Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Side 8
8 | Fréttir 19. október 2011 Miðvikudagur
Kirkjunni ber að
vernda fórnarlömb
„Það er auðveldara að standa með
ofbeldismanninum,“ sagði dr. Marie
Fortune á málþinginu „Kynferðisleg
misnotkun á börnum í trúarlegu sam-
hengi“ í Háskóla Íslands sem haldið
var á þriðjudag.
Fortune, sem er einn virtasti fag-
aðili á sviði fræðslu- og forvarnarmála
um kynferðislegt ofbeldi í Bandaríkj-
unum, segir það vera nauðsynlegt
að trúfélög standi með fórnarlömb-
unum og hafi skýrar reglur um það
hvernig tekið er á slíkum siðferðis-
brotum sem kynferðisbrot eru. Hún
sagði að oft fari svo að kirkjan reyni
frekar að vernda ofbeldismennina en
fórnarlömbin. Þannig sé ætlunin að
vernda kirkjuna fyrir hneyksli og noti
hún fé og völd sín til þess að útskúfa
fórnarlambinu. Fortune sagði að það
sem trúfélögum bæri að gera væri
að taka kvartanir um kynferðisbrot
alvarlega. Það sé skylda hennar að
bera hag fórnarlamba fyrir brjósti, en
ekki hag sinn. Kirkjan þurfi alltaf að
taka ábyrgð. Guðrún Ebba Ólafsdóttir
gerði fyrirgefninguna að umfjöllunar-
efni sínu á málþinginu. Guðrún Ebba
sagði að fyrirgefningin hefði vafist
fyrir henni og að hún hefði fundið
fyrir þrýstingi til að fyrirgefa Ólafi
Skúlasyni, biskup og föður sínum.
Hún hefði lært, með aðstoð rita dr.
Marie Fortune, að það er ekki rétt að
krefjast þess af sjálfri sér að fyrirgefa
Ólafi. Heldur hefði hún áttað sig á því
að þegar hún hætti að reyna að breyta
fortíðinni, öðlaðist hún sátt sem væri
hennar fyrirgefning.
astasigrun@dv.is
Huang Nubo bíður enn svara:
„Sóknarfæri í
auðninni“
„Við bara bíðum eftir frekari við-
brögðum frá innanríkisráðuneytinu,“
segir Halldór Jóhannsson, talsmaður
kínverska athafnamannsins Huangs
Nubo sem vill kaupa Grímsstaði á
Fjöllum og reisa þar hótel. Aðspurður
hvort fjárfestingar Nubo mæti áhuga-
leysi stjórnvalda segir Halldór: „Það
væri kannski rétt að kalla þetta ákveð-
ið ráðaleysi, það er eins og menn viti
ekki alveg hvernig þeir eigi að taka á
málinu.“ Í síðustu viku bað fjármála-
ráðuneytið um að fá frekari upplýs-
ingar um fyrirtæki Huangs Nubo, á
meðal fyrirspurna var þessi spurning:
„Af hverju þurfið þið að fjárfesta á Ís-
landi?“ Halldór segir spurningunum
hafa verið svarað jafnharðan með
ítarlegu bréfi sem liggi nú hjá ráðu-
neytinu.
Halldór segist vænta svara frá fjár-
málaráðuneytinu á næstu dögum en
hingað til hafi ekkert borist. Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
hefur lýst því yfir að væntanleg kaup
séu ekki sérstakt forgangsmál hjá
ráðuneytinu. En af hverju þarf Nubo
svona stórt land fyrir hótelrekstur?
„Það eru ýmsar skýringar á því. Í
fyrsta lagi er þetta land í einkaeigu og
það er búið að auglýsa það til sölu í
talsverðan tíma. Þá hefur Nubo lýst
því yfir að hann sjái ákveðin sóknar-
færi í fámenninu og auðninni sem
þarna er en sífellt fleiri ferðamenn
eru búnir að fá nóg af manngerðum
þéttbýlisstöðum. Þannig að ég held
að það sé rétt hjá honum, það er ná-
kvæmlega þar sem ákveðin sóknar-
færi liggja.“
K
onur klæddar í kufla komu
gangandi að lögreglustöðinni
á Hverfisgötu með möppu
undir hendi. Þar var lögregl-
unni afhentur listi með 56
nöfnum, 117 símanúmerum og 59
netföngum karla sem allir hafa fal-
ast eftir vændi í gegnum einkamal.is,
Fréttablaðið eða Rauða torgið. Í sum-
um tilfellum voru einnig kennitölur
eða myndir af mönnunum. „Ef ekkert
verður aðhafst munum við birta þessi
gögn,“ segja konurnar. „Okkur blöskr-
ar hvað er lítið aðhafst í þessum mála-
flokki.
