Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Síða 16
16 | Umræða 10. október 2011 Mánudagur tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: kristjana guðbrandsdóttir, kristjana@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Leiðari Ingi F. Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar Bókstaflega Jón í sigtinu n Framtíð Jóns Bjarnasonar á ráð- herrastóli er afar óljós. Sjávarút- vegsráðherrann hefur að sögn setið miklu lengur en Steingrími J. Sig- fússyni og armi hans innan VG líkar. Nú er þó talið að draga muni til tíðinda og starfsloka. Innan úr herbúð- um stjórnarliðs- ins er hermt að Jón sé ekki á vetur setjandi. Þó sé líklegt að ákvörðun um örlög hans verði frestað fram yfir landsfund VG til að valda ekki óþarfa óróleika innan flokksins. Eft- ir það verði gefið á hann skotleyfi. Árni tæpur n Stóra plottið hjá stjórnarherr- unum tveimur er sagt snúast um fækkun um tvo ráðherra í haust. Jón Bjarnason færi þá frá VG. Fullyrt er að Árni Páll Árna- son efnahagsráð- herra sé í mikilli ónáð hjá Jóhönnu Sigurðardóttur. Árna er kennt um allt klúðrið í kringum skulda- leiðréttingar og skjaldborgina sem lofað hafði verið. Hans ráðherratími gæti því runnið sitt skeið í haust ef Jóhanna lætur til skarar skríða. Herferð Páls n Heimssýn, samtök Evrópuand- stæðinga, undir forystu Styrmis Gunnarssonar og fleiri, er nú í út- hringingarher- ferð til þess að afla sér nýrra meðlima. Síðustu daga hafa fulltrú- ar samtakanna hringt á heim- ili landsmanna, rétt um það bil sem fjölskyldu- fólk er að tannbursta krakkaskar- ann. Hvort samtökin eru að hita upp fyrir langa baráttu gegn því að landsmenn fái að kjósa um að- ild að Evrópusambandinu er ekki vitað. Hitt er víst að undir regnhlíf Heimssýnar sameinast fólk frá ystu mörkum hægrikantsins til öfganna til vinstri. Öryrki skákar bönkum n Í söfnun SEM samtakanna á föstudaginn vakti athygli framlag bankastofnana. Íslandsbanki mun hafa gefið 50.000 krónur og Lands- bankinn heilar 20 þúsund krónur. Samtals er því framlag bankanna minna en framlag Rúnars Björns Þorkelssonar, eins SEM-félaga, sem gaf 100 þúsund krónur af örorku- bótunum sínum. Þeir sem fylgd- ust með söfnuninni furðuðu sig á hversu litlar, eða engar, fjárhæðir komu frá bönkum og fjármála- stofnunum – sérstaklega í ljósi þess að þessi fyrirtæki eru líklega þau einu í landinu sem græða á tá og fingri þessa dagana. Einhverjir telja að þeim sé vorkunn þar sem þau þurfa að eiga fyrir launum toppanna. Sandkorn V igdís Hauksdóttir fram- sóknarkona er með þetta. Það þýðir ekki lengur að stinga hausnum í steininn, því það er ljóst: Fjölmiðlar eru í stríði við Framsóknarflokkinn! Þ etta er svo ósanngjarnt. Það er alltaf verið að segja eitt- hvað slæmt um Framsókn- arflokkinn. F innur Ingólfsson mátti ekki kaupa Búnaðarbankann af ríkinu 2003, planta sér í for- stjórastól VÍS eftir einkavæð- ingu, fá 400 milljóna arð úr félagi sem fer á hausinn nokkrum árum síðar, og almennt verða mold- ríkur eftir stjórnmálaferil, án þess að fjölmiðlar segi frá því. Allt út af því að hann var ráðherra Framsóknar- flokksins. H alldór Ásgrímsson og fjöl- skyldufyrirtækið hans mega ekki græða milljarða á kvótakerfinu, sem hann setti á, og græða svo fimm milljarða á einkavæðingu VÍS, sem hann ýtti í gegn, fá svo afskrifaða 2,6 milljarða á sama tíma, án þess að það sé verið að ráðast á hann. Það er jafnvel verið að rifja upp þegar