Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2011, Qupperneq 64
Nú er
pressa á
Binga!
Rómantískur
varaformaður
n Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi
og varaformaður Samfylkingar-
innar, fagnaði tinbrúðkaupi, eða
10 ára brúðkaupsafmæli, sínu og
Örnu Daggar Einarsdóttur, eiginkonu
sinnar, á fimmtudag. Dagur beindi
orðum sínum á Facebook í tilefni
dagsins beint til eiginkonu sinnar
og sagðist fagna
deginum með
yndislegustu
konu í heimi
og bætti svo
við: „Arna
Dögg Einars-
dóttir, ég elska
þig!“
Borgin bjargar
tónlistarmönnum
n Borgarráð Reykjavíkur samþykkti
á fundi í síðustu viku að veita Tón-
listarþróunarmiðstöðinni 13 millj-
óna króna styrk. Í fundargerð borg-
arráðs segir að þessi styrkur sé til að
standa straum af kostnaði við húsa-
leigu fyrir starfsemi miðstöðvarinn-
ar á árinu 2011 auk greiðslu skulda
vegna vangoldinnar húsaleigu á
árinu 2010.
Starfsemi TÞM hékk á bláþræði á
síðasta ári en Jón Gnarr borgarstjóri
gaf fyrirheit um að tryggja grund-
völl starfseminnar. TÞM
hefur gríðarlega
mikilvægu hlut-
verki að gegna hjá
ungum tónlistar-
mönnum enda
er æfingapláss
fyrir tæplegar 50
hljómsveitir.
Eiríkur skammar
Tobbu Marinós
n Eiríkur Jónsson, fyrrverandi rit-
stjóri Séð og heyrt, segir fyrrverandi
lærisveini sínu, Tobbu Marinós,
til syndanna eftir frumsýninguna
á nýjasta þætti hennar á miðviku-
dagskvöld. Í þættinum, sem heitir
einfaldlega Tobba, fékk hún góða
gesti til sín, meðal annars leikkon-
una og vinkonu sína Lilju Katr-
ínu Gunnarsdóttur. Tobba og Lilja
Katrín unnu saman á Séð og heyrt
á sama tíma og Eiríkur var ritstjóri
blaðsins. Eiríkur segir á bloggi sínu
að aldrei skuli ræða við vini sína í
fjölmiðlum, sérstaklega ekki í sjón-
varpi. „Verður aldrei ekta,“ segir
Eiríkur sem þó var einnig sáttur við
þáttinn. „Katrín Jak-
obs og kaupóða
konan voru frá-
bærar í sófan-
um og á tíma-
bili fannst
mér eins og
ég væri að
renna inn
í Opruh
Winfrey-
þátt.“
H
lín Einarsdóttir, ritstjóri vef-
miðilsins bleikt.is, og Björn
Ingi Hrafnsson, eigandi Vef-
pressunnar, sem meðal ann-
ars rekur bleikt.is, eru nýtt
par. Það var tímaritið Séð og heyrt sem
greindi frá þessu á fimmtudag en þar
var fullyrt að Björn Ingi og Hlín hafi
verið að hittast á stefnumótum og vel
fari á með turtildúfunum. Björn Ingi
stóð í skilnaði fyrr á þessu ári. Sjálfur
hefur Björn Ingi ekki viljað ræða sam-
band sitt þar sem hann taldi það vera
„sitt einkamál“.
Þegar DV hafði samband við Hlín á
fimmtudag vildi hún ekkert tjá sig um
nýju ástina í lífi sínu í samtali við blað-
ið. „Ég tjái mig ekki um sambandið
mitt,“ sagði hún og bætti við að ástæð-
an væri sú að DV hefði á sínum tíma
búið til viðtal við sig. Viðtalið sem Hlín
vitnar til var í raun ritstjórnarpistill sem
hún skrifaði sjálf á bleikt.is og DV birti
brot úr. Þar svaraði hún fyrir ásakanir
þess efnis að hún hefði birt uppdiktað
viðtal við dönsku sprelligosanna Frank
Hvam og Kasper Christiansen þar sem
þeir lýstu yfir áhuga sínum á íbúðar-
kaupum á Íslandi. Fréttablaðið náði
tali af Hvam sem sagði að það væri
„kjaftæði“ og þeir væru ekki í neinum
fasteignahugleiðingum á Íslandi.
Fjögur ár eru á milli Hlín-
ar og Björns Inga, en
hún er fædd árið 1977
en Björn Ingi árið
1973. Hlín hefur ver-
ið ritstjóri bleikt.is frá
stofnun vefmiðilsins
í desember í fyrra
en Björn Ingi er
stjórnarformaður
og útgefandi Vef-
pressunnar sem á
og rekur bleikt.is.
Björn Ingi og Hlín eru nýtt par
n Hlín Einarsdóttir er þögul um nýju ástina í lífi sínu
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 23.–25. sEptEmBEr 2011 109. tbl. 101. árg. leiðb. verð 659 kr.
Ást.is? Á forsíðu Séð og heyrt er mynd af þeim Birni Inga og Hlín
með fyrirsögninni ást.is