Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 19. október 2011 Miðvikudagur Bjarni Ben yfirheyrður B jarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokks- ins, hefur verið yfirheyrður sem vitni í rannsókn sér- staks saksóknara á Sjóvár- málinu svokallaða. Þetta staðfestir Bjarni í svari sínu við fyrirspurn DV um hvort hann hafi verið yfirheyrð- ur í málinu. „Fyrir nokkrum mán- uðum óskaði embættið eftir vitna- skýrslu frá mér. Það var sjálfsagt að verða við því. Það er ekkert í rann- sókn málsins sem beinist að mér […] Að mestu voru það forms atriði sem spurt var um,“ segir Bjarni í skriflegu svari sínu í tölvupósti til DV. Tekið skal skýrt fram, til að taka af allan vafa, að fyrir liggur að Bjarni er ekki til rannsóknar í Sjóvármál- inu og verður ekki ákærður í því. Ástæða fyrirspurnar DV til Bjarna var sú að rannsóknin á Sjó- vármálinu mun vera að klárast hjá embætti sérstaks saksóknara. Bú- ist er við að rannsóknarferlinu ljúki fyrir lok þessa árs og að gefnar verði út ákærur í kjölfarið. Til rannsókn- ar eru brot á lögum um hlutafélög, vátryggingastarfsemi og eins hugs- anleg brot á auðgunarbrotakafla hegningarlaga. Þeir sem líklegastir eru til að verða ákærðir í málinu eru Karl Wernersson, stjórnarformað- ur Milestone og Sjóvár, Þór Sigfús- son, forstjóri Sjóvár, og Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone. Bjarni segir að skýrslutakan hafi verið stutt þar sem hann hafi ekki búið yfir miklum upplýsingum um það sem til rannsóknar er. „Þetta var stutt skýrslutaka. Mér fannst sjálfsagt að veita alla þá aðstoð sem ég gat en því miður var það lítið sem ég gat liðsinnt rannsóknarmönnum í málinu, þar sem ég hafði enga að- komu að því, aðra en að skrifa und- ir veðskjöl samkvæmt umboði.“ Bjarni vildi hins vegar ekki svara þeirri spurningu hvort hann hefði sagt embætti sérstaks saksóknara hverjir það voru sem skipulögðu viðskiptin sem kennd eru við eign- arhaldsfélagið Vafning. Líklega var þar um að ræða Guðmund Ólason, forstjóra Milestone, og hugsanlega Karl Wernersson. Gengið á bótasjóðinn Sjóvármálið snýst um rannsókn á meintum lögbrotum eignarhalds- félagsins Milestone í rekstri trygg- ingafélagsins Sjóvár fyrir íslenska efnahagshrunið 2008. Milestone var í eigu bræðranna Karls og Stein- gríms Wernerssona og átti félagið allt hlutafé í Sjóvá. Líkt og DV hefur greint frá notaði Milestone nánast allan bótasjóð tryggingafélagsins, um 19 milljarða króna af tæpum 23, til að endurfjármagna lán Mile- stone og dótturfélaga þess. Eignar- haldsfélagið Vafningur var meðal annars notað í þessum viðskiptum. Vafningur var í eigu Milestone og föður og föðurbróður Bjarna, Bene- dikts og Einars Sveinssona. Sjóvá, nú SJ Eignarhaldsfélag, uppfyllti ekki skilyrði Fjármála- eftirlitsins um vátryggingastarf- semi eftir bankahrunið 2008 sök- um þessara viðskipta Milestone með fjármuni félagsins. Trygginga- félagið átti ekki fyrir vátrygginga- skuld sinni við viðskiptavini sína og uppfyllti því ekki skilyrði Fjármála- eftirlitsins um gjaldþol trygginga- félaga. Rekstur tryggingafélagsins var tryggður