Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Blaðsíða 6
R
íkissaksóknari hefur ákært
25 ára konu fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás með
því að hafa veist að fyrrver-
andi kærasta sínum og stung-
ið hann með steikarhníf í öxlina. Við
það hlaut hann fjögurra sentímetra
skurð. Konan er einnig ákærð fyrir að
slá hann í andlitið með þeim afleiðing-
um að hann hlaut bólgu á kinnbeini.
Árásin á að hafa átt sér stað á heimili
mannsins í desember í fyrra. Konan
sem um ræðir hefur vakið athygli fyr-
ir fyrirsætustörf og hefur meðal annars
prýtt forsíðu spænsku útgáfu tímarits-
ins Elle en einnig hafa birst af henni
myndir í Vogue og fleiri þekktum tíma-
ritum.
Neitar að hafa stungið að
yfirlögðu ráði
Seinni aðalmeðferð málsins fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag.
Hvorki ákærða né brotaþoli voru við-
stödd þinghaldið. Þar kom fram hjá
verjanda konunnar að hún játaði að
hafa slegið fyrrverandi kærasta sinn í
andlitið en þau höfðu átt í deilum þar
sem maðurinn hafði meðal annars
rifið í hár hennar og barið til hennar.
Hún neitar því að hafa stungið hann
að yfirlögðu ráði.
Deilt er um hvernig hnífstung-
an atvikaðist, en samkæmt verjanda
konunnar setti maðurinn sjálfur hníf-
inn í hendur hennar og sagði henni
að stinga sig. Hún hefði verið að reyna
að komast frá honum og slegið frá sér
með þeim afleiðingum að hnífurinn
stakkst í öxlina á manninum.
Á slysadeild kom í ljós að maður-
inn var með samfallið lunga, en óvíst
er hvort hægt verði að sanna að það
hafi komið til vegna árásinnar þar
sem slíkt hafði ítrekað gerst áður hjá
honum. Fyrir dómi kom fram að kon-
an var undir miklum áhrifum áfengis
og eiturlyfja þegar meint árás átti sér
stað en fórnarlambið var allsgáð. Hún
hefur ekki áður komist í kast við lögin.
Gekk frá íbúð eftir árás
Aðraganda atviksins var þannig lýst
að ákærða og maðurinn hefðu slit-
ið sambandi og hún kynnst öðrum
manni. Fyrrverandi kærasti hennar
komst að því að hún væri komin með
nýjan kærasta eftir að hann varð sér
úti um leyniorð og skoðaði tölvupóst
hennar. Kallaði hann hana því á fund
við sig.
Verjandi konunnar heldur því
fram að hann hafi ögrað henni og
egnt hana. Hann hafi sagt að hann
ætlaði að koma henni í fangelsi.
Hann hafi meinað henni að yfirgefa
íbúðina og misst stjórn á skapi sínu
þegar hún ætlaði að hringja í kærasta
sinn.
Vinir mannsins sem báru vitni við
fyrri aðalmeðferðina sögðu mann-
inn hafa hringt í sig eftir umrætt at-
vik. Hann hafi virst rólegur í símann
en sagði þeim ekki frá því að hann
hefði verið stunginn. Hann bað vini
sína síðar um að keyra sig á slysa-
deild en vegna samfallna lungans
þurfti hann að liggja nokkra daga
inni á spítalanum. Sjálfur sagði mað-
urinn að hann hefði verið hissa yfir
því hversu rólegur hann sjálfur var
en árásin hefði virst óraunveruleg.
Hann gekk frá íbúðinni áður en hann
fór á slysavarðstofu, slökkti ljós og
tók sjónvarpið úr sambandi.
Verjandi ákærðu vill meina að
slíkt samræmist ekki hegðun manns
sem orðið hefur fyrir miklu áfalli á
meðan saksóknari bendir á að ekki
sé til nein ein ákveðin hegðun eftir
áföll.
Missti trú á mannkyninu
Listmeðferðarfræðingur bar vitni
og sagði fórnarlambið hafa leitað til
sín til að vinna úr áfalli eftir árásina.
Hann hefði verið óöruggur og dapur.
Hann hefði misst alla trú á mannkyn-
inu og þá sérstaklega kvenfólki. List-
meðferðarfulltrúinn sagði manninn
ekki vera búinn að vinna úr áfallinu
og þurfa á frekari meðferð að halda.
Eins og áður segir vildi verjandi
ákærðu meina að fórnarlambið hefði
beinlínis egnt hana til verknaðarins
og að maðurinn sjálfur hefði átt upp-
tökin að átökunum. Varðandi and-
legar og líkamlegar afleiðingar vildi
verjandi konunnar meina að lýsing
listmeðferðarfræðingsins væri lýs-
ing á manni í mikilli ástarsorg, frek-
ar en manni sem kljáðist við afleið-
ingar áfalls. Verjandi sagði mikinn
vafa vera í málinu og sá vafi ætti alltaf
að vera ákærðu í hag. Því vísaði sak-
sóknari á bug og sagði „…ekkert bera
vott um að þetta væri ástjúkur mað-
ur.“
Konan er ákærð fyrir brot gegn 2.
mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga
og getur refsing varðað allt að 16 ára
fangelsi. Einnig er þess krafist að hún
greiði hálfa milljón króna í miskabæt-
ur. Saksóknari segir árásina fólsku-
lega og að hún eig sér engar máls-
bætur, nema að átök hafi verið í gangi
og að „…miðað við ástand hennar sé
mikil mildi að ekki fór verr.“
m.dv.is
Lestu fréttir DV í farsíman
um þínum!
