Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Blaðsíða 16
N ýtt stjórnmálaafl sem ætlar að bjóða fram til Alþingis í næstu kosningum er nú í hraðri mótun. Óháði þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson hefur kann- að grundvöllinn fyrir sam- eiginlegu framboði hjá ýms- um stjórnmálaöflum. Meðal þeirra sem hafa verið nefndir í tengslum við framboðið er hópur fyrrverandi fram- sóknarmanna sem gekk úr flokknum um svipað leyti og Guðmundur. Þá eru lykilmenn úr Besta flokknum í Reykja- vík og Næst Besta flokknum í Kópavogi einnig með í ráðum. Stjórnlagaráðsmaðurinn Gísli Tryggvason og nokkrir aðrir stjórnlagaráðsmenn hafa einn- ig komið að málum að undan- förnu. DV hefur rætt við ýmsa stjórnlagaráðsmenn sem segj- ast vita til þess að „einhverjir“ úr þeirra hópi séu opnir fyr- ir þessu. Fulltrúar nir vilji hins vegar bíða og sjá hvernig Al- þingi fer með frumvarp þeirra til stjórnarskrár. Geir Kristinn Aðalsteins- son, oddviti L-listans á Akur- eyri sem vann bæjarstjórn- arkosningarnar á síðasta ári með yfirburðum, kannast hins vegar ekki neitt við fréttir þess efnis að L-lista fólk hafi verið í viðræðum um að koma að framboðinu. Hins vegar er bú- ist við því að rætt verði við L- listann á næstunni. Hvað gerir Björgvin? Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa Guðmundur Steingrímsson og lykilfólk í Besta flokknum verið að stinga saman nefjum, menn á borð við Einar Örn Benedikts- son, Karl Sigurðsson og Ótt- ar Proppé. Heimildarmaður sem er tengdur inn í viðræð- urnar bendir á að góð tengsl hafi þegar verið á milli Guð- mundar og þessara manna úr Besta flokknum, enda hafi þeir þekkst lengi í gegnum tónlist- ina. Sami heimildarmaður full- yrðir að auk fyrrverandi fram- sóknarmanna, hafi lykilfólk úr öðrum stjórnmálaflokkum komið að málum með misjöfn- um hætti. Einna helst úr Sjálf- stæðisflokknum og Samfylk- ingunni. Mikið rót sé í þessum flokkum en margir muni vafa- laust bíða fram yfir landsfundi þessara flokka áður en þeir taki ákvarðanir um framtíð sína. Nafn Björgvins G. Sig- urðssonar hefur eðlilega ver- ið nefnt í því samhengi enda hefur hann áður lýst áhuga á sambærilegum hugmyndum. Í bók sinni Stormurinn, sem kom út um síðustu jól, skrif- aði hann meðal annars: „Enn er þó morgunn og ekkert því til fyrirstöðu að taka upp þráðinn og setja af stað nýtt samruna- ferli sem stefndi að sameig- inlegu framboði frjálslyndra afla í samfélaginu: Samfylk- ingar, Framsóknar, hluta sjálf- stæðismanna og hugsanlega lítils hluta Vinstri grænna. Í orrustunni um Ísland morg- undagsins er þetta framtíðar- módel frjálslyndra stjórnmála- afla sem ég er sannfærður um að við eigum að stefna að. Það er verkefni minnar kynslóðar vinstra megin við miðju.“ Þegar DV hafði samband við Björgvin á fimmtudag, sagðist hann ekki geta rætt þessi mál að svo stöddu þar sem hann væri erlendis. Ekkert liggur því fyrir um hvort slíkt framboð hugnist Björgvini G. Vill búa til nýtt mál í kringum stjórnmál Ljóst er hins vegar að ekki verður boðið fram undir nafni Besta flokksins á landsvísu. Einar Örn segir í samtali við DV að honum finnist að að nýi stjórnmálaflokkurinn eigi að heita Fjörflokkurinn. „Það hafa verið viðræður í gangi. Ég heyrði bara viðtal við Jón Gnarr og Guðmund um að það yrði búið til nýtt farartæki und- ir þetta og það yrði ekki Besti flokkurinn. Hann er í Reykja- vík og við höfum hugsað okk- ur að hafa hann þar. Við erum bara að koma upp ákveðnu farartæki, vettvangi til að halda áfram,“ segir Einar Örn. Hann segist þó sjálfur ekki vera á leiðinni inn á þing. „Besti hefur gefið ákveðið for- dæmi og mitt innlegg í það verður að halda áfram að gefa gott fordæmi með góðri og heiðarlegri vinnu, að reyna að ræða um stjórnmál, að búa til nýtt mál í kringum stjórnmál.