með því að færa rekst- urinn yfir í annað félag í septem- ber 2009. Íslenska ríkið þurfti svo að leggja tryggingafélaginu til 12 millj- arða króna, í formi láns sem ekki er vitað hvort fæst greitt að fullu, til að bjarga því frá gjaldþroti með tilheyrandi tapi fyrir viðskiptavini félagsins. Aðkoma Bjarna Aðkoma Bjarna Benediktssonar að málinu var sú að í febrúar 2008 skrifaði hann undir veðsetningar- skjöl fyrir hönd föður síns og frænda þar sem eignir Vafnings voru veð- settar fyrir láni frá Glitni. Bjarni sagði frá því í viðtali við DV í árslok 2009 þegar fjallað var um aðkomu hans að Vafningsmálinu í blaðinu að hann hefði veðsett hlutabréfin í Vafningi hjá Glitni fyrir hönd föður síns og frænda þar sem þeir hefðu verið staddir erlendis. „Þeir [Bene- dikt og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki staddir á landinu og báðu mig um það fyrir sína hönd að skrifa undir ákveðinn veðsamning þar sem þeir voru að veðsetja hluta- bréfin sín í félaginu […] Þetta var veðsamningur sem gerður var við bankann vegna lána sem bankinn hafði veitt félaginu.“ Bjarni skrifaði því undir veðsetningarskjölin fyrir hönd eignarhaldsfélags föður síns, Hafsilfurs, eignarhaldsfélags Einars Sveinssonar, Hrómundar, sem og fyrir eignarhaldsfélagið BNT, móð- urfélag olíufélagsins N1, en fyrir- tækið var í eigu ættingja Bjarna. Samtals fékk Vafningur um 15 milljarða króna lánaða frá Glitni en milljarðarnir voru endurlán- aðir til eignarhaldsfélagsins Þátt- ar Inter national, sem einnig var í eigu Milestone og Einars og Bene- dikts Sveinssona. Þáttur Inter- national var einn stærsti hluthafi Glitnis. Þáttur International notaði peningana svo til að endurgreiða bandaríska fjárfestingarbankan- um Morgan Stanley lán sem félagið fékk til að kaupa hlutabréf í Glitni árið 2007. Morgan Stanley átti veð í hlutabréfum Þáttar Internation- al í Glitni og hótaði að leysa bréfin til sín í veðkalli ef skuldin yrði ekki greidd til baka. Vafningur tók einn- ig við lánum frá Sjóvá sem notuð voru til að endur fjármagna lán hjá Morgan Stanley vegna fjárfestingar Milestone í sænska fjármálafyrir- tækinu Invik. 19 milljarðar afskrifaðir Með þessum lánveitingum út úr Sjóvá til Vafnings var gengið á bóta- sjóð félagsins með þeim afleiðing- um sem greint er frá hér að fram- an. Í báðum tilfellum fóru lánin frá Sjóvá og Glitni út úr íslenskum félögum og íslenska hagkerfinu og yfir í bandarískan fjárfestingar- banka. Krafa Sjóvár á hendur Vafn- ingi var svo afskrifuð í ársreikningi SJ Eignarhaldsfélags, sem áður hét Sjóvá, fyrir árið 2009 en þar seg- ir: „Niðurfærsla viðskiptakrafna vegna Földungur ehf. og Milestone ehf. 19.287.037.