Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Page 6
6 Fréttir 30. nóvember 2011 Miðvikudagur
„Það er enginn sakaferill“
n Vítisengill gaf skýrslu fyrir héraðsdómi úr fangaklefa
N
orðmaðurinn Jan Anfinn Wahl,
sem er meðlimur í mótorhjóla-
samtökunum Vítisenglum,
eða Hell’s Angels, í Noregi, gaf
skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á
mánudag í gegnum síma úr fangaklefa
í Keflavík. Wahl hafði ætlað að vera
viðstaddur aðalmeðferð málsins en
hann hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir
að hleypa sér ekki inn í Ísland í febrú-
ar 2009.
„Já, mjög,“ sagði Jan þegar lögmað-
ur hans spurði hvort það hefði kom-
ið honum á óvart að vera ekki hleypt
inn í landið. Leiðtogi Vítisengla, Leif
Ivar Kristiansen, hefur einnig stefnt ís-
lenska ríkinu fyrir að honum hafi ver-
ið meinað að koma til landsins í sömu
ferð. Hann gaf þó ekki símaskýrslu fyr-
ir dómnum þar sem hann situr í fang-
elsi í Noregi.
Grundvöllurinn fyrir því að
mönnunum tveimur var ekki hleypt
inn í landið var hættumat ríkislög-
reglustjóra á vélhjólasamtökun-
um Vítisengla sem hafa verið skil-
greind sem skipulögð glæpasamtök
af lögregluembættum víðs vegar
um Skandinavíu. Lögmaður Wahls
gagnrýndi hins vegar málsmeð-
ferðina fyrir dómnum og benti á að
skjólstæðingur hans hefði engan
sakaferil. Sjálfur sagðist Wahl ekki
hafa unnið neitt til saka. „Það er eng-
inn sakaferill,“ sagði hann.
Ástæða heimsóknarinnar var að
sögn Jans meðal annars að hitta fé-
laga sína í mótorhjólaklúbbnum
MC Iceland, sem er aðili að alþjóð-
legu samtökunum Vítisenglum. Fé-
lagar í samtökunum, og þar með tal-
inn leiðtogi samtakanna hér á landi,
Einar „Boom“ Marteinsson, voru
viðstaddir meðferð málsins fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Jólatilboð
Falleg olíumálverk í úrvali
á einstökum verðum
Allt orginal málverk
É
g varð bara mjög reiður. Ég hef
sjaldan orðið svona reiður,“
segir Bjarki Gannt Joensen
sem gómaði um síðustu helgi
þjófa sem hann stóð að verki
við að stela fötum úr fatagámi Rauða
krossins við endurvinnslustöð Sorpu
á Sævarhöfða. Bjarka fannst ekk-
ert annað koma til greina en að elta
þjófana uppi og gantast með að hann
hafi næstum lagt líf sitt í hættu í eftir-
förinni. Atburðurinn átti sér stað um
hábjartan dag.
Kassinn horfinn
Bjarki fór með stóran kassa full-
an af fötum í fatagáminn síðastlið-
inn sunnudag. Fyrir framan gáminn
stóð grá Toyota Previa-bifreið sem
karlmaður, líklega um fimmtugt, var
að paufast í skottinu á. Bjarki veitti
manninum ekki mikla athygli í fyrstu
og fór einnig með rusl í aðra gáma á
svæðinu. Þegar hann var búinn að
því sá hann að poki með fötum hafði
orðið eftir í bílnum hjá sér og fór því
aftur að fatagámnum.
„Ég tók eftir að gráa Toyotan var
þar ennþá og karlmaðurinn kom út
úr gámnum og lokaði afturhleranum
á bílnum og keyrði í burtu. Þegar ég
kom aftur inn í gáminn sá ég að kass-
inn minn var horfinn og þá fattaði
ég hvað var í gangi og brunaði á eftir
bílnum.“ Maðurinn hafði tekið kass-
ann sem Bjarki var nýbúinn að setja
inn í gáminn.
Náði ekki að loka skottinu
Bjarki elti þjófinn þangað til hann
stöðvaði bílinn a fyrir aftan verslun
B&L og Ingvars Helgasonar. Hann
renndi upp að hlið bílsins og bað
karlmanninn um að skrúfa nið-
ur rúðuna, sem hann og gerði. „Ég
spurði hvort hann hefði verið að stela
fötum og hann svaraði á einhverju
erlendu máli en ung stúlka sem var
með honum í bílnum sagði nei,“ seg-
ir Bjarki sem tók hana ekki trúanlega.
„Þá fór ég bara aftur í bílinn opnaði
dyrnar og teygði mig í kassann og ég
held ég hafi ekki einu sinni náð að
loka skottinu áður en hann keyrði af
stað.“ Bjarki veitti því athygli að eng-
in aftursæti voru í bílnum og fannst
honum það vísbending um að bíll-
inn væri nýttur í eitthvað misjafnt.