“ Hann segir alla sem koma að þessum viðræður vera bæði forvitna og innblásna. Bestu borgarfulltrúarnir ekki á leið í framboð Aðspurður hvort borgarfulltrú- ar Besta flokksins hyggi á fram- boð, svarar Einar: „Nei, við erum með ákveðna kosningu sem við ætlum að fylgja eftir og við förum ekki að sveigja og beygja út af því. Við erum með mjög gott verkefni sem við ætl- um að klára. Við förum ekki að þynna út okkar úrræði til að fara í þetta. Besti flokkurinn er ákveðinn innblástur fyrir því að hægt sé að breyta utan hinna hefðbundnu flokka- kerfa. Það er bara sá möguleiki sem við erum að bjóða upp á.“ Einar Örn leggur áherslu á að nýja framboðið haldi áfram að fordæmi Besta flokksins. „Mig langar til að þetta heiti Fjörflokkurinn. Pólitík á að vera skemmtileg og ekki ein- kennast af skítkasti. Það er gaman að lifa og við eigum að haga okkur þannig.“ Fyrir hvað stendur flokkurinn? Guðmundur Steingríms- son sagði í viðtali við DV fyrir nokkru að áherslur flokks- ins ættu „klárlega að höfða til hægri krata, Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna, frjálslyndra framsóknarmanna og óflokks- bundinna.“ Hins vegar sé reynt að horfa til fólks með alls kon- ar reynslu og hann forðist að setja fólk í hólf eftir pólitískum skoðunum. Það er hins vegar rík krafa að „Fjörflokkurinn,“ verði það nafn hans, verði afl til þess að breyta stjórnmálunum og flokkakerfinu. Aðkoma stjórn- lagaráðsmanna myndi svo þýða að flokkurinn myndi setja stjórnarskrárfrumvarp- ið í öndvegi sem eitt af sínum baráttumálum. Þá er líklegt að flokkurinn muni beita sér fyrir umhverfisvernd. „Það eru góðar tengingar þarna á milli“ Næst Besti flokkurinn í Kópa- vogi, sem náði einum manni inn í bæjarstjórn í fyrra, hefur verið orðaður við samstarf við flokkinn. Hjálmar Hjálmars- son, leikari og bæjarfulltrúi Næst Besta flokksins segir í samtali við DV að „engar form- legar viðræður“ hafi átt sér stað á milli fólksins í Næst Besta og fólksins í kringum Guðmund Steingrímsson eða Besta flokk- inn. Hann sé hins vegar mjög jákvæður fyrir slíku samstarfi. „Þetta er bara hið besta mál. Þetta hlýtur að vera framtíðin, að reyna að losa um vald stjórnmálaflokkanna í samfé- laginu. Þeir ættu frekar að hafa áhrif en völd,“ segir Hjálmar. Aðspurður hvort hann ætli sér að ræða við fólkið, segir hann: „Já, ég mun örugglega tala við þá, við erum í ágætis sambandi í gegnum sveitar- stjórnarmálin, þessir nefnd- ar- og stjórnarmenn sem eru í þessu. Ég er í stjórn strætó með Einari Erni og við hitt- umst reglulega og það eru góðar tengingar þarna á milli. Þetta gæti því verið hið besta mál,“ segir hann og ítrekar að ekki hafi farið fram nein- ar viðræður enn. „Næst Besti er mjög óformlegur flokkur. Málin eru bara rædd og hann er ekki með félagatal eða for- mann. Þetta er bara mjög opið fyrirbrigði.“ 16 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað Ú T S A L A 17,6 kw/h Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554 0400 FULLT VERÐ 106.000 74.900 YFIR 30 GERÐIR GASGRILLA Á ÚTSÖLUNNI 13,2 kw/h FULLT VERÐ 59.900 39.900 Grill sem endast FULLT VERÐ 139.000 99.900 FÆST EINNIG HJÁ ORMSSON - ÁRVIRKINN SELFOSSI MODEL AKRANESI RADÍÓNAUST AKUREYRI GEISLA Í EYJUM www.grillbudin.is „Mig langar til að þetta heiti Fjörflokkurinn“ „ Besti hefur gefið ákveðið fordæmi og mitt inn- legg í það verður að halda áfram að gefa gott fordæmi með góðri og heiðarlegri vinnu. n Nýr frjálslyndur flokkur mótast n Áhugi í Besta og Næst Besta flokknum, stjórnlagaráði og víðar n Segir borgarfulltrúa ekki á leið í framboð Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is Stjórnmál Jón Gnarr Nýr flokkur verður til Ýmsir hafa komið að viðræðum um nýjan stjórnmálaflokk. Guðmundur Steingrímsson Einar Örn Benediktsson Gísli Tryggvason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.