“ Afskriftirnar vegna lánanna út úr Sjóvá til Vafnings og Milestone nam því rúmlega 19 milljörðum króna. Heildarskuldir Vafnings, nú Földungs, voru tæpir 38 milljarðar í lok síðasta árs og var um helmingur vegna lána frá Sjóvá og helmingur vegna lána frá Glitni. Sjóvá og Glitnir töpuðu því þeim um 38 milljörðum króna sem lán- aðir voru til Vafnings árið 2008 eftir að byrjaði að harðna á dalnum í ís- lenska fjármálakerfinu. Bjarni segist ekki hafa vitað um veðsetningu bótasjóðsins Bjarni segist ekki hafa vitað að Milestone hefði í lánaviðskiptum sínum í febrúar lánað stóran hluta af bótasjóði tryggingafélagsins, meðal annars til Vafnings. Líkt og komið hefur fram í DV skrif- aði Þór Sigfússon, þáverandi for- stjóri tryggingafélagsins Sjóvár, til dæmis upp á þrjár lánveitingar út úr Sjóvá til dótturfélaga Milestone þann 29. febrúar 2008 sem námu 15,7 milljörðum króna eða um 67 prósentum af bótasjóði félagsins. „Ég hafði engar upplýsingar um að þessir aðilar væru mögulega að tefla með vátryggingaskuld sína. […] Tengsl við bótasjóðinn voru mér ókunn. Ég hafði enga aðkomu að ráðstöfun eigna eigenda Sjóvár eða Milestone og hafði ekki upp- lýsingar um það hvernig samist hafði milli þeirra og bankans um þessi efni. Ég kom á engan hátt ná- lægt samningum um þetta mál,“ segir Bjarni. Hann segir jafnframt að hafi brot verið framin í rekstri Sjóvár sé það honum óviðkomandi. „Hafi verið framin brot af stjórnendum eða eigendum Sjóvá eða tengdra félaga hefur það ekkert með mig að gera. Ég læt ekki klína ábyrgð af annarra manna gjörðum á mínar herðar. Ég fyrirlít tilraunir til þess háttar málflutnings og slíkt skal aldrei verða samþykkt í íslensku samfélagi.“ Samkvæmt þessum svörum Bjarna var hann því ekki meðvitað- ur um heildarmyndina í viðskipt- um eignarhaldsfélagsins Vafnings á þessum tíma jafnvel þó að hann hefði tekið þátt í hluta þessara við- skipta með því að veðsetja hluta- bréfin í Vafningi fyrir láninu frá Glitni. Bjarni segist ekki bera ábyrgð Bjarni undirstrikar enn frekar í svari sínu til DV að þátttaka hans í við- skiptalífinu hafi verið í samræmi við lög og reglur og að hann hafi ekki skipulagt endurfjármögnunina á Glitnisbréfunum. Bjarni sver því af sér ábyrgð á Vafningsmálinu. „Þrátt fyrir að ég hafi endurtekið útskýrt fyrir DV og öðrum fjölmiðlum að þátttaka mín í viðskiptalífinu hafi að öllu leyti verið í samræmi við lög og reglur, hafa sumir þeirra gert sitt til að vekja grunsemdir um að svo væri ekki. Í þessu tiltekna máli hefur verið skýrt frá fyrsta degi að ég kom hvergi að þeim ákvörðunum sem til rann- sóknar eru, hvorki stofnun viðkom- andi félags, stjórnun þess eða samn- ingum fyrir þess hönd,“ segir Bjarni en með orðum sínum á Bjarni við eignarhaldsfélagið Vafning. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Fyrir nokkrum mánuðum ósk- aði embættið eftir vitna- skýrslu frá mér. „Ég hafði engar upplýsingar um að þessir aðilar væru mögu- lega að tefla með vá- tryggingaskuld sína. Vitni í Sjóvármálinu Bjarni Benedikts- son, formaður Sjálfstæðis- flokksins, var yfirheyrður sem vitni í Sjóvármálinu hjá embætti sér- staks saksóknara fyrir nokkrum mánuðum. Formsatriði Bjarni segir að yfirheyrslan hjá sérstökum saksóknara, Ólafi Haukssyni, hafi að mestu snúist um formsatriði. n Yfirheyrður hjá sérstökum saksóknara fyrir nokkrum mánuðum n Kom að viðskiptum eignarhaldsfélagsins Vafnings n Segir yfirheyrsluna hafa snúist um formsatriði sem vitni í Sjóvármálinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.