Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Side 38
38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 23.–25. september 2011 Helgarblað
G
uðni fæddist í Teigi í Fljóts-
hlíð og ólst þar upp. Hann
stundaði nám við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni
1944–45 og við Samvinnu-
skólann í Reykjavík 1947–49. Hann
flutti á Hvolsvöll 1950 og hefur átt þar
heima síðan.
Guðni stundaði afgreiðslu- og
skrifstofustörf hjá Kaupfélagi Rang-
æinga á Hvolsvelli 1950–53, var
gjaldkeri og fulltrúi kaupfélagsstjóra
1954–64, tryggingafulltrúi fyrir Sam-
vinnutryggingar 1964–89 og var
svæðisstjóri Vátryggingafélags Ís-
lands á Hvolsvelli 1989–97. Þá hefur
hann stundað fjárbúskap í frístund-
um.
Guðni sat um skeið í stjórn Félags
ungra framsóknarmanna í Rangár-
vallasýslu og var formaður Fjárrækt-
arfélagsins Hnýfils 1966–70.
Fjölskylda
Eiginkona Guðna er Svanlaug Krist-
jana Sigurjónsdóttir, f. 4.7. 1937,
fyrrv. tryggingafulltrúi við sýslu-
mannsembættið á Hvolsvelli. Hún er
dóttir Sigurjóns Sigurðssonar, bónda
á Mið-Skála undir Vestur-Eyjafjöll-
um, síðar í Reykjavík, og Ragnhildar
Ólafsdóttur húsfreyju.
Fósturforeldrar Svanlaugar Krist-
jönu: Kristján Þóroddur Ólafsson og
Arnlaug Samúelsdóttir, á Seljalandi
undir Vestur-Eyjafjöllum.
Börn Guðna og Svanlaugar Krist-
jönu eru Örn Guðnason, f. 1.8. 1958,
viðskiptafræðingur og teiknari, bú-
settur á Selfossi, kona hans er Þórey
Eyþórsdóttir og eru börn þeirra Ey-
þór, f. 29.11. 1995, og Svanlaug, f.
30.11. 2000; Margrét Björg Guðna-
dóttir, f. 20.2. 1967, viðskiptafræð-
ingur, búsett í Reykjavík en maður
hennar er Emil Björn Héðinsson
kerfisfræðingur og eru börn þeirra
Arna Rut, f. 11.10. 1993, Guðni Snær,
f. 4.7. 1997 og Tinna Rún, f. 27.7.
2006.
Systkini Guðna: Albert, f. 25.9.
1926, d. 26.12. 1998, kennari á Skóg-
um undir Austur-Eyjafjöllum; Ágúst,
f. 31.8. 1927, fyrrv. bóndi og skrif-
stofumaður á Selfossi; Sigrún, f. 1.7.
1930, húsmóðir á Hvolsvelli; Árni,
f. 2.4. 1932, d. 6.12. 2009, bóndi í
Teigi II í Fljótshlíð; Jens, f. 19.5. 1942,
bóndi í Teigi I í Fljótshlíð.
Foreldrar Guðna voru Jóhann
Guðmundur Jensson, f. 10.2. 1895,
d. 14.11. 1978, bóndi í Teigi í Fljóts-
hlíð, og k.h., Margrét Albertsdóttir, f.
15.12. 1900, d. 21.3. 1989, húsfreyja.
Ætt
Jóhann var sonur Jens, b. á Torfastöð-
um og í Árnagerði í Fljótshlíð Guðna-
sonar, b. á Torfastöðum Jónssonar, b.
á Sauðtúni Eyvindssonar, en langafi
Jóns var Eyvindur duggusmiður er
smíðaði einna fyrstur haffæra duggu
á seinni öldum. Móðir Guðna var
Guðrún, dóttir Árna Guðnasonar
frá Húsum og Vilborgar Gunnars-
dóttur frá Valstrýtu. Móðir Jens var
Kristín Jensdóttir, b. í Deild Jensson-
ar, b. í Deild Jenssonar. Móðir Jens
yngra var Guðbjörg Guðmundsdótt-
ir. Móðir Kristínar var Margrét Jóns-
dóttir, b. á Valstrýtu Egilssonar og
Kristínar Ólafsdóttur.
Móðir Jóhanns var Sigrún Sigurð-
ardóttir, b. á Torfastöðum Ólafsson-
ar, b. á Kvoslæk í Fljótshlíð Arnbjarn-
arsonar, b. þar Eyjólfssonar. Móðir
Sigrúnar var Guðrún Ólafsdóttir, b.
