Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 34
„D óttir mín er eitthvað slöpp og ég held hún hafi smitað mig, þannig ég kemst ekki í dag,“ sagði Pálmi við vinnuveitanda sinn. Síðan flýtti hann sér inn á baðherbergi og kastaði upp. Pálmi var í flesta staði til fyrir- myndar. Hann starfaði hjá ágætu fyrirtæki, var þar í góðri stöðu og þénaði vel. Eiginkona hans var falleg, vel liðin og hafði, eins og hann, náð sér í góða menntun og höfðu þau því úr nægu að moða. Saman áttu þau þrjú börn, einn hund og einbýlishús í einu af betri hverfum borgarinnar. Þau óku um hvort á sínum bíl og þurftu því lítið að hittast. Allt var eins og það átti að vera. Eða svo fannst Pálma. Hann var vanur því að fá sínu framgengt, enda var hann einkabarn foreldra sinna. Þar sem hann var á hnjánum við klósett- skálina virkaði hann þó ekki mjög sjálfsöruggur, ákveðinn og geðþekkur. Þvert á móti var hann aumkunarverður og viðkvæmur. Hann stóð upp, leit í baðherbergisspegilinn og sagði: „Þú ætlar ekkert að venjast þessu, gamli.“ Málið með Pálma var að hann var vanur að ljúga. Hann var jú lögfræðingur þegar allt kom til alls. Hann vissi líka að hann ætti eftir að þurfa að ljúga talsvert á næstu dögum. Það var alltaf þann- ig. Hún lá í brúnum leðursófa þegar hann kom fram af klósettinu, alveg eins og hann hafði skil- ið við hana. Ljóst hár féll fram yfir brúnan sófab- arminn og náði næstum niður á parketlagt gólf. Hann leit niður á dökkan viðinn, sem hafði ver- ið sérinnfluttur frá Alaska. Ósjálfrátt renndi hann annarri stóru tánni eftir gólfinu. Hann naut þess að finna mýkt parketsins. Það hafði verið hverrar krónu virði. Pálmi gekk inn í stofu. Á veggjum héngu lands- lagsmálverk, verk eftir Tolla á norðurveggnum en draumkennt landslag Georgs Guðna á þeim vest- ari. Stórir gluggar náðu frá gólfi upp í loft á hinum veggjunum og ef ekki væri búið að draga fyrir, þá hefði hann getað horft yfir alla borgina. Á götu- vita, blokkir, bíla og silfraða á sem liðaðist letilega til sjávar. Hann settist niður öðrum megin í sóf- anum og strauk blíðlega tær hennar. Síðan benti Pálmi á svaladyrnar og sagði: „Stundum á haustin finnst mér afskaplega gott að sitja úti á svölum þegar kvöldar og lesa. Finna hvernig stress og kliður dagsins líður upp í himininn. Þegar sólin sest appelsínugul einhvers staðar úti á flóa og síðustu geislar hennar dansa á blautum húsþökunum. Þá verður borgin ein- hvern veginn svo ævintýraleg og draumkennd, að mér finnst eins og ég sé miklu raunverulegri en það sem ég horfi á,“ sagði hann og leit á ljós- hærðu stúlkuna. „Skilurðu hvað ég á við,“ bætti hann síðan við. Skyndilega hringdi sími. Hann stóð á fætur og gekk að litlu, brúnu símaborði, þar sem farsími hans lá. Á skjánum sá hann að Sigríður, eiginkona hans, var að reyna ná í hann. „Sæl, elskan,“ sagði hann um leið og hann svaraði. „Hæ, hvernig gengur,“ spurði Sigríður, rödd hennar þýð. „Svona, ég vona að við klárum þetta seinni partinn, en þú veist hvernig þessi mál eru, þetta getur dregist von úr viti,“ svaraði hann og skoðaði sjálfan sig í spegli. Hann var enn grannur og stolt- ur af því að geta enn fundið fyrir magavöðvunum, þeir voru enn stinnir. Andlitið var vel snyrt, dökkt hárið vatnsgreitt og hann gætti þess að fara mán- aðarlega í klippingu. Að höfðinu undanskildu þá voru engin hár á líkama hans og á meðan hann ræddi við eiginkonu sína grandskoðaði hann kynfæri sín í leit að óæskilegum hárum. Honum fannst eitthvað svo óhreint við það að vera loðinn. „Kemurðu þá ekkert fyrr en á morgun til okk- ar,“ spurði Sigríður og greina mátti vonbrigði í rödd hennar. Hún hafði farið, ásamt börnum þeirra í sumarbústað, sem þau áttu en hann stóð ekki langt frá borginni. Hann vissi að það væsti ekki um þau, sumarbústaðurinn var stór og leik- svæði fyrir krakkana nærri. Það var helst að Sigríði mynda leiðast, sem