Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Page 4
4 | Fréttir 23.–25. september 2011 Helgarblað
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Ryk-/vatnssugur
fyrir iðnaðarmanninn
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
ARGES ryksuga
30lítra 1000W
25.900
ARGES ryksuga
60lítra 2000W
39.900
ARGES ryksuga
15lítra 1000W
18.900
Bjóða stjórnvöldum birginn:
Réru til fiskjar
án kvóta
Nokkrir fiskimenn réru til fiskjar á
smábátum á fimmtudag án þess að
hafa yfir aflaheimildum að ráða. Þeir
telja sig í fullum rétti og munu halda
áfram svo lengi sem bátarnir hafa
veiðileyfi.
Á þriðjudagsmorgun hófust að-
gerðirnar sem DV hefur greint frá
síðustu vikurnar þegar nokkrir fiski-
menn á handfærabátum í eigu út-
gerða innan Samtaka íslenskra fiski-
manna héldu til veiða án kvóta. Þeir
hafa fengið nóg og hafa ákveðið að
bjóða stjórnvöldum birginn.
„Við teljum okkur vera í fullum
rétti til að róa enda það eina sem
segir í lögum um stjórn fiskveiða að
skilyrði sé að menn hafi almennt
veiðileyfi til að stunda fiskveiðar í at-
vinnuskyni. Það segir hvergi í lögum
um stjórn fiskveiða að mennirnir
þurfi að hafa aflamark eða aflaheim-
ildir. Þetta er grundvallaratriði og
í okkar stjórnsýslu er allt leyft sem
er ekki bannað,“ sagði Jón Gunnar
Björgvinsson, formaður Samtaka ís-
lenskra fiskimanna, í samtali við DV
á þriðjudag.
Fiski-
stofa gæti
svipt smá-
bátasjómenn-
ina veiðileyfi fyrir
afla umfram aflaheim-
ildar en þá telja samtökin
að það sé skýrt brot. Fari svo munu
Samtök íslenskra fiskimanna stefna
yfirvöldum fyrir viðeigandi dóm-
stólum, íslenskum eða alþjóðlegum.
Félagsmenn hyggjast samt halda
áfram þangað til þeir verða sviptir
veiðileyfinu. Það er brot á lögum
að halda áfram veiðum á skipi sem
svipt hefur verið veiðileyfi, þrátt fyrir
að veiðileyfissviptingin sé ólögmæt
að mati samtakanna.
Félagsráðgjafar vilja hærri laun:
Boða verkfall á mánudag
Verkfall félagsráðgjafa er yfirvofandi
á mánudaginn, í fyrsta sinn frá árinu
1989. Í bréfi sem Þorbjörg Róberts-
dóttir, félagsráðgjafi í Þjónustumið-
stöð Laugardals og Háaleitis, hef-
ur sent borgarfulltrúum í Reykjavík,
fyrir hönd starfsmanna þjónustu-
miðstöðvarinnar, segir að stéttin hafi
fært fórnir í kreppunni umfram aðr-
ar stéttir. „Félagsráðgjafar sýndu bið-
lund á erfiðum tímum í samfélaginu,
brettu upp ermar og „tóku á móti
kreppunni“ í mun ríkari og áþreif-
anlegri mæli en flestar aðrar stéttir
innan borgarkerfisins. Við neitum að
trúa því að laun Reykjavíkurborgar
séu vanþakklæti og vanmat á fram-
lagi félagsráðgjafa.“
Í bréfinu segir að frá hruni hafi
álag í störfum félagsráðgjafa aukist
gríðarlega. Að jafnaði sinni félags-
ráðgjafi í fullri vinnu málefnum 100
til 120 einstaklinga eða fjölskyldna í
hverjum mánuði – auk þess sem þeir
sæki fagfundi af ýmsu tagi. Í bréf-
inu er með ítarlegum hætti farið yfir
hvernig álagið hafi aukist frá því fyr-
ir hrun. Það hafi meðal annars birst
í álagskönnun meðal starfsmanna
Reykjavíkurborgar 2010.