Einkamál er sá miðill á Íslandi þar
sem vændi þrífst einna best. Stóra
systir þekkir núorðið vel til karlanna
sem þarna falast eftir vændi. Það vekur
athygli að konunum sem selja vændi
er oft hent út af Einkamálum. En þeir
brotlegu, vændiskaupendurnir, eru
látnir óáreittir. Það kemur ekkert á
óvart þar sem karlarnir greiða fyrir að-
ganginn en konurnar fá frían aðgang.
Ætla má að tekjur Einkamála af karl-
kyns notendum séu verulegar.“
Lögin að engu höfð
Konurnar tilheyra hulduher íslenskra
kvenna sem nú sker upp herör gegn
vændi og mansali á Íslandi. Þær gefa
ekki upp hverjar þær eru, en taka fram
að þær séu óháðar öllum félagasam-
tökum og flokkum. „Þú mátt búast við
því að hvaða kona sem er geti tilheyrt
hreyfingunni.“
Klukkan 16.00 í gær fylktu þær liði
og gengu klæddar kuflum að Iðnó þar
sem samstöðufundur gegn vændi
og mansali fór fram. Þar stilltu þær
sér upp við sviðið undir slagorðinu:
„Stóra systir fylgist með þér!“ og stigu
síðan í pontu. „Um allan heim hefur
framsækin löggjöf varðandi vændi á
Íslandi átt þátt í sérlega jákvæðri land-
kynningu. Þó að lögin séu til fyrir-
myndar er veruleikinn allur annar og
Stóra systir sættir sig ekki við að lögin
séu að engu höfð.
Vændi grasserar á Íslandi og það
er auglýst grimmt með þegjandi sam-
þykki stjórnvalda, lögreglu og al-
mennings. Að rannsaka og bregð-
ast við því er sáraauðvelt. Stóra systir
hefur unnið út frá þeirri staðreynd að
vændiskaupendur óttast það mest að
upp um þá komist. Verslun með kon-
ur fer því fyrst og fremst fram í nafn-
leysi á netinu og í gegnum óskráða
síma. Til þess að finna kaupendur er
einfaldast að beita sömu aðferðum.
Stóra systir hefur ferðast um undir-
heimana nafnlaust og með óskráða
síma. Það ferðalag hefur vægast sagt
verið fróðlegt og það skal tekið fram
að það er rétt að byrja.“
Konurnar segja að rannsóknar-
vinnan hafi verið skemmtileg, ein-
föld og fljótvirk. Í þágu rannsókna
hefur körlum verið stefnt í hópum á
nokkra opinbera staði og til að þekkj-
ast örugglega hafa sumir þeirra borið
Fréttablaðið undir hendinni. „Stóra
systir vill verða að sem mestu liði
og vill eins og Fréttablaðið hafa sem
best samstarf við lögreglu. Þannig
væri sjálfsagt ef lögregla óskar eftir
því að senda vændiskaupendur beint
til störfum hlaðinna lögreglumanna
þannig að hægt sé að handtaka þá á
staðnum, einfalt og þægilegt.“
Vísbendingar um mansal
Segja þær að ríkisstjórnin hafi lofað
árið 2009 að vinna gegn eftirspurn á
vændis- og klámmarkaði með því að
auka eftirlit með vændisstarfsemi og
koma lögum yfir þá sem stuðla að,
skipuleggja eða hafa ábata af henni.
„Þrátt fyrir að í langan tíma hafi mátt
sjá daglega vændisauglýsingar í
stærsta dagblaði landsins hefur ekk-
ert verið aðhafst fyrr en loks nú og þá
tímabundið.
Teikn eru á lofti um að mögulega
sé um skipulagða glæpastarfsemi að
ræða og jafnvel mansal. Konurnar eru
erlendar, í leyninúmerum og stoppa á
landinu í stuttan tíma. Slíkar aðstæð-
ur ættu að gefa lögreglu skýra heim-
ild til að nota forvirkar rannsóknarað-
ferðir. Rannsókn vændismála hefur
verið í höndum kynferðisbrotadeild-
ar lögreglunnar sem hefur þó ærin
verkefni fyrir. Það er deginum ljósara
að öll þau mál sem þurfa að keppa
um tíma lögreglunnar við nauðganir
og kynferðisbrotamál gegn börnum
hljóta sjálfkrafa að verða að afgangs-
málum sem ekki verður sinnt. Aðeins
einu sinni hafa fallið dómar í vændis-
kaupamálum.“ Stóru systur finnst vera
kominn tími til að taka til hendinni.
Vændiskaupendur boðaðir á
staðinn
En það voru ekki einungis blaðamenn
boðaðir á fundinn. „Fyrirtækið Ice-
landic Model Agency“ bauð einnig
áhugasömum vændiskaupendum af
einkamal.is, Rauða torginu og Frétta-
blaðinu í móttöku í Iðnó á sama tíma.
