn dvaldi á
bænum Hofsstaðaseli, nýuppgerðum
torfbæ, í Skagafirði ásamt konu sinni
og fylgdarliði og vildi ólmur sjá ís-
lenska aflraunamenn leika listir sínar.
Kraftajötnarnir Hjalti Úrsus Árnason,
Auðunn Jónsson og Kristinn Óskar
Haraldsson, betur þekktur sem Boris,
fóru norður í Skagafjörð til fundar
við manninn. Hjalti og félagar sýndu
auðmanninum hefðbundnar aflraun-
ir sem þekktar eru af mótum eins og
Vestfjarðavíkingnum.
Fréttir vikunnar í DV
BANKARNIR LÁTA
ÍSLAND STAÐNA
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 19.–20. septem
ber 2011 mánudagur/þriðjudagur
10
7.
t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
FjölskylduFyrirtækið á grænni grein
græðir
en Fær
2–3
n Fékk samt afskrifaðar skuldir hjá Nónu
n Halldór Ásgrímsson
og fjölskylda urðu rík af
stjórnmálaákvörðunum hans
n Lumar á fimm milljörðum
eftir einkavæðingu VÍS
AFskriFAð
Ólafur Ólafsson auðjöfur missir líklega eignir
Ánægður með Ísland
Stórskuldugur
og í vanda
með Granda
Ben Stiller
drakk tekíla
Kveikti í
sér vegna
skulda
Grikkland
Hestaníðingurinn
Sækir
í gæfar
hryssur
30 ætla
í mál við
Keili
4
10–11
4
8
22
6
13
Lýðræðið
aukið
í sveitar-
félögum
Stöðnun fram undan ef ekki
verða afskrifaðar skuldir
6 | Fréttir 21. september 2011 Mi
ðvikudagur
17 ára drengur ákærður fyrir þátt sinn í meintri frelsissviptingu:
Þriðji aðilinn neitar sök
Önnur fyrirtaka í Black Pistons-
málinu fór fram í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag, en þriðji
maðurinn hefur verið ákærður fyr-
ir aðild sína í því. Hann er fæddur
1994 og er því aðeins 17 ára. Þurftu
allir sakborningar að taka afstöðu til
ákærunnar. Ríkharð Davíð Ríkharðs-
son og Davíð Freyr Rúnarsson neit-
uðu sök sem og maðurinn ungi.
Ungi maðurinn er ákærður fyr-
ir sinn þátt í meintri frelsissviptingu
fórnarlambsins og fyrir hótanir í
hans garð. Eins og áður hefur komið
fram eru Davíð Freyr og Ríkharð Júl-
íus ákærðir fyrir frelsissviptingu og
hrottalega líkamsárás sem á að hafa
staðið yfir í tæpan sólarhring.
Ungi maðurinn kom seinna inn
í réttarsalinn en Davíð Freyr og Rík-
harð og kallaði Ríkharð til hans og
benti honum með handahreyfing-
um á að koma og tala við sig. Hvort
Ríkharð hafi náð að hvísla ein-
hverju að honum áður en dómari
og saksóknari stöðvuðu hann skal
ósagt látið. Erfitt hefur verið að hafa
uppi á manninum unga og hafði því
lögmaður hans, Björgvin Jónsson
héraðsdómslögmaður, ekki haft
tækifæri til að ræða við skjólstæð-
ing sinn. Þeir viku úr dómsal áður en
hann tók afstöðu til ákærunnar. Þeg-
ar ungi maðurinn kom inn aftur fóru
Ríkharð og Davíð Freyr úr dómsal,
en áður hafði saksóknari farið fram
á það vegna ungs aldurs mannsins.
Eftir að ungi maðurinn hafði neit-
að sök var hann einnig beðinn um
að taka afstöðu til fíkniefnaákæru.
Hann neitaði einnig sök í því máli.
Hann talaði lágt og óskýrt og þegar
dómari spurði hvort hann hafi neit-
aði sök sagði hann: „Klárlega. Þetta
voru engin fíkniefni, þetta var syk-
ur. Og þetta voru 4 grömm ekki 8,9
grömm.“
Aðalmeðferð málsins fer fram 12.
október næstkomandi.
hanna@dv.is
Tveir sakborninga Davíð Freyr Rúnarsson og Ríkharð Júlíus Ríkharðsson á leið fyrir dóm.
