Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 44
44 | Menning 23.–25. september 2011 Helgarblað
Menningarrýni
Hvað ertu
að gera?
Maturinn
var unaður
Hvað ertu að lesa?
„Ég var að klára bókina Makalaus
eftir hana Tobbu töffara og ætla í
þessum töluðu orðum að fara og
kaupa mér bókina Lýtalaus.“
Uppáhaldssjónvarpsþáttur?
„Ég er leiðinlega konan á heimilinu
og elska fréttir en ég elska líka allt
sem er íslenskt og þá eru gæðin
ekki endilega aðalatriðið. Ég er
spes stelpa.“
Uppáhaldsveitingastaður?
„Ég datt inn á Grillmarkaðinn um
daginn og þá aðallega til að sjá
hönnunina á staðnum sem Leifur
Weildin snillingur sá um. Maturinn
var unaður og umhverfið algjört
augnakonfekt og ekki spillir fyrir
að verðið kom mér á óvart, alls ekki
dýr staður.“
Uppáhaldshönnuður?
„Spakmannsspjarir eru í algjöru
uppáhaldi og ég væri reyndar líka
til í að eignast kjól eftir Ellu.“
DV mælir með...
DV mælir ekki með...
Íris Björk Jónsdóttir
Svartur hundur
prestsins
Höfundur: Auður Ava Ólafsdóttir
„Vel unnin sýning, góð stund í leik-
húsinu, ljúf og notaleg.“ – Jón Viðar
Jónsson
Zombieljóðin
Mindgroup
„Þessi sýning er mistök af hálfu leik-
hússins og þau skrifast endanlega á
leikhússtjórann.“ – Jón Viðar Jónsson
One Man, Two Guvnors
Höfundur: Carlo Goldoni
og Richard Bean
„Óhætt er að mæla með henni við
hláturþyrsta landa sem eiga eftir
að leggja leið sína til London.“ – Jón
Viðar Jónsson
Á annan veg
„Myndin er dramatísk, fyndin og
skemmtileg.“ – Erpur Eyvindarson
V
erk Jóns Atla Jónas
sonar fjalla iðulega
um íslenskt samfélag
og hann finnur sig oft
knúinn til að takast á
við þau málefni samfélagsins
sem erfitt er að horfast í augu
við. Og það gerir hann í verð
launasögu sinni Í kjallaranum.
Saga Jóns Atla fjallar um hjón
á fimmtugsaldri sem standa
allslaus eftir hrunið. Þau hafa
einangrast í hálfkláruðu ein
býlishúsi. Út um glugga húss
ins horfir heimilisfaðirinn yfir
hverfið og það er eyðilegt um að
litast. Í einbýlishúsinu er kjall
araíbúð ætluð dóttur þeirra og
verðandi eiginmanni hennar.
Í hana áttu þau að flytja þegar
þau kæmu heim úr sérnámi. En
það ætlar enginn að snúa aftur
til Íslands.
Saga Jóns Atla var frábær
lega uppbyggð að mati dóm
nefndar. „Frábærlega upp
byggð saga sem fer rólega af
stað en nær hámarki í óhugn
anlegri sögufléttu í lokin,
fléttu sem höfundur hefur þó
búið lesendur fimlega undir
án þess að þeir átti sig bein
línis á því. Sterk frásögn, með
rætur í þjóðfélagsástandinu,
sem situr eftir í huga lesenda
löngu eftir að lestri er lokið,“
segir Ragnar Jónasson, rithöf
undur og einn dómnefndar
meðlima. „Í kjallaranum“
er vel skrifuð saga sem kall
ast á við nútímann. Stemn
ingin í hálfbyggða hverfinu
kemst vel til skila og félags
leg einangrunin er trúverð
ugur bakgrunnur fyrir glæp
inn,“ segir Lilja Sigurðardóttir,
rithöfundur og annar dóm
nefndarmeðlimur.
Hvar er línan?
Jón Atli skrifaði söguna síðasta
sumar og kynnti sér frásagnir af
fólki sem fremur voðaverk. „Við
getum nefnt sem dæmi Anders
Breivik, þar er maður sem hafði
allt með sér. Eða svo virtist. Svo
verður hann geðveikur og drep
ur fullt af fólki á einhverju tjald
stæði. Þá finnst mér aðkallandi
að skoða hvenær verður hann
geðveikur. Á hvaða tímapunkti
segir hann sig úr samfélagi
manna?
Annað dæmi er maðurinn
sem trylltist í Arizona og skaut
þingkonuna. Ég kynnti mér
bakgrunn þessa unga ógæfu
manns. Hann var í skóla og átti
við geðræn vandamál að stríða
að einhverju leyti. Bekkjarfélag
arnir voru svo hræddir við hann
að skólayfirvöld settu honum
þá afarkosti að annaðhvort yrði
hann að hætta í skóla eða leita
sér læknishjálpar. Hann kýs að
gera það ekki heldur fer hann út
í búð og kaupir sér byssu. Það
sem gerist þennan örlagaríka
dag er að hann tekur leigubíl.
Leigubíllinn stoppar, hann fer í
hraðbanka, borgar leigubílinn.
