Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Síða 27
„Ég heiti Pútín, Vladimír Pútín“
n Ingimar Ingimarsson kynntist tveimur framtíðarforsetum Rússlands
Í
æviminningum Ingimars
Ingimarssonar, arkitekts
og athafnamanns, þar
sem hann fjallar meðal
annars um viðskipti sín með
Björgólfsfeðgum í Rúss-
landi á tíunda áratugnum,
er eftirminnileg frásögn af
kynnum hans og Vladimírs
Pútín, núverandi forsætis-
ráðherra Rússlands. Bók
Ingimars heitir „Sagan sem
varð að segja.“
Pútín var þá aðstoðar-
maður Anatolís Sobtsjak,
borgarstjóra Rússlands,
sem Ingimar kynntist þeg-
ar hann var að reyna að
hasla sér völl í viðskiptalífi
borgarinnar. Ingimar lýs-
ir því hvernig stjórnmál og
viðskipti voru samtvinnuð
í borginni og því taldi hann
sig þurfa að öðlast traust
stjórnvalda til að ná árangri
í viðskiptum.
Lýsingar Ingimars af Pút-
ín eru af litlausum, lokuð-
um og fráhrindandi skriff-
inni sem brosti sjaldan.
„Þessi maður virtist því
sannkallaður bjúrókrati
og ef hann sagði eitthvað
á þessum fundum þá var
það beint eftir bókinni og
flokkslínunni. Rétt eins og
fleiri Rússar var hann frekar
kauðslega klæddur, í dæmi-
gerðum brúnum jakkaföt-
um með brúnt eða grátt
bindi við litlausa skyrtu.
Þetta var að heita má ein-
kennisbúningur rússneskra
embættismanna á þessum
tíma.“
Ingimar hefur sérstak-
lega orð á því að á fund-
unum með Pútín talaði sá
síðarnefndi alltaf rússnesku
og lét þýða þýsku Ingimars
yfir á rússnesku fyrir sig.
Löngu síðar komst Ingimar
að því að Pútín hefði verið
fulltrúi leyniþjónustunnar
KGB í Austur-Þýskalandi og
talaði reiprennandi þýsku.
Pútín flíkaði hins vegar
ekki þekkingu sinni á þýskri
tungu og líkaði Ingimar það
ágætlega. Pútín kynnti sig
fyrir Ingimar með eftirfar-
andi orðum, að loknum síð-
asta fundi þeirra: „Ég heiti
Pútín, Vladi mír Pútín“. Ingi-
mar kynntist einnig Dímítrí
Medvedev, núverandi for-
seta Rússlands, sem starfaði
líka fyrir Sobtsjak.
ingi@dv.is
Fólk 27Miðvikudagur 30. nóvember 2011
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1
110 Reykjavík - S: 580-8900
TOYOTA AURIS LUXERY
09/2008, ekinn 33 Þ.km, bensín, 5 gíra.
Verð 2.390.000. #283789 - Sá fallegi er
á staðnum!
SKODA OCTAVIA AMBIENTE
03/2007, ekinn 125 Þ.km, diesel,
sjálfskiptur. Verð 1.790.000. #283820 -
Skodinn hagkvæmi er á staðnum!
MMC PAJERO INT.TURBO
DIESEL/LANGUR 33“ 06/2001, ekinn
200 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 1.480.000.
#321485 - Jeppinn fíni er á staðnum!
TOYOTA AURIS TERRA DIESEL
05/2007, ekinn 98 Þ.km, dísel, 5
gíra. Verð 2.150.000. #283801 - Sá
sparneytni er á staðnum!
TOYOTA YARIS SOL
09/2008, ekinn aðeins 42 Þ.km, 5 gíra.
Verð 1.690.000. #321728 - Sá vinsæli er
á staðnum!
