Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 10. október 2011 Mánudagur D óttir biskups krefst uppgjörs,“ hljóð­ aði forsíðufyrirsögn DV þann 11. ágúst 2010. Guðrún Ebba Ólafsdóttir hafði óskað eftir áheyrn kirkjuráðs, æðsta fram­ kvæmdavalds þjóðkirkjunnar. Hún vildi deila reynslu sinni með ráðinu, reynslu sinni af föður sínum, biskupnum, sem misnotaði hana kynferðislega allt frá unga aldri. Frásögn sem breytti öllu Frásögn Guðrúnar Ebbu varð vendipunktur í biskupsmál­ inu svokallaða, máli kvenna sem sökuðu Ólaf Skúlason biskup um kynferðisbrot gegn sér árið 1996. Konurnar upp­ lifðu vantrú og fálæti, þær voru forsmáðar, úthrópaðar og út­ skúfaðar. Að lokum hrökklað­ ist Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sú sem steig fyrst fram og var í forsvari fyrir hópinn, úr landi með fjölskylduna. Þegar dóttir Ólafs ákvað hins vegar að segja sannleik­ ann um föður sinn og styðja Sigrúnu Pálínu horfðu mál­ in öðruvísi við. Fólk sem áður efaðist um sekt biskupsins neyddist nú til að trúa frásögn­ um þessara kvenna. Með fram­ göngu dóttur hans hafði Ólafur Skúlason biskup tapað sakleysi sínu í hugum fólks. „Hataði þennan mann“ Guðrún Ebba hóf að vinna úr reynslu sinni árið 2003, þá 47 ára. Guðrún Ebba er fyrsta barn þeirra hjóna, ofbeldið hófst áður en hún hafði náð sex ára aldri, stóð yfir árum saman og fór fram við hinar ýmsar aðstæður. Stundum bauð faðir hennar henni með í bíltúr og misnotaði hana þar. Stundum sagði hann henni að koma inn á einkasalerni hans á heimilinu. Hann hafði gríðar­ legt vald yfir henni og í henn­ ar huga runnu faðir hennar og Guð saman í eitt þegar hún sá hann predika í fullum skrúða. Hún átti sér hvergi skjól, nema á kirkjubekknum þar sem hún sat og horfði á hann messa yfir söfnuðinum og vissi að á með­ an gæti hann ekki snert hana. Þar leyfði hún sér að vera reið, sá svart í kringum hann og hugsaði með sér að hann væri af hinu illa. „Ég fann að ég hat­ aði þennan mann,“ sagði hún. Sunnudagarnir voru verst­ ir, þá fékk hann útrás fyrir spennufallið með því að kalla hana niður á klósett til sín um kvöldið þegar hann hafði lokið skyldum sínum sem prestur. Var ekki viðstödd útförina Þegar Ólafur lést í janúar árið 2008 fann Guðrún Ebba að hún gæti ekki verið við útför hans. Til að skýra mál sitt ræddi hún við séra Pálma Matthíasson sem sá um útförina og sagði honum sögu sína. Pálmi lagði áherslu á að hún kæmi í jarðar­ förina, hvatti hana til að hugsa málið og vísaði henni til bróð­ ur síns, séra Gunnars Rúnars Matthíassonar sem er formað­ ur fagráðs kirkjunnar. Þar með var boltinn farinn að rúlla. Leitaði til presta Gunnar Rúnar efaðist aftur á móti um að mál Guðrúnar Ebbu ætti erindi til fagráðs­ ins, þar sem ofbeldið hefði farið fram á heimilinu og faðir hennar var látinn. Hann kann­ aði nú samt málið en niður­ staðan var sú að það væri rétt mat, mál hennar ætti ekki er­ indi við fagráð Þjóðkirkjunn­ ar. Seinna þegar rannsóknar­ nefnd kirkjuþings fór yfir málið sagði Guðrún Ebba að á þessum tíma hefði hún verið í miklu áfalli og réttast hefði ver­ ið að hjálpa henni. Í raun hefði fokið í hana þegar hún hugs­ aði til baka og ímyndaði sér að nú væri einhver stúlka, dóttir prests, að ganga í gegnum það sama og hún gekk í gegnum og fengi að heyra að ofbeldið væri heimilismál og kirkjan myndi ekki skoða það. Síðar sagði Gunnar Rúnar að það hefði verið rangt mat að mál hennar ætti ekki erindi við fagráðið. Fyrir jarðarförina hringdi