Í bréfinu kemur líka fram að
launakjör félagsráðgjafa hjá borginni
séu engan vegin sambærileg við það
sem gerist hjá háskólamenntuðum
stéttum í öðrum geirum borgarstarf-
seminnar. Félagsráðgjafi með 20 ára
starfsreynslu hafi 357 þúsund krónur
í heildarlaun á mánuði. Verkfræðing-
ur innan borgarinnar hafi að meðal-
tali 565 þúsund krónur í heildarmán-
aðarlaun, samkvæmt könnun frá því
í febrúar 2010. baldur@dv.is
Verkfall Álag hefur aukist á félagsfræðinga frá hruni.
n Skuldaði mörg hundruð milljónir hjá íslensku bönkunum í
kjölfar hrunsins n Björn Ingi hætti sem ritstjóri vegna málsins
F
élagið Caramba-hugmynd-
ir og orð ehf, sem var í eigu
útgefandans og fyrrverandi
stjórnmálamannsins Björns
Inga Hrafnssonar, hefur ver-
ið úrskurðað gjaldþrota samkvæmt
upplýsingum í Lögbirtingablaðinu.
Fjallað var um fyrirtækið og lánveit-
ingar frá Kaupþingi banka til þess í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
um bankahrunið. Félagið hafði ekki
skilað ársreikningi síðan fyrir hrun
en Björn Ingi hefur ekki viljað tjá sig
um málið hingað til.
Sagði upp sem ritstjóri
Eftir að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis kom út árið 2010 lét Björn
Ingi af störfum sem ritstjóri vefmið-
ilsins Pressunnar. Í staðinn sett-
ist hann í stól útgefanda. Í tilkynn-
ingu sem hann sendi frá sér vegna
málsins sagði hann meðal annars
að hann hefði ekki fengið krónu af-
skrifaða hjá íslensku bönkunum og
að hann stæði ekki vel fjárhagslega.
Hann hefur þó engu að síður, með
stuðningi aðila á borð við Róbert
Wessman, byggt upp gríðarlega stóra
vefútgáfu, Vefpressuna, sem rekur
vefmiðlana Pressuna, Bleikt, Menn,
Eyjuna og vefverslanirnar Monu og
Bútík.
Félagið skuldaði mikið
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is kom fram að Björn Ingi hafi ver-
ið sá fjölmiðlamaður sem skuldaði
íslensku bönkunum mest við efna-
hagshrunið. Voru aðeins tveir aðrir
fjölmiðlamenn nefndir sérstaklega
í skýrslunni. Samkvæmt skýrslunni
skuldaði Björn Ingi í lok september
2008, örfáum dögum fyrir hrun, 563
milljónir króna hjá Kaupþingi.
Taldi rannsóknarnefndin að lán
Kaupþings til félagsins hafi hugsan-
lega tengst markaðsmisnotkun en
Kaupþing var nær eini lánardrott-
inn félagsins. Lánið sem rannsókn-
arnefndin benti sérstaklega á var 280
milljóna króna lán sem bankinn lán-
aði til hlutabréfakaupa í Exista, móð-
urfélagi bankans, árið 2008.
Reksturinn var í góðu lagi 2007
Björn Ingi sagði einnig í tilkynn-
ingunni, sem hann sendi frá sér
eftir að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis var birt, að hann teldi
ekkert óeðlilegt við það að hann
og eiginkona hans, sem er löggilt-
ur verðbréfamiðlari, hafi fengið
lán til hlutabréfakaupa. Svo virðist
sem það hafi gengið ágætlega fram
að hruni.
Eftir því sem fram kemur í árs-
reikningi félagsins fyrir rekstrar-
árið 2007 var félagið ágætlega
stætt fyrir hrun. Rúmlega 22 millj-
óna króna hagnaður var af rekstr-
inum samkvæmt ársreikningnum
og lagði stjórn félagsins til að 33
milljónir króna yrðu greiddar í arð
til eigenda félagsins. Þær greiðslur
hafa farið beint í vasa Björns Inga,
sem var eini eigandi félagsins.
Ekki náðist í Björn Inga vegna
málsins, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Stórtækur í fjölmiðlarekstri
Björn Ingi á stóran hlut í Vefpress-
unni sem meðal annars rekur
vefmiðlana Pressuna, Bleikt og
Menn. Mynd KaRl PeteRSSon
„Félagið
hafði ekki
skilað ársreikningi
síðan fyrir hrun
Félag Björns
Inga í þrot