Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 21
Erlent | 21Helgarblað 23.–25. september 2011 Hvers vegna notar þú Rautt Eðal Ginseng? Sigurbjörn, hestamaður: Til að ná árangri og svo er það líka hollt. Bryndís Torfa, frvkst. SAS: Besta fjárfestingin. Samkeppnin er mjög krefjandi, þess vegna nota ég Rautt Eðal Ginseng, þannig kemst ég í andlegt jafnvægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið. Lilja Valdimarsdóttir, hornaleikari: Til að vera frísk og svo er ég líka einbeittari. Kogga, listamaður: Það eykur einbeitingu og sköpun. Lilja Valdimarsdóttir, Hornaleikari: Til að vera frísk og svo er ég líka einbeittari. Ragnhildur Sigurðardóttir, Golfari: Keppnisgolf er mjög krefj- andi, þess vegna nota ég Rautt Eðal Ginseng. Þannig kemst ég í andlegt jafnvægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið. Ragnheiður Runólfsdóttir, Sundþjálfari: Það er gott fyrir heilsuna og eflir mann í leik og starfi. Kogga, listakona: Það eykur einbeitingu og sköpun. Mr. Lee, túlkur: Til þess að brosa breitt. Teitur Örlygsson Körfuknattleiksmaður: Því að ég er einbeittari í öllu sem ég tek mér fyrir hendur auk þess er úthaldið betra. Rautt Eðal Ginseng Lilja Valdimarsdóttir, Hornaleikari: Til að vera frísk og svo er ég líka einbeittari. Ragnhildur Sigurðardóttir, Golfari: Keppnisgolf er mjög krefj- andi, þess vegna nota ég Rautt Eðal Ginseng. Þannig kemst ég í andlegt jafnvægi, skerpi athyglina og eyk úthaldið. Ragnheiður Runólfsdóttir, Sundþjálfari: Það er gott fyrir heilsuna og eflir mann í leik og starfi. Kogga, listakona: Það eykur einbeitingu og sköpun. Mr. Lee, túlkur: Til þess að brosa breitt. Teitur Örlygsson Körfuknattleiksmaður: Því að ég er einbeittari í öllu sem ég tek mér fyrir hendur auk þess er úthaldið betra. Rautt Eðal Ginseng Uppskeran horfin n Þjófar stálu þremur tonnum af vínberjum í Þýskalandi L æknum tókst að fjarlægja stóran fæðingarblett af enni fimm ára bresks drengs með því að koma fyrir nokkurs konar hornum á enni hans og teygja þannig á húðinni. George Ashman fæddist með stóran fæðingarblett fyrir miðju enni, sem náði frá nefrót að hársrótum. Hann gekkst fyrst undir aðgerð til þess að láta fjarlægja blettinn rétt eftir fjög- urra ára afmælisdaginn sinn á Great Osmond-barnaspítalanum í Lond- on. Sú aðgerð fól í sér að setja þurfti einskonar „horn“ á ennið á honum til að strekkja á húðinni þar. Með því reyndu læknarnir að stækka þann hluta húðarinnar sem var án fæð- ingarblettsins svo hægt væri að fjar- lægja blettinn og láta flekklausa húð hans í stað. Læknar komu fyrir nokk- urs konar blöðrum undir húðinni á enni George. Þær stækkuðu smátt og smátt sjálfkrafa og teygðu þannig á húðinni. Fjórum mánuðum síðar litu þær út eins og tvö „skrattahorn“, enda kallar mamma George hann „litla skrattann“ sinn. Þá voru blöðrurnar fjarlægðar, fæðingarbletturinn skor- inn í burtu og húðin saumuð sam- an. Og nú er George aðeins með lít- ið ör, sem minnir á Harry Potter örið. Móðir hans, Karen Ashman, segir að hún hafi fengið áfall þegar hún sá George eftir aðgerðina. „Litli fallegi engladrengurinn minn leit út