Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Qupperneq 12
Þ
orlákur Helgason, fram-
kvæmdastjóri Olweusar-
verkefnisins gegn einelti,
segir að lýsingar á fram-
ferði og hegðun þingmanna
í garð hver annars bendi til þess að
á Alþingi þrífist alvarlegasta tegund
eineltis. „Ég myndi segja að það væri
sterkur grunur um einelti,“ segir Þor-
lákur, en DV bar undir hann lýsing-
ar ónafngreindra þingmanna á því
hvernig einstaka þingmenn hafa orð-
ið fyrir einelti inni í þingflokkunum.
Í umfjöllun DV um einelti á Alþingi
um helgina kom fram að þingmenn
sem ekki fylgja forystunni að málum
í einu og öllu eiga á hættu að vera al-
gjörlega útilokaðir eða útskúfaðir af
forystu síns eigin þingflokks. Sérstak-
lega ræddu þingmenn um andrúms-
loftið innan þingflokks VG þar sem
Atli Gíslason hafi verið „kerfisbund-
ið brotinn niður“ en að Lilja Móses-
dóttir hefði þó fengið að upplifa, það
sem einn þingmaður kallaði „mjög
gróft einelti“.
Verkefnisstjóra
eineltis á Alþingi
DV bar lýsingar þingmannanna und-
ir Þorlák hjá Olweusar-verkefninu.
Hann var meðal annars spurður að
því hvernig þessi framkoma, sem
felst í því að útskúfa fólk, myndi horfa
við fólki ef hún ætti sér stað á skóla-
lóðinni. „Í fyrsta lagi ef þetta gerðist
úti á skólalóð, þá myndi starfsmaður
sem sér svona tilburði og grunar að
þarna sé um útilokun að ræða, sem
þetta er, tilkynna það strax sem grun
um einelti.“
Þorlákur sér fyrir sér að á Alþingi
yrði að vera einhver sem myndi
gegna svipuðu hlutverki og umsjón-
arkennari eða jafnvel verkefnastjóri
gerir í grunnskólum. Ef grunur um
einelti kæmi fram þyrfti málið að
fara í gegnum viðkomandi. „Sá yrði
krafinn um upplýsingar um meint-
an þolanda og hann yrði yfirheyrður
til að fá upp hverjir eru gerendurn-
ir. Svo myndum við kalla á gerendur
og fara yfir þessi mál. Þarna er þetta
búið að grassera, eins og fram kemur,
og það er erfiðara.“
„Svipað sjáum við í skólanum“
Þorlákur segir að lýsingar þingmann-
anna bendi til að útilokun sé í gangi
og jafn vel útskúfun, sem viðgeng-
ist geti á vinnustöðum. Eitt dæmið
sem nefnt var í helgarblaði DV var að
Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæð-
isflokki, fékk að kynnast ægivaldi
flokksins eftir að hún greiddi atkvæði
þvert á flokkslínur í Icesave-kosning-
unni. Þingmaður segir að í nokkurn
tíma eftir þetta hafi samflokksmenn
hennar hvorki horft á hana né talað
við hana.
Varðandi útilokunina sem einelti
segir Þorlákur: „Þar þarf Alþingi að
horfa sér nær því að rannsóknir sýna
að þar sem umhverfi er gróft í þeim
skilningi að þar sem viðhaft er ljótt
orðbragð, þar sem eru hálfkveðnar
vísur og þar sem mikið er um klíku-
myndun – slíkt umhverfi elur frekar
á einelti.“
Hann segir að stundum séu af-
sakanir þingmanna á svipuðu róli
og hjá börnunum sem verða undir
á skólalóðinni. „Þingmennirnir tala
um að þeir séu ekki á leið úr þing-
flokknum þrátt fyrir að augljóst sé
að þeir verði fyrir miklu aðkasti og
það hafi jafnvel staðið yfir í lengri
tíma. Svipað sjáum við í skólanum
þegar krakkarnir vilja alls ekki yfir-
gefa hópinn þó að þeim líði sannar-
lega illa í hópnum.“
Alvarlegasta eineltið
Í helgarblaði DV kom fram að einelti
á Alþingi þrifist fyrst og fremst inni
í þingflokkunum þar sem menn eru
útilokaðir fyrir að fylgja ekki foryst-
unni að málum. Þannig talaði Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, ekki
við Guðmund Steingrímsson í heil
tvö ár. Fyrir vikið var Guðmundur
ekki með í ráðum í stefnumótun og
ákvarðanatöku innan flokksins.
