Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2011, Blaðsíða 22
22 | Fólk 10. október 2011 Mánudagur Þ etta er rosalega spennandi verkefni og gaman að þetta sé orðið að veru- leika,“ segir ísdrottn- ingin og athafnakonan Ás- dís Rán Gunnarsdóttir sem opnaði verslun sína í versl- unarmiðstöðinni City Cen- ter Mall í Sofíu í Búlgaríu á föstudaginn. Í versluninni er hægt að fá allar vörur Ice- queen-tískumerkisins sem eru meðal annars undirföt, förðunarvörur og kjólar. Ás- dís Rán lætur ekki þar við sitja því bráðlega verður einnig hægt að fá krem með Icequeen-merkinu. „Ég var að klára línu af „body“-vörum sem eru al- veg æðislegar og innihalda til dæmis Wild Berrie og Peach sturtugel, krem og skrúbb. Þessar vörur eru ekki komnar á markað á Ís- landi en söluaðilar geta haft samband við mig.“ Formleg opnun var hald- in á föstudaginn en búðin sjálf er innréttuð eins og ís- hellir auk þess sem og stór og falleg and- litsmynd af Ás- dísi prýðir vegg- inn á bak við afgreiðsluborð- ið. Fjöldi búlg- arskra stjarna mætti í opnunar- teitið enda er Ás- dís Rán hluti af þotugengi borg- arinnar. Þær sem létu sjá sig voru til dæmis fegurðar- drottningin Paol- ina Petrakieva, fatahönnuðurinn Antoaneta Kissimova og fyrir- sætan Geri Doncheva sem virtust þær skemmta sér vel undir dillandi tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur sem óm- aði í versluninni. Að sjálf- sögðu bar Ásdís af í teitinu og var kynþokkinn uppmálaður íklædd korseletti með demantaskreytta kór- ónu. Garðar Gunnlaugsson, knattspyrnumaður og eigin- maður Ásdísar, lét sig að sjálf- sögðu ekki vanta enda stoltur af sinni. Frægðarsól Ásdísar fór strax á flug þegar hún og Garðar fluttu til Búlgaríu með fjölskyldu sína svo Garðar gæti spilað með liðinu CSKA í Sofíu. Í viðtali við DV árið 2009 sagði hann velgengni eiginkonunnar ekki koma sér á óvart. „Ég hef aldrei viljað að hún væri öðruvísi en hún er enda er hún sama konan og ég giftist. Stór ástæða þess að ég elska hana er hvað hún er fylgin sér. Hún gerir og seg- ir það sem hún er að hugsa og framkvæmir flestar sínar hugmyndir. Ef hún væri eitt- hvað öðruvísi held ég að við hefðum ekki gifst.“ indiana@dv.is Ísdrottning opnar búð n Athafnakonan Ásdís Rán opnar íshelli í Sofíu n Margar stærstu stjörnur Búlgaríu mættu í opnunarteitið Stjörnurnar mættu Ásdís og Garðar ásamt búlgörsku fegurðardrottningunni Paolinu Petrakieva. Stoltur af sinni Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson er eiginmaður Ásdísar Ránar og lét sig að sjálfsögðu ekki vanta. Glæsileg Ásdís klæddist korseletti og var með demantaskreytta kórónu. Ísdrottningin Ásdís Rán er engri lík og kemst vanalega þangað sem hún ætlar sér.Íshellir Verslunin er staðsett í verslun armiðstöðinni City Center Mall í Sofíu og er innréttuð eins og íshellir. Stórstjarna Ásdís Rán er stórstjarna í Búlgaríu og hefur nú opnað verslun sem býður upp á vörur hennar. Stjórstjarna Stór andlitsmynd af Ásdísi prýðir einn vegg verslunarinnar. Úr stjörnuafmæli til Íslands n Leikkonan Liv Tyler stödd á Íslandi n Fór á Prikið í Bankastræti bæði laugardag og sunnudag L eikkonan Liv Tyler er stödd á Íslandi eins og DV.is greindi fyrst frá á laugardagskvöldið. Þá hafði hún komið við á veitinga- og skemmtistaðnum Prikinu í Bankastræti þar sem tvær íslenskar stelpur, Hjördís Erna Þorgeirsdóttir og Hildur Selma