Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Blaðsíða 13
Erlent | 13Miðvikudagur 19. október 2011
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæð
Bremsur
Spindilkúlur
Stýrisendar
ofl, ofl
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
n Jarðarbúar verða orðnir sjö milljarðar fyrir lok mánaðarins n Voru tveir
milljarðar árið 1927 n Ógnvænleg þróun en þó tækifæri til að gera heiminn betri
Fjöldi jarðarbúa
nær 7 milljörðum
F
yrir lok þessa mánaðar er búist
við að jarðarbúar verði orðnir
sjö milljarðar talsins. Jarðarbú-
um hefur fjölgað ört undan-
farna áratugi samfara bættum
lífskjörum almennings. Á rúmum
tvö hundruð árum hefur jarðarbúum
fjölgað um sex milljarða; árið 1804 er
talið að fjöldinn hafi náð einum millj-
arði og 123 árum síðar, eða árið 1927,
voru jarðarbúar aðeins tveir milljarð-
ar. Síðan fór fjöldinn að vaxa mjög ört;
hann náði fjórum milljörðum árið
1974, fimm milljörðum árið 1987 og
loks sex milljörðum árið 1998. Sam-
kvæmt spá Mannfjöldastofnunar
Sameinuðu þjóðanna mun fjöldinn
ná átta milljörðum árið 2025 og tíu
milljörðum árið 2083.
Fátækir munu þjást
Þó að barneignir hafi jákvætt yfir-
bragð er þróunin ógnvænleg sé litið
til þeirrar þróunar sem nú á sér stað
á mörkuðum. Matvæla- og orkuverð
fer sífellt hækkandi og nú þegar er
talið að um 900 milljónir manna, þar
á meðal börn, þjáist af matarskorti.
John Bongaarts, yfirmaður stofnunar
í New York sem sérhæfir sig í rann-
sóknum á mannfjöldaþróun, hefur
vissar áhyggjur af þróuninni. „Þetta
verður viðráðanlegt fyrir þá sem eiga
peninga og eru efnaðir. En það eru
hinir fátæku sem munu þjást mest,“
segir Bongaarts.
Áskoranir og tækifæri
„Við höfum nægan mat fyrir alla, en
samt sverfur hungur að nærri millj-
arði manna. Við höfum allt sem til
þarf til að uppræta marga sjúkdóma,
en samt breiðast þeir enn út. Við njót-
um þeirrar blessunar að búa við auð-
ugt náttúrulegt umhverfi en samt er
sífellt gengið á það og því spillt,“ sagði
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, í ræðu sem
hann hélt í tilefni af Alþjóða mann-
fjöldadeginum þann 11. júlí í sumar.
Þann sama dag var hleypt af stokk-
unum hinu svokallaða sjö milljarða
átaki sem miðar að því að glæða
skoðanaskipti um áskoranir, tækifæri
og aðgerðir sem nauðsynlegar eru til
að tryggja betri framtíð mannkyns.
Betri heimur
Babatunde Osotimehin, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra Nígeríu og nú-
verandi framkvæmdastjóri Mann-
fjöldastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, segir að tækifæri felist í stöðugri
fjölgun jarðarbúa. „Þetta er tækifæri
til að draga vandamálin sem fylgja
fjölguninni upp á yfirborðið,“ segir
Osotimehin og bætir við að um 215
milljónir kvenna þurfi á svokallaðri
fjölskylduáætlun að halda. Hún felur
meðal annars í sér að leiðbeina kon-
um, einkum í fátækari ríkjum heims-
ins, hvernig koma skuli í veg fyrir
getnað. „Ef við getum aðstoðað þess-
ar konur og hjálpað þeim að stjórna
því hvað þær eignast mörg börn þá
verður heimurinn betri,“ segir hann.
Mannfjöldaþróun
Fjöldi Ár
1 milljarður 1804
2 milljarðar 1927
3 milljarðar 1960
4 milljarðar 1974
5 milljarðar 1987
6 milljarðar 1998
7 milljarðar 2011
8 milljarðar 2025
10 milljarðar 2083
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Tækifæri Babatunde Osotimehin segir að
tækifæri séu falin í þessari öru fjölgun.
Fjölmennasta ríki heims Kína
er fjölmennasta ríki heims en íbúar
þar eru rúmlega 1,3 milljarðar.
„Þetta verður viðráð-
anlegt fyrir þá sem
eiga peninga og eru efnað-
ir. En það eru hinir fátæku
sem munu þjást mest.
Tíbetsk nunna
kveikti í sér
Tíbetsk nunna lét lífið eftir að hafa
mótmælt kínverskum stjórnvöldum
með því að kveikja í sér. Hún kveikti
í sér fyrir utan klaustrið þar sem
hún bjó í Sichuan-héraði í Tíbet.
Konan var 20 ára og barðist fyrir
trúarlegu frelsi í Tíbet og endur-
komu Dalai Lama til landsins en
hann hefur verið í útlegð á Indlandi
síðan 1959. Fjórir munkar hafa áður
látist með sama hætti í mótmælum
við kínversk stjórnvöld frá því í mars
á þessu ári. Nunnan er hins vegar
fyrsta konan sem lætur lífið í mót-
mælum með þessum hætti, sam-
kvæmt CNN.
Allt fyrir
Howard Stern
Komið hefur í ljós að athæfi klám-
myndaleikara og móttökuritara
sem stunduðu kynlíf í fallhlífar-
stökki var gert til þess að ná athygli
útvarpstjörnunnar Howard Stern.
Alex Torres klámmyndaleikari og
fallhlífarstökkskennari í hlutastarfi
fékk samstarfskonu sína til þess að
taka upp klámmyndband í fallhlíf-
arstökki. Hann setti síðan mynd-
bandið á netið og vonaðist til þess
að útvarpsmaðurinn geðvondi tæki
eftir því. Hvort Howard Stern hefur
tekið við sér liggur ekki fyrir, en Alex
Torres getur nú einbeitt sér alfarið
að klámmyndunum því fallhlífar-
stökkskennslu sinnir hann ekki
lengur. Hann var nefnilega rekinn
fyrir athæfið.