R
ússneskur auðmaður pant-
aði aflraunasýningu frá
þekktum íslenskum krafta-
jötnum þegar hann var
staddur hér á landi árið
2008. Auðmaðurinn dvaldi á bæn-
um Hofsstaðaseli, nýuppgerðum
torfbæ, í Skagafirði ásamt konu sinni
og fylgdarliði og vildi ólmur sjá ís-
lenska aflraunamenn leika listir sín-
ar. Meðal þekktra gesta sem gist hafa
Hofsstaðasel í gegnum tíðina eru
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, og dóttir Elísabetar Bretlands-
drottningar, Anna.
Kraftajötnarnir Hjalti Úrsus Árna-
son, Auðunn Jónsson og Kristinn
Óskar Haraldsson, betur þekktur
sem Boris, fóru norður í Skagafjörð
til fundar við manninn. „Við vorum
bara kallaðir til, pantaðir skilurðu.
Hann borgaði vel fyrir þetta og það
var einhver ferðaskrifstofa sem græj-
aði þetta. Við keyrðum bara upp eftir
með tæki og tól,“ segir Hjalti Úrsus.
Sagan segir að kveikjan að heim-
sókn jötnanna hafi verið sagan af
Gretti Ásmundarsyni hinum sterka.
Grettir dvaldi útlægur í Drangey á
Skagafirði síðustu þrjú ár ævi sinnar,
samkvæmt Grettissögu, þar til hann
var loks veginn í eynni árið 1031.
Drangey er sýnileg úr túninu á Hof-
staðaseli og blasti því við rússnesku
gestunum.
Rússinn og Grettir
Grettir þótti manna sterkastur og eru
við hann kenndir á íslenskri tungu
Grettistök og Grettishöf – feiknamikl-
ir steinar sem geta vegið allt að tíu
tonnum – sem hann á að hafa getað
lyft. Sagan segir að Rússinn auðugi
hafi heyrt söguna af Gretti og hrifist
svo mjög af henni að hann hafi spurt
hvort slíkir menn sem hann væru enn
til á Íslandi. „Sagan af Gretti er ekkert
ólíkleg því Drangey blasir hérna við
okkur á miðjum firði, beint fyrir fram-
an okkur,“ segir íbúi í sveitinni þegar
sagan um kveikjuna að aflraunasýn-
ingunni er borin undir hann.
Gestgjafar þeirra munu þá hafa
sagt að Íslendingar væru meðal
fremstu þjóða heims á sviði aflrauna
og hefðu unnið keppnina Sterkasti
maður heims í nokkur skipti. Þá mun
Rússinn hafa spurt hvort möguleiki
væri á því að sjá slíka Grettismaka
sýna krafta sína.
Hjalti Úrsus og félagar hans voru
því kallaðir til frá Reykjavík enda
munu gestgjafar Rússans hafa viljað
flest fyrir hann gera til að gera dvöl
hans í Skagafirði sem ánægjulegasta.
Sýndu bændagöngu
Hjalti og félagar hans sýndu auð-
manninum hefðbundnar aflraunir
sem þekktar eru af mótum eins og
Vestfjarðavíkingnum og öðrum slík-
um. Sýningin fór fram á hlaðinu við
torfbæinn í Hofstaðaseli. „Við vorum
með svona klukkutíma atriði. Þetta
tókst mjög vel og var skemmtilegt.
Við sýndum bændagöngu, lyftum
kúlusteinum, tókum helluburð og
annað slíkt,“ segir Hjalti Úrsus.
Upphaflega sagan hljómaði
þannig að um hefði verið að ræða
rússneska auðmanninn Roman
Abramovich, sem meðal annars á
knattspyrnufélagið Chelsea, og að
íslensku kraftakarlarnir hefðu farið
norður í Skagafjörð með þyrlu sem
send hafi verið eftir þeim. Svo var þó
ekki og sýnir þetta mishermi hvern-
ig slíkar flökkusögur taka gjarnan
á sig ýktar myndir: Auðmaðurinn
var rússneskur en ekki hinn heims-
frægi Abramovich og Hjalti og félagar
hans keyrðu norður en fóru ekki með
þyrlu.
