Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 13
www.bleikaslaufan.is
H
:N
m
ar
ka
ðs
sa
m
sk
ip
ti
/ S
ÍA
Erlent | 13Mánudagur 10. október 2011
„Sjáum engar breytingar“
n Tíu ár frá innrás Bandaríkjanna inn í Afganistan
Á
föstudag voru liðin tíu ár lið-
in frá því að Bandaríkjamenn
og bandamenn þeirra réð-
ust inn í Afganistan. Á þess-
um tíu árum hafa ákveðin markmið
náðst; Talíbanar eru ekki lengur við
völd í landinu og þá var Osama Bin
Laden drepinn fyrr á þessu ári. Enn
er óvíst hvenær þessu lengsta stríði
sem Bandaríkjamenn hafa háð muni
ljúka. Stanley McChrystal, fyrrver-
andi yfirmaður fjölþjóðaliðs NATO
og Bandaríkjanna, segir að enn sé
mjög langt í það að sett markmið ná-
ist. Innrásin hafi verið gerð í mikilli
fljótfærni.
„Við vissum ekki nógu mikið og
enn þann dag í dag vitum við ekki
nóg. Flestir okkar - þar á meðal ég –
höfðum mjög yfirborðskennda sýn
á ástandið og okkur skorti þekkingu
til að ná árangri,“ sagði McChrys-
tal í samtali við breska ríkisútvarpið,
BBC. Samkvæmt tölum Sameinuðu
þjóðanna hafa tíu þúsund óbreyttir
borgarar fallið í Afganistan á undan-
förnum fimm árum og yfir 2.500 her-
menn, flestir Bandaríkjamenn, hafa
látist.
Ghulam Rabbani Ahmadzai er 48
ára veitingahúsaeigandi í Afganist-
an. Hann segir að innrás Bandaríkja-
manna og bandamanna þeirra hafi
litlu breytt fyrir íbúa landsins. „Við
sjáum engar breytingar að neinu
marki. Hingað komu milljónir dala
sem áttu að nýtast við að byggja upp
landið en við vitum ekkert hvert þeir
peningar fóru. Örfáir urðu ríkir en
við hin erum í sömu stöðu og áður.
Hefði þessum peningum verið bet-
ur varið væri landið okkar paradís,“
segir Ahmadzai í samtali við CNN.
Hann heur þó engar áhyggjur af
sjálfum sér heldur sex börnum sín-
um., sem hann telur að hafi ekki
mörg tækkifæri.
Vissu lítið Stanley McChrystal viðurkennir
að innrásin hafi verið óskipulögð.
R
amzan Kadyrov, hinn dæma-
lausi leiðtogi Tsjetsjeníu, hélt
upp á 35 ára afmæli sitt síð-
astliðinn miðvikudag. Fáir,
ef einhverjir, þjóðarleiðtogar
þykja jafn litríkir og Kadyrov og eins
og við var að búast var ekkert til sparað
til að gera veisluhöldin sem glæsileg-
ust. Kadyrov, sem er mikill stuðnings-
maður Vladimírs Pútín, forsætisráð-
herra Rússlands, neitaði því raunar að
veisluhöldin á miðvikudag væru hon-
um til heiðurs. Tilgangur veisluhald-
anna væri að fagna 193 ára afmæli höf-
uðborgar Tsjetsjeníu, Grosný. Hann
gaf út yfirlýsingu þess efnis í septem-
ber að bannað væri að minnast á af-
mælisdag hans og gefa honum gjafir í
tilefni dagsins. Valið á deginum var þó
líklega engin tilviljun.
Fiðluleikari fékk 60 milljónir
Harðhausinn Jean-Claude Van
Damme, sem leikið hefur í ófáum bar-
dagamyndum, var sérstakur gestur
í afmælinu. „Ég elska þig, herra for-
seti,“ sagði Van Damme í lok stuttrar
lofræðu sinnar um forsetann. Afmæl-
inu var sjónvarpað á landsvísu og lýstu
flugeldar og leisergeislar upp himin-
inn yfir höfuðborginni. Athygli vakti að
bandaríska Óskarsverðlaunaleikkon-
an Hillary Swank var í afmælinu og sat
hún við hlið Van Damme og Kadyrovs
á meðan á skemmtiatriðum stóð. Líkt
og Van Damme hélt hún stutta ræðu
og gerði fleyg orð Marilyn Monroe að
sínum þegar hún sagði: „Til hamingju
með daginn, herra forseti.“
Í afmælinu var einnig breski fiðlu-
leikarinn Vanessa Mae, en breska rík-
isútvarpið, BBC, greindi frá því að hún
hefði fengið 500 þúsund dali, eða tæp-
ar 60 milljónir, fyrir að spila nokkur
lög. Þá tók breski tónlistarmaðurinn
Seal lagið. Ekki liggur fyrir hvað Van
Damme, Seal og Hillary Swank fengu
í sinn hlut en ætla má að þau hafi ekki
fengið minna en Vanessa Mae fyrir að
heiðra forsetann með nærveru sinni.