Guðrún Ebba einnig í Karl Sigurbjörnsson, núverandi biskup þjóðkirkjunnar, sem hvatti hana til að kveðja föður sinn en þrýsti ekki á hana að mæta í jarðarförina. Afsökunarbeiðni Guðrúnar Ebbu Um haustið hélt Guðrún Ebba áfram að vinna úr sínum mál­ um, meðal annars með sam­ tölum við Guðrúnu Jónsdóttur, talskonu Stígamóta, og Sig­ rúnu Pálínu en Guðrún Ebba bað hana afsökunar og sagði hversu sárt sér þætti að hafa varið föður sinn þegar hún steig fram á sínum tíma og leit­ aðist við að gera hana og hin­ ar konurnar sem sökuðu Ólaf um kynferðisofbeldi ótrúverð­ ugar en það gerði hún til að verja sjálfa sig. Ólafur varðist ásökunum einnig með kjafti og klóm, sagðist vera saklaus maður og kærði konurnar fyrir meiðyrði. Eftir að hafa rætt þetta við þær, séra Bjarna Karlsson, séra Sigfinn Þorleifsson og dr. Sólveigu Önnu Bóasdóttur sammæltust þau um að það myndi auka trúverðugleika kvennanna ef Guðrún Ebba segði frá sinni reynslu. Svo hún ákvað að gera það. Fór á fund Karls Fyrsta skrefið var að fara á fund Karls, þann 18. mars 2009, en Karl vissi þá þegar að Guð­ rún Ebba væri að deila reynslu sinni á vettvangi Blátt áfram. Á fundinum sátu þau saman í hring, hún, biskupinn, séra Þorvaldur Karl Helgason bisk­ upsritari, séra Birgir Ásgeirs­ son og Sólveig Anna. Guðrún Ebba sagði sögu sína og þau hlustuðu. Þegar hún hafði lokið máli sínu voru fyrstu viðbrögð Karls að spyrja: „Hvað á ég að segja við hana mömmu þína?“ Guð­ rún Ebba sagðist ekki vita það en tók það fram að hún vildi hitta kirkjuráð, það væri henni mikilvægt. Þá var hún einnig með minnisblað með sér en var tjáð að langbest væri að hún skrifaði formlegt erindi og óskaði eftir að það yrði bókað. Sem hún gerði. Þá lýsti hún yfir stuðningi við Sigrúnu Pálínu og sagði að ákveðnu réttlæti yrði náð ef hún fengi að koma á fund kirkjuráðs, fengi uppreisn æru sinnar með opinberri afsökun­ arbeiðni frá íslensku þjóðkirkj­ unni og sanngjarnar skaða­ bætur. Afsökunarbeiðni Karls Sigrún Pálína fékk fund með kirkjuráði og í kjölfarið bað Karl „þær konur og börn, sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkj­ unnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið,“ í setningarræðu sinni við upphaf prestastefnu Íslands árið 2009. Við sama tækifæri sagði Karl að kirkjuþing hefði sett starfsreglur um meðferð kyn­ ferðisbrotamála í kirkjunni. Þær reglur voru kynntar Sig­ rúnu Pálínu á fundi kirkjuráðs, þar sem hún var einnig beð­ in afsökunar á þeim sársauka sem hún hefur þurft að þola. Þess má geta að Karl kom að máli Sigrúnar Pálínu og Dagbjartar Guðmundsdóttur, sem stigu fram á sínum tíma og álitu þær að hann hefði brugð­ ist þeim í sáttatilraunum þeirra við biskupinn og þjóðkirkjuna. Dagbjört óskaði seinna eftir fundi með Karli en afþakkaði hann síðan vegna framgöngu hans í fjölmiðlum. Sendi formlegt bréf Guðrún Ebba gerði aftur á móti það sem Karl hafði beðið hana um og ritaði bréf í fram­ haldi af fundi sínum með hon­ um. Bréfið var sent þann 27. mars 2009, stílað á biskup og biskupsstofu og þar óskaði Guðrún Ebba eftir því að hitta kirkjuráð og að meðfylgjandi minnisblað yrði fært til bókar. Minnisblaðið bar fyrirsögn­ ina: „Ég óska eftir tækifæri til að segja biskupi og kirkjuráði sögu mína.