Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Qupperneq 17
Á tímum góðærisins var oft kvartað undan því að þing- ræði á Íslandi væri lítið sem ekkert. Ríkisstjórnin fékk sínu fram sama hvað á gekk og ger- breytti efnahagslífi þjóðarinnar (til hins verra, eins og síðar hefur komið í ljós) á meðan stjórnarandstaðan virt- ist harla máttlaus. Eftir að sætaskipti urðu virðist hins vegar sem ríkis- stjórnin eigi í mestu erfiðleikum með að koma málefnum sínum í gegn, á meðan stjórnarandstaðan virðist öfl- ugri en áður eru dæmi um. Má þá segja að þingræði á Íslandi hafi eflst, eða liggur annað að baki? Það sama er uppi á teningn- um í Bandaríkjunum þessa dagana. Á meðan Bush yngri gat afnumið bankareglur og ráðist á önnur lönd að vild fær Obama ekki einu sinni að greiða af skuldum ríkisins án þess að uppi verði fótur og fit. Vissulega er ís- lenska ríkisstjórnin harla veik nú með eins manns meirihluta, en staðan var sú sama jafnvel áður en þingmenn hófu að yfirgefa hana. Obama var kosinn með nokkuð öruggum meiri- hluta, en það virðist litlu máli skipta. Hér þarf að leita annarra skýringa. Kvótakóngar í dómarasætum Eftir 18 ára stjórnarsetu hafa Sjálf- stæðismenn komið sínum mönn- um að víða í kerfinu, en reyni vinstristjórnin að jafna hlutföllin er samstundis kvartað undan póli- tískum ráðningum. Mestu máli skipt- ir hér hverjir sitja í dómarasætum. Á hinni löngu valdatíð demókrata- flokksins í Bandaríkjunum frá 1933 til 1953 færðist hæstiréttur þar mjög í frjálslyndari átt. Sumar af helstu breytingunum þar í landi, svo sem afnám aðgreiningar í skóla eftir litar- hætti eða lögleiðing fóstureyðinga, komu ekki með lagabreytingu heldur með úrskurði hæstaréttar. Lög eru nefnilega, eins og önnur mannanna verk, túlkunum háð. Væri alltaf ljóst hvað lögin merktu væru lögfræðingar líklega ekki svona hátt launaðir (það sama gildir um bók- menntafræðinga og skáldverk, þó að launin þar séu víst heldur síðri). Á áratugunum eftir seinni heimsstyrj- öld sat enginn flokkur í Bandaríkj- unum lengur að völdum en í tvö kjör- tímabil, en á hinum langa valdatíma repúblikana frá 1981–1993 og aftur frá 2001–2009 var mörgum hæsta- réttardómurum skipt út af einum og sama flokki. Hneigjast þeir nú fremur í íhaldsátt og telja margir sagnfræð- ingar að þetta sé sá þáttur af arfleifð Reagans sem mestu máli skiptir. Hin raunverulega arfleifð Reagans Þegar telja átti atkvæði upp á nýtt í Flórída árið 2000 til að komast að því hver hefði í raun unnið kosningarnar, og nú aftur þegar Obama hefur loks tekist að koma heilbrigðisfrumvarpi sínu í gegn, hlaupa íhaldsmenn til hæstaréttar í von um ógildingu og fá hana oftar en ekki. Það sama átti sér ef til vill stað á Íslandi þegar Hæstiréttur ógilti kosningar til stjórnlagaþings. Það er erfitt að stjórna landi þar sem annar flokkur hefur skipað flesta æðstu embættismenn, en þó má vera að enn dýpri ástæða liggi að baki. Annað af afrekum Reagans var að draga úr valdi ríkisins og færa það einkaaðilum í staðinn. Þegar ríkis- stjórnir starfa eftir óskum þessara einkaaðila eiga þær auðvelt með að koma sínum málum að, en þegar þær starfa í trássi við þessa sömu aðila virðast þær hálf máttlausar, og skipt- ir þá litlu máli hvort um olíufyrirtæki eða kvótakónga er að ræða. Ef til vill er þetta sá hluti af arfleifð Reagans sem mestu máli skiptir þrátt fyrir allt saman. Hann sagði jú að ríkið væri vandamálið en ekki lausnin, svo nú þegar fólk leitar til ríkisins um lausn mála sinna er lítið þangað að sækja. Umræða | 17Miðvikudagur 19. október 2011 Hefur þú horft á Kexvexmiðjuna á RÚV? „Ég hef lítið horft en fannst þetta alveg þokkalegt.