á Múlakoti í Fljótshlíð Árnasonar og
Þórunnar, ljósmóður Þorsteinsdótt-
ur, b. og smiðs á Vatnsskarðshólum í
Mýrdal Eyjólfssonar. Móðir Þórunn-
ar var Karítas Jónsdóttir frá Reynis-
stað.
Margrét var dóttir Alberts, b. á
Teigi Eyvindssonar, b. á Skipagerði
í Landeyjum Þorsteinssonar, sem
kominn var í fjórða lið af Fjalla-Ey-
vindi, og Arnbjargar Andrésdóttur, b.
á Hemlu í Landeyjum Andréssonar,
b. á Syðra-Hóli Sighvatssonar. Móð-
ir Arnbjargar var Guðrún Guðlaugs-
dóttir, b. í Hemlu Bergþórssonar og
Margrétar Árnadóttur.
Móðir Margrétar var Salvör Tóm-
asdóttir, b. á Arnarhóli í Landeyjum
Jónssonar, b. á Heylæk í Fljótshlíð
Tómassonar, b. á Teigi í Fljótshlíð
Jónssonar, dóttursonar Þorbjarg-
ar, systur Jóns Þorlákssonar, pr. og
skálds á Bægisá.
E
inar fæddist í Garði á Þórs-
höfn og ólst upp á Þórshöfn.
Hann stundaði fiskvinnslu í
fimmtán ár, fyrst á Þórshöfn
og síðan hjá Ísbirninum í
Reykjavík. Þá stundaði hann vinnu
við hafnargerð á Þórshöfn og var þar
í byggingarvinnu.
Einar stundaði sjómennsku um
árabil á ýmsum bátum, m.a. frá
Reykjavík, Sandgerði, Keflavík og
Neskaupstað, og var á togara frá Pat-
reksfirði í hálft annað ár. Hann kom í
land 1979, vann hjá Ísbirninum, síðan
hjá Furuhúsinu við húsgagnasmíði
og loks hjá Vélsmiðjunni Járnverki og
starfaði þar meðan heilsan leyfði.
Fjölskylda
Einar hóf sambúð 1979 með Þor-
björgu Ottós-
dóttur, f. 23.7.
1924, en hún lést
10.6. 1991.
Sambýliskona
Einars er Guð-
munda Ágústs-
dóttir, f. 9.8.
1929, húsmóðir.
Dóttur- og
uppeldissonur Guðmundu er Jakob
Ævar Þórðarson, f. 23.1. 1992.
Systir Einars var Elín Guð-
mundsdóttir, f. 16.5. 1943, d. 29.2.
1944.
Foreldrar Einars voru Guðmund-
ur Guðmundsson, f. 18.8. 1916, d.
12.1. 1971, frá Fagranesi á Langa-
nesi, rafvirki og rafveitustjóri á Þórs-
höfn, og Þuríður Þorvaldsdóttir, f.
28.8. 1922, d. 5.4. 1944, frá Skálum í
Sauðaneshreppi, húsmóðir.
Þ
órsteinn fæddist á Akur-
eyri en ólst upp á Siglufirði.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykja-
vík 1971, embættisprófi í
guðfræði frá Háskóla Íslands 1978 og
lauk viðskipta- og rekstrarnámi við
Háskóla Íslands 1991.
Þórsteinn var lögreglumaður á
sumrin 1972–75, var línumælinga-
maður hjá Landsvirkjun yfir sumar-
tímann 1975–78 og samningamaður
hjá Landsvirkjun.
Þórsteinn vígðist til Miklabæj-
arprestakalls í Skagafjarðarpróf-
astsdæmi haustið 1978 og var þar
sóknarprestur, bóndi og kennari til
haustsins 1984 en fékk þá ársleyfi frá
störfum. Hann sagði síðan starfinu
lausu frá og með fardögum 1985.
Þórsteinn var deildarstjóri við-
skiptadeildar Rafmagnsveitu Reykja-
víkur frá haustinu 1984 til ársloka
1994 og var jafnframt prestur Óháða
safnaðarins frá haustinu 1985 til far-
daga 1995. Hann tók við starfi for-
stjóra Kirkjugarða Reykjavíkurpró-
fastsdæma í ársbyrjun 1995 og hefur
gegnt því starfi síðan.
Þórsteinn var sveitarstjórnar-
maður í Akrahreppi í Skagafirði
1980–82, kennari við grunnskóla
í Skagafirði 1978–84, er formaður
Kirkjugarðasambands Íslands frá
stofnun 1995, formaður In Memori-
am ehf. (söfnun legstaðsskráa) frá
2000, situr í siðanefnd ICF (Inter-
national Cremation Federation) og
situr í stjórn NFKK, Kirkjugarða- og
bálstofusambands Norðurlanda.