Shakira sagði nei
Kadyrov er þekktur fyrir að fá heims-
þekkta einstaklinga til að heimsækja
Tsjetsjeníu og er áhug hans á knatt-
spyrnu vel þekktur. Hann er eigandi
knattspyrnuliðsins Terek Grozny og
réð hann Hollendinginn Ruud Gullit
til að stjórna liðinu. Gullit var hins veg-
ar rekinn þar sem árangur liðsins olli
Kadyrov vonbrigðum. Þá hefur hann
haldið sannkallaða stjörnuleiki þar
sem hann hefur fengið gamlar stjörn-
ur úr fótboltanum til að mæta liði sínu.
Kadyrov hefur iðulega verið í aðalhlut-
verki í þessum leikjum, borið fyrirliða-
bandið og spilað að vild. En tilraunir
hans til að fá kólumbísku stórsöngkon-
„En tilraunir hans
til að fá kólumb-
ísku stórsöngkonuna
Shakiru til að taka lagið
í afmælis veilsunni báru
ekki tilætlaðan árangur.
n Ramzan Kadyrov, forseti Tsjetsjeníu, fagnaði 35 ára afmæli sínu í síðustu viku
n Stjörnur á borð við Jean-Claude Van Damme, Hillary Swank og Seal skemmtu
una Shakiru til að taka lagið í afmælis-
veilsunni báru ekki tilætlaðan árangur.
„Mannréttindafrömuðir skrifuðu bréf
til Shakiru og sögðu henni að koma
ekki af því að yfirvöld dræpu óbreytta
borgara og mannréttindi væru virt að
vettugi,“ sagði Kadyrov í sjónvarps-
viðtali fyrir afmælisveisluna þegar
hann var spurður hvers vegna Shakira
kæmi ekki á svæðið. Það var hins veg-
ar fátt um svör hjá Kadyrov þegar hann
var spurður hvort raunin væri sú að
mannréttindi væru brotin.
Stjörnur í afmæli
einræðisherrans
Stjörnugleðskapur Jean-Claude
Van Damme sat við hlið afmælis-
barnsins í veislunni á miðvikudag.
MynD ReuTeRS
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Tsjetsjenía
Svissnesk hjón hafa stigið fram og
segjast vera foreldrar sautján ára
drengs sem segist hafa eytt undan-
förnum árum í skóglendi suður af
Berlín í Þýskalandi. Drengurinn,
sem segist heita Ray, gekk inn í ráð-
húsið í Berlín í byrjun síðasta mán-
aðar. Hann hafði ótrúlega sögu að
segja; hann sagði við lögreglu að
hann og faðir hans hefðu flust út
í skóg í kjölfar dauða móður hans
fyrir fimm árum og hann ætti enga
aðra ættingja. Faðir hans hefði látist
nýlega og því hefði hann gefið sig
fram í von um aðstoð.
Eins og DV greindi frá fyrir
skemmstu efaðist lögregla um sann-
leiksgildi frásagnar drengsins sem
gat ekki gefið neinar upplýsingar
sem myndu hjálpa til við rannsókn
málsins. Hann sagðist ekki vita hvert
eftirnafn hans væri, talaði þokkalega
ensku og nokkur orð í þýsku. Dreng-
urinn sagði að móðir hans, Doreen,
hefði látist í bílslysi í Þýskalandi fyrir
fimm árum. Lögregla kannaði málið
og í ljós kom að engin kona með
nafninu Doreen hefði látist í bílslysi
í Þýskalandi undanfarinn áratug.
Málið þykir því mjög dularfullt enda
virðist enginn vita hver drengur-
inn er, nema hugsanlega hjónin frá
Sviss, þó myndir hafi verið birtar af
honum um allan heim.
Samkvæmt fréttum þýskra fjöl-
miðla munu hjónin þurfa að gangast
undir DNA-próf til að sanna að þau
séu foreldrar drengsins. Þau munu
hafa séð myndir af honum í sviss-
neskum fjölmiðlum og í kjölfarið
haft samband við lögreglu.
Mál skógarstráks vindur upp á sig:
„Hann
er sonur
okkar“