Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Síða 2
2 | Fréttir 10. október 2011 Mánudagur
Í
slenska fegurðardrottningin og
fyrirsætan Anna Björnsdóttir batt
í sumar enda á eina umfangs-
mestu leit bandarísku alríkislög-
reglunnar FBI er hún vísaði á hinn
alræmda glæpaforingja James „Whi-
tey“ Bulger. Fyrir vikið fékk hún tvær
milljónir dollara, eða um 235 millj-
ónir íslenskra króna. Þetta fullyrðir
fréttamiðillinn Boston Globe í ítar-
legri úttekt um málið.
Vingaðist við sambýliskonuna
Samkvæmt heimildum Boston Globe
hafa Anna og eiginmaður hennar,
Halldór Guðmundsson, leigt íbúð í
Santa Monica á hverju ári, síðustu tvo
áratugi, og dveljast þau þar í allt að
sex mánuði í senn. Hinn 82 ára Bulger
bjó í næsta nágrenni við Önnu ásamt
sambýliskonu sinni Catherine Greig
sem er 60 ára og notuðust þau við dul-
nefnin Charlie og Carol Gasko. Greig
fóðraði reglulega heimilislausan kött
í hverfinu og veitti Anna góðverkinu
eftirtekt. Það fór svo að Anna spjallaði
stundum við Catherine Greig þegar
hún sinnti kettinum, en Bulger stóð
yfirleitt álengdar á meðan. Þannig var
Anna í reglulegum samskiptum við
einn alræmdasta glæpamann Banda-
ríkjanna án þess að gera sér grein fyr-
ir því. Haft er eftir sameiginlegum ná-
granna þeirra að Anna hafi sagt Greig
mjög indæla.
Efstur á lista FBI
Bulger var í sextán ár á flótta und-
an lögreglunni og var hann á lista
FBI yfir hættulegustu glæpamenn í
heimi. Hann hefur verið ákærður fyrir
skipulagða glæpastarfsemi; 19 morð,
morðtilraunir, tilraunir til fjárkúgun-
ar, fíkniefnasölu og peningaþvætti.
Það var í raun aðeins Osama bin La-
den sem var talinn alræmdari en Bul-
ger áður en hann féll. Bulger var því
orðinn efstur á listanum þegar hann
náðist. Leitin að honum er jafnframt
ein sú dýrasta sem sögur fara af innan
bandarísku alríkislögreglunnar.
Anna þekkti Bulger strax
Anna, sem starfar nú sem jógakenn-
ari og grafískur hönnuður, mun hafa
verið stödd á Íslandi í sumar þegar
hún sá tilkynningu frá FBI á CNN-
sjónvarpsstöðinni þar sem auglýst var
eftir Bulger og fé sett honum til höf-
uðs. Hún þekkti hann strax og hringdi
til alríkislögreglunnar og leiddi sím-
talið til handtöku Bulgers og gerði
hana 235 milljónum króna ríkari.
Blaðamenn Globe komu til Ís-
lands
Anna sjálf hefur ekki viljað tjá sig
um málið en blaðamenn frá Boston
Globe hafa komið hingað til lands í
tvígang til að ná tali af henni. Í um-
fjöllun fréttamiðilsins um málið segir
að hún hafi hlaupið inn til sín án þess
að segja orð þegar blaðamenn reyndu
að ná tali af henni þar sem hún var
stödd fyrir utan heimili sitt. Þá sendi
eiginmaður hennar þeim tölvupóst
þar sem hann sagði að hún myndi
ekki tjá sig um málið. DV reyndi ítrek-
að að ná tali að bæði Önnu og Hall-
dóri, en án árangurs. Svo virðist sem
hún sé stödd erlendis.
n Íslenska fegurðardrottningin Anna Björnsdóttir vísaði á James „Whitey“ Bulger n Var á flótta í sextán ár
n Aðeins Osama bin Laden var talinn alræmdari en Bulger n Anna vingaðist við sambýliskonu Bulgers
Vísaði á glæpaforingja
„Hún þekkti hann
strax og hringdi
til alríkislögreglunnar og
leiddi símtalið til hand-
töku Bulgers og gerði
hana 235 milljónum
króna ríkari.
