Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 11
Fréttir | 11Mánudagur 10. október 2011 undirtektirnar voru litlar sem engar: „Ég fékk engin viðbrögð, ekki neitt ...“ Hún heyrði ekk- ert frá biskupnum en staðfest er að hann ræddi við móður Guðrúnar Ebbu á þessum tíma. Lögmaður móðurinnar lagðist einnig gegn því að Sigrúnu Pá- línu yrði boðið á fund kirkju- ráðs. Yfirlýsing kirkjuráðs Guðrún Ebba ítrekaði beiðni sína svo enn á ný þann 27. maí 2010 með öðru bréfi. Hún heyrði hins vegar ekkert frá biskupsstofu fyrr en dag- inn áður en henni var skyndi- lega boðið á kirkjuráðsfund, þann 17. ágúst 2010. Karl sagði að fyrr um vorið hefði ver- ið ákveðið að bjóða henni á fund ráðsins í september en fundinum hafi svo verið flýtt. Stenst það samkvæmt bókun frá fundargerð kirkjuráðs 24. júní 2010. Það var svo 25. ágúst sem kirkjuráð sendi frá sér svo- hljóðandi yfirlýsingu: „Kirkju- ráð hefur átt fund með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guð- rúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem þær lýstu sögu sinni sem þol- endur kynferðisbrota. Kirkju- ráð leggur trúnað á frásagnir þeirra og tekur undir orð bisk- ups Íslands í fjölmiðlum þess efnis. Fyrir hönd þjóðkirkj- unnar biður kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur ver- ið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. Kirkjuráð harmar þá þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið. Kirkjuráð ítrekar að kynferðis- brot eru ekki liðin innan kirkj- unnar og lýsir samstöðu við þá einstaklinga og félagasam- tök sem styðja þau sem líða og vinna að forvörnum og vitund- arvakningu meðal þjóðarinnar um þessi alvarlegu mál.“ Á svip- uðum tíma var málverk af Ólafi tekið niður, þar sem það hékk á biskupsstofu og fært upp á loft. Óljós afstaða Karls Sjálfur átti Karl erfitt með að taka afstöðu í málinu og þegar hann var spurður að því í Kast- ljósi hvort hann tryði frásögn Guðrúnar Ebbu sagðist hann þurfa að bera virðingu fyrir því þegar fólk greindi frá svona reynslu, sérstaklega þegar um börn væri að ræða, en hann gæti ekki dæmt í málinu, enginn mannlegur máttur gæti dæmt í málinu og Ólafur væri látinn. „Það er vandi að svara þessu,“ sagði hann. „Ég vil allavega ekki rengja hana, ég hef engar for- sendur til þess að rengja hana,“ sagði hann og bætti því við að það yrði að taka svona frásagnir alvarlega og þá kvöl sem þar býr að baki en Guðrún Ebba hefur þráð skýrari viðurkenningu á því sem gerðist. Baráttan heldur áfram Eftir að biskupsmálið komst aftur í hámæli var rannsókn- arnefnd kirkjuþings skipuð til þess að fara yfir viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunn- ar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Átti nefndin að leggja mat á hvort um mis- tök, vanrækslu eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þögg- unar hafi verið að ræða af hálfu vígðra þjóna og starfs- manna kirkjunnar og hverjir kynnu að bera ábyrgð á því. Niðurstaðan var áfellisdómur yfir íslensku þjóðkirkjunni, þótt ekki væri talið að vísvit- andi hafi verið reynt að þagga málið niður. Þeir sem komu að málum sitja þó áfram í sín- um embættum og Karl starfar enn sem biskup en hann gerð- ist sekur um fjölmörg mistök í málinu að mati rannsóknar- nefndarinnar. Í kjölfarið, 22. júlí 2011, voru sanngirnisbætur greidd- ar til fjögurra kvenna sem urðu fyrir kynferðisbrotum af hálfu Ólafs. Sigrún Pálína fékk að auki greiddan útlagð- an kostnað vegna málsins. Við það tækifæri var það ítrekað að kirkjuþing myndi vinna áfram að umbótatillögum í sam- starfi við sérfræðinga sem síð- an verða lagðar fyrir kirkjuþing næstkomandi nóvember. En Guðrún Ebba hefur ekki