Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Síða 11
Fréttir 11Miðvikudagur 30. nóvember 2011 HVAÐ KOSTA VERÐTRYGGINGIN OG KRÓNAN OKKUR? Alþýðusamband Íslands boðar til opinna funda um vexti og verðtryggingu. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Við hvetjum fólk til að fjölmenna. Þetta er hagsmunamál okkar allra. Fundarstjóri: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ Fimmtudaginn 1. desember kl. 17 á Grand Hótel – Gullteigi Eru háir vextir og verðtrygging náttúrulögmál á Íslandi? Ræðumenn: Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ Fyrirspurnir og umræður Fimmtudaginn 8. desember kl. 17 á Grand Hótel – Gullteigi Hvað kostar krónan heimilin í landinu? Ræðumenn: Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ Ólafur Darri Andrason, deildarstjóri hagdeildar ASÍ Fyrirspurnir og umræður H etja ársins hjá DV verð- ur nú valin í fjórða sinn. Lesendur eru beðnir um að senda nafn eða nöfn þeirra sem þeim finnst verðugir þess að bera nafnbótina Hetja ársins 2011 fyrir eitthvað sem viðkomandi afrekaði á árinu sem senn rennur sitt skeið. Til- nefningar skulu sendar á netfangið hetjaarsins@dv.is. Allir Íslendingar og þeir sem búa hér á landi koma til greina í valinu og er öllum frjálst að senda inn tilnefningar. Engu skiptir hvort fólk er þjóðþekkt, minna þekkt eða alls ekkert þekkt – allir eru gjald- gengir í kjörinu. Ef viðkomandi hefur ekki komist í fréttirnar fyrir afrek sitt verður að fylgja með lýs- ing á því hvernig hinn tilnefndi lét gott af sér leiða á árinu. Skilafrestur er til miðnættis 18. desember og eftir það mun dóm- nefnd velja hetjuna og taka þar mið af innsendum tilnefningum. Að því búnu verður kosið um hetju ársins á DV.is. Niðurstaða kosningarinn- ar verður kunngjörð í kringum ára- mótin. Hetjan fær að gjöf Samsung Galaxy 10.1 frá Samsung setrinu að verðmæti 109.900 krónur. Hetja ársins 2010 Þórður Guðnason og félagar hans í Björgunarfélagi Akraness unnu gíf- urlegt þrekvirki þegar þeir björguðu sjö ára dreng úr sprungu á Lang- jökli. Drengurinn hafði fallið ofan í 30 metra djúpa sprungu ásamt móð- ur sinni, sem lést í slysinu. Liðsmenn Björgunarfélags Akraness voru kall- aðir út en þegar komið var á jökul- inn var sú ákvörðun tekin að Þórður skyldi látinn síga niður í sprunguna til mæðginanna. Í um það bil klukku- tíma hékk hann á hvolfi við afar erf- iðar aðstæður og á tímabili átti hann erfitt með öndun þar sem sprungan þrengdi að brjóstkassa hans. Þurfti þá að hífa hann ofar áður en hann fór aftur niður. Í þriðju tilraun náði hann að koma línu um fót drengsins og bjargaði honum á ótrúlegan hátt. Um fjórir tímar liðu frá því að dreng- urinn féll niður um sprunguna þar til hann náðist upp og var hann því orð- inn kaldur og þrekaður. Hetjur ársins 2009 Lögreglumennirnir Sigurður Betú- el Andrésson og Svava Snæberg voru valin hetjur ársins 2009 en þau björguðu þau lífi manns á gólfi bak- arís í Kópavogi þar sem þessir tveir laganna verðir voru staddir á sama tíma fyrir tilviljun. Maðurinn hneig niður, varð blár á örskotsstundu og sýndi ekkert lífsmark þegar Sigurð- ur og Svava hófu lífgunartilraunir á honum. Maðurinn, sem var um sex- tugt, fékk hjartastopp en lögreglu- mennirnir hnoðuðu og blésu í hann lífi. Hann var fluttur á spítala í kjöl- farið en var fljótlega útskrifaður. Hetja ársins 2008 Þráinn Bjarnason Farestveit fram- kvæmdastjóri var valinn hetja ársins 2008 en hann vann mikla hetjudáð þegar hann bjargaði manni úr bifreið sem stóð í björtu báli við Reykjaveg í Reykjavík eftir að gas hafði lekið úr kút sem var í aftursæti bílsins. n Lesendur DV velja hetju ársins í fjórða skiptið n Dómnefnd velur úr tilnefningum og lesendur kjósa svo á milli þeirra á DV.is n Hetja ársins fær Samsung-spjaldtölvu að gjöf Hetja ársins 2011 valinGalaxy Tab 10.1 Hetja ársins fær spjaldtölvuna að gjöf. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Þórður Guðnason Þórður og félagar hans björguðu sjö ára dreng úr sprungu á Langjökli. „Tilnefningar skulu sendar á netfangið hetjaarsins@dv.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.