Sigbertsdóttir, gáfu sig á tal við hana. Hildur Selma er systir Ágústs Bents, rappara og leikstjóra. Þær sögðu hana hafa verið afar viðkunnanlega og lausa við stjörnustæla. Var minnsta málið fyrir hana að sitja fyrir á einni mynd með vinkon- unum. „Við ætluðum nú ekki að þora að tala við hana en ákváð- um að láta verða af því. Það voru allir að horfa á hana þarna en enginn þorði að tala við hana en við gátum bara ekki sleppt því. Hún var mjög almennileg og tal- aði mikið um hvað við værum ljóshærðar,“ sagði Hjördís hlæj- andi í samtali við DV stuttu eftir að hafa hitt Liv Tyler. Tyler rölti um miðbæinn á laugardaginn og kíkti, eins og áður segir, inn á Prikið. Þá kíkti hún aðeins inn til að skoða sig um en leist greinilega vel á því á sunnudaginn kom hún aftur við á Prikinu, sem er í eigu Finna úr Dr. Spock, og fékk sér að borða. Tyler er búin að vera á ferða- lagi en á fimmtudagskvöldið var hún stödd í Lundúnum þar sem stjörnufatahönnuðurinn Stella McCartney, dóttir bítilsins Pauls McCartney, hélt upp á fertugs- afmæli sitt. Þar var hún ásamt heimsfrægum stjörnum á borð við leikkonurnar Cameron Diaz og Gwyneth Paltrow og einn- ig tónlistarkonuna Gwen Stef- ani. Liv Tyler var einmitt í sömu kápu á Prikinu á laugardaginn og hún íklæddist í afmæli Stellu. Liv Tyler er dóttir rokkarans Stevens Tyler, söngvara Aero- smith, og fyrrverandi fyrirsæt- unnar Bebe Buell, sem á árum áður var leikfélagi mánaðar- ins hjá Playboy. Tyler er mjög þekkt leikkona og hefur leik- ið í mörgum stórmyndum. Hún sló fyrst í gegn í mynd- inni That Thing You Do en hefur síðan leikið í myndum á borð við Armageddon, The Incred ible Hulk  og Lord Of The Rings þríleiknum þar sem hún fór með hlutverk álfakon- unnar Arwen. Á Prikinu Liv Tyler var hin við- kunnanlegasta og sat fyrir á mynd með tveimur íslenskum stelpum. Hún fór aftur á Prikið á sunnudaginn og fékk sér að borða. Í stjörnuafmæli Liv Tyler var boðið í afmæli stjörnufatahönnuðar- ins Stellu McCartney á fimmtudags- kvöldið, en hún flaug síðan frá Lundúnum til Íslands. Bauðst að koma fyrr Sjónvarpsmaðurinn og frétta- þulurinn Logi Bergmann Eiðs- son greinir frá því á Vísi að honum hefði boðist að koma á Stöð 2 mun fyrr en hann gerði. „Það kom til tals árið 1993 og þá sem íþróttafréttamaður. En úr því varð ekki og nokkrum árum síðar munaði reyndar ótrúlega litlu. Þá var samn- ingurinn tilbúinn og ekkert eftir annað en að renna til Páls Magnússonar og skrifa undir. Á síðustu stundu hætti ég við og man eftir reiðilestrinum frá honum í símann,“ rifjar Logi upp í pistli í tilefni 25 ára afmælis Stöðvar 2. Logi gekk á endanum í raðir Stöðvar 2 árið 2005 og hefur síðan þá starfað sem fréttaþulur og einnig stýrt þátt- um á boð við Meist- arann og Loga í beinni. Bleikir feðgar Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameins- félags Íslands, stendur yfir í október en um allan heim er vakin athygli á þessum ban- væna sjúkdómi með bleika litlum. Handboltamaðurinn fyrrverandi og silfurdrengur- inn Logi Geirsson leggur sitt af mörkum og minnir á bleika litinn á Facebook-síðu sinni. Þar birtir hann krúttlega mynd af syni sínum, Vilbergi Eldon, í bleikum bol og að sjálfsögðu heldur hann á handbolta eins og faðir sinn og afi gerðu. „Það er bleikur mánuður og það sleppur enginn á þessu heim- ili,“ segir Logi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.