“ Lýsti hún reynslu sinni af föður sínum og sagði: „Það er mér mikið hjartans mál að kirkjan reyni að tryggja með öllum tiltækum ráðum að þetta komi ekki fyrir aftur, að kynferðisbrotamenn kom­ ist til æðstu metorða. Ég tel nauðsynlegt að íslenska þjóð­ kirkjan taki skýra afstöðu gegn kynferðislegu ofbeldi og lýsi því yfir að það sé synd. Kirkj­ an þarf að taka sér stöðu með þolendum og margir þolend­ ur eiga í trúarlegum erfiðleik­ um og finnst Guð hafa brugð­ ist sér. Ég tel einnig mikilvægt að prestar og allir sem starfi á vegum kirkjunnar fái fræðslu um kynferðislegt ofbeldi.“ Bréfinu stungið ofan í skúffu Bréfi Guðrúnar Ebbu var ekki svarað og það var ekki fyrr en um einu og hálfu ári seinna sem bréfið var formlega skráð í skjalaskrá biskupsstofu, eða þann 17. september 2010, eftir að DV hóf umfjöllun um málið. Karl sagði að það hefði ekki verið meðvituð ákvörðun að láta hjá líða að skrá bréfið en þar sem það var talið innihalda mjög alvarlegar ásakanir á hendur látnum manni var beðið með það. Karl sagðist ekki muna hvað varð á endanum til þess að bréfið var loks skráð í skjalakrá embættisins haustið 2010. Skjalavörður biskupsstofu lýsti því hins vegar hvernig hún sat í sínum stól með bréfahníf­ inn og opnaði bréf Guðrúnar Ebbu. Þegar hún áttaði sig á efni bréfsins brá henni illilega, svo varð henni brugðið að hún stóð upp úr stól sínum og ruddist inn á fund biskups með öðrum manni. Biskup tók henni fagn­ andi þar sem hún færði honum allajafna kærleiksrík bréf en í þetta sinn rétti hún honum bréf­ ið með orðunum „þetta er ekki gott bréf“. Karl byrjaði strax að lesa, varð brúnaþungur og átt­ aði sig fljótt á alvarleika bréfsins. „Ég mun skrá þetta bréf þegar þú biður mig þess,“ sagði skjala­ vörðurinn þá, stóð í smá stund og horfði á biskupinn, því þetta var afskaplega dramatísk stund. Svo gekk hún sína leið og skipti sér ekki meira af, þar sem hún var bara skjalavörður. Nokkrum dögum síðar – kannski tveimur vikum – kallaði hún eftir bréfinu þar sem henn­ ar heiður sem skjalavörður væri í húfi en skrifstofustjórinn sagði að biskup réði þessu, það væri hann sem valdið hefði. „Þá firri ég mig allri ábyrgð,“ sagði skjala­ vörðurinn þá, „málið er í ykkar höndum og ég bíð eftir ykkar fyrirmælum.“ Um einu og hálfu ári síðar fór hún aftur upp á loft og krafðist þess að fá þessi bréf, þar sem málið var orðið að stór­ máli, en þá lágu þau í skúffu rit­ ara biskups og búið var að fjöl­ falda einhver þeirra. „Það átti að ýta mér til hliðar“ Guðrún Ebba ítrekaði erindi sitt með tölvupósti til Þor­ valds Karls þann 16. júní 2009. Þorvaldur Karl áframsendi bréf hennar til Karls og Guð­ mundar Þórs Guðmundsson­ ar, framkvæmdastjóra kirkju­ ráðs, tveimur dögum síðar. Um þetta hefur Guðrún Ebba sagt: „Ég hringdi í Þorvald Karl þeg­ ar mér var orðið ljóst að það átti að ýta mér til hliðar. Fyrst hugs­ aði ég alltaf um hvað Sigrún Pá­ lína fengi þegar upp væri staðið, en svo hugsaði ég um mig sjálfa, þetta væri rosastórt mál fyrir mig líka og ég væri með nýjar upplýsingar.“ Eins og hún sagði, þá sagði hún öllum frá og reyndi að koma sögu sinni til skila en n Ekki líta undan er saga Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, dóttur Ólafs Skúlasonar n Sunnudagarnir voru verstir n Þá var hann undir álagi og losaði um spennu með því að misnota dóttur sína „Þar gat hann ekki snert mig“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Úttekt Ólafur Skúlason Misnotaði dóttur sína kynferðislega um árabil. Hún átti hvergi skjól nema í kirkjunni á sunnudögum, þar gat hann ekki snert hana. Sunnudagar Við birtum hér brot úr bók- inni, kaflann Sunnudagar: „Ég hef oft óskað þess að sunnudagar rynnu aldrei