Könnun Samtaka atvinnulífsins:
Stjórnvöld eru
vandamálið
Rúmlega þriðjungur aðildarfyrir-
tækja Samtaka atvinnulífsins (SA)
telur aðgerðir stjórnvalda vera helsta
vandamál fyrirtækisins við núver-
andi aðstæður. Tæplega fjórðungur
til viðbótar setur aðgerðir stjórn-
valda í annað sæti meðal helstu
vandamála þeirra. Þetta kemur fram
í nýrri könnun SA á rekstrarhorfum
fyrirtækja sem gerð var dagana 6. til
11. október síðastliðinn. Um 70 pró-
sent fyrirtækja í sjávarútvegi telja að-
gerðir stjórnvalda vera helsta vanda-
mál fyrirtækisins og um 40 prósent í
verslun og þjónustu.
Könnunin var send til 1.684
fyrirtækja. Fjöldi svarenda var 482
og svarhlutfall því 29 prósent.
30.000 starfsmenn starfa hjá þeim
fyrirtækjum sem þátt tóku í könnun-
inni og er áætlað að 83.000 manns
starfi um þessar mundir í þeim at-
vinnugreinum sem könnunin nær
yfir.
Í tilkynningu frá SA kemur fram
að skuldir og hár fjármagnskostnað-
ur sé annað helsta vandamál fyrir-
tækjanna, en fjórðungur þeirra setur
skuldir og fjármagnskostnað í fyrsta
sæti og þriðjungur til viðbótar í ann-
að sæti. Rúmlega fjögur af hverjum
tíu fyrirtækjum setja litla eftirspurn
og erfiðan markað í fyrsta og annað
sæti yfir helstu vandamál fyrirtækis-
ins og um þrjú af hverjum tíu setja
skattamál í þau sæti.
Fyrirtækin voru einnig beðin um
að raða eftir mikilvægi fimm af ellefu
skilaboðum til stjórnvalda um brýn-
ustu úrlausnarefnin. Þau skilaboð
voru eftirfarandi: Auka fjárfestingar
í atvinnulífinu, greiða fyrir stórfram-
kvæmdum, auka útflutningstekjur,
afnema gjaldeyrishöft, ná rekstrar-
afgangi í ríkisfjármálum, veita sjáv-
arútvegi traust starfsskilyrði, lækka
vexti, minnka atvinnuleysi, lækka
skatta, stöðva skuldasöfnun lífeyris-
sjóða hins opinbera og jafna réttindi
á almennum og opinberum vinnu-
markaði og bæta vinnumiðlun fyrir
atvinnulausa.
Hótuðu manni með hnífi
A
ðalmeðferð í máli þriggja ein-
staklinga sem allir eiga að baki
langan sakaferil fór fram í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur á þriðju-
dag. Tveir sakborninganna, Ívar Aron
Hill Ævarsson og Sigurbjörn Adam
Baldvinsson, eru meðal annars ákærð-
ir fyrir að hafa ógnað manni með hnífi,
slegið hann í andlitið og leitt hann að
heimili hans. Þaðan eiga þeir að hafa
stolið munum að andvirði tveggja
milljóna króna.
Í ákæru kemur fram að fórnar-
lambið hafi ekki spornað við hátt-
semi sakborninga vegna ótta. Þriðji
sakborningurinn er 25 ára barnshaf-
andi kona sem nú komin er átta mán-
uði á leið en hún er ákærð fyrir hlut-
deild að ráni með því að hafa haft á
brott með sér verðmæti í eigu fórnar-
lambsins. Atburðirnir eiga að hafa átt
sér stað í október 2009. Í dómsal vildi
fórnarlambið ekki fara yfir málsatvik
og vitnaði í fyrri skýrslutökur hjá lög-
reglu. Sakborningar hafa allir neitað
sök, en einn þeirra, Ívar Aron Hill, hef-
ur þó játað að hafa tekið út 1.000 krón-
ur í hraðbanka af korti fórnarlambs-
ins. Allir sakborningar hafa borið við
að hafa verið í mikilli neyslu fíkniefna
á þeim tíma sem brotið á að hafa ver-
ið framið, en séu nú búnir að snúa
við blaðinu. Ívar Aron mætti ekki fyrir
dóm, en aðspurðir mundu aðrir sak-
borningar lítið sem ekkert eftir því at-
hæfi sem þeir eru sakaðir um. Þó rám-
aði Sigurbjörn Adam í að hafa setið
uppi með fluguhnýtingarsett sem er
talið vera hluti af þýfinu. Ívar og Sigur-
björn voru meðlimir í hinu alræmda
Árnesgengi en meðlimir þess urðu
uppvísir að fjölmörgum afbrotum.
Sækjandi málsins fer fram á 18 mán-
aða dóm yfir Ívari og Sigurbirni en 6 til
9 mánaða skilorðsbundinn dóm yfir
konunni.
hanna@dv.is
Héraðsdómur
Reykjavíkur Ívar Aron
Hill Ævarsson og Sigur-
björn Adam Baldvinsson
eru ákærðir fyrir að hafa
rænt munum að andvirði
2 milljóna króna og
ógnað manni með hnífi.
n Tveir meðlimir „Árnesgengisins“ aftur fyrir dóm
Sökuð um
að Stinga
fyrrverandi
kæraSta
n Fyrirsæta ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás
n Verjandi segir fórnarlambið hafa egnt hana til árásarinnar
n Fórnarlambið sagt hafa stolið lykilorði og njósnað um hana
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Á forsíðunni Konan hefur prýtt forsíðu spænsku útgáfu tímaritsins Elle og myndir af henni hafa birst í mörgum af stóru tískublöðunum.
„Miðað við ástand
hennar er mikil
mildi að ekki fór verr
6 | Fréttir 19. október 2011 Miðvikudagur