Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Síða 20
20 | Erlent 23.–25. september 2011 Helgarblað
Uppskeran horfin
n Þjófar stálu þremur tonnum af vínberjum í Þýskalandi
S
tórtækir þjófar létu greipar
sópa á vínekru í suðvestur
hluta Þýskalands á dög
unum og stálu um þremur
tonnum af rauðum vínberjum. Úr
berjunum, sem vaxa á stórri ekru
skammt frá bænum Deidesheim
í Bad Dürkheim, er framleitt há
gæða rauðvín. Uppskerutími vín
bænda í Evrópu stendur nú sem
hæst og aðeins nokkrir dagar voru
í að vinna hæfist til að gera úr berj
unum rauðvín. Að sögn eiganda
vínekrunnar, Stephens Attmann, er
tjónið ekki síður tilfinningalegt en
fjárhagslegt.
„Við erum í tilfinningalegu áfalli
yfir þessu tjóni,“ segir Attmann í
samtali við þýska blaðið Spiegel.
Verðmæti berjanna sem stolið var
er metið á um hundrað þúsund
evrur, eða tæpar sextán milljónir
króna. Hver flaska af víni sem fram
leitt er úr berjunum kostar um
fimm þúsund krónur í Þýskalandi.
Svo virðist sem þjófnaðurinn
hafi verið þaulskipulagður og þjóf
arnir hafi flutt allan nauðsynlegan
búnað á staðinn til að allt gengi
hratt fyrir sig. Ernst Büscher, for
maður samtaka vínframleiðenda
í Þýskalandi, segir í samtali við
Spiegel að greinilega hafi verið um
vana menn að ræða. „Þetta hafa
örugglega verið atvinnumenn, lík
lega vínframleiðendur sem hafa
misst sína uppskeru vegna frosts.“
Þjófnaður eins og sá sem Attmann
varð fyrir barðinu á, hefur færst í
vöxt í Þýskalandi undanfarin miss
eri og er sjaldgæft að þjófarnir
náist. Attmann segist þó sjálfur
vera bjartsýnn. „Ég mun bíða eftir
gæðavíni frá einhverjum framleið
anda sem er ekki þekktur fyrir að
framleiða gæðavín,“ segir hann.
Uppskerutími Tjónið sem Attmann varð fyrir er metið á fleiri milljónir króna. Uppskeru-
tími vínbænda stendur nú sem hæst.
Í forsvari fyrir sáttanefnd:
Drogba
vill frið
Fílbeinsstrendingurinn Didier
Drogba, leikmaður Chelsea í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu, von
ast til þess að hann geti komið á
friði í stríðshrjáðu heimalandi sínu.
Í nóvember síðastliðnum voru
um þrjú þúsund manns drepin
í kjölfar forsetakosninga í land
inu. Laurent Gbagbo, sem gegndi
embætti forseta fyrir kosningarnar
og er vinsæll í suðurhluta lands
ins, neitaði að viðurkenna ósigur
gegn Alassane Ouattara sem nýtur
vinsælda í norðurhluta landsins.
Svo fór að Ouattara var skipaður í
embætti í apríl síðastliðnum í kjöl
far handtöku Gbagbos. Ástandið
á Fílabeinsströndinni þykir enn
eldfimt og hefur Drogba nú verið
skipaður forsvarsmaður ellefu
manna sáttanefndar sem á að hafa
það hlutverk að græða sárin eftir
forsetakosningarnar og koma á
sáttum milli andstæðra fylkinga í
norðri og suðri.
„Þetta verður ekki auðvelt, ég
er ekkert ofurmenni,“ segir Drogba
sem er líklega besti knattspyrnu
maður í sögu Fílabeinsstrandar
innar. „Ég vonast til þess að innan
fárra ára muni íbúar í norður og
suðurhluta landsins geta sest niður
saman og rætt málin á vinsamleg
um nótum. Landið er miklu betra
þegar friður ríkir,“ segir Drogba og
ýjar að því að hann muni flytja aftur
til Fílabeinsstrandarinnar þegar
knattspyrnuferlinum lýkur. „Ég
vil fara aftur heim með börnin og
búa á Fílabeinsströndinni,“ segir
Drogba. Fílabeinsströndin, sem er
er stærsti framleiðandi kakóbauna í
heiminum, var lengi eitt friðsælasta
ríki VesturAfríku. Árið 2002 braust
hins vegar út borgarastyrjöld sem
klauf þjóðina í tvær fylkingar. Er
nú vonast til þess að bjartari tímar
séu framundan í landinu og eru
miklar vonir bundnar við að Didier
Drogba geti sameinað íbúa lands
ins.
