Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Síða 10
10 | Fréttir 19. október 2011 Miðvikudagur
Málefni ríkislögreglustjóra:
Segir Harald
hafa farið að
lögum
Innanríkisráðuneytið hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að Ríkis-
endurskoðun hafi dregið upp vill-
andi mynd í ábendingu sinni um
innkaup löggæslustofnana þar sem
Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri var álitinn hafa brotið lög.
Ríkisendurskoðun gagnrýndi harð-
lega tugmilljóna viðskipti embættis-
ins við fyrirtæki sem ýmist eru í eigu
lögreglumanna eða aðila tengdum
þeim.
Innanríkisráðuneytið hefur farið
yfir málið eftir að það komst í hámæli
og fjallað um ábendingar Ríkisendur-
skoðunar sem og greinargerð ríkis-
lögreglustjóra. Ráðuneytið kemst að
þeirri niðurstöðu að dregin hafi verið
upp villandi mynd af málinu þegar
gefið var í skyn að lögreglan hefði
ekki farið að lögum og reglum um
innkaup. Hins vegar sé nauðsynlegt
að skerpa á reglum og koma inn-
kaupum á vegum lögregluembætta í
landinu í markvissari farveg.
Hefur ráðuneytið því falið Haraldi
Johannessen ríkislögreglustjóra, í
samvinnu við lögregluembætti og
Ríkiskaup, að leggja fram tillögur að
umbótum í innkaupum á búnaði og
tækjum til lögreglunnar. Tillögurn-
ar ber að leggja fram eigi síðar en 1.
febrúar næstkomandi.
„Ég hef sannfærst um að embætti
ríkislögreglustjóra hafi farið að lögum
í innkaupum sínum. Sú mynd sem
dregin hefur verið upp í fjölmiðlum
af embættinu er ómakleg og röng.
Hins vegar eru þessi mál almennt
ekki í nógu góðum farvegi og því eru
tilteknir þættir þeirra teknir til sér-
stakrar skoðunar,“ segir Ögmundur
Jónasson innanríkisáðherra.
Vilja efla landkynningu:
Vefmyndavélar á
150 fallega staði
Þrettán þingmenn hafa flutt í fimmta
sinn þingsályktunartillögu þess efnis
að mennta- og menningarmálaráð-
herra verði falið að hefja undirbún-
ing og uppsetningu vefmyndasafns
með því að koma upp nettengdum
myndavélum á allt að 150 fegurstu og
sérkennilegustu stöðum landsins.
Árni Johnsen er flutningsmaður
tillögunnar ásamt tólf öðrum þing-
mönnum allra flokka nema Hreyf-
ingarinnar. Segir í tillögunni, sem flutt
hefur verið á fjórum síðustu löggjaf-
arþingum, að nettengt safn af þessu
tagi yrði það fyrsta sinnar tegundar í
heiminum. Það myndi að auki skapa
óþrjótandi möguleika á landkynn-
ingu í þágu ferðaþjónustu, sögu,
menningar og atvinnulífs.
Mögulegar netstöðvar sem
nefndar eru í greinargerðinni eru til
dæmis: Gullfoss, Þingvellir, Geysir,
Lónsöræfi, Landmannalaugar, Eldey,
Bláa lónið, Vatnajökull, Þjórsá, Þórs-
mörk, Akureyri, Vestmannaeyjar og
Stykkishólmur.
Segir þá að auðvelt yrði að virkja
vefmyndavélar með sólarrafhlöðum
til nokkurra ára en reikna megi með
að hver stöð kosti um 1,5 milljónir
króna.
Verkefnið í heild, miðað við 150
stöðvar, myndi því kosta um 225
milljónir króna.
Breytingarnar á
stjórnarskránni
n Tímamörk á því hvað forseti má sitja lengi n Óheimilt er að skerða aðgang að netinu
n 10% kjósenda geta krafist þjóðaratkvæðis um lög n Persónukjör í kosningum
U
ppröðun okkar frumvarps
er talsvert frábrugðin því
sem er í núgildandi stjórn-
arskrá. Það sem er mest
áberandi er að kaflinn um
mannréttindi er fremstur. Kaflinn
um Alþingi er líka settur framar en
kaflinn um forsetann,“ sagði Salvör
Nordal, fulltrúi í stjórnlagaráði, á
opnum fundi um stjórnarskrárfrum-
varp ráðsins, sem nú hefur verið lagt
fyrir Alþingi. Fundaröð þar sem farið
er yfir tillögur stjórnlagaráðs fer fram
í Borgarbókasafninu á Tryggvagötu
næstu mánudaga.
