Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2011, Side 20
20 | Sport 19. október 2011 Miðvikudagur
F
ernando Alonso á Ferr-
ari þurfti að sætta sig við
fjórða sætið í Formúlu 1
kappakstrinum í Suður-
Kóreu síðastliðna helgi. Hann
átti þó gjörsamlega magnað-
an lokakafla þar sem hann
lýsti upp brautina með hraða
sínum og tækni en því miður
dugði það ekki til. Þetta var
ekki í fyrsta skiptið sem Ferr-
ari-bíllinn hefur verið svona
hraður undir lok keppni.
„Við erum mjög hrað-
skreiðir á lokakaflanum og
getum barist við þá bestu
þar. Við verðum bara að
nota þessa frammistöðu sem
hvata til að gera betur í tíma-
tökunni og ná að byrja fram-
ar. Það hamlar okkur oft,“ seg-
ir Alonso.
Aðspurður hvað Ferrari-
liðið þurfi að laga fyrir næsta
tímabil segir hann: „Við þurf-
um að vera hugmyndaríkari
og mun ákveðnari hvað varð-
ar hönnunina á bílnum.“
Ferrari er einmitt nú þegar
farið að hugsa um næsta ár og
frumsýndi nýjan framvæng á
bílnum í Suður-Kóreu sem
gaf sterka mynd af því hvern-
ig bíllinn mun verða á næsta
ári. „Þetta var hluti af bílnum
okkar fyrir næsta ár,“ viður-
kennir Stefano Domenicali,
liðstjóri Ferrari.
Nýi framvængurinn er
ólíkur öllum þeim sem lið-
ið hefur notað á F150-bíl-
inn sinn í ár. „Eftir vandræð-
in okkar í byrjun árs höfum
við unnið mikið í vindgöng-
unum og það sem við sjáum
núna lofar góðu fyrir
næsta ár. Öll gögn sem
við höfum eru jákvæð
en vissulega þurfum
við að halda áfram
að þróa vænginn fyr-
ir nýja bílinn,“ segir Do-
menicali en vængurinn sem
liðið notaði í Suður-Kóreu var
ekki einu sinni hannaður fyrir
F150-bílinn sem gerir árang-
ur Alonso enn áhugaverðari.
Frumsýndu nýjan væng
Í
slenska kvennalandslið-
ið í handbolta hefur leik í
undankeppni EM 2012 á
fimmtudaginn þegar lið-
ið mætir Spáni ytra í fyrsta
leik riðilsins. Ásamt Spáni og
Íslandi eru í riðlinum Sviss og
Úkraína en Ísland fór illa með
Úkraínu þegar liðið tryggði sér
keppnisrétt á HM í Brasilíu
sem hefst nú í byrjun desemb-
er. Íslensku stelpurnar voru
staddar í Amsterdam á þriðju-
daginn þar sem þær biðu eft-
ir tengiflugi til Madrid og var
Ágúst Jóhannsson, þjálfari
liðsins, brattur þegar DV náði
af honum tali. „Það er mikil
stemning hjá okkur. Andinn er
virkilega góður og mikil eining
og samstaða ríkir í hópnum.
Leikmennirnir eru mjög sam-
stilltir inn á þetta verkefni,“
segir Ágúst.
Slæmt að missa Rut og
Guðrúnu
„Spánn er sigurstranglegasta
liðið í riðlinum,“ segir Ágúst
um mótherja fimmtudagsins.
„Það er alveg ljóst að Spánn á
útivelli verður erfitt og krefj-
andi verkefni. Við munum
þurfa að eiga okkar allra besta
leik til þess að eiga mögu-
leika á hagstæðum úrslitum.
Þær spila afskaplega týpísk-
an spænskan bolta, ákveðinn
varnarleik og sókn á háu
tempói. Þá eiga þær leikmenn
sem eru afskaplega sterkir
maður á móti manni þannig
það er ljóst að við þurfum að
ná góðum varnarleik,“ seg-
ir Ágúst sem verður án stór-
skyttunnar Rutar Jónsdóttur
og markvarðarins Guðrúnar
Óskar Maríasdóttur sem eru
meiddar.
„Það er auðvitað slæmt
að missa Guðrúnu sem hefur
staðið sig vel hjá okkur í öll-
um þeim verkefnum sem hún
hefur verið valin í. Það er eins
með Rut. Hún er einn okkar
besti leikmaður og gríðarlega
sterk sóknarlega. Það kem-
ur samt maður í manns stað
þannig að ég er hvergi bang-
inn,“ segir Ágúst en hin unga
Birna Berg Haraldsdóttir, leik-
maður Fram, sem spilar einnig
fótbolta sem markvörður hjá
ÍBV, gæti fengið kallið í kom-
andi verkefnum.
„Birna spilaði slatta í Pól-
landi og stóð sig vel. Þetta eru
stór skref fyrir hana en það er
ekkert ólíklegt að hún muni
spila á Spáni,“ segir Ágúst.