Í
kvöld tók Georgíuríki saklausan
mann af lífi án dóms og laga,“
sagði lögmaðurinn Thomas
Ruffin Jr. aðfaranótt fimmtudags
eftir að skjólstæðingur hans,
Troy Davis, var tekinn af lífi í fang
elsi í Jackson í Bandaríkjunum. 20
árum eftir að Davis var dæmdur til
dauða fyrir morð á lögreglumanni
á frívakt í Savannah í Georgíuríki
horfði heimsbyggðin á yfirvöld í
Georgíuríki, Hæstarétt Bandaríkj
anna og stjórnvöld skella skollaeyr
um við óskum um að lífi hans yrði
þyrmt. Líklegt að saklaus maður
hafi verið tekinn af lífi, segir Am
nesty International. Davis hélt fram
sakleysi sínu allt til dauðadags. „Í
kvöld varð ég vitni að harmleik,“
sagði verjandinn eftir að skjólstæð
ingur hans var látinn.
Skotárás, barsmíðar, morð
Lögreglumaðurinn Mark MacPhail
var skotinn til bana á bílastæði við
Burger King í Savannah 18. ágúst
árið 1989 aðeins 27 ára að aldri.
Hann hafði komið heimilislausum
manni, sem verið var að ráðast á,
til bjargar. Á sínum tíma sögðu sak
sóknarar Davis hafa verið að berja
heimilislausa manninn með byssu
vegna ágreinings um bjór. Engin
byssa fannst nokkru sinni og aldrei
tókst að tengja Davis við morðið
með DNArannsóknum.
Það sem kannski ekki margir
vita er að Davis var einnig sakaður
um, og sakfelldur fyrir, aðra skot
árás þetta örlagaríka kvöld. Hann
mun hafa verið á gangi ásamt fé
laga sínum þegar farþegar í bifreið
sem ók fram hjá hrópuðu ókvæðis
orð að þeim. Skotið var á bílinn og
hæfði eitt skotanna mann að nafni
Michael Cooper í andlitið. Hann
lifði árásina af. Skotfærasérfræð
ingur upplýsti í réttarhöldunum
sem fylgdu í kjölfarið að kúlan sem
banaði MacPhail hefði ekki getað
verið skotið úr sömu byssu og þeirri
sem særði Cooper, en var þó tvístíg
andi í því. Enda lýsti hann því einn
ig yfir að hann væri sannfærður um
að skothylki sem fannst á vettvangi
skotárásarinnar sem særði Cooper
og eitt þeirra sem fannst á bílastæði
Burger King pössuðu saman. Verj
endur Davis hafa alla tíð gagnrýnt
meðferðina á skothylkjunum, þau
hafi meðal annars verið geymd í
sama vísbendingapokanum þetta
kvöld.
Þann 28. ágúst árið 1991, eftir
löng og ströng réttarhöld, var Dav
is sekur fundinn, af kviðdómi, um
morð, skotárás og líkamsárás. Þann
30. ágúst, eftir að hafa tekið sér sjö
klukkustundir til að íhuga málið,
komst kviðdómurinn að niður
stöðu um að mæla með dauðarefs
ingu. Svo fór að Davis var dæmdur
til dauða.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Bandaríkin
Tekinn af lífi er heims-
byggðin fylgdisT með
n Dauðadeildarfanginn Troy Davis tekinn af lífi n Umdeild rannsókn, réttarhöld og dómur n Dæmdur
fyrir morðið á lögreglumanninum Mark MacPhail árið 1991 n Síðustu orð hans voru um eigið sakleysi
Harmur Stuðningsmenn, sem fjöl-
menntu til að mótmæla aftökunni
fyrir framan fangelsið í Jackson
á miðvikudag, brustu í grát þegar
ljóst var að af henni yrði. MynDir reUTerS
Assange karl-
rembusvín
„Ég kann að vera karlrembusvín af
einhverri gerð, en ég er ekki nauðg
ari,“ er haft eftir Julian Assange,
stofnanda Wikileaks í nýútkominni
sjálfsævisögu
hans, sem gefin
er út án hans
leyfis. Ævisagan
heitir „Julian Ass
ange: Unauthori
zed Autobiog
raphy“. Ævisagan
er byggð á fimm
tíu klukku
stundum af viðtölum sem höfundur
hennar, sem er ónafngreindur, tók
við Assange. Í upphafi samþykkti
Assange að bókin yrði gefin út. Hann
fékk fyrirframgreiðslu fyrir bókina
upp á eina milljón dollara. En þegar
fyrsta uppkastið barst Assange, var
hann mjög ósáttur og neitaði að
bókin yrði gefin út. Þrátt fyrir til
raunir Canongate til þess að reyna
að semja aftur við Assange, gekk það
ekki. Í ævisögunni segir Assange það
meðal annars vera rangt að hann
hafi beitt tvær konur í Svíþjóð kyn
ferðislegu ofbeldi.