SUZUKI GRAND VITARA 2,0
06/2003, ekinn 144 Þ.km, SJÁLF-
SKIPTUR Gott verð 1.255.000. #283497
- Jeppinn fallegi er á staðnum!
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
n Raflagnir
n Tölvulagnir
n Loftnetslagnir
og uppsetningar
n Gervihnatta-
móttakarar
n Ljósleiðaralagnir
og tengingar
n Raflagnateikningar
n Lýsingarhönnun
og ráðgjöf
n Þjónustusamningar
Pétur Halldórsson
löggiltur rafverktaki
petur@electropol.is, 8560090
Tek að mér
sölumennsku, kynningar, innheimtu,
verklegar framkvæmdir o.fl. o.fl.
Upplýsingar í síma 847-8704
eða á manninn@hotmail.com
Kynntust í Pétursborg
Ingimar kynntist Vladimír
Pútín, núverandi forsætisráð-
herra Rússlands, í Pétursborg
á tíunda áratugnum. Pútín var
kvæntur konu sem starfaði
hjá Ingimar og var aðstoðar-
maður Anatolís Sobtsjak,
borgarstjóra Pétursborgar.
n Jógvan feginn að komast heim í skerpikjötið n Friðrik fékk skerpikjöt
og fannst það algert sælgæti n Mikið óveður í Færeyjum tafði för
V
ið vorum heppin að
komast yfirhöfuð til
Færeyja,“ segir söngv-
arinn Jógvan Hansen
sem um för Frostrósa-
hópsins til Færeyja.
Mikið óveður geisaði í Fær-
eyjum daginn áður en lagt var
af stað eins og kom fram í frétt-
um liðinnar viku. „Það verða oft
svona slæm veður á veturna í
Færeyjum og þó að við höfum
ekki orðið vör við það þá er tjón
vegna óveðursins nú að koma í
ljós.“
Jógvan er eins og margir
vita ættaður frá Færeyjum og
finnst alltaf jafngaman að koma
í heimabyggð. Hann saknar allt-
af skerpikjötsins og í þetta sinn
gafst honum tækifæri til þess að
gefa vini sínum Friðriki Ómari
Hjörleifssyni að smakka. „Það
er alltaf gaman að koma til Fær-
eyja. Ég gisti alltaf hjá fjölskyld-
unni og var búinn að sakna
þess mjög að fá gott skerpikjöt
og sigið kjöt. Friðrik Ómar kom
með mér í heimsókn til foreldra
minna og fékk að smakka. Hann
er svo mikill matgæðingur að
hann var sem betur fer mjög
hrifinn af þessu góðgæti.“
Flytjendur í ferðinni til Fær-
eyja voru: Eivør Pálsdóttir, Frið-
rik Ómar Hjörleifsson, Hera
Björk Þórhallsdóttir, Jógvan
Hansen, Jóhann Friðgeir Valdi-
marsson og Margrét Eir Hjartar-
dóttir. Með þeim lék níu manna
hljómsveit og barna- og ung-
lingakórar sungu með.
Þetta var í fyrsta skipti sem
Frostrósir fara út fyrir land-
steinana og þótti ferðin afar vel
heppnuð. Það var uppselt á alla
ferna tónleikana sem hópurinn
hélt í Færeyjum. Hann er nú
kominn heim og hefur tón-
leikaferð um landið á 15 stöð-
um á landsbyggðinni.
kristjana@dv.is
Frostrósir
í Færeyjum
Gaf Friðriki skerpikjöt Jógvan
getur ekki án skerpikjöts verið. Hann
gaf vini sínum Friðriki Ómari að
smakka í ferð Frostrósa til Færeyja og
fannst honum það herramannsmatur.
Fallegar lúsíur Stúlknakór í Færeyjum söng m
eð Frostrósum og voru
þær uppáklæddar að sænskum Lúsíusið.
Uppselt á ferna tónleika
Uppselt var á alla ferna tón-
leikana sem Frostrósir héldu í
Færeyjum.