eins og skrattinn sjálfur,“ segir hún. „ Þegar George fæddist og ég sá fæðingar- blettinn hugsaði ég strax til þess að eftir tíu ár yrði hann kannski lagður í einelti, ætti enga vini eða kærustu,“ viðurkennir Karen. „Ég er svo stolt af honum og styrknum sem hann hefur sýnt í gegnum þetta allt. Hann er öðruvísi í útliti, en hann er enn bara hann sjálfur og lætur ekkert aftra sér,“ segir hún. astasigrun@dv.is „Skrattastrákur“ laus við stríðni n Læknar fjarlægðu fæðingarblett Lífsglaður og lítur aldrei um öxl Nú er fæðingarbletturinn ekki lengur sjáanlegur og George er bara með lítið Harry Potter ör. Lýtalæknar framkvæma stórkost- lega aðgerð Komið var fyrir nokkurskonar blöðrum sem stækkuðu sjálfkrafa til þess að stækka húð George m y n d ir d a iL y m a iL s k já sk o t Þrisvar sloppið við dauðann Troy Davis var tekinn af lífi með banvænni lyfjablöndu á dauða- deild fangelsisins í Jackson aðfara- nótt fimmtudags. Fyrir þá örlaga- ríku stund hafði í þrígang áður átt að taka hann af lífi. Síðast í október 2008. Þá ákvað Hæstiréttur Banda- ríkjanna að fresta aftökunni, tveim- ur klukkustundum áður en hún átti að fara fram. Allar götur síðan Dav- is var dæmdur hélt hann fram sak- leysi sínu. Á árunum sem fylgdu í kjölfarið drógu 7 af 9 vitnum máls- ins framburð sinn til baka eða gerð- ust sek um mótsagnakenndar yfir- lýsingar. Grunur leikur á að þau hafi sætt þrýstingi frá lögreglu við yfir- heyrslur til að bendla Davis við mál- ið. „Guð miskunni sálum ykkar“ Á miðvikudagskvöld óskaði Davis ekki eftir sérstakri „síðustu kvöld- máltíð“ líkt og tíðkast. Hann fékk því staðlaðan máltíðarbakka. Grillaðan ostborgara, ofnbakaða kartöflu, bakaðar baunir, hrásalat, smá- köku og greipaldinsafa. Hann var þess fullviss að þetta væri nefni- lega ekki hans síðasta máltíð. Af- tökunni sem fram fór seint á mið- vikudagskvöld að staðartíma, um þrjúleytið að nóttu til að íslenskum tíma, hafði verið frestað um nokkr- ar klukkustundir í gærkvöldi eftir að lögmenn Davis gerðu lokatilraun til að fá Hæstarétt Bandaríkjanna til að afstýra henni. Allt kom fyrir ekki. Hæstiréttur gaf grænt ljós. Eftir að Davis var bundinn við dauðabörurnar í fangelsinu lyfti hann höfðinu upp til að ávarpa fjöl- skyldu lögreglumannsins Marks MacPhail. Hann talaði hratt á með- an aftakan var undirbúin. Hann lýsti yfir sakleysi sínu og sagði að málið verðskuldaði frekari rannsókn. „Ég var ekki með byssu. Fyrir þau ykkar sem nú eruð að fara að taka líf mitt, Guð miskunni sálum ykkar. Megi Guð blessa sálir ykkar,“ var meðal þess sem Davis sagði á lokaandar- tökum lífs síns. Troy Davis var, eft- ir 20 ára baráttu, tekinn af lífi með banvænni lyfjablöndu í Jackson. Korteri síðar var hann látinn. Hann var 42 ára. aftakan fordæmd Mál hans vakti heimsathygli og var um það fjallað í öllum helstu fjöl- miðlum. Mannréttindasamtökin Amnesty International sendu á fimmtudag frá sér yfirlýsingu þar sem aftakan var fordæmd. Seg- ir í yfirlýsingunni að með aftök- unni hafi hrikt í grunnstoðum bandaríska réttarkerfisins þar sem Georgíu ríki hafi hugsanlega tekið saklausan mann af lífi. „Að drepa mann þegar jafnmikil áhöld eru um málið er ógnvekjandi og má rekja til stórfellds klúðurs í réttarkerfinu.