Fara vel yfir Póllandsför
Stelpurnar tóku þátt í fjög-
urra landa móti í síðasta mán-
uði þar sem liðið tapaði öll-
um leikjum sínum. Ágúst
hefur notað þá ferð til að stilla
strengina betur fyrir komandi
verkefni. „Við erum búin að
fara vel yfir það sem miður fór
þar og gerum það enn betur í
aðdraganda leiksins. Það var
margt gott sem við gerðum í
Póllandi en einnig margt sem
betur mátti fara. Við erum allt-
af að bæta okkar leik og reyna
að þróa hann,“ segir Ágúst.
En er ekkert erfitt fyrir
þjálfarann að takast á við
leiki í undankeppni EM þegar
spenningurinn fyrir HM er að
stigmagnast? „Við fórum vel
út í þá hluti einmitt í Póllandi.
Það er mikilvægt að við gleym-
um okkur ekki í spenningi fyr-
ir Brasilíu. Við vitum að þessir
leikir um helgina eru gríðar-
lega mikilvægir og hugarfar-
ið er alveg rétt hjá liðinu. Það
komast tvö lið upp úr riðlinum
og við ætlum að vera annað
þeirra. Það eru há en raunhæf
markmið,“ segir Ágúst.
Rúlla ekki aftur yfir
Úkraínu
Seinni leikurinn í þessari
tveggja leikja törn fer fram í
Laugardalshöllinni á sunnu-
dagskvöldið þegar Úkraína
kemur í heimsókn. Ísland
hreinlega valtaði yfir Úkraínu
í sumar á leið sinni á HM en
það verður ekki eins núna seg-
ir Ágúst. „Þær eru búnar að
fá eldri leikmenn til baka og
munu koma með allt öðru hug-
arfari en síðast. Það er alveg
ljóst að það verður alveg gríðar-
lega erfitt verkefni. Með skipu-
lögðum og góðum leikjum eig-
um við samt að geta komist á
EM,“ segir Ágúst sem kallar eftir
stuðningi áhorfenda.
„Við vonumst til að fá mik-
inn stuðning á sunnudaginn.
Síðast þegar við spiluðum við
Úkraínu var vel mætt á pallana
og á því þurfum við virkilega að
halda. Það getur skipt sköpum,“
segir Ágúst Jóhannsson.
Murray í
þriðja sætið
Breska tenniskappanum Andy
Murray tókst ætlunarverk sitt
um helgina er hann komst upp
fyrir Svisslendinginn Roger
Federer á heimslista karla í
tennis. Murray vann David Fer-
rer í úrslitaleik Sjanghaí-móts-
ins í tveimur settum og lyfti sér
þannig yfir Federer á heimslist-
anum með þriðja mótssigri sín-
um í röð. „Það eru ekki margir
sem geta sagst hafa endað ofar
en Federer á heimslistanum
eftir heilt keppnistímabil. Ég er
búinn að berjast virkilega fyrir
þessu,“ segir Murray.
n Ferrari farið að hugsa um næsta tímabil
Nýi vængurinn Ferrari segir nýju hönnunina lofa góðu. MyNd ReuteRS
Heil umferð í
handboltanum
Fimmta umferðin í N1-deild
karla verður spiluð í heild
sinni á fimmtudagskvöldið.
Hún hefst á Akureyri þar sem
heimamenn sem aðeins hafa
unnið einn leik í vetur taka á
móti Valsmönnum klukkan
19.00. Hálftíma síðar fara þrír
leikir í gang. FH tekur á móti
nýliðum Gróttu í Kaplakrika,
Haukar sækja Aftureldingu
heim í Mosfellsbæinn og Fram
og HK mætast í Safamýrinni.
Framarar eru eftir með fullt
hús stiga eftir fjóra leiki en
Haukar koma þar næstir með
sex stig.
Erfitt hjá
nýliðunum
Þriðja umferðin í Iceland Ex-
press-deild karla í körfubolta
hefst á fimmtudagskvöldið
með þremur leikjum. Nýliðar
Vals, sem hafa tapað fyrstu
tveimur leikjum sínum sann-
færandi, fá erfitt verkefni
en þeir taka á móti Keflavík.
Tindastóll fær Fjölni í heim-
sókn á Krókinn og þá sækja
ÍR-ingar Grindvíkinga heim
í Röstina. Allir leikirnir hefj-
ast klukkan 19.15. Njarðvík,
Stjarnan, Grindavík og Snæfell
eru þau lið sem hafa unn-
ið báða leiki sína til þessa á
mótinu.
n Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í undankeppni eM 2012 n Mætir
Spáni ytra og Úkraínu heima n Ætlar sér á þriðja stórmótið í röð
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Handbolti
komist á E
Eigum að geta
Reynslubolti
Hrafnhildur Ósk
Skúladóttir er
að sjálfsögðu í
íslenska hópnum.
MyNd eGGeRt JóhaNNSoN