Í erindi sem hún flutti á fund-
inum tíundaði hún þær breytingar
sem ráðið leggur til og henni finnst
markverðastar. „Orðfærið í stjórnar-
skránni er ólíkt. Við reyndum að
draga úr karllægu orðfæri því í sum-
um greinum er það áberandi í nú-
gildandi stjórnarskrá. Okkar frum-
varp er lengra. Greinum fjölgar úr
81 í 114 greinar. Varðandi stjórn-
skipunina, þá er veruleg áhersla á að
styrkja Alþingi. Það er miklu ítarlegri
kafli um ráðherra og ríkisstjórn en er
í núgildandi stjórnarskrá.“
Frumvarp stjórnlagaráðs felur
í sér gífurlega miklar breytingar á
stjórnarskrá lýðveldisins. Stjórn-
lagaráðsfulltrúar segja frumvarp-
ið efla lýðræði, Alþingi og færa
valdið til fólksins. Þá á frumvarp-
ið að tryggja grundvallarréttindi
allra þjóðfélagshópa. Ólafur Ragn-
ar Grímsson, forseti Íslands, hefur
þó túlkað frumvarpið á þann veg að
það stórauki völd forseta Íslands.
Þeirri túlkun hefur hins vegar verið
mótmælt.
Stórar breytingar verða hins
vegar gerðar á stjórnarskránni, nái
frumvarpið fram að ganga. DV tekur
hér saman helstu breytingarnar.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
n Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu
vega jafnt. Í núgildandi kjördæmakerfi
vega atkvæði í fámennari kjördæmunum
þyngra en í þeim fjölmennari.
n Alþingiskosningar byggjast upp á
persónukjöri. Þar raða kjósendur fram-
bjóðendum af listum í sínu kjördæmi eða
af landslistum.
n Sérstaklega er tekið fram að eitt kjör-
dæmi má ekki hafa fleiri en 30 þingmenn.
n Lög verði sett um hvernig skuli stuðla
að sem jöfnustu hlutfalli kvenna og karla
á Alþingi.
n Hægt er að breyta kjördæmamörkum,
tilhögun á úthlutun þingsæta og reglum
um framboð ef 66% þingmanna sam-
þykkja breytingarnar.
n Þriðjungur þingmanna getur kallað
saman Alþingi.
n Alþingismönnum verði óheimilt að
taka þátt í meðferð þingmáls sem varðar
sérstaka og verulega hagsmuni hans eða
honum nákominna.
n Aukinn meirihluta eða 66% atkvæða
þingmanna þarf til þess að kjósa forseta
Alþingis. Hann hefur ekki atkvæðisrétt á
Alþingi og lætur af almennum þing-
störfum.
n Kjósendur geta komið með tillögur um
þingmál, sem eru þá tekin til athugunar og
meðferðar í þingnefndum áður en þau eru
rædd á Alþingi.
n 10% kjósenda geta krafist þjóðar-
atkvæðagreiðslu um lög sem Alþingi hefur
samþykkt. Ef kjósendur hafna lögunum í
atkvæðagreiðslu falla þau úr gildi.
n Ef 2% kjósenda taka sig saman geta þeir
lagt fram þingmál á Alþingi.
n 10% kjósenda geta tekið sig saman og
lagt fram frumvarp til laga fyrir Alþingi.
Alþingi getur þá lagt fram gagntillögu í
formi annars frumvarps. Hafi frumvarp
kjósenda ekki verið dregið til baka skal
bera það undir þjóðaratkvæði og frumvarp
Alþingis.
n Ekki verði hægt að krefjast atkvæða-
greiðslu um fjárlög, fjáraukalög, lög sem
sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuld-
bindingum né heldur um skattamálefni
eða ríkisborgararétt.
n Stjórnvöldum verði bannað að ábyrgjast
fjárhagslegar skuldbindingar einkaaðila.
Ríkisábyrgðir má þó setja ef almannahags-
munir krefjast þess.
TILLÖGUR STJÓRNLAGARÁÐS
n Samkvæmt nýja frumvarpinu getur
forseti sett Alþingi ef þriðjungur þingheims
leggur það til.
n Forsetinn er einn af handhöfum fram-
kvæmdarvaldsins samkvæmt frum-
varpinu.
n Í forsetakosningum mega kjósendur
raða upp frambjóðendum eftir forgangs-
röðun. Sá sem best uppfyllir forgangs-
röðun kjósenda er rétt kjörinn forseti.
n Hann má heldur ekki sitja lengur en í
þrjú kjörtímabil. Það hefði þýtt að Ólafur
Ragnar Grímsson hefði þurft að hætta
árið 2008.
n Ekki má sækja forseta Íslands til
refsingar nema með samþykki Alþingis.