Hall- dór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ákváðu tveir saman að Ísland skyldi fara í stríð við Írak og Halldór gerði Davíð síðan að seðlabankastjóra! Þ eir eru bara ógeðslega heppnir. Og þetta fjöl- miðlafólk er öfundsjúkt. F jölmiðlar fjalla meira að segja sérstaklega um það að vitlaus maður hafi verið tilkynntur formaður Framsóknarflokks- ins með lófataki. Svo er verið að gera grín að málþróun! Bara af því að hún er Framsóknar. Vigdís mátti ekki segja að Jóhanna Sigurðardóttir væri að „kasta grjóti úr steinhúsi“, án þess að atast væri í henni, þótt hún væri sannarlega stödd í steinhúsi! H versu lágt geta fjölmiðlar lagst? Það var sagt frá því þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður hætti að borða útlensk- an mat og fékk í kjölfarið magapest. Finnst fólki kannski fyndið að fá nið- urgang? Svei því. Vei því. V igdís sagði þetta sjálf í bréfi til flokksmanna: „Að mínu mati eru fjölmiðlar að bregð- ast með því að taka stöðu með ríkisstjórninni í stað þess að vera í „stjórnarandstöðu“.“ Þetta er alveg eins og Dagný Jónsdótt- ir, sem var þingmaður Framsóknar- flokksins, útskýrði árið 2003 þegar hún greiddi atkvæði gegn eigin skoð- un á Alþingi og var gagnrýnd fyrir það í blaðagrein. „Það sem mér þótti skrít- ið var að stjórnarandstöðuþingmað- urinn sem hana ritaði virðist ekki gera sér grein fyrir að á þingi eru tvö lið og eins og staðan er núna er ég í stjórnar- liðinu. Í þessu felst enginn hroki, bara staðreynd og maður fylgir sínu liði.“ F jölmiðlamenn eiga að vita þetta. Þeir eru í liði með stjórnarandstöðunni. Nú bregðast þeir liði sínu. Það er nú eitthvað meira en hægt er að segja um framsóknarmenn, sem sjá alltaf um sína. Er Davíð Odds- son eini maðurinn með viti í þessari stétt? Er von á stærri Reykjavík? „Nei, en hugsanlega smærri Reykjavík en með öðruvísi skipulagsformum,“ segir Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra. í fréttum ríkisútvarpsins sagði hann sam- einingu Álftaness við annað sveitar- félag vera vísi að nýju landakorti fyrir höfuð- borgarsvæðið. Hann vill þó ekki meina að það þýði frekari sam- einingu sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu. Spurningin Svarthöfði Ógeðslegir hagsmunir Í slenskt þjóðfélag er ógeðslegt samkvæmt Styrmi Gunnarssyni, fyrrverandi ritstjóra Morgun- blaðsins. Þannig komst ritstjór- inn að orði í skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis. Styrmir vísað með orðunum til þess að íslenskt samfé- lag væri prinsipp- og hugsjónalaust með öllu og einkenndist af henti- stefnu og valdabaráttu: „Ég er búinn að fylgjast með þessu í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“ Orð Styrmis eru þeim mun merki- legri í ljósi þess hver sagði þau. Styrmir tók sjálfur virkan þátt í þess- ari valdabaráttu þegar hann var rit- stjóri Morgunblaðsins og makkaði meðal annars um Baugsmálið með ráðamönnum í Sjálfstæðisflokknum, eins og frægt er orðið. Orð Styrmis eru fyrst og fremst áhugaverð af því að þau voru sögð af sannkölluðum innanbúðarmanni sem þekkir vel þann heim sem hann lýsti. Þessi reynsla Styrmis gefur orðum hans aukin þunga. Oft koma upp atvik í þjóðmálaumræðunni þar sem gott er hafa orð Styrmis í huga. Nýlegasta dæmið er fordæming Sigurðar G. Guðjónssonar hæsta- réttarlögmanns á embætti sérstaks saksóknara. Fyrir helgi lét Sigurður G. eftirfarandi orð falla í tengslum við rannsóknina á Geirfinnsmálinu: „Þingmenn ættu kannski að reyna að koma í veg fyrir frekari dómsmorð í nútímanum og leggja niður emb- ætti sérstaks saksóknara. Embættið var sett upp til að hundelta nokkra menn. Það hefur nú lagt í rúst líf 250 einstaklinga og fjölskyldna þeirra. Allt að undirlagi Evu Joly, norsk- fransks vinstrimanns, sem hirti um 100 milljónir úr fjárvana ríkissjóði fyrir ráðgjöfina.