lokið baráttu sinni gegn kyn- ferðislegri misbeitingu í skugga kirkjunnar, er stjórnarmaður hjá Blátt áfram og Drekaslóð og efnir nú til málþings, ásamt fagráði um meðferð kynferðis- brota innan kirkjunnar og guð- fræði- og trúarbragðadeild Há- skóla Íslands. Ekki líta undan Málþingið fer fram þann 18. október í hátíðarsal háskól- ans og efni þess er kynferð- isleg misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi. Dr. Marie M. Fortune frá Faith Trust Institute verður með erindi en hún hefur meðal annars skrifað bækur með það að markmiði að rjúfa þögn um kynferðisofbeldi innan kristinna kirkna og leitast við að þjálfa presta og aðra starfsmenn kirkjunnar í að styðja og reisa upp fórnar- lömb kynferðisofbeldis. Auk hennar munu Guðrún Ebba og fleiri flytja erindi. Fundarstjórn verður í höndum Elínar Hirst, sem hefur á undanförnum mán- uðum skráð sögu Guðrúnar Ebbu, Ekki líta undan. Bókin kemur út í gær- kvöldi. Hún fjallar um afleið- ingar þess að láta kyrrt liggja og nauðsyn þess að horfast í augu við hið liðna, hversu sárt og erfitt sem það kann að vera. Guðrún Ebba við- urkennir veikleika sína og skoðar hvernig kynferðisof- beldið hefur litað allt henn- ar líf, hvernig hún deyfði sig með margvíslegum hætti, meðal annars með átrösk- un og drykkju, tókst á við vandann og knúði kirkjunn- ar menn til að horfast í augu við vanda sinn þegar slík mál eru annars vegar – hætta að líta undan. „Þar gat hann ekki snert mig“ „Faðir minn, sem ég hélt að elskaði mig, var sá sem meiddi mig mest og skeytti engu um tilfinningar mínar og velferð. Ég byrjaði því mjög ung að setja ofbeldi og ást í eina sæng. „Faðir, fyrirgef þeim, því að þær vita ekki hvað þær gjöra“ Fjölmargir lýstu yfir stuðningi við biskupinn þegar ásakanir á hendur honum komu fram árið 1996. Við birtum smá brot af þessum stuðn- ingsyfirlýsingum.„Kirkjuráð harmar þær ásak- anir sem bornar eru fram á hendur biskupi Íslands og eru al- varleg atlaga að æru hans og heiðri kirkjunnar þjóna og valda djúpri sorg málsaðilum og öllum unnend- um kirkju og kristni.„Í framhaldi af fundi þann 11. mars 1996 í safnaðarheimili Bústaðakirkju viljum við undirrit- aðar konur koma á framfæri að við hörmum þær ásakanir sem bornar hafa verið á herra Ólaf Skúlason, biskup Íslands. Í starfi með honum bar aldrei skugga á.„Við séra Ólafur höfðum mik- ið saman að sælda og ég tel mig þekkja hann það vel að enginn fær mig til að trúa þeim ávirðing- um, sem á hann eru bornar. „Að þessu athuguðu og með hliðsjón af ýmsum aðstæð- um systur minnar, svo sem ég þekki þær, er ég fullkomlega sann- færður um að þessi frásögn sé með öllu tilhæfulaus. „Við; sem höfum unnið svo lengi með Ólafi Skúlasyni, trúum ekki þeim áburði, sem á hann er borinn. Hér hlýtur að vera um einhvern hrapallegan misskiln- ing að ræða eða samsæri. „Ég vil segja að hefði hans „karakter“ verið í þá veru að áreita ungar konur þá hefði hann virkilega haft til þess tækifæri þetta sumar. Aldrei kom neitt slíkt upp, hann var ljúfmannlegur og glaður í framkomu.„Vitað er að sumar konur – því miður – eiga í vandamálum með sinn „animus“ sem er hin karllega arketýpa sem sálfræð- ingurinn frægi, Carl G. Jung, ræddi oft um og kynnti í ritum sínum. Þá getur ímyndun blönduð óljósri þrá byggt upp hjá sumum konum þráhyggju sem getur orðið til þess að umbreyta raunveruleikanum í eitthvað sem undirvitundin leitar eftir.“ Guðrún Ebba Berst gegn kynferðislegri misnotkun á börnum í trúarlegu samhengi. Hún missti tökin á eigin lífi eftir ofbeldið, barðist við stjórnleysi, drykkju og átraskanir en hóf að vinna úr sinni reynslu árið 2003, þá 47 ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.