Engin 370 kíló í réttstöðulyftu
Nafnið á rússneska auðmanninum
liggur ekki fyrir eftir athugun DV
á málinu þótt ljóst sé að ekki hafi
verið um Abramovich að ræða. „Ég
kannast ekki við að þetta hafi verið
Abramovich. Ég man ekki nafnið á
honum; hefði hann getað eitthvað í
kraftlyftingum þá hefði ég örugglega
munað það. En hann var bara venju-
legur maður fyrir mér, einhver Jón
Jónsson. Ef hann hefði átt 370 kíló í
réttstöðulyftu þá hefði ég örugglega
munað nafnið hans,“ segir Hjalti Úrs-
us.
Rússinn dvaldi í góðu yfirlæti í
Skagafirði í nokkra daga og fór með-
al annars í laxveiði, reiðtúr og fleira
í þeim dúr auk þess sem hann sá
nokkra sterkustu menn landsins
taka á því með Drangey í baksýn og
væntanlega Grettissögu í huganum.
n Rússneskur auðmaður fékk aflraunasýningu í Skagafirði n Helluburður sýnd-
ur á bæjarhlaðinu n Grettissaga sögð kveikjan að áhuga Rússans á aflraunum„Við sýndum
bændagöngu, lyft-
um kúlusteinum, tókum
helluburð og annað slíkt.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Sýndu auðmanni
aflraunir í Skagafirði
Drangey og Grettir Sagan af Gretti sterka og Drangey
mun hafa kveikt áhuga rússneska auðmannsins á
íslenskum aflraunamönnum. Þrír þekktir kraftajötnar
sýndu rússneska auðmanninum aflraunir í Skagafirði.
Hjalti Úrsus Árnason var einn þeirra. MynDin ER SaMSETT
Sjötugur
stunginn
Karlmaður um sjötugt var stunginn
með hnífi í húsi í miðborginni síð-
degis á mánudag. Árásarmaðurinn,
sem er nokkru yngri, var handtek-
inn á staðnum og vísaði á hnífinn,
sem var haldlagður af lögreglu. Að
sögn lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu var sá sem var stunginn
fluttur á slysadeild til aðhlynningar
en meiðsli hans voru ekki talin vera
alvarleg.
Segir
málshöfðun
óskiljanlega
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, sagði,
í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 á
þriðjudag, skaðabótamál slitastjórn-
ar bankans á hendur sér algjörlega
óskiljanlegt. Sagði Sigurjón að ein-
hver í Landsbankanum hlyti að hafa
framlengt 19 milljarða króna lán til
Straums eftir að hann fór úr bank-
anum eða tekið ákvörðun um að
innheimta ekki lánið. Hinn 30. sept-
ember 2008, viku fyrir hrun, gerðu
Landsbankinn og Straumur, sem þá
voru í eigu sömu aðila, samning um
lánalínu. Tveimur dögum síðar, eða
2. október, dró Straumur 19 millj-
arða króna á þessa lánalínu án þess
að veita tryggingar fyrir lánveiting-
unni. Það er meðal annars á þessari
forsendu sem slitastjórn bankans
hefur höfðað skaðabótamál á hend-
ur Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri
J. Kristjánssyni, fyrrverandi banka-
stjórum bankans.
Hitti goðið
Andri Heiðar Ásgrímsson hitti
átrúnaðargoð sitt, Josh Groban, í
Kaupmannahöfn á laugardaginn.
Það var röð tilviljana sem réð því að
Andri fékk þetta einstaka tækifæri
til þess að spjalla við Groban. Andri
sagði söngvaranum meðal annars
frá því hvernig tónlist þess síðar-
nefnda hefði haft áhrif á fjölskyldulíf
hans alla tíð. Tónlist Josh Groban var
í miklum metum á heimili Andra, en
uppáhaldslag föður hans var „You‘re
Still You“. Þegar faðir hans féll síðan
frá fyrir níu árum var lagið meira að
segja spilað af geisladiski í jarðar-
förinni. Saga Andra hreyfði svo við
söngvaranum, að hann sagði af sam-
tali þeirra á tónleikum sem hann
hélt í Kaupmannahöfn á sunnu-
daginn og bað hann Andra að segja
2.000 áheyrendum söguna sjálfur,
sem hann og gerði. „Þetta var mjög
óraunverulegt og ég fæ enn gæsa-
húð,“ sagði Andri alsæll í samtali
við DV.