hann tók nærri sér. Pálmi tal- aði áfram við eiginkonu sína og hann sagði henni að hann myndi örugglega ná kvöldmat með þeim. Hún lét málið niður falla og sagðist ekki vilja trufla hann frekar. „Ég elska þig,“ sagði hún í símann. „Elska þig líka,“ svaraði hann og horfðist í augu við sjálfan sig í speglinum. Síðan kvöddust þau. Hann slökkti á símanum, brosti til spegilmyndar sinnar og gekk aftur fram í stofu. Á leiðinni greip hann með sér sleipiefni. Nokkrum klukkutímum síðar uppgötvaði Sig- ríður að hún hafði gleymt að taka sundföt á sig. Hún var í óða önn að koma krökkunum þremur, Baldri, Jóhönnu og Völu, í heitan pott, sem þau Pálmi höfðu látið setja upp skömmu eftir þau keyptu bústaðinn. Hún gekk því fram úr barna- herberginu og náði í farsímann sinn sem stóð á eldhúsborði úr eik. Hún valdi flýtinúmer Pálma en það var slökkt á símanum hans. Hún dæsti og ákvað að hringja í fyrirtækið þar sem hann vann. Hún vissi mæta vel að honum var illa við það og hann gat látið slík smáatriði fara mjög í taugarnar á sér, en hún þurfti að fá bikiníið sitt, sérstaklega ef þau ætluðu að eyða sumarfríinu þar í bústaðn- um. Hún valdi því rétt númer og beið eftir því að svarað yrði. „Já, sæl, þetta er Sigríður, kona Pálma. Er hann við,“ sagði Sigríður við unga stúlku, sem hún mundi aldrei hvað hét. Þó hafði hún unnið með Pálma nokkuð lengi og Sig- ríður hafði oft hitt hana, en einhvern veginn náði nafn hennar aldrei að festast í minni Sigríðar. „Hæ! Nei, hann er heima í dag. Mér skildist að Jóhanna eða Vala væri veik og hefði smitað hann,“ svaraði stúlkan og mátti greina undrun í málróm hennar. Sig- ríður var hugsi um stund, ill- ur grunur læddist að henni. „Æ, já, kjáni get ég verið. Er eitthvað utan við mig í dag,“ sagði Sigríður og gerði sér upp hlátur. Síðan sagðist hún ætla að hringja heim og ná í Pálma þar. Eftir hún hafði kvatt stúlkuna reyndi hún að hringja í heimasímann og það kom henni ekki á óvart að heyra að þar var á tali. Pálmi hafði eflaust tekið tólið af til að tryggja að hann fengið frið. Hún fann reiðina magnast innra með sér, hann var búinn að lofa... Það tók Sigríði smá stund að jafna sig en hún sneri síðan aftur inn í barnaherbergið. Þar sagði hún við Baldur, elsta barn þeirra Pálma, en hann var á tólfta ári, að hann þyrfti að líta til með systk- inum sínum rétt á meðan hún skryppi yfir til Hall- veigar í bústaðnum á móti. Hann kinkaði kolli hratt. Síðan flýtti hún sér yfir til nágranna sinna. Þar sagðist hún nauðsynlega þurfa að skreppa í bæinn, svolítið hafi komið upp á, hvort Hall- veig væri ekki fáanleg til að líta eftir börnunum í nokkra tíma. Það var auðsótt mál. Hallveig var komin á eftirlaunaaldur og eyddi ásamt manni sínum sumrunum í bústað sem þau höfðu byggt fyrir alllöngu síðan. Börnunum líkaði mjög vel við hana og heimsóttu hana oft er þau dvöldu þarna í sveitinni. Eftir um 20 mínútur var Sigríður lögð af stað og fann hvernig reiðin hafði aftur náð tökum á henni. Eins og sinueldur brann hún í höfði Sigríðar, svo heit og hatrömm. Pálmi stóð við stofugluggann og horfði út. Tekið var að nálgast kvöldmatarleytið en hann var enn nakin. Hann hafði notið stúlkunnar fjór- um sinnum yfir daginn og fann fyrir þreytu í lík- amanum og ekki síst í typpinu. Áður fyrr hefði hann getað haldið lengur út en þetta var einn af göllunum við að eldast, úthaldið minnk- aði og hann hafði jafnvel heyrt að hið sama gilti um áhuga flestra karl- manna. Það átti reyndar ekki við um Pálma, hann naut þessa enn jafn mikið og í fyrsta skipti. Borgin breiddi úr sér fyrir neðan hverfið þar sem þau Sigríður bjuggu. Trén í dalnum stóðu í fullum lauf- skrúða og einhvers staðar á milli þeirra var fólk í gönguferð, menn í laxveiði og börn að leik. Yfir borginni gnæfði svo kirkja, byggð fyrir all- mörgum árum úr ónýtri steypu og þurfti því sí- fellt vera að gera við