Þorlákur líkir samskiptum þing-
manna í ræðustól Alþingis við leik
barna. „Ég á við að þeir blása svolít-
ið út í ræðustól Alþingis og eru sáttari
eftir að hafa náð einhverju fram. Svip-
aða sögu er að segja hjá krökkum sem
fá að leika sér í fótbolta því þá sætta
þau sig við eineltið einhvern tíma á
eftir. Í stað þess að skólinn taki á ein-
elti hressa þeir krakkana við. Krakkar
sem líður illa fá að koma fram í leik-
ritum eða gleyma sér í fótboltanum.
Þetta er svipað dæmi og þetta eru
auðvitað forkastanleg vinnubrögð.
Þetta eru ekki börn í uppeldi. Þetta
er lagagerð þjóðarinnar og það vant-
ar alla festu sem við ætlumst til að í sé
fyrir hendi í skólum.“
Þorlákur bendir einnig á að það
einelti sem þrífst á Alþingi sé versta
tegund eineltis. „Útilokun er talin al-
varlegasta eineltið af því að það tal-
ar enginn um það og þögnin er svo
slæm. Útilokun og slíkt hefur verri af-
leiðingar og situr miklu meira í fólki,“
segir Þorlákur.
„Það að hundsa einhvern eru til-
burðir sem sjást á vinnustöðum. Við
getum líka sagt að algengt einelti á
vinnustað sé að maður fái ekki ögr-
andi verkefni eða að verkefni sé tekið
af starfsmanni,“ segir Þorlákur.
Í því samhengi má nefna að þing-
konunni Siv Friðleifsdóttur var kippt
gegn vilja sínum út úr forsætisnefnd
Alþingis. Innanbúðarmenn í Fram-
sóknarflokknum telja að þar hafi Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður flokksins, verið að hefna sín
eða refsa henni fyrir að fylgja ekki
forystunni að málum. Lýsing Þorláks
á því óneitanlega vel við stöðu Sivjar.
Ekki til að efla góðan brag
Aðspurður hvað honum finnist um
að formaður stjórnmálaflokks tali
ekki við sinn eigin þingmann í heil
tvö ár, líkt og í tilfelli Guðmund-
ar Steingrímssonar og Sigmundar
Davíðs, segir Þorlákur: „Það er ekki
hægt að kalla það annað en útskúf-
un. Þetta er orðið svakalega gróft
ef þetta gengur svona áfram. Ef við
eigum að kom í veg fyrir einelti
verður að ríkja traust og virðing. Ef
fólk veit ekki einu sinni innan síns
eigin þingflokks hvar traust og virð-
ing er, þá er ekki hægt að komast hjá
því að eitthvað gerist. Að tala ekki
við menn þó þeir séu ósammála er
ekki til að efla góðan brag á vinnu-
stað.“
12 | Erlent 10. október 2011 Mánudagur
„Útilokun er talin
alvarlegasta eineltið
af því að það talar enginn um
það og þögnin er svo slæm.
„Sterkur grunur
um einelti“ á þingi
n Framkvæmdastjóri Olweusar-verkefnisins telur að versta tegund eineltis þrífist á Alþingi
n „Situr miklu meira í fólki“ n Alþingi þarf að bregðast við n Margt minnir á einelti í grunnskólum
Þorlákur Helgason
„Að tala ekki við menn þó þeir séu
ósammála er ekki til að efla góðan
brag á vinnustað.“
Alþingi Sérfræðingur í eineltismálum telur að alvarlegasta tegund eineltis þrífist á Alþingi.
7. október sl.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is