“ Stuðningsmenn Davis, aðstand- endur og fjölskylda grétu fyrir utan fangelsið þar sem hundruð manna voru samankomin til mótmæla þeg- ar ljóst var að hann yrði tekinn af lífi. Stutt var milli hláturs og gráts þetta tilfinningaþrungna kvöld í Jackson því aðeins nokkrum klukkustund- um áður höfðu fagnaðarlæti brotist út þegar spurðist út að Hæstiréttur hygðist fresta aftökunni. Meðal þekktra einstaklinga sem á miðvikudag og dagana þar á und- an börðust fyrir að afstýra aftökunni var Benedikt páfi, suðurafríska frels- ishetjan Desmond Tutu og fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna Jimmy Carter. móður hins myrta létt Anneliese MacPhail, móðir lög- reglumannsins Marks, hafði lýst yfir óánægju sinni með tafirnar á af- tökunni. Eftir að ljóst var að Davis hafði verið tekinn af lífi sagði Anne- liese að sér væri létt og að réttlæt- inu hefði verið fullnægt. Fyrr í vik- unni hafði hún lýst því yfir að hún bæri engan kala til mótmælenda aftökunnar vegna skoðana þeirra. En sagði að þeir vissu ekkert um staðreyndir málsins. „Fyrir þeim er aðal atriðið dauðarefsingin. 99 pró- sent þeirra hafa enga hugmynd um hver Troy Davis er eða hver Mark MacPhail var. Þeir eru bara að elta skoðanir sínar.“ Vinnum í réttarsalnum, töpum á götunni Spencer Lawton, saksóknarinn sem fékk Davis dæmdan til dauða árið 1991, segir tvö Troy Davis-mál hafa verið í gangi. „Það er dóms- málið og svo er það dómstóll göt- unnar. Við höfum ítrekað haft betur í dómsalnum en tapað í almanna- tengslabardaganum,“ segir Lawton sem vísar því alfarið á bug að ein- hver vafi leiki á því að sönnunar- gögn málsins hafi ekki staðist skoð- un. Allir sem haldi slíku fram hafi einfaldlega rangt fyrir sér. Þá sé sú áhersla sem lögð er á vitnin sjö sem dregið hafa vitnis burð sinn til baka vera villandi. Vitnin hafi ekki verið eiðsvarin þegar þau drógu orð sín til baka og saksóknari ekki fengið að gagnyfirheyra þau fyrir dómara. Það veki þá óneitanlega upp spurn- ingar af hverju það hafi tekið verj- endur á annan tug ára að fá vitnin til að draga vitnisburð sinn til baka. Lawton segir að dauðadómurinn sé ekki eitthvað sem hann pers- ónulega sé hrifinn af. Ef hann yrði afnuminn á morgun myndi hann ekki sakna hans en staðreyndir málsins séu að hann sé óaðskiljan- legur hluti réttarkerfisins í Georgíu. Tekinn af lífi er heims- byggðin fylgdisT með n dauðadeildarfanginn troy davis tekinn af lífi n Umdeild rannsókn, réttarhöld og dómur n dæmdur fyrir morðið á lögreglumanninum mark macPhail árið 1991 n síðustu orð hans voru um eigið sakleysi„Fyrir þau ykkar sem nú eruð að fara að taka líf mitt, Guð miskunni sálum ykkar saklaus? Aftaka Troy Davis er gríðarlega umdeild enda þykir ekki hafa verið sýnt fram á með óyggjandi hætti að hann sé sekur um morðið sem hann var sakfelldur fyrir. Hann ávarpaði fjölskyldu hins myrta á síðustu andartökum líf síns aðfaranótt fimmtudags og lýsti enn eina ferðina yfir sakleysi sínu. mynd reUters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.