hana. Þó vakti hún yfir borg- inni, eins og viti við svarta hamra. „Þessi kvöld þegar ég les,“ sagði hann við stúlkuna, „þessi sem ég sagði þér frá áðan. Það er nú ekkert merkilegt sem ég er að lesa. Yfir- leitt einhver skáldsaga en þó dreg ég stundum fram ljóðabækur, en þá þarf ég oftast að setja mig í einhverjar stellingar. Kannski tek ég með mér vínglas eða bjór. Það er einhver töfraljómi yfir svona kvöldum. Eitthvað sem ég fæ hvorki snert né séð, ég get ekki bent á það eða heyrt í því en það svífur þarna yfir borginni á gráum vængjum. Einhver antík, eitthvað gamalt en samt svo ferskt. Kannski að þetta sé hjartslátt- ur borgarinnar, síungur en samt aldagamall. Eða bara formáli vetrar, hver veit. Ég get gjör- samlega týnt mér í svoleiðis kvöldum. Skilurðu hvað ég á við?“ Hann sneri sér við og leit á þá ljóshærðu, sem svaraði honum ekki. Pálmi gekk yfir til hennar, settist á gólfið við sófann og smellti kossi á kinn. Síðan brosti hann. „Þú ert ágæt, vissirðu það? Alveg ágæt. Ekki sú besta, en alveg ágæt,“ sagði hann og stóð á fætur. Um leið heyrði hann útidyrnar opnast. Honum fannst sem tíminn stæði kyrr. Hver gat það verið sem var að koma að þeim þarna? Ef þetta var Sigríður þá var voðinn vís. Þegar Sigríður sá svarta Benz-jeppann hans í innkeyrslunni fann hún enn reiðina magnast upp í sér. Úr því hann var heima, þá hafði hann eflaust svikið loforðið. Hún fann hendur sínar skjálfa og þurfti að beita sig hörku til að stíga út úr bílnum. Hvert skref sem hún tók heim að útidyrunum var erfitt. Hún var lengi að koma lyklinum í skrána og er hún loks náði að opna dyrnar mætti henni angan af svita, sætur ilmur af sleipiefni og nuddolíu. Hún skellti á eftir sér og heyrði þá er Pálmi kom hlaupandi að forstofunni. Sigríður kastaði frá sér töskunni og arkaði inn. Er hún sá hann koma nakinn á móti sér öskraði hún: „Hvar er hún?“ „Þetta er ekki eins og það sýnist,“ sagði Pálmi afsakandi og reyndi að róa Sigríði. Hann virtist þó ekki hafa erindi sem erfiði því hún strunsaði framhjá honum og inn í stofu. Þegar hún sá ljóshærðu stúlkuna í sófan- um gaus reiðin upp í henni og hana langaði einna helst að slá eiginmann sinn. Pálmi kom skömmu síðar. „Sko, Sigga, elskan, leyfðu mér aðeins að útskýra þetta,“ sagði hann og tók um upp- handlegg Sigríðar. Hún var fljót að rífa sig lausa og sneri sér að honum, heiftin brann í augum hennar. „Hvernig gastu gert mér þetta? Þú lofaðir, Pálmi,“ sagði hún og fann tár brjóta sér leið fram í augnkrókana. Um leið barði hún með krepptum hnefa í brjóstkassa hans. „Ég veit, elskan, fyrirgefðu. Ég bara ...,“ sagði hann, lét hendur falla meðfram síðum og leit skömmustulega niður fyrir sig. Sigríður sneri sér frá honum og gekk að stúlkunni. Hún lá enn í sófanum og starði fram fyrir sig. Aug- un tóm og köld. Sigríður sá að á baki hennar var storknaður brundur. „Hvað er langt síðan,“ spurði hún. Pálmi áræddi ekki að líta á hana. „Frá því í gærkvöldi,“ svaraði hann lágt. Sig- ríður tók um höku stúlkunnar og sneri andliti hennar að sér. „Fallegt andlit. Ég skil þig vel. Hversu oft ertu búinn að fá það,“ spurði Sigríður um leið og hún sleppti stúlkunni. Höfuð hennar féll máttlaust aftur á leðursófann. „Fjórum sinnum í dag. Einu sinni í gær- kvöldi,“ svaraði hann, ögn ákveðnari. Sigríður gekk alveg upp að honum. „Þú varst búinn að lofa að ég fengi alltaf að vera með. Veistu hvað ég er sár og reið? Þú sveikst mig!“ „Já, fyrirgefðu, elskan, ég lofa þetta kemur ekki fyrir aftur. Þú færð að vera með næst. Ég lofa,“ svaraði Pálmi og brosti eins blíðlega og honum var unnt. Sigríður kinkaði kolli. Síðan benti hún á líkið og sagði: „Gakktu frá þessu og klæddu þig í föt. Börnin bíða okkar í bústaðnum.“ eftir Þorstein Mar Gunnlaugsson 2. sæti 34 23.–25. september 20112011 Margt er líkt með hjónum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.