Tekið var fram að boðið yrði upp á
léttar veitingar, fallegar stelpur og
ljúfa stemningu. „Fyrirspurnir hafa
verið þó nokkrar og einn hefur þegar
spurt hvort hann geti leigt sér stelpu
hér í dag.“ Nokkrir karlmenn sáust
gægjast inn um dyrnar en ekki er hægt
að fullyrða að þar hafi vændiskaup-
endur verið á ferð. Flestir létu sig þó
strax hverfa.
Neðanjarðarhreyfingin hefur feng-
ið fyrirspurnir um hvort hún taki að
sér að kanna hvort eiginmenn eða
kærastar séu á kúnnalistanum og úti-
lokar ekki slíkt. „Möguleikarnir eru
endalausir.“
Þær taka það þó fram að Stóra syst-
ir hafi ekki látið sér nægja að finna
vændiskaupendur. Konur í vændi hafa
fengið vinsamleg skilaboð um mögu-
leika á aðstoð og þeim hefur verið
sýndur skilningur.
Stóra SyStir
fylgiSt með þér!
Fullorðinn maður talar við
sextán ára stúlku.
Hann: „Halló, er að leita að smá fun. Er
til í að greiða smá pening fyrir. Til í eitt-
hvað svoleiðis.“
Hún: „Já. 25þús fyrir plein klukkutíma.
Smokkar must og ég mæti.“
Hann: „Ok, mætir þú núna?“
Hún: „Sorrý, get ekki núna. Er að passa
fyrir mömmu. Á morgun?“
Hann: „Ok, ef ég á að halda í mér þá vil
ég sjá mynd á MSN.“
Farsæll deildarstjóri í opinberri
stofnun talar við fimmtán ára
stúlku:
Hann: „Ertu íslensk?“
Hún: „Já, íslensk.“
Hann: „Áhuga á einhverjum á mínum
aldri? 48 ára, grannur og nokkuð fitt. Ég
er vel menntaður og í góðu starfi. Reyki
ekki (hef þó ekkert á móti fólki sem
reykir). Nota ekki dóp né í rugli. Nánast
undantekningarlaust í góðu skapi og læt
fátt fara í taugarnar á mér.“
Hún: „Hverju leitar þú að?“
Hann: „Skemmtun. Hef mjög gaman
að því að stjórna og nota óþekkar
stelpur og þegar mér er ekki hlýtt, þá að
rassskella, binda og refsa þær. Þegar
refsingin er orðin nóg, þá að binda þær
við rúmið og nota tunguna til að vera
aftur góður við þær. En hef ekkert á móti
því að hafa það kósý og taka því rólega.“
Hún: „Ég get verið óþekk fyrir þig fyrir
pening?“
Hann: „hvað viltu fá fyrir það?“
Hún: „25 þúsund. Ég kem til þín.“
Hann: „110. Rétt hjá Rauðavatni. Ég þarf
bara að fara í sturtu en er annars til.“
Samtöl af Einkamálum
n Hulduher íslenskra kvenna sker upp herör gegn vændi n Afhentu lögreglunni gögn um
vændiskaupendur n Boðuðu vændiskaupendur í Iðnó á sama tíma og blaðamenn
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Kröfur Stóru systur
n „Við krefjumst þess að geðþóttaákvarðanir stjórni því ekki hvaða lögum á Íslandi er
framfylgt,“ sagði ein og hinar steyttu hnefa og hrópuðu: Já! Það gerðu þær á eftir
hverri kröfu sem sett var fram.
n „Að aðgerðaáætlun stjórnvalda um mansal verði framfylgt og í hana verði sett fjár-
magn.
n Að rannsókn vændis- og mansalsmála verði í höndum sérhæfðs lögregluteymis sem
fæst ekki við önnur sakamál.
n Að stjórnvöld standi fyrir fræðsluherferð sem beinist að kaupendum vændis og kláms.
n Að vefnum einkamál.is verði lokað þar sem aðstandendum síðunnar er ekki treystandi
til að útiloka vændi.
n Að klámbúllum verði lokað.
n Að klámrásum fjölmiðlanna verði lokað.
n Að vændisauglýsingar í hvaða mynd sem er og hvaða miðli sem er verði stöðvaðar og
þeir sem hafi milligöngu um verslun með konur verði sóttir til saka.
n Stóra systir fylgist með þér!“
Samstöðufundur Konurnar settu fram kröfur um aðgerðir, steyttu hnefa og sögðu í
einum kór: Já! eftir hverja setningu.
Óskuðu eftir lögreglustjóra
Hann var ekki við en þær afhentu
lögreglunni engu að síður gögn um
vændiskaupendur.
MyNd eyþÓr árNASoN
„En þeir brot-
legu, vændis-
kaupendurnir,
eru látnir óáreittir