w
w
w
. d
v
. i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
21.–22. september 2011 Miðvikudagur/fiMMtudagur
10
8
. t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Missti
30 kíló
og græddi
hálfa
milljón
Ávinningur af breyttum ferðamáta
n Hrönn fer allra sinna ferða á reiðhjóli
n Bíllinn kostar milljón á ári 14–15
4
„Ég byrjaði að
hjóla til að
reyna að létta mig
Halldór Ásgrímsson
3
2–3
Hefur
beðið í
viku eftir
töskunum
frá Iceland
Express 4
Græddi
milljónir en
segist ekki
hafa vitað af því
„Ég erfði
lítinn
hlut hlutabréfa
Bjarni Ármanns
á 4,4 milljarða 22
Linda
missir
10 kíló
Of fátæk
til að
ættleiða
með 839 þúsund
á mánuði
Auðmaður
pantaði
kraftajötna
„Skemmtilegt,“ segir Hjalti Úrsus 6
m
y
n
d
g
u
n
n
a
r
g
u
n
n
a
r
ss
o
n
1 2 3
I
ngólfur Marteinn Jones fór
ásamt 14 ára dóttur sinni á
Ljósanótt í Reykjanesbæ. Eft-
ir flugeldasýninguna komu þau
við í 10–11 á leiðinni heim og
keyptu sér gos að drekka. Dóttir Ing-
ólfs Marteins fékk sér Mix í hálf lítra
flösku en brá heldur betur í brún
þegar hún fékk sér fyrsta sopann.
„Stelpan tók sopa af gosinu í Mix-
flöskunni og kúgaðist og kúgaðist.
Hún sagði við mig að það væri eitt-
hvað í flöskunni – að þetta væri ekki
Mix. Ég hélt að þetta væri eitthvert
bull í henni og tók sopa. Þá var þetta
alveg þrælblandað af áfengi,“ segir
Ingólfur Marteinn ósáttur.
Hætt að drekka Mix
Hann fór með flöskuna upp í Öl-
gerð þar sem innihaldið var rann-
sakað. Niðurstöður leiddu í ljós að
gosið var blandað áfengi. Dóttir Ing-
ólfs Mart eins er sem fyrr segir að-
eins 14 ára og hafði aldrei smakkað
áfengi fyrir þetta atvik. „Hún hefur
aldrei drukkið áfengi og þess vegna
er ég svona ósáttur. Hún er líka á lyfi
sem varhugavert er að blanda saman
við áfengi, sama í hvaða magni er og
getur verið hættulegt,“ segir Ingólf-
ur Marteinn. Dótturinni var brugðið
eftir atvikið og var hún ósátt við að
hafa bragðað áfengi gegn sínum vilja.
Marteinn segir hlæjandi að hún sé að
minnsta kosti hætt að drekka Mix.
Ingólfur Marteinn segist ósáttur
við viðbrögð Ölgerðarinnar og 10–
11 verslunarinnar en honum fannst
málið ekki litið nógu alvarlegum
augum. „Við fengum hálfan lítra af
pepsí og appelsíni frá Ölgerðinni, en
10–11 búðin bauð okkur læri. Mér
fannst þeir alveg gleyma að taka til
greina að við erum að tala um barn.“
Mikilvægt að athuga innsigli
Hann vildi að starfsmenn verslunar-
innar færu yfir upptökur úr öryggis-
myndavélum í von um að sjá hvern-
ig gat staðið á því að áfengisblandað
gos væri til sölu í búðinni. „Ég vildi
að þeir athuguðu hvort þeir gætu séð
hvernig þetta atvikaðist með því að
skoða upptökur úr myndavélum sem
eru þarna inni, en þeir eru með tvær
myndavélar sem ná akkúrat yfir þetta
svæði. Þegar ég kom seinna til að
athuga hvort þeir hefðu séð eitthvað
á upptökunum, þá fékk ég þau svör
að það væri svo erfitt að fara yfir upp-
tökurnar. Samt var ég með nákvæma
tímasetningu yfir hvenær ég keypti
flöskuna. Mér finnst eins og enginn
taki þetta alvarlega en ég vil brýna
fyrir fólki að vera vakandi, því að
þetta gæti komið fyrir aftur. Athugið
innsigli vörunnar því þetta getur ver-
ið stórhættulegt. Þessi litla saklausa
flaska hefði til dæmis getað farið til
óvirks alka. Það hefði getað haft al-
varlegar afleiðingar í för með sér.“
Á ábyrgð óprúttinna aðila
„Við höfum farið yfir þetta hjá okk-
ur og eina skýringin sem við finnum
er að einhverjir óprúttnir aðilar hafi
gert það að leik sínum að setja áfengi
í flöskuna, skrúfa tappann á aftur og
setja upp í hillu aftur,“ segir Árni Pét-
ur Jónsson, forstjóri 10–11 búðanna.