Hann má leysa frá embætti áður en kjör-
tímabili hans er lokið, að undangenginni
þjóðaratkvæðagreiðslu. Til þess að sú
atkvæðagreiðsla fari fram þurfa 75%
þingheims að samþykkja hana.
n Forsetinn þarf að staðfesta skipan
í embætti dómara og ríkissaksóknara.
Synji forsetinn þarf Alþingi að samþykkja
skipunina með 66% atkvæða.
n Forseti getur kallað þingið saman ef
þriðjungur þingmanna leggur það til.
n Áfram er gert ráð fyrir málskotsrétti
forseta í tillögum stjórnlagaráðs.
n Forsetinn ráðfærir sig við þingmenn og
gerir síðan tillögu til þingsins um forsætis-
ráðherra sem meirihluti Alþingis þarf síðan
að kjósa.
FORSETI ÍSLANDS
n Enginn getur gegnt sama ráðherraemb-
ætti lengur en átta ár, samkvæmt tillögum
stjórnlagaráðsins.
n Ráðherrar hafa ekki atkvæðisrétt á
Alþingi
n Ráðherrar geta þó tekið þátt umræðum
á Alþingi. Alþingismaður víkur úr þingsæti
ef hann er skipaður ráðherra.
n Forsætisráðherra er kosinn af Alþingi.
n Ráðherrar skulu ekki vera fleiri en 10
n Árlega leggur ríkisstjórn fyrir Alþingi
skýrslu um störf sín og framkvæmd
ályktana þingsins.
n Ráðherrar bera lagalega ábyrgð á
stjórnarframkvæmdum öllum. Bóki ráð-
herra andstöðu við ákvörðun ríkisstjórnar
ber hann þó ekki ábyrgð á henni.
n Ráðherra má gera samninga sem fela
í sér framsal ríkisvalds til alþjóðlegra
stofnana sem Ísland á aðild að í þágu
friðar og efnahagssamvinnu.
n Framsal ríkisvalds er hins vegar alltaf
afturkræft.
n Samþykki Alþingi fullgildingu samnings
sem felur í sér framsal ríkisvalds, skal
haldin bindandi þjóðaratkvæðagreiðsla
um niðurstöðuna.
RÁÐHERRAR OG RÍKISSTJÓRN
ALÞINGI
n Allir hafa meðfæddan rétt til lífs.
n Margbreytileiki mannlífsins skal virtur í
hvívetna.
n Ekki má gera líkamsrannsókn eða leit
á manni, leita í húsakynnum hans eða
munum nema samkvæmt dómsúrskurði
eða sérstakri lagaheimild.
n Sama á við um póstsendingar, símtöl og
önnur fjarskipti.
n Börnum er tryggður réttur til að tjá skoð-
anir sínar í öllum málum sem þau varða.
n Óheimilt er að skerða aðgang að netinu
og upplýsingatækni nema með sérstökum
skilyrðum.
n Frelsi fjölmiðla, ritstjórnarlegt sjálfstæði
þeirra og gegnsætt eignarhald skal tryggja
með lögum.
n Vernd blaðamanna, heimildarmanna og
uppljóstrara á að tryggja í lögum. Bannað
er að rjúfa nafnleynd án samþykkis þess
sem veitir upplýsingar nema við meðferð
sakamáls og samkvæmt dómsúrskurði.
n Lög skulu tryggja frelsi vísinda, fræða
og lista.
n Öllum skal tryggður réttur til almennrar
menntunar.
n Menntun án endurgjalds skal tryggð
öllum börnum sem skólaskylda nær til.
n Dýrmætar þjóðareignir, svo sem þjóð-
minjar og fornhandrit má hvorki eyðileggja
né afhenda til varanlegrar eignar eða
afnota, selja eða veðsetja.
n Náttúra Íslands er undirstaða lífs í
landinu. Öllum ber að virða hana og vernda.
n Allir hafa rétt á heilnæmu umhverfu,
fersku vatni, ómenguðu andrúmslofti og
óspilltri náttúru.
n Enginn getur fengið auðlindir í náttúru
Íslands eða réttindi tengd þeim til eignar
eða varanlegra afnota. Aldrei má selja þær
og veðsetja.
n Þessar auðlindir eru nytjastofnar
og aðrar auðlindir hafs og hafsbotns.
Uppsprettur vatns- og virkjunarréttinda,
jarðhita- og námaréttinda.
n Stjórnvöldum er skylt að upplýsa al-
menning um ástand umhverfis og náttúru
og áhrif framkvæmda þar á.
n Dýrum er tryggð vernd gegn illri með-
ferð.
MANNRÉTTINDI OG NÁTTÚRA
Stjórnlagaráð Samkvæmt tillögum ráðsins getur enginn gegnt sama ráðherraembættinu
lengur en í átta ár.