Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2011, Page 29
Charlize Theron opnar sig:
Var lögð
í einelti
í skóla
M
eðan Charlize Theron lék
aðalhlutverkið í nýrri kol-
svartri gamanmynd, Young
Adult, hugleiddi hún eigin
skólagöngu. Hún segist hafa verið
stúlkan sem aldrei passaði í hópinn,
sérstaklega hafi henni verið hafnað
af strákum.
„Ég var með nördaleg gleraugu
af því ég var hálfblind og strákarnir
voru ekki hrifnir af mér. Ég átti ekki
marga kærasta en var mjög oft skotin
í strákum,“ segir Charlize sem í dag
er álitin ein kynþokkafyllsta kona
heims. Skólabræður hennar hljóta
að naga sig í handarbökin. Hún segir
þrána eftir athygli og samþykki hafa
ýtt sér út í að gera fáránlega hluti.
„Ég var ekki vinsæl. Það var vin-
sæl stúlka í skólanum og ég var með
hana á heilanum. Ég færi líklega í
fangelsi fyrir sömu hegðun í dag,“
segir hún og skellihlær. „Ég fór að há-
gráta einn daginn bara vegna þess
að ég fékk ekki að sitja við hliðina á
henni.“
Henni var að eigin sögn strítt mik-
ið fyrir klæðaburð og hallærislegar
klippingar.
„Frá aldrinum 7–12 ára varð ég
mikið fyrir barðinu á stelpunum. Ég
var í rusli í grunnskóla. En ég hef náð
að komast yfir þetta og þegar ég var
komin í framhaldsskóla var ég orðin
ónæm fyrir öllu þessu.“
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
Fólk 29Miðvikudagur 30. nóvember 2011
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
Með vinsælustu stúlkuna á heilanum Charlize segist hafa hagað sér ansi furðulega.
Fór til dæmis að gráta ef hún fékk ekki að sitja við hliðina á vinsælustu stúlkunni í skólanum.
U
nglingastjarnan Miley Cy-
rus varð 19 ára í mánuðinum
og bauð af því tilefni til veislu
með hjálp vinkonu sinnar
Kelly Osbourne. Myndband af Miley
úr veislunni þar sem hún segist vera
hasshaus hefur nú lekið á netið. „Þetta
er geggjað,“ segir Miley á myndband-
inu þegar hún virðir fyrir sér afmælis-
köku sem er í laginu eins og tónlistar-
maðurinn Bob Marley. „Þú veist að
þú ert hasshaus þegar vinir þínir gefa
þér „Bob Miley“ köku. Þá veistu að þú
reykir allt of mikið gras,“ segir stjarn-
an. Vinkonan Kelly tekur svo míkró-
fóninn og óskar afmælisbarninu til
hamingju með daginn og bætir við
að hún haldi að Miley eigi í vandræð-
um með salvíu en myndir úr síðasta
afmæli sýndu Miley reykja jurtina. Úr
varð mikið fjölmiðlafár svo leikkon-
an sá sér ekki annað fært en að biðja
aðdáendur sína afsökunar. Hvorki
hún né talsmaður hennar hafa svarað
fyrir nýja myndbandið en Osbourne
hefur látið heyra í sér á Twitter-síðu
sinni. Þar segir hún að Bob Marley-
kakan hafi verið djók og gagnrýnir
svokallaða vini Cyrus sem láku mynd-
bandinu á netið.
Unglingastjarnan Miley Cyrus:
Miley er hasshaus
Afmælisbarn Kelly Osbourne segir
að Bob Marley-kakan hafi verið grín.
Stjarna Miley Cyrus var harkalega gagnrýnd þegar hún sást reykja salvíu á 18 ára afmælisdaginn sinn.
Hefðar-
daman
Gaga!
L
ady Gaga setti mynd af sér á Twitter
í þessum glæsilega kjól frá Chanel.
Hún mætti í honum á opnun á Bar-
neys í New York. Gestir Barneys geta
heimsótt gjafahorn Lady Gaga en í einni
deild verslunarinnar má finna gjafir sem
hún hefur valið sem hentugar jólagjafir.
Meðal jólagjafa að hætti Gaga eru súkku-
laðiskúr, hárspangir og hattar og ótal
margt fleira í ævintýralegum stíl.
Hefðardama
Lady Gaga er í
kjól frá Chanel.