“ Sigurður er lögmaður manna sem eru til rannsóknar hjá embætti sérstaks saksóknara, meðal annars Sigurjóns Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og fjár- festanna Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar og Pálma Haraldssonar. Sjálfur sat Sigurður G. í stjórn Glitnis fyrir hönd hluthafa bankans – Jón Ásgeir var einn sá stærsti í gegnum FL Group – á árunum 2007 og 2008. Hann er því ekki á neinn hátt hlutlaus í um- ræðunni um sérstakan saksóknara og hefur í reynd beina hagsmuni af því að gagnrýna embættið og reyna að spilla fyrir rannsóknum þess með slíkum málflutningi. Hagsmunir Sig- urðar liggja í því að reyna að verja hagsmuni þeirra manna sem hann vinnur með og fyrir og sem greiða honum laun. Þetta gerir hann með áróðri sem byggir á því að embætti sérstaks saksóknara sé rekið áfram af annarlegum hvötum, illum vilja til að leggja líf saklausra manna í rúst að ástæðulausu, en ekki í sannleiksleit sem þó er aðalástæðan fyrir stofnun embættisins. Sigurði G. Guðjónssyni er alveg sama um hvort sannleikurinn um refsiverð brot sem tengjast íslenska efnahagshruninu líti dagsins ljós eða ekki. Sannleikurinn þjónar hvorki hagsmunum Sigurðar G. né umbjóð- enda hans. Þess vegna reynir hann að bregða fæti fyrir þessa sannleiks- leit með því að stinga upp á að emb- ætti sérstaks saksóknara verði lagt niður. Sigurður G. er þannig rekinn áfram að öðrum hagsmunum en sér- stakur saksóknari og íslenska þjóðin sem vill að sannleikurinn um lögbrot hrunsins komi fram. Minnumst orða Styrmis þegar menn eins og Sigurður G. Guðjóns- son tjá sig á opinberum vettvangi um eigin hagsmunamál. Sigurður G. er ekki marktækur álitsgjafi um embætti sérstaks saksóknara eða ís- lenska efnahagshrunið. Auk þess hefur það legið fyrir lengi að kostaðir álitsgjafar, lögmenn, spunakarlar og talsmenn þeirra sem til rannsókn- ar eru myndu reyna að hafa áhrif á uppgjörið við efnahagshrunið með áróðri og lygum. Með ummælun- um opinberar Sigurður G. ógeðslegu hliðarnar á íslensku samfélagi og um leið sjálfan sig. Stríðið gegn Fra Sókn „Þetta verður erfiður leikur en það verður gaman að kljást við leik- menn af þessum styrk- leika og sjá hvar maður stendur á móti svona gaurum.“ n Aron Einar Gunnarsson, leikmaður íslands, fyrir leikinn gegn Portúgal. – Fót- bolti.net „Fólkið trúir því að á sama tíma og ríkisstjórnir ákveða að bank- arnir séu of stórir til að falla skipti almenningur litlu máli.“ n Kofi Annan, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, flutti ræðu í Háskóla íslands á föstudag. „Ég hafði rangt fyrir mér“ n Hilmar Veigar Péturs- son, forstjóri CCP, biður notendur tölvuleiksins eve Online afsökunar í kjölfar breytinga sem nýlega voru gerðar á leiknum. – eveonline.com „Illa sofinn og ein tauga- hrúga en samt hoppandi glaður.“ n Þannig lýsti íslensk getspá fjölskyldu- föðurnum í Breiðholti sem vann 18 milljónir í víkingalottói. – lotto.is „Mig langar ekki aftur í þetta líf.“ n Jón Ásgeir Jóhannesson segir að hann hefði átt að stoppa árið 2005. – DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.