Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 37
Viðtal | 37Helgarblað 23.–25. september 2011
árin. Þegar ég var fjarri fann
ég fyrir þránni og lönguninni
til að vera hjá honum og bara
honum,“ segir hann og bætir
við að fljótlega eftir að þeir
kynntust hafi komið í ljós að
fjölskyldur þeirra hafi átt sér
sameiginlega sögu.
„Fjölskylda Baldurs býr á
Ægissíðu á Rangárvöllum og
hefur búið þar um langa hríð
en í lok 19. aldar bjuggu fjöl-
skyldur okkar saman á þess-
ari jörð. Að þessu komumst
við fljótlega eftir að við byrj-
uðum að ræða saman og nú
höfum við fengið í hendurn-
ar skjal þar sem langalangafi
minn og langafi Baldurs und-
irrita sameiginlega kvörtun til
sýslumanns.
Þegar ég heimsótti tengda-
foreldra mína fann ég í fyrsta
skiptið á ævinni tengingu við
forfeður mína. Að fá að vita
að afi hefði alist þarna upp og
gengið þarna um túnin. Þess
vegna er þessi tími líka svona
merkilegur fyrir mig og þann-
ig tengist afi plötunni. Mér
finnst svo merkilegt hvað það
er stutt síðan og hversu gífur-
lega miklar breytingar hafa
orðið, þótt innrætið og það
sem er í grunninn hafi ekki
breyst. Ástin og þráin eru enn
til staðar.“
Endurnýja heitin
reglulega
Felix og Baldur giftu sig á síð-
asta degi ársins 1999 í fallegri
athöfn sem fram fór á heimili
þeirra. „Þetta var alveg æðis-
legt og fábærlega skemmtileg
veisla en við fengum fulltrúa
sýslumanns heim til okkar,“
segir hann og bætir við að
þeir finni ekki hjá sér neina
þörf til að endurtaka athöfn-
ina nú þegar ein hjúskaparlög
séu orðin að lögum.
„Við endurnýjum heitin
mjög reglulega, bara fyrir
okkur,“ segir hann og bætir
við að Íslendingar séu komnir
langt í mannréttindabaráttu
samkynhneigðra. „Við erum
komin á gríðarlega góðan
stað en þetta er stöðug vinna.
Fordómarnir eru fljótir af stað
ef við höldum ekki áfram og
næstu mál eru mannréttindi
transfólks og vinnan í mögu-
leikum samkynhneigðra á
ættleiðingum. Það eru því
ákveðnir hlutir sem þarf að
vinna í en lagalega staðan er
mjög góð og það má segja að
þar hafi náðst fullnaðarsigur.“
Blanda af gleði og ótta
Felix segist vona að það sé
auðveldara að koma út úr
skápnum í dag en þegar hann
var að stíga sín fyrstu spor
sem opinber hommi í kring-
um 1990.
„Það er alltaf erfitt að
synda á móti straumnum en
ég vona að það sé auðveld-
ara en það var enda er fólk að
koma fram yngra í dag. Í dag
eru til mikilvægar fyrirmyndir
fyrir ungt fólk sem við fórum
mikið á mis við. Ég held samt
að það sé alltaf erfitt að taka
þetta skref. Þegar fólk kemur
út úr skápnum, eins og það er
kallað, þarf það að taka upp
nýja sjálfsmynd því sú sjálfs-
mynd sem það hafði þróað
með sér miðaðist alltaf við
normið.
Sjálfsmyndin og hið menn-
ingarlega „identity“ sem hef-
ur verið innprentað í það frá
barnæsku fer á hvolf og þess
vegna er þetta svo erfitt. Sem
betur fer er stuðningsnetið og
stuðningur frá skólum og fag-
stéttum miklu meiri en var,“
segir hann en bætir við að
sjálfur hafi hann verið hepp-
inn.