Fjölskylda
Þórsteinn kvæntist 15.8. 1971 Elsu
Guðmundsdóttur, f. 25.4. 1951,
bankaritara. Hún er dóttir Guð-
mundar Óla Þorlákssonar, f. 21.6.
1928, d. 29.11. 1977, sjúkrahúsráðs-
manns og tónlistarmanns á Siglu-
firði, og Svanhildar Ólafar Eggerts-
dóttur, f. 28.8. 1931, d. 21.3. 2009,
húsmóður á Siglufirði.
Börn Þórsteins og Elsu eru Svan-
hildur Ólöf Þórsteinsdóttir, f. 8.10.
1969, kennari og markaðsfulltrúi
hjá Stöð 2, en maður hennar er
Gestur Hreinsson stjórnmálafræð-
ingur og eiga þau Guðrúnu Jónu, f.
1997, og Hlyn, f. 2003, en Svanhild-
ur átti áður Þórstein, f. 1988; Herdís
Þórsteinsdóttir, f. 16.6. 1974, kenn-
ari við Ísaksskóla, en maður hennar
er Sturlaugur Þór Halldórsson iðn-
rekstrarfræðingur og eru börn þeirra
Elsa Björg, f. 2003, og Bríet, f. 2005,
en fyrir átti Herdís Árna Snæ, f. 1996,
og Sturlaugur átti fyrir Bjarka Ragn-
ar, f. 1998; Guðný Þórsteinsdóttir, f.
4.3. 1980, stjórnmálafræðingur, gift
Páli Guðbrandssyni sálfræðingi en
sonur þeirra er Sindri, f. 2008; Valý
Ágústa Þórsteinsdóttir, f. 15.12. 1983,
nemi við Háskóla Íslands en unnusti
hennar er Ingimar Guðmundsson
forritari.
Systkini Þórsteins eru Guð-
rún Ragnarsdóttir, f. 12.9. 1950,
þjóðfélagsfræðingur hjá Félags-
þjónustu Reykjavíkurborgar, búsett
í Reykjavík; Vallý Helga Ragnars-
dóttir, f. 28.8. 1953, hjúkrunarfræð-
ingur og ljósmóðir, búsett í Reykja-
vík; Lárus Ragnarsson, f. 30.10. 1954,
heimilislæknir, búsettur í Reykjavík;
Ragnheiður Jensína Ragnarsdótt-
ir, f. 5.4. 1956, hjúkrunarfræðingur,
búsett í Reykjavík; Halldóra Anna,
f. 16.9. 1964, starfsmaður hjá ljósrit-
unarstofunni Samskiptum, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Þórsteins: Ragnar Fjalar
Lárusson, f. 15.6. 1927, d. 26.6. 2005,
sóknarprestur og prófastur í Hall-
grímskirkju í Reykjavík, og k.h., Her-
dís Helgadóttir, f. 10.7. 1928, hús-
móðir.
Ætt
Ragnar Fjalar var hálfbróðir Stef-
áns Lárussonar, pr. í Odda. Ragnar
Fjalar var sonur Lárusar, pr. í Mikla-
bæ í Skagafirði, bróður Guðrúnar
Elísabetar, móður Sigurðar Pálsson-
ar, skálds og rithöfundar. Lárus var
sonur Arnórs, pr. á Hesti í Borgar-
firði, bróður Þórarins B. Þorláksson-
ar, fyrsta lærða listmálarans hér á
landi. Annar bróðir Arnórs var Þor-
lákur, faðir Jóns, forsætisráðherra,
borgarstjóra og fyrsta formanns
Sjálfstæðisflokksins. Systir Arnórs
var Björg, fyrsti íslenski kvendokt-
orinn. Arnór var sonur Þorláks, pr. á
Undirfelli í Vatnsdal Stefánssonar, b.
á Sólheimum í Blönduhlíð Stefáns-
sonar. Móðir Arnórs var Sigurbjörg,
systir Guðrúnar, ömmu Sveins
Björnssonar, fyrsta forseta íslenska
lýðveldisins, og Ólafs Björnssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins, afa Ólafs
B. Thors, fyrrv. framkvæmdastjóra
Sjóvár. Önnur systir Sigurbjargar var
Þórunn, langamma Jóhanns Haf-
stein forsætisráðherra, föður Péturs,
sagnfræðings og fyrrv. hæstaréttar-
dómara. Sigurbjörg var dóttir Jóns,
prófasts í Steinnesi Péturssonar, og
Elísabetar Björnsdóttur, pr. í Ból-
staðarhlíð Jónssonar.