upp. Þeir bara hyrfu og kæmu aldrei framar. Ég gæti bara sofnað á laugardags- kvöldi og vaknað á mánudags- morgni. Árum saman skildi ég ekki eða skynjaði af hverju mér leið alltaf svona illa á sunnudögum og þurfti að hafa svo mikið fyrir því að láta þá líða. Þegar ég var lítil og sá pabba standa við altarið í messuskrúð- anum, oft fyrir fullri kirkju, fylltist ég miklu stolti og fannst sunnudag- arnir hápunktur vikunnar. Ég horfði gagntekin á pabba þjónusta Guð. Ég vildi líka að hann væri stoltur af mér, var prúð og stillt í messunni og söng sálmana sem ég kunni marga utanbókar. Við lærðum að biðja bænir heima og þá vorum við að biðja til þess Guðs sem pabbi talaði um í kirkj- unni. Það var aldrei nein spurning um hvort Guð væri til, sem barni hefði mér aldrei dottið í hug að efast um það. En ég var algerlega valdalaus bæði gagnvart pabba og hans Guði. Eins og fyrr segir notaði pabbi stundum sunnudagskvöldin til að beita mig kynferðisofbeldi. Ég man að ég hugsaði að pabbi væri undir svo miklu álagi um helgar og að hann þyrfti að losa um spennu. Kannski sagði hann eitthvað í þeim dúr við mig en ekki er ólíklegt að ég hafi komið með þessa skýringu sjálf til þess að reyna að réttlæta misgjörðir hans og skýra fyrir sjálfri mér þá staðreynd að faðir minn, sem ég hélt að elskaði mig, var sá sem meiddi mig mest og skeytti engu um tilfinningar mínar og velferð. Ég byrjaði því mjög ung að setja ofbeldi og ást í eina sæng. Þetta er lýsandi dæmi um þau ruglingslegu skilaboð og mót- sagnir sem ég ólst upp við. Þess vegna get ég ekki með skynsam- legum hætti skýrt allt misræmið í hegðun minni og lífsmynstri, átröskunina, drykkjuna sem ég faldi með því að skila alltaf mínu, stjórnleysið undir sléttu og felldu yfirborði og ekki síst samband mitt við föður minn eftir að ég varð fullorðin. Þegar ég komst til vits og þroska varð erfiðara að halda hinum myrka heimi frá dagsljós- inu. Ég fór að gera mér grein fyrir því að pabbi fór ekki eftir því sem hann predikaði og ég kom auga á andstæðurnar í fari hans. Allt í einu sat ég í messu á sunnu- dögum og fann að ég hataði þennan mann. Ég horfði á hann í predikunarstólnum og fannst vera myrkur í kringum hann. Ég hataði sunnudagana þar sem hann þóttist heilagur í kirkjunni en notaði svo tækifærið sama kvöld til að beita mig viðbjóðs- legu ofbeldi sem ég skammaðist mín fyrir og óttaðist að allir sæju utan á mér. Ég vildi trúa á hið fallega og góða en ég hataði þennan Guð sem pabbi vann fyrir. Hann var Guðinn hans pabba en ekki minn, ég átti engan Guð. Hvar gat ég leyft mér að vera reið út í pabba? Hvar var ég óhult? Í kirkjunni – á sunnudögum. Þar gat pabbi ekki snert mig. Seinna, þegar hugurinn var búinn að loka á allar minningar um kynferðis- ofbeldið og ég var meira að segja flutt að heiman, sat ég uppi með tilfinninguna og vanlíðanina sem fylgdi sunnudögunum; mér fannst ég svo óhrein og vond. Það var ekki fyrr en ég var komin á sextugsaldur að ég sá samhengi hlutanna og ég skildi af hverju mér leið svona illa á sunnudögum. Kynferðisofbeldi föður míns, kirkjan og sunnudagarnir voru samtengd í mínum huga. Þessi tilfinning mín mun kannski aldrei hverfa alveg, en ég hef lært að lifa með henni.“ „Ég hataði sunnudagana þar sem hann þóttist heilagur í kirkjunni en notaði svo tækifærið sama kvöld til að beita mig viðbjóðs- legu ofbeldi sem ég skammaðist mín fyrir og óttaðist að allir sæju utan á mér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.