Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 19. október 2011 Miðvikudagur
S N Y R T I S T O F A N
HAMRABORG 10
SÍMI 554 4414
TRYGGVAGÖTU 28
SÍMI 552 5005
www.snyrt istofa. is
HAMRABORG 10
SÍMI 554 4414
www.snyrtistofa.is
Alhliða snyrting
fyrir konur og karla
TRYGGVAGÖTU 28
SÍMI 552 5005
Ránið á Laugavegi:
Milljón krónur
í fundarlaun
Úrsmíðameistarinn Franch Michel-
sen sem varð fyrir því á mánudag
að vopnaðir menn rændu verslun
hans á Laugavegi býður hverjum
þeim sem upplýsingar geta veitt um
ránið vegleg fundarlaun. Komi vís-
bending sem leiði til þess að málið
upplýsist eða ránsfengurinn verði
endurheimtur býður eigandi úra-
verslunarinnar eina milljón króna
fyrir vikið. Ræningjarnir komust
undan með umtalsvert magn af þýfi;
Rolex-, Tudor- og Michelsen-úrum.
Lögreglan leitar enn að ræningj-
unum sem ruddust inn vopnaðir
að minnsta kosti tveimur leikfanga-
byssum og hugsanlega einni alvöru
skammbyssu og ógnuðu starfsfólki
Michelsen á Laugavegi á ellefta tím-
anum á mánudagsmorgun. Komust
mennirnir þrír undan á stolnum bíl.
Lögreglan hefur birt mynd af einum
manni sem leitað er vegna rann-
sóknar málsins.
Óvenjulegt mál á Selfossi:
Fyllti bílinn af
klósettpappír
Lögreglumenn í eftirlitsferð á Sel-
fossi tilkynntu um mannaferðir í
kringum brak stórrar flutninga-
bifreiðar sem fauk út af veginum
undir Ingólfsfjalli á mánudagskvöld.
Í vonskuveðrinu á mánudagskvöld
mættu lögreglumenn sem þar áttu
leið um ökumanni sem virtist vera
með troðfullan bíl af hvítum pakkn-
ingum en gáfu því ekki frekari gaum.
Þegar lögreglumennirnir komu að
rústum tengivagnsins áttuðu þeir
sig á því að hann hafði verið fullur af
klósettpappír. Viðkomandi vegfar-
andi virðist því hafa lagt það á sig að
fara út í hávaðarokið og hirða heil-
legar klósettrúllur úr brakinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
varðstjóra lögreglunnar á Selfossi
var björgunarsveit send á vettvang á
mánudag eftir slysið að beiðni trygg-
ingafélags til að hreinsa upp megnið
af því sem heillegt var og nothæft
af farmi flutningabílsins. Svo virðist
sem eitthvað af klósettrúllunum hafi
orðið eftir á vettvangi og því erfitt
að segja til um hvort þær hafi verið í
nothæfu ástandi.
E
ignarhaldsfélagi í eigu eiganda
og skólastjóra Menntaskólans
Hraðbrautar, Ólafs H. Johnson,
hefur verið stefnt fyrir dóm. Ar-
ion banki höfðar málið gegn
félaginu og fer munnlegur málflutn-
ingur fram í dag, miðvikudag. Félagið
heitir Faxafen ehf. og heldur utan um
fasteign sem notuð er undir skólahald
menntaskólans í Faxafeni 10 í Reykja-
vík. Rekstrarfélag skólans, Hraðbraut
ehf., sem einnig er í eigu Ólafs og eig-
inkonu hans leigir bygginguna undir
starfsemi skólans af Faxafeni ehf.
Lögmaður Faxafens ehf., Jón Eð-
vald Malmquist, segist ekki geta veitt
upplýsingar um eðli málareksturs Ar-
ion banka gegn félaginu. Hann seg-
ist því ekki getað staðfest hvort um
skuldamál sé að ræða eða annars kon-
ar mál. Samskiptasvið Arion banka gat
heldur ekki veitt upplýsingar um eðli
málsins.
105 milljóna arðgreiðslur
Umtalsvert var fjallað um Faxafen í
fjölmiðlum í fyrra eftir að DV greindi
frá því að Ólafur Johnson hefði greitt
sér 105 milljónir króna í arð út úr fé-
laginu á árunum 2005 til 2008 auk
þess sem hann hafði tekið tæpar 60
milljónir í arð út úr rekstrarfélagi
skólans á sama tímabili. Heildar-
arðgreiðslur út úr skólanum námu
því meira en 160 milljónum króna
á tímabilinu. Menntaskólinn Hrað-
braut er fjármagnaður að 80 prósent-
um með opinberu fé og 20 prósent-
um með skólagjöldum.