Viðbrögð starfsmanna fáleg
Bjarki fór aftur með kassann niður
í Sorpu og lét starfsmennina vita af
málinu. Hann segir viðbrögð þeirra
þó hafa verð fáleg. „Það var eins og
þeim væri bara alveg sama og væru
ekki mikið að spá í þetta. Þau brostu
bara.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Sorpu eru atvik sem þessi fáheyrð,
enda ávallt starfsmenn sem fylgjast
með gámunum þegar þeir eru opn-
ir. Þá eru einnig öryggismyndavélar á
öllum endurvinnslustöðvunum.
Mikilvæg tekjulind
Örn Ragnarsson, verkefnastjóri í
fataflokkun Rauða krossins, hafði
ekki heyrt af þessu ákveðna máli en
segir fataflokkunina vera í mjög góðu
samstarfi við Sorpu. „Hins vegar þyk-
ist ég vita að þetta hafi gerst oftar.
Hérna áður fyrr var það stundað að
brjótast inn í gámana á nóttunni en
nú er gengið þannig frá þeim að það
er ekki hægt og þá eru einhverjir sem
bregða á þetta ráð.“
Fatasöfnun Rauða krossins er
mjög mikilvæg tekjulind fyrir stofn-
unina, að sögn Arnar. Fötin sem eru í
bestu ásigkomulagi eru tekin til hlið-
ar og seld í búðum Rauða krossins
hér á landi. Afgangurinn er seldur
til flokkunarfyrirtækja í Evrópu sem
flokka fötin mjög ítarlega og selja
áfram.
n Bjarki stóð þjófa að því að stela úr fatagámi Rauða krossins n Reiddist og elti þá uppi
n Segir starfsmönnum Sorpu hafa staðið á sama n Mikilvæg tekjulind fyrir Rauða krossinn
Elti uppi fataþjófa
„Ég held ég hafi
ekki einu sinni náð
að loka skottinu áður en
hann keyrði af stað.
Sýndu stuðning Leiðtogi íslenskra
Vítisengla, Einar „Boom“ Marteinsson, og
tveir aðrir meðlimir í samtökunum fylgdust
með meðferð málanna tveggja í dómssal.
Elti þjófinn uppi Bjarki Gannt varð mjög
reiður þegar hann sá að kassa af fötum, sem
hann gaf í fatasöfnun Rauða krossins, hafði
verið stolið.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Sorpa Örn Ragnarsson, verkefnastjóri í
fataflokkun Rauða krossins, þykist vita að
eitthvað sé um að stolið sé úr gámunum.
Ánægð með
Ögmund
Stjórn Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Reykjavík lýsti
á þriðjudag yfir létti og ánægju
með ákvörðun Ögmundar Jónas-
sonar innanríkisráðherra um
að synja kínverska fjárfestinum
Huang Nubo um leyfi til fjárfest-
ingar á Grímsstöðum á Fjöllum.
„Megi þetta verða vísir þess sem
koma skal, að eignarhald á jarð-
næði verði úr höndum auðmanna,
hverrar þjóðar sem þeir eru, og að
einkaeignarhald á jarðnæði heyri
almennt sögunni til,“ sagði í álykt-
un sem félagið sendi frá sér vegna
málsins. Mikill titringur hefur ver-
ið í stjórnarliðinu, þá einna helst
meðal þingmanna Samfylkingar-
innar, vegna ákvörðunarinnar.
Kreppuráðstefna
kostaði 8,5 milljónir
Kostnaður vegna alþjóðlegu ráð-
stefnunnar um lærdóm af efna-
hagskreppunni og verkefnin fram
undan sem haldin var í Hörpu
þann 27. október síðastliðinn nam
rúmlega 8,5 milljónum króna.
Þetta kemur fram í svari Árna
Páls Árnasonar, efnahags- og við-
skiptaráðherra, við fyrirspurn
Margrétar Tryggvadóttur, þing-
konu Hreyfingarinnar, sem lagt
var fram á mánudag. Í svarinu er
sundurliðað hverjir stóðu straum
af kostnaðinum en þar má sjá
að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
(AGS) greiddi stærstan hluta. AGS
greiddi rúmlega 4,8 milljónir af
heildarkostnaðinum en Seðla-
banki Íslands lagði til tæplega 1,9
milljónir. 1.800 þúsund krónur
komu frá íslenska ríkinu, eða eins
og það er kallað í svarinu: „Ráð-
stöfunarfé ríkisstjórnarinnar.“
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
slapp billega frá ráðstefnunni þar
sem kostnaður þess nam aðeins
56 þúsund krónum.