“ Ólafur Högni Ólafsson 50 ára slökkviliðsmaður „Ég hef séð dálítið af henni já. Það hittir sumt af þessu sæmilega í mark.“ Herbert Marinósson 69 ára sjómaður „Já. Mér fannst hún svona allt í lagi, ekkert eitthvað ótrúlega fyndin neitt.“ Elínborg Gunnarsdóttir 21 háskólanemi „Já, og mér finnst hún mjög slæm.“ Ólafur Snorri Ottósson 23 ára kokkanemi „Já, svona aðeins. Hún höfðar ekki til mín, langt í frá.“ Gyða Jónsdóttir 74 ára hætt að vinna 1 Flúði myglu og fékk á sig stefnu Bettý Díana varð mikið veik vegna myglusvepps í íbúð á Keilissvæðinu, sagði upp húsnæðinu og var stefnt í kjölfarið. 2 „Það er sárt að horfa upp á þetta“ Ólafur Oddgeirsson, 82 ára, dvelur á líknardeild Landakots. Honum hugnast ekki áform stjórnvalda um að loka deildinni. 3 Þekkir þú þennan mann? Lög-reglan leitar hans Lögreglan leitar enn ræningjarnna sem rændu úraverslun Franch Michelsen á Laugavegi á mánudagsmorgun. 4 Tengdadóttir: Myndi hrækja í andlitið á Madoff Segir hann bera ábyrgð á sjálfsvígi eiginmanns síns. 5 Veist þú um Ólaf Þór? Lögreglan lýsir eftir 16 ára pilti. Síðast er vitað um ferðir hans 7. október síðast- liðinn. 6 Fyllti bílinn af klósettpappír í vonskuveðri Vegfarandi nýtti sér umferðaróhapp undir Ingólfsfjalli til að birgja sig upp af salernispappír. 7 Stal frá þroskaheftum föngum sínum Bandarísk kona er talin hafa nýtt sér bjargarleysi þroskahefts fólks. Mest lesið á dv.is Myndin „Stóra systir fylgist með þér“ Hulduher íslenskra kvenna hélt samstöðufund gegn vændi undir yfirskriftinni „Stóra systir fylgist með þér“ í Iðnó á þriðjudag. Þessar þrjár voru á leið á lögreglustöðina með gögn með upplýsingum um vændiskaupendur. Mynd EyþÓR ÁRnaSOn Maður dagsins Erfitt að keppa við systur sína Snjólaug Jóhannsdóttir Badmintonkonan Snjólaug Jóhannsdóttir úr TBR hefur unnið fjögur Varðarmót í röð. Snjólaug segir badminton fjölskylduíþrótt enda eru þrjár systur hennar í meistaraflokki og faðir þeirra þjálfari. Uppáhaldsíþrótta- maður Snjólaugar er Ólafur Stefánsson sem hún segir öðruvísi en aðra íþróttamenn. Hvar ertu alin upp? „Í Garðabæ.“ Hvað drífur þig áfram? „Badmintonið.“ Áhugamál? „Fjölskylda og vinir. Ferðalög. En badmin- tonið er númer eitt.“ Uppáhaldsíþróttamaður? „Ólafur Stefánsson. Hann er mjög góð fyrirmynd í öllu. Hann er líka öðruvísi. Ekki þessi týpíski íþróttamaður. Hefur aðrar hugmyndir og það er skemmtilegt að hlusta á hann.“ Hvað varstu gömul þegar þú fórst að æfa badminton? „Átta ára.“ af hverju varð badminton fyrir valinu? „Þetta er fjölskylduíþrótt. Pabbi minn er þjálfari í TBR. Það var honum að þakka að ég fór að æfa.“ Hvernig er að keppa við systur sína? „Það er mjög erfitt. Ég á þrjár systur sem eru allar í meistaraflokki svo ég er nánast alltaf að keppa við systur mína. Þetta er erfitt en maður reynir bara að díla við það. Þetta verður líka auðveldara því oftar sem maður keppir.“ Er rætt um eitthvað annað en badminton í fjölskylduboðum? „Lítið annað. Tveir tengdasynir foreldra minna eru líka í badminton svo það er mjög mikið rætt um badminton í fjölskyldunni.“ Áttu þér fyrirmynd? „Ég hef alltaf litið mikið upp til foreldra minna. Á ólíkan hátt samt. Hef tekið mis- munandi hluti frá þeim báðum.“ Hvert stefnirðu? „Mig hefur alltaf langað til að verða badmintonþjálfari. Mig langar að þjálfa ein- hvern sem kemst á Ólympíuleikana.“ Dómarar Davíðs Dómstóll götunnar Valur Gunnarsson Kjallari „Lög eru nefnilega, eins og önnur mannanna verk, túlkunum háð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.