Í kjölfarið skrifaði Ríkisendur-
skoðun svarta skýrslu um starfsemi
Hraðbrautar þar sem Ólafur var
gagnrýndur fyrir að taka tugi millj-
óna króna í arð út úr rekstrarfélagi
skólans og fasteignafélaginu sem
á skólabygginguna og fyrir að lána
þaðan álíka upphæðir til fjárfest-
ingaverkefna. Jafnframt var sagt frá
því að Hraðbraut hefði fengið of háar
fjárveitingar frá ríkinu sem ekki voru
greiddar til baka.
Menntamálaráðuneytið hef-
ur útilokað áframhaldandi skóla-
starf í Hraðbraut eftir þetta skólaár
á grundvelli þessarar skýrslu. Starf-
semi skólans var hins vegar heimiluð
út þetta skólaár til að tryggja hags-
muni nemenda skólans.
630 milljóna króna skuldir
Miðað við síðasta birta ársreikning
Faxafens ehf. var eignarhaldsfélag-
ið tæknilega gjaldþrota í lok árs í
fyrra. Þá tapaði félagið tæplega 54
milljónum króna. Eigið fé félagsins
var neikvætt um nærri 270 milljón-
ir króna og skuldirnar námu tæp-
lega 630 milljónum króna. Miðað
við rekstrarstöðu Faxafens í lok síð-
asta árs blasti fátt annað við félaginu
en gjaldþrot. Út frá rekstrarstöðunni
er því nokkuð líklegt að málarekstur
Arion banka gegn eignarhaldsfélag-
inu tengist erfiðri rekstrarstöðu fast-
eignafélagsins.
Arðgreiðslur út úr Faxafeni ehf. árin 2003
til 2010.
2003 0
2004 0
2005 10milljónir
2006 30milljónir
2007 40milljónir
2008 25milljónir
2009 0
2010 0
Samtals 105 milljónir
Skólastjóri tekur arð„Menntamála
ráðuneytið hefur
útilokað áframhaldandi
skólastarf í Hraðbraut
eftir þetta skólaár á
grundvelli þessarar
skýrslu.
Félagi skólastjóra
Hraðbrautar stefnt
n Arion banki fór í mál við fasteignafélag Menntaskólans Hraðbrautar
n 105 milljónir teknar í arð út úr félaginu n Skuldirnar námu 630 milljónum króna
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Skuldir upp á 600 milljónir
Skuldireignarhaldsfélagsinsnema
rúmum600milljónumkróna.
Félagiðheldurutanumeignar-
haldiðáfasteignsemnotuðer
undirMenntaskólannHraðbraut,
semÓlafurJohnsonáogrekur.
Þ
að er merkilegt hversu fast er
kveðið að orði í þessum sam-
skiptum,“ segir Birgir Guð-
mundsson stjórnmálafræð-
ingur í samtali við DV. Þar er hann
að vísa til nýlegra bréfaskrifa á milli
Ólafs Ragnars Grímssonar forseta og
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisrá-
herra. Í bréfi forsetans er látið er að
því liggja að Jóhanna hafi farið út fyrir
eðlileg valdmörk sín þegar ráðuneyti
hennar sendi fyrirspurn til forsetans
um það hvernig standa ætti að setn-
ingu reglna um hlutverk og störf emb-
ættisins. Í bréfi forsetans, sem dagsett
er 13. júlí 2011, segir meðal annars:
„Vera kann að þessi afskipti eigi ræt-
ur í þeirri tilhneigingu forystumanna
ríkisstjórna sem áberandi hefur verið
á undanförnum árum og áratugum
og mjög hefur verið til umfjöllunar frá
hruni bankanna, að fara út fyrir eðlileg
valdmörk sín.“
„Það er alveg ljóst á þessu að ís-
köld kurteisi einkennir þeirra sam-
band,“ segir Birgir og bætir við að það
sé greinilegt að slest hafi upp á vin-
skapinn hjá þessum fyrrverandi sam-
herjum. Hann segir að í bréfi sínu sé
Ólafur í raun að ítreka túlkun sína á
eðli forsetaembættisins. „Hann leggur
aðaláherslu á að hann hafi sjálfstætt
umboð frá kjósendum þar sem hann
sé kosin í beinum kosningum. Hann
er einfaldlega að undirstrika sjálfstæði
embættisins,“ segir Birgir. Í bréfi for-
setans segir að óskiljanlegt sé hvers
vegna forsætisráðherra hafi afskipti
af forseta með þessum hætti og sendi
bréflegar tilskipanir. „Hann er í raun-
inni að segja; Þú átt ekkert upp á dekk
hjá mér, ég hef sjálfstætt umboð frá
kjósendum,“ segir Birgir og bætir við:
„Það eru skilaboðin. Það er ljóst að það
andar köldu á milli þeirra.“
n Segir ískalda kurteisi ríkja á milli forseta og forsætisráðherra
„Andar köldu á milli þeirra“
Andar köldu BirgirGuðmundssonsegir
merkilegthversufasterkveðiðaðorðií
samskiptumforsetaogforsætisráðherra.