„Ég fékk heilmikinn stuðn-
ing. Þetta er bara eins og hvert
annað áfall sem maður geng-
ur í gegnum í lífinu. Sérkenni-
leg blanda af gleði og ótta. Í
raun er sá samkynhneigði bú-
inn að ganga í gegnum kvöl-
ina svo lengi áður en skrefið er
tekið en þá eiga allir hinir eftir
að vinna úr því, sem er alltaf
svolítið skrítið. Þetta er ákveð-
ið ferli og í mínu tilfelli gekk
það vel. Það er með þetta eins
og allt annað í lífinu. Það þarf
tíma því tíminn læknar öll sár.
Þetta er ekkert Idol. Það gerist
ekki bara á einu kvöldi á 22.“
Hommi í Stundinni okkar
Um árabil var Felix órjúfan-
legur hluti af tvíeykinu söng-
glaða, Gunna og Felix, en
hann og Gunnar Helgason
leikari sáu um Stundina okkar
1994– 1996.
„Þetta var alveg stórkost-
legur tími og algjör lykil-
tími í mínu lífi. Þarna kynnt-
ist ég mörgu góðu fólki og fór
að finna að ég hafði ákveðið
vald á hlutunum og það var
alveg rosalega gaman,“ segir
hann og bætir við að hann
sé ekki svo viss um að í ná-
grannalöndunum hefði fólk á
þessum tíma verið tilbúið til
að hleypa samkynhneigðum
manni í barnatímann.
„Ég fékk líka helling af
meldingum frá fólki sem sagði
mér að ef ég ætlaði að eiga
séns í þessum bransa þá yrði
ég að halda kynhneigðinni út
af fyrir mig. Ég var því alltaf
ósammála og hef alltaf verið
viss um að þetta snúist frekar
um opnun. Að það sé best að
taka spennuna og leyndar-
málið út úr jöfnunni því þá
er þetta ekkert vesen. Það er
þessi mýta um þetta stórkost-
lega spennandi líf sem gerist á
bak við luktar dyr. En ef mað-
ur opnar dyrnar þá er spenn-
an farin og ekkert til að ræða
lengur.
Maður er fyrst og fremst
dæmdur af verkum sínum og
um leið og maður er farinn að
sjá öll sín töp og ósigra í lífinu
vegna þess að maður sé svona
eða hinseginn þá er maður
búinn að tapa. Punktur og
basta. Við verðum bara að líta
í eigin barm og vanda okk-
ur og þá ganga hlutirnir. Það
reyni ég að innprenta börn-
unum mínum, að vanda sig.“
Ekki nógu öðruvísi
Það er greinilega vandlifað því
Felix hefur einnig fengið gagn-
rýni fyrir að vera ekki nógu
mikið öðruvísi og fyrir að vekja
ekki nægilega mikla athygli á
sér. „Við Baldur höfum lent í
því að aðrir samkynhneigðir
hreinlega hvæsa á okkur því
við erum ekki nógu skemmti-
legir,“ segir hann hlæjandi.
Felix ætlar að halda útgáfu-
tónleika þann 27. september í
Salnum í Kópavogi. Hann við-
urkennir að spenningurinn sé
mikill enda langt síðan hann
hefur haldið tónleika. „Mér
finnst eins og ég sé að henda
mér út í djúpið sem er nátt-
úrulega hlægilegt því ég syng
svo rosalega mikið, bæði sem
veislustjóri og í útvarpinu.
Þetta er bara svo persónulegt.
Þessi plata er barnið mitt svo
auðvitað er smástress en það
á vonandi eftir að renna af
manni.“
„Ég vissi það
strax. Það var
eitthvað í augunum
og innrætinu sem dró
mig strax að honum
og hefur bara styrkst
í gegnum árin. Þegar
ég var fjarri fann ég
fyrir þránni og löng-
uninni til að vera hjá
honum og bara hon-
um.
„Ég fékk líka
helling af
meldingum frá
fólki sem sagði
mér að ef ég ætl-
aði að eiga séns í
þessum bransa þá
yrði ég að halda
kynhneigðinni út
af fyrir mig
Listamaður Felix hefur komið
víða við á löngum ferli. Hann sá um
Stundina okkar, hefur leikið í leikritum,
sungið í vinsælustu hljómsveit lands-
ins, leikstýrt og unnið á fjölmiðlum.