Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Qupperneq 22
22 Menning 30. nóvember 2011 Miðvikudagur Nýtt lag með Retro Stefson Retro Stefson hefur gengið vel í Evrópu og aðdáendur sveitarinnar gleðjast yfir því að nýtt lag með þeim, Qween, er væntanlegt í spilun næstu daga. Sveitarmeðlimir koma heim um jólin og spila meðal annars á tónleikum með Of Monsters and Men á Nasa þann 30. desember undir yf- irskriftinni Síðasti sjens 2011. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin Síðasti sjens er haldin og tónleikarnir verða líklega eftirsóttir í ár og margir vilja sjá sveitirnar tvær. Of Mon- sters and Men hefur gengið ákaflega vel á tónleikaferð sinni um Norður-Ameríku. Lag þeirra Little talks rataði í annað sæti á lista iTunes og sveitin gerði þar að auki allt vitlaust á Iceland Airwaves í ár. Fjör hjá Nemenda- leikhúsinu Föstudaginn 2. desember frumsýnir Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands verkið Jarðskjálftar í London eftir Mike Bartlett í Smiðjunni, að Sölv- hólsgötu 13. Verkið var frum- sýnt í Na- tional Theatre í London í fyrra við frábærar undirtektir. Sögð er saga af snörpum hræringum í lífi þriggja systra sem reyna af öllum mætti að bjarga sér og sínum úr hamförum og framförum nú- tímans á meðan faðir þeirra, heimsfrægur vísindamaður, boðar heimsendi. Burlesque- fatafellur, martraðir, pólitísk spilling, sprengingar og para- noja. Fjörugt verk hér á ferð. Nemendaleikhúsið skipa: Hjörtur Jóhann Jónsson, Kol- beinn Arnbjörnsson, Olga Sonja Thorarensen, Ólöf Har- aldsdóttir, Pétur Ármannsson, Saga Garðarsdóttir, Sara Mar- grét Nordahl, Sigurður Þór Óskarsson, Snorri Engilberts- son og Tinna Sverrisdóttir. Bíógestir komnir í jólaskap Vampírumyndin The Twi- light Saga: Breaking Dawn er enn á toppnum í aðsókn í Bandaríkjunum rétt eins og hér á landi. En bíógestir ytra eru greinilega komnir í jólaskap því fjölskyldumynd- irnar sækja hart á. Í öðru sæti er jólamynd um hina klass- ísku og sívinsælu Prúðu- leikara, í þriðja sæti myndin Happy Feet 2 og í fjórða sæti myndin Arthur Christmas eða Arthúr bjargar jólunum. Sú mynd verður frumsýnd á föstudag hér á landi. Þ að eru forréttindi að fá að starfa við það sem maður hefur ástríðu fyrir,“ segir Katrín Hall, listrænn stjórn- andi Íslenska dansflokksins og dómari í þættinum Dans, dans, dans. Katrín var níu ára þegar hún byrjaði að dansa. Hún dansaði lengi hjá Íslenska dansflokknum, var atvinnu- dansari í Þýskalandi í níu ár, hefur einnig samið dans- verk fyrir erlenda dansflokka, gert dansmynd og unnið með fjölda erlendra stórstjarna í dansheiminum.  Framar öllum vonum Katrín er ánægð með íslenska dansþáttinn sem hún segir frábært framtak hjá RÚV og Saga Film. Hún segir auk þess aldrei neitt annað hafa komið til greina en að leggja þessu lið. „Svona þáttur er mikilvægt tækifæri fyrir listina, er gluggi okkar út í samfélagið, upp- lýsandi og fræðandi og gefur áhorfendum tækifæri til að skyggnast inn í heim dansins. Páll Óskar orðaði það réttilega í síðasta þætti þegar hann sagði dansinn hafa verið neð- anjarðar en vera nú loksins að skjóta sér upp á yfirborðið. Ég held að við öll sem stöndum að þessu séum afar sátt því þátttakan er frábær, stand- ardinn hár og áhorfið gott. Í raun hefur þetta farið framar okkar björtustu vonum,“ segir hún og bætir við að þótt hún hafi vitað hversu góða dans- ara Ísland hafi alið af sér hafi hún ekki verið viss um hverjir myndu taka þátt. „Það er al- veg frábært að sjá íslenska danssamfélagið flykkjast að baki þessum þætti. Þarna eru margir af okkar bestu döns- urum úr ólíkum dansstílum, atvinnufólk, dansnemar, hvort sem um er að ræða lengra komna eða þá sem gæddir eru náttúruhæfileikum sem og danskennarar sem hafa unnið við að kenna dans til fjölda ára og eru nú komnir til að keppa. Þessir dansarar eru að leggja svo mikið á sig og framfarirnar eru oft slíkar að það er unun á að horfa.