Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 50
50 | Lífsstíll 23.–25. september 2011 Helgarblað R eykjavík árið 1903. Glænýtt, lítið hús er byggt neðst við Frakkastíg. Kjallari er undir hluta hússins og á því er ekki mannhæðar- hátt ris. Lítill gluggi á einu her- bergjanna á aðalhæðinni snýr í norður og þar er útsýni til Esj- unnar. Húsið er vel nýtt og um tíma búa þar um 20 manns. Árin og áratugirnir líða. Ákveðið er í kringum 1990 að flytja nokkur timburhús sem standa við götuna í Litla- Skerjafjörðinn. Áhugasam- ir koma að skoða hús áður en það er gert. Þeirra á meðal er ungt par, Sigríður Arnardótt- ir nemi og Kristján Franklín Magnúss leikari, sem skoða litla húsið sem er klætt hvítu bárujárni og með svörtu þaki. „Konan sem bjó í húsinu var að baka kökur og brauð og það var svo mikill kökuilm- ur í húsinu. Þetta var yndis- legt,“ segir Sigríður sem flest- ir þekkja undir nafninu Sirrý. „Mér fannst vera svo gott and- rúmsloft í húsinu.“ Kærustuparinu leist vel á húsið og festi kaup á því. „Við skelltum því upp á vörubílspall eina nótt,“ segir Sirrý en næstu árin var byggt við húsið auk þess sem þakinu var lyft þannig að efsta hæðin stækkaði til muna. „Húsið okkar var lengi ljótt og hallærislegt. Við erum ekk- ert sérstaklega veraldlega þenkjandi og vildum frekar fara í frí og ferðast um heiminn heldur en að leggja allt kapp á að klára húsið. Sumir skilja ekkert í því hvað við erum búin að gera þetta rólega.“ Antík heillar Gamli stíllinn fær að halda sér á aðalhæðinni. Sirrý segir að vandað hafi verið til verka í gamla hluta hússins og að ekki hafi þurft að laga neitt nema hvað Kristján Franklín reif nið- ur veggfóður, það var málað og tekinn niður panell í loftinu. Sami panell er á veggjunum á aðalhæðinni og var settur fyrir áratugum síðan. Sömu sögu er að segja um viðargólfið. Sirrý og Kristján Franklín tóku líka lóðina í gegn. „Við vorum með haka og skóflu og skiptum um jarðveg. Ég nýt þess alveg í botn þegar ég sit úti í garði og anda að mér rósa- ilminum eða næ í salat sem við ræktum í garðinum. Við gerð- um þetta allt – allt frá því að skipta um jarðveg til þess að gróðursetja. Það er gaman að hafa gert þetta allt með eigin höndum.“ Setið er í borðstofunni þar sem sést út í fallegan garðinn. Sirrý er búin að setja á borð- ið skál með lummum, krukku með hunangi og vínber. Augljóst er að hún velur hluti í stíl við húsið; flestir eru þeir í gömlum stíl – meira að segja matar- og kaffistellið sem hún segir tengdamóður sína, ömmu eiginmannsins, hafa gefið þeim. „Við fundum borðstofu- stólana á einhverjum antík- markaði en okkur fannst þeir passa við húsið.“ Hún talar líka um borð í stofunni. „Hann- es Hafstein átti það á sínum tíma. Svo sáum við spegilinn, sem er í stofunni, á antíkmark- aði og okkur fannst hann hafa verið búinn til í stíl við borðið. Þá auglýstum við eftir notuðu píanói.“ Hvað varðar stofu- sófana segir Sirrý: „Þeir voru nýir en samt eins og þeir væru gamlir.“ Forláta kista er í stofunni. „Amma mannsins míns, sem fæddist árið 1900, fékk hana þegar hún var ung og gaf okk- ur hana.“ Jú, allt er í stíl enda seg- ir Sirrý: „Mér þykir óskaplega vænt um allt með sögu; ég er hrifin af mörgu sem er gamal- dags.“ Kennir í Háskólanum á Bifröst Það er ró og friður í gamla hús- inu með litla glugganum þar sem útsýni var til Esjunnar. Þegar horft er út um hann í dag sést í næsta hús. Það er líka ró og friður fyrir utan. Sirrý er heimakær og er vinnuaðstaða hennar á heim- ilinu. Fjölmiðlakonan sér nú um útvarpsþáttinn Sirrý á sunnudagsmorgnum á Rás 2, hún heldur námskeið í sam- skiptafærni, meðal annars hjá fyrirtækjum og stéttarfélögum, og hún kennir nemendum Há- skólans á Bifröst ýmislegt um framsækni og örugga tjáningu. „Það verður hluti af námi allra sem fara í háskólann að læra að koma fram bæði í sjón- varpi og ræðupúlti, gera fer- ilskrá, stýra fundum, takast á við sviðsskrekk og njóta sín á mannamótum.“ Sirrý hefur auk þess séð, ásamt Önnu Borg, sjúkra- og einkaþjálfara, um „heilsuborg- arferðir“ í samvinnu við ferða- skrifstofuna VITA og Icelandair og verður farið í næstu ferð 13. október. Ferðirnar kallast „Komdu léttari heim – léttari á fæti og léttari í lund“. „Ferðirn- ar er fyrir konur og karla á öll- um aldri. Við verðum með lít- ið hótel fyrir sunnan Alicante bara fyrir okkur þar sem verð- ur heilsukokkur, boðið verður upp á líkamsrækt, gönguferðir, náttúruskoðun og ég verð með uppbyggilega fyrirlestra. Aðal- atriðið er að hver og einn taki það sem hann vill af því sem í boði verður.“ Augljóst er að Sirrý legg- ur ekki bara áherslu á mann- leg samskipti í fjölmiðlastörf- unum heldur nær það lengra. „Það liggur mjög vel fyrir mér að miðla. Ég hef einhverja þörf fyrir að gefa af mér. Það er svo gaman að finna að maður hef- ur einhverja styrkleika; það er gaman að fá að vinna við það, gefa af sér og hjálpa fólki að finna styrkleika sína og blómstra.“ Blóm. Þau eru mörg blóm- in í garði Sirrýjar í Litla-Skerja- firðinum. Hún fer út í garð, klippir rós og setur í skál. Lummur í skál. Antík. Það hefur margt verið skraf- að í þessu húsi í rúma öld og mörg lögin verið spiluð á gamla píanóið. Jú, það virðist vera góður andi í húsinu. Húsið flutt á vörubílspalli n Húsið stóð áratugum saman við Lindargötu n Það var flutt í Litla-Skerjafjörðinn fyrir um 20 árum og síðan hefur verið byggt við það n Gamli, rómantíski stíllinn fær að halda sér Gamalt píanó og gamall spegill Eldhúsið er opið og bjart og er eld- húsinnréttingin ný og í stíl við húsið. Borðstofuborðið Antíkstólar og antíkstell í borðstofunni. Með græna fingur „Ég nýt þess alveg í botn þegar ég sit úti í garði og anda að mér rósailminum eða næ í salat sem við ræktum í garðinum.“ Gott andrúmsloft í gamla húsinu Sirrý og sonur hennar, Kjartan Franklín, og vinur hans, Finnbogi Mannfreð. Áður var hægt að horfa á Esjuna út um litla gluggann Hvað varðar stofusófana segir Sirrý: „Þeir voru nýir en samt eins og þeir væru gamlir.“ Grafíkmyndin er eftir Baltasar Samper.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.