Móðir Lárusar var Guðrún Elísa-
bet, systir Stefáns, pr. á Staðar-
hrauni. Guðrún Elísabet var dóttir
Jóns, b. í Neðra-Nesi í Stafholtstung-
um Stefánssonar, prófasts í Stafholti,
bróður Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Önnur systir Stef-
áns í Stafholti var Sigríður, móðir
Kristínar, langömmu Matthíasar Jo-
hannessens, skálds og fyrrv. Morg-
unblaðsritstjóra. Hálfsystir Stefáns
var Rannveig, langamma Þórunn-
ar, móður Gylfa Þ. Gíslasonar, fyrrv.
menntamálaráðherra, föður Þor-
steins heimspekings, Vilmundar
ráðherra og Þorvalds hagfræðipró-
fessors. Stefán var sonur Þorvalds,
prófasts í Holti Böðvarssonar, pr. í
Holtaþingum Presta-Högnasonar,
pr. á Breiðabólstað í Fljótshlíð Sig-
urðssonar. Móðir Guðrúnar Elísa-
betar var Marta Stephensen, syst-
ir Hans Stephensens, afa Þorsteins
Ö. Stephensens leikara og langafa
Ögmundar Jónassonar innanríkis-
ráðherra. Systir Mörtu var Sigríð-
ur, amma Helga Hálfdánarsonar
þýðanda og langamma Hannes-
ar Péturssonar skálds. Marta var
dóttir Stefáns Stephensens, pr. á
Reynivöllum Stefánssonar Steph-
ensens, amtmanns á Hvítárvöllum
Ólafssonar, ættföður Stephensens-
ættar Stefánssonar.
Móðir Ragnars var Jensína
Björnsdóttir, prófasts í Miklabæ
Jónssonar, b. í Broddanesi Magnús-
sonar, b. á Gestsstöðum í Tungusveit
Illugasonar. Móðir Björns í Miklabæ
var Guðbjörg Björnsdóttir, b. á Stóra-
Fjarðarhorni í Kollafirði Guðmunds-
sonar.
Móðir Jensínu var Guðfinna Jens-
dóttir, b. á Innri-Veðrará í Önundar-
firði Jónssonar.
Herdís er dóttir Helga, kennara
á Akureyri Ólafssonar, sjómanns á
Sauðárkróki Jóhannssonar. Móðir
Helga var Guðlaug Guðnadóttir.
Móðir Herdísar er Valý Ágústsdótt-
ir, bryta í Reykjavík Benediktsson-
ar, og Halldóru Halldórsdóttur.
K
olbrún fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp í Breið-
holtinu. Hún var í Breið-
holtsskóla og Seljaskóla,
stundaði nám við Versl-
unarskólann og lauk þaðan stúd-
entsprófi 2001, stundaði nám í
viðskiptafræði við Háskólann í
Reykjavík, stundaði rekstrar- og
viðskiptanám við Háskólann á Bif-
röst árið 2008 og er nú að ljúka
námi í uppeldis- og menntunar-
fræði við Menntavísindasvið Há-
skóla Íslands.
Kolbrún starfaði hjá símafyrir-
tækinu Tali á árunum 2005–2008 og
starfaði síðan hjá Skýrr í eitt ár áður
en hún hóf háskólanám.
Fjölskylda
Eiginmaður Kolbrúnar er Vésteinn
Stefánsson, f. 15.2. 1981, rafvirki og
nemi við Háskólann í Reykjavík.
Sonur Kolbrúnar frá því áður er
Sölvi Snær, f. 14.4. 2000.
Dóttir Kolbrúnar og Vésteins er
Jökla Dís, f. 8.5. 2009.
Hálfsystur Kolbrúnar eru Alex-
andra Jónasdóttir, f. 13.3. 1993, af-
greiðslukona; Gabríella Rós Jónas-
dóttir, f. 15.8. 1998, grunnskólanemi;
Andrea Ósk Harradóttir, f. 2.11. 2004.
Foreldrar Kolbrúnar eru Jónas
Jóhannesson, f. 6.7. 1957, leigubif-
reiðastjóri í Reykjavík, og Auður Kol-
beinsdóttir, f. 8.6. 1960, umsjónar-
maður við sumarhús á Flúðum.
Þórsteinn Ragnarsson
Forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
Kolbrún Hanna Jónasdóttir
Nemi í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands
Guðni Jóhannsson
Fyrrv. svæðisstjóri VÍS á Hvolsvelli
Einar Guðmundsson
Verkamaður
85 ára á sunnudag
70 ára á sunnudag
60 ára á sunnudag
30 ára á föstudag