“ Í breska S.Y.T.U.C.D. Sjálf segist Katrín hafa gaman af þáttum á borð við So You Think You Can Dance en hún tók þátt í bresku útgáfunni af dansþættinum vinsæla þar sem hún samdi opn- unaratriði í einum þætti og keppnistvídans í öðrum. Áður hafði hún unnið með stór- stjörnunni Shakiru þegar hún samdi dansinn í tónlistar- myndbandinu við lagið Did it again. „Shakira hafði rekist á stuttmynd okkar Reynis Lyng- dal, Burst, í netheimum og varð víst svona hrifin. Ég hélt að þetta væri eitthvert grín og trúði ekki að umboðsmaður Shakiru væri að reyna að ná á mig. Ég trúði því varla fyrr en ég var komin upp í flugvél,“ segir hún brosandi og bætir við að vinnan með söngkon- unni hafi verið mikil upplifun. „Fagmennskan var algjör og ég verð að hrósa Shakiru á alla kanta. Hún leggur ótrúlega hart að sér og tók ákveðna áhættu, bæði með því að setja nútímadans í forgrunn í þessu myndbandi og einnig með því að velja lítið þekktan danshöf- und. Ég hef verið heppin. Það hefur ýmislegt rekið á fjörur manns í gegnum tíðina,“ segir Katrín sem er að fara að starfa að afar stóru verkefni fyrir dansflokk í Austurríki sem frumsýnt verður í mars. Harður heimur Katrín segir líf dansarans skemmtilegt en að sam- keppnin sé gríðarleg. „Þetta er harður heimur og fólk þarf að forgangsraða. Þeir sem ætla sér að ná langt verða að helga líf sitt þessum lífsstíl. Líkaminn er tæki dansarans og dansarar þurfa að fara vel með hann. Sumir lenda í ógöngum með meiðsl sem er sorglegt en sjálf hef ég verið heppin,“ segir hún og bætir aðspurð við að það sé mis- jafnt hversu langt líf dans- arar eigi úti á vinnumarkaðn- um. „Þróunin er á þá leið að dansarar eru farnir að dansa lengur en þeir gerðu. Fólk er farið að meta meira þroskaða dansara, sem er jákvætt. Það er ekkert eins gott og þroski og reynsla sem skilar sér í túlkun og nálgun og því hvernig þú snertir áhorfendur.“ Mannlegir dómarar Katrín vill ekki gefa upp hvaða dansara eða dans- hóp hún telji sigurstrang- legastan í Dans, dans, dans. „Við dómararnir höfum ekk- ert um endanlegu úrslitin að segja enda vil ég alls ekki gera upp á milli. Það verður símakosningin í lok úrslita- þáttar sem sker úr um sigur- vegarann. Þetta eru fjölbreytt atriði og sum hver mjög vel unnin í umgjörð og hugsun.“ Hún segir aldrei hafa komið til greina að fara amerísku leiðina þar sem lélegustu at- riðin séu notuð sem skemmti- efni í upphafi syrpunnar. „Að mínu mati á svona þáttur að byggja þátttakendur upp, vera hvetjandi og dómnefnd mál- efnaleg en auðvitað erum við dómarar mannlegir og okkur getur skrikað fótur. Sjálf reyni ég að vera samkvæm sjálfri mér í athugasemdum og reyni að benda á það sem gott er og það sem betur má fara og koma með faglegar athuga- semdir sem vonandi nýtast þátttakendum. Hins vegar höfum við takmarkaðan tíma og oft langar mig að koma svo miklu meira á framfæri. Dansinn fyrir mér er svo mikil ástríða.“ Dómari vann með Shakiru n Katrín Hall ánægð með Dans, dans, dans n Dansheimurinn skemmtilegur en harður„Það er ekkert eins gott og þroski og reynsla sem skilar sér í túlkun og nálgun og því hvernig þú snertir áhorfendur. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal „Þeir sem ætla sér að ná langt verða að helga líf sitt þessum lífsstíl. Katrín Hall Það kom aldrei neitt annað til greina hjá Katrínu en að taka þátt í Dans, dans, dans. MYnD GUðMUnDUr Þór KáraSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.