„Við höfum beðið viðkomandi aðila
afsökunar og þykir þetta leitt þó svo
að það sé lítið sem við hefðum getað
gert. Við buðum honum gjafakörfu
og höfum farið yfir myndir úr örygg-
ismyndavélum. En það er fjöldi fólks
inni í búðinni á þessum tíma, og
erfitt að greina á milli einstaklinga.
Þetta er einstakt tilvik og hefur ekki
gerst áður.
Ekki gerst innan Ölgerðarinnar
,,Það er ekki möguleiki að áfengi hafi
komist í gosdrykk við framleiðslu
hjá Ölgerðinni þar sem ekkert sterkt
áfengi er framleitt eða geymt í húsinu
eða nálægt því. Eins er framleiðslu-
línan lokuð og því ekki möguleiki að
eiga við vörurnar við framleiðslu,“
segir Erla Jóna Einarsdóttir, aðstoðar-
maður forstjóra Ölgerðarinnar. „Það
kann hins vegar að vera ástæða af
þessu tilefni að brýna fyrir neytend-
um að ganga úr skugga um að innsigli
séu órofin á vörum sem teknar eru úr
hillum í verslunum. Okkur þykir leitt
að stúlkan skyldi lenda í þessu. Við
vitum ekki hvernig það gerðist en það
eina sem við getum verið fullviss um
er að varan fór ekki svona frá okkur,“
segir Erla Jóna.
Áfengt Mix í 10–11
n Faðir ósáttur eftir að 14 ára dóttir hans keypti áfengisblandað gos í 10–11
n Vill brýna fyrir fólki að athuga innsigli á vörum n Ósáttur við viðbrögð 10–11„Stelpan tók sopa
af gosinu í Mix-
flöskunni og kúgaðist og
kúgaðist.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Greidd skuld
er glatað fé“
„Fjölmargt fólk sem tók þá afstöðu
að reyna að standa í skilum upp-
lifir nú stöðu sína á þann veg að það
hafi gert mikil mistök.“ Þetta segir
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, um vaxandi
fjölda einstaklinga á vanskilaskrá.
Rúmlega 25 þúsund manns eru nú á
vanskilaskrá og hefur þeim fjölg-
að um níu þúsund frá hruni, sam-
kvæmt upplýsingum sem Kristján
Þór birtir á bloggsíðu sinni. Hann
segir að ýmislegt bendi til þess að
sífellt fjölgi í þeim hópi sem lítur svo
á að greidd skuld sé glatað fé.
„Nú berast fréttir af því að lána-
stofnanir vinni að ,,leiðréttingu“
lána einstaklinga sem hættu að
greiða afborganir af íbúðarlánum
sínum í kjölfar hrunsins. Sumir
höfðu einfaldega engin efni til þess
meðan aðrir tóku þá afstöðu strax
við hrunið haustið 2008 að það þjón-
aði engum tilgangi að borga, þessi
hópur leit svo á að greidd skuld væri
glatað fé,“ segir Kristján Þór og bætir
við að þeir sem tóku þá afstöðu að
reyna að standa í skilum muni áfram
bera þyngstu byrðarnar.
Betri aðstaða
fyrir Eyjamenn
Bæjarstjórn Vestmannaeyja sam-
þykkti á fundi sínum á miðvikudag
að bærinn legði sitt af mörkum til að
bæta áhorfendastæði við Hásteins-
völl. Knattspyrnusamband Íslands
gerir ákveðnar kröfur til áhorfenda-
stæða í efstu deild og miðað við þær
kröfur taldi bæjarstjórn að ÍBV yrði
ekki heimilt að spila heimaleiki liðs-
ins á Hásteinsvelli næsta sumar. ÍBV
er eitt besta knattspyrnulið landsins
og er í harðri baráttu við KR um Ís-
landsmeistaratitilinn. „Bæjarstjórn
lítur svo á að með aðkomu að þessu
máli upp á 10 milljónir sé bæjarfélag-
ið á rausnarlegan máta að koma til
móts við kröfur sérsambands á hend-
ur aðildafélags,“ segir í bókun bæjar-
ráðs frá því á fimmtudag.
Var brugðið
Ingólfur segir að dóttur sinni hafi verið
verulega brugðið og verið ósátt við að
hafa smakkað áfengi gegn vilja sínum.