Um leið og hann er búinn að
greiða fyrir farið þá skýtur hann
fyrsta skotinu.
Ég skoða oft atburði sem
þessa og frásagnir af þeim og
velti því fyrir mér hvenær í at
burðarásinni verður sá sem
fremur voðaverk geðveikur,
hvenær verður hann ekki einn
af okkur? Hvar er línan? Það
er þessi lína sem er svo áhuga
verð. Hvenær er það sem við
hækkum í græjunum og drög
um fyrir og segjum: Hann er
ekki einn af okkur? Það er það
sem ég er að rannsaka í þessari
sögu.“
Að þrauka eða lifa
Heiti sögunnar, Í kjallaranum,
vísar að vissu leyti í voðaverk
Josephs Fritzl sem byggði dýfl
issu á eigin heimili og nauðg
aði þar eigin dóttur. „Það er líka
gaman að lesa það sem Elfriede
Jelinek skrifar um Joseph Fritzl
þar sem hún gerir þessa dýfl
issu sem hann kýs að smíða
sér á eigin heimili að nokkurs
konar metafóru fyrir austur
rískt samfélag. Og það er sam
félag feðraveldis þar sem allt er
þaggað niður. Þetta er náttúru
lega eina landið sem tók nasist
unum fagnandi.
Svo veltir hún upp þessari
ótrúlega mögnuðu spurningu í
þessum texta sínum. Hún fær
ir í orð hið hræðilega og spyr:
Fékk hún að velja innrétting
arnar og flísarnar? Gerðu þau
það saman? Þá er hugmynd
in um fangelsi sett á hvolf, þú
þarft að skoða eigin hugmynd
um hvað fangelsi er og byggja
hana upp aftur.
Því hvað er fangelsi? Það má
velta því fyrir sér þegar þú keyr
ir um hálfkláruð hverfi Reykja
víkurborgar þar sem fólk er fast
í örvæntingu í 110% leiðinni
og reynir að halda tilveru sinni
saman. Hvort er þetta fólk að
þrauka eða lifa.“
Verðlaunasagan á fjalirnar
Úr verðlaunasmásögunni hans
Jóns Atla, Í kjallaranum, hef
ur verið ákveðið að setja upp
leikverk. Það hefur fengið heit
ið Nóttin nærist á deginum.
Að auki leggur hann lokahönd
á smásagnasafnið Sporin og
verður smásagan, Í kjallaran
um, hluti af því safni. Jón Atli
vinnur um þessar mundir að
handritsgerð en Baltasar Kor
mákur hefur unnið kvikmynd
úr hans helsta verki, Djúpinu.
Hann stendur einnig á sviði
Borgarleikhússins með fé
lögum sínum úr Mindgroup og
flytur með þeim verkið Zombí
ljóðin.
„Það er svolítið öðruvísi að
vinna í leikhúsi og við kvik
myndir. Slík vinna felur í sér
mikla samvinnu. Við skrift
irnar er maður bara einn. Ég
kann vel við hvort tveggja þótt
ég hafi valið mér að vinna
meira í leikhúsinu síðustu ár,“
segir Jón Atli sem þykir af
kastamikið leikskáld. Hann
hefur meðal annars samið
leikritin 100 ára hús fyrir Frú
Emilíu, Krádplíser fyrir Reyk
víska Listaleikhúsið, Brim fyr
ir Vesturport, Draugalest fyrir
Leikfélag Reykjavíkur, Rambó
7 fyrir Þjóðleikhúsið, Mind
camp og Democrazy, ásamt
Agli Heiðari Antoni Pálssyni,
fyrir CampXleikhúsið í Kaup
mannahöfn. Hann er einn af
stofnendum Mindgroup sem
eru evrópsk regnhlífarsamtök
leikhúsfólks sem vinnur að til
raunakenndri leiklist.
Síðasta verk Jóns Atla,
Zombíljóðin, sem hann gerði
ásamt Mindgroup, hefur vak
ið mikið umtal og fengið afar
misjafna dóma. Í dómi Jóns
Hálfkláruð hverfi
borgarinnar fangelsi
Jón Atli Jónasson er sagður vera eitt
helsta leikskáld þjóðarinnar og á miðviku-
dagskvöldið tók hann við Gaddakylfunni
sem var afhent af DV í samstarfi við Hið ís-
lenska glæpafélag. Á verðlaunaafhending-
unni tók hann við kylfunni, sveiflaði henni
svolítið og sagði: „Á ég að segja eitthvað,
eða á ég kannski bara að berja einhvern,“ og
uppskar hlátur gesta. Jón Atli er ekki líklegur
til slíkra ódæða en það fer ekki á milli mála
að þessum beitta höfundi fer einkar vel að
vera vopnaður gaddakylfu.
„Því hvað er
fangelsi? Það
má velta því fyrir
sér þegar þú keyrir
um hálfkláruð hverfi
Reykjavíkurborgar
þar sem fólk er fast
í örvæntingu í 110%
leiðinni.
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Viðtal
Gaddakylfan á lofti Reynir með
Gaddakylfuna á lofti og Jón Atli býr
sig undir magnað höfuðhögg.