Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Blaðsíða 25
Sport 25Miðvikudagur 30. nóvember 2011
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
n Knattspyrnufélög sem áttu góðu gengi að fagna en hrundu eins og spilaborg n Monaco
komst í úrslit Meistaradeildarinnar fyrir sjö árum en siglir nú hraðbyri niður í þriðju deild
Leeds United
Besti árangur
Englandsmeistari 1969, 1974 og 1992
Staða í dag
5. sæti í Championship-deildinni
Árið 2001 var enska félagið Leeds eitt besta knattspyrnulið
Evrópu. Það komst alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evr-
ópu, lengra en öll ensku liðin, þar sem það beið lægri hlut fyrir
Bayern München. Leið Leeds lá þó niður á við eftir þetta eins og
aðdáendum enska boltans ætti að vera kunnugt um. Skulda-
staða félagsins var erfið eftir að leikmenn á borð við Robbie
Fowler og Seth Johnson voru keyptir til félagsins. Leeds missti
naumlega af sæti í Meistaradeildinni vorið 2001 og varð fyrir
miklum tekjumissi í kjölfarið. Allar stjörnur liðsins voru seldar
og fór svo að Leeds féll úr ensku úrvalsdeildinni vorið 2004.
Þar með er ekki öll sagan sögð því Leeds átti enn eftir að ná
botninum. Eftir þrjú ár í ensku fyrstu deildinni féll liðið niður í
aðra deild. Í fyrravor náði Leeds að komast aftur í fyrstu deild,
eða Championship-deildina eins og hún er kölluð, þar sem
það er enn.
Deportivo
La Coruna
Besti árangur
Spánarmeistari árið 2000
Staða í dag
5. sæti í annarri deild
Deportivo var eitt af stórliðum Evrópu fyrir nokkrum
árum. Í raun má segja að liðið hafi staðið Barcelona,
Real Madrid og Valencia jafnfætis. Liðið varð Spánar-
meistari árið 2000 og var í toppbaráttunni á Spáni í
raun allt þar til það féll úr deildinni síðastliðið vor. Liðið
komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar árið 2004 þar
sem það beið lægri hlut fyrir Jose Mourinho og félögum
í Porto, 1–0 samanlagt. Líkt og með svo mörg félög lenti
Deportivo í fjárhagserfiðleikum og gekk erfiðlega að laða
til sín hágæðaleikmenn. Liðið féll úr La Liga síðastlið-
ið vor og er í einu af efstu sætunum í spænsku annarri
deildinni.
Middlesbrough
Besti árangur
Deildarbikarmeistari 2004
Staða í dag
4. sæti í Champhionship-deildinni
Þann 24. maí 2009 féll Middlesbrough úr ensku úrvals-
deildinni eftir að hafa verið í deild þeirra bestu í ellefu ár.
Middlesbrough var gríðarlega vel mannað á sínum tíma
og áttu mörg stóru liðanna í vandræðum með það. Nægir í
því samhengi að nefna Manchester United. Árið 2004 vann
Middlesbrough enska deildarbikarinn þegar það lagði Bol-
ton að velli í úrslitaleik, 2–1. Þetta þýddi að Middlesbrough
komst í Evrópukeppni félagsliða tímabilið á eftir þar sem
það datt út í sextán liða úrslitum. Liðið náði síðan aftur að
tryggja sér sæti í keppninni næsta tímabil á eftir þar sem
það komst alla leið í úrslit vorið 2006. Middlesbrough varð
hins vegar að sætta sig við tap fyrir spænska liðinu Sevilla.
Liðið hefur ekki náð sér á strik síðan það féll úr ensku úr-
valsdeildinni en er þó sem stendur í ágætri stöðu í Cham-
pionship-deildinni.
Sampdoria
Besti árangur
Ítalíumeistari 1991
Staða í dag
8. sæti í Serie B
Við upphaf tíunda áratugar liðinnar aldar var Sampdoria
eitt allra sterkasta félagslið Evrópu. Það komst í úrslita-
leik hinnar sálugu Evrópukeppni bikarhafa árið 1988 þar
sem það tapaði að vísu fyrir Barcelona. Liðið vann svo
keppnina 1990. Árið 1992 mætti Sampdoria Barcelona í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar og tapaði. Í millitíðinni,
vorið 1991, vann liðið Serie A á Ítalíu og virtist illvið-
ráðanlegt. Eftir þetta fór þó að halla undan fæti og hefur
liðið í raun sveiflast á milli deilda síðan þá. Það féll úr
Serie A síðasta vor og hafa þjálfaraskipti verið tíð undan-
farin misseri: á þessu ári hafa fjórir knattspyrnustjórar
stjórnað liðinu.
AS Monaco
Besti árangur
Meistari 1961, 1963, 1978,
1982, 1988, 1997, 2000
Staða í dag
20. sæti í annarri deild
AS Monaco er án nokkurs vafa eitt stærsta félag Frakklands
enda hefur það orðið Frakklandsmeistari sjö sinnum, síðast
árið 2000. Monaco komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar
árið 2004 þar sem liðið lá fyrir Porto í úrslitaleik. Í undan-
úrslitum hafði liðið slegið út stórlið Chelsea. Árið 2008 varð
Monaco bikarmeistari í Frakklandi þrátt fyrir að hafa aðeins
endað um miðja deild. Monaco féll svo úr efstu deild síð-
astliðið vor og er allt útlit fyrir að liðið muni leika í frönsku
þriðju deildinni næsta vetur. Það er í neðsta sæti deildarinn-
ar og hefur einungis unnið einn leik af fyrstu fimmtán.
Portsmouth
Besti árangur
Bikarmeistari 2008
Staða í dag
17. sæti í Championship-deildinni
Portsmouth komst upp í úrvalsdeildina árið 2003 og má segja
að það hafi verið upphafið að falli liðsins. Fyrstu þrjú tímabil-
in lenti Portsmouth í 13., 16. og 17. sæti. Í janúar 2006 keypti
auðkýfingurinn Alexandre Gaydamak félagið og fékk stjórinn,
Harry Redknapp, að kaupa leikmenn nánast að vild. Árangur-
inn lét ekki á sér standa og vorið 2008 vann Portsmouth enska
bikarinn. Leiðin lá niður við fljótlega eftir þetta og þurfti félagið
að selja nánast alla lykilleikmenn liðsins vegna fjárhagserfið-
leika. Í fyrravor gerðist hið óumflýjanlega: Portsmouth féll úr
ensku úrvalsdeildinni eftir að níu stig voru dregin af félaginu
þegar það fór í greiðslustöðvun. Liðið er enn í Championship-
deildinni þar sem það á í talsverðu basli.
Gamlir
meistarar í
tómu tjóni