James Joseph „Whitey“ Bulger yngri fæddist
þann 3. september árið 1929 og er því nýorð-
inn 82 ára. Hann var glæpaforingi og stýrði
lengi vel undirheimunum í Suður-Boston.
Stundum var talað um hann sem hálfgerðan
Hróa hött því hann lagði mikla áherslu á að
verja hverfið fyrir öðrum glæpagengjum.
Á áttunda áratug síðustu aldar starfaði Bul-
ger jafnframt sem uppljóstrari hjá FBI. Hann
gaf þeim upplýsingar um önnur glæpagengi
og fékk í staðinn að vera í friði með sitt eigið.
FBI leit því nánast framhjá glæpum hans í
um tvo áratugi. Þegar upp komst um málið
árið 1997 var það allt hið vandræðalegasta
fyrir alríkislögregluna.
Frank Costello, persóna Jacks Nicholson í
Óskarsverðlaunamyndinni Departed, var
byggð á Bulger. Í myndinni var Costello
einnig uppljóstrari hjá FBI.
Fékk ábendingu frá félaga
Bulger lagði á flótta frá Boston síðla árs
1994 til að forðast handtöku. En það var
spilltur félagi hans innan FBI sem gaf
honum ábendingu um að til stæði að gefa
út handtökuskipun á hendur honum.
Catherine Greig, sambýliskona Bulgers, sem
var honum trygg og trú í sextán ár á flótta,
var áður hjákona hans í átján ár á meðan
hann hélt heimili með Teresu Stanley og
fjórum börnum hennar. Greig reyndi að slíta
sambandi sínu við Bulger áður en hann
lagði á flótta og sagði Stanley frá sambandi
þeirra. Það var því Stanley sem stakk af með
Bulger en hún hélt aðeins út í nokkrar vikur.
Greig tók þá aftur saman við Bulger og kom
það mörgum á óvart.
Voru vingjarnlegir nágrannar
Á flóttanum þrengdi sífellt að Bulger og
Greig og eftir 11. september 2001 varð
nánast ómögulegt fyrir þau að ferðast
með fölsuð skilríki. Þegar þau settust að
í Santa Monica fékk Bulger róna að nafni
James William Lawlor til að selja sér skilríki
sín. Hann sagðist hafa komið ólöglega inn
í landið og þyrfti þar af leiðandi á nýjum
skilríkjum að halda. Lawlor og Bulger voru
töluvert líkir í útliti og þegar sá síðarnefndi
þurfti að kaupa lyf, fara í banka og fleira
nýtti hann skilríkin og virðist það hafa
virkað vel.
Fyrrverandi nágrannar Bulgers og Greig,
sem Boston Globe talaði við, voru flestir
sammála um að þau hefðu verið vingjarnleg
en kunnað að meta að fá að vera í friði.
Þau buðu fólki sjaldan heim til sín og héldu
sig til hlés. Undir lokin var Greig farin að
ljúga því að nágrönnunum að Bulger glímdi
við alzheimer til að forðast óþægilegar
spurningar.
Lýsir sig saklausan
Bulger var handtekinn við heimili sitt þann
22. júní síðastliðinn. Hann var dreginn
fyrir dóm þann 6. júlí þar sem hann lýsti sig
saklausan af 48 ákærum, þar á meðal 19
morðum, morðtilraunum, tilraunum til fjár-
kúgunar, fíkniefnasölu og peningaþvætti.
Fyrrverandi félagi Bulgers sveik hann árið
2000 og vísaði lögreglunni á grafir og varð
það, meðal annars, til þess að hann var
sakaður nítján morð.
Glæpaforingi á flótta í sextán ár:
Var uppljóstrari hjá FBI
Sextán ár á flótta James „Whitey“
Bulger var á topp tíu lista bandarísku
alríkislögreglunnar FBI yfir eftirlýsta
glæpamenna. Aðeins Osama bin Laden var
talinn alræmdari.
Stórglæsileg Ekki hefur dregið úr fegurð Önnu með aldrinum. Þessi mynd af henni birtist í Morgunblaðinu árið 2003.
Kvikmyndastjarna Anna hefur leikið
í fjölmörgum kvikmyndum. Meðal annars
mynd George Lucas, More American Graffiti.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is