Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 2
2 Fréttir 5. desember 2011 Mánudagur S túlkan sem kærði Egil Ein- arsson og kærustu hans fyr- ir nauðgun gaf lögreglunni skýrslu í síðustu viku þar sem hún lýsti atburðarás- inni þetta kvöld. Samkvæmt heim- ildum DV sagðist stúlkan hafa verið í Eldhúspartýi FM957, farið þaðan á Austur þar sem hún hitti Egil og kær- ustu hans. Þau hafi yfirgefið staðinn saman þar sem þau ætluðu ásamt vinkonum hennar á skemmtistaðinn Players í Kópavogi. Stúlkan hafi far- ið í leigubíl með parinu en tekið það fram að vinkona sín ætti að koma með. Þau hefðu hins vegar beðið leigubílstjórann að keyra af stað. Segist hafa reynt allt Samkvæmt heimildum DV segir stúlkan að áreitið hafi byrjað í bíln- um. Henni hafi þótt þetta óþægi- legt en látið sem ekkert væri þar sem hún taldi sig vera á leið í skjól á meðal vinkvenna sinna á Players. Hún hafi margsagt að hún vildi fara á Players að hitta vinkonur sínar en Egill hafi sagt leigubílstjóranum að aka þeim heim til sín. Þá hafi hún orðið verulega óttaslegin en reynt að hughreysta sig með því að þetta væri Gillz og hann væri fjarþjálfarinn hennar og því gæti ekki verið að eitt- hvað alvarlegt gerðist. Þegar inn var komið hafi hún gert þeim grein fyr- ir því að hún vildi ekki stunda kynlíf með þeim, hún vildi bara fara aftur til vinkvenna sinna sem voru þá á Pla- yers. Stúlkan sagði lögreglunni einnig frá því að hún hafi í ótta sínum farið í huganum yfir allar mögulegar leið- ir út úr þessum aðstæðum. Hún hafi velt því fyrir sér hvort hún ætti leika fyrir þau svo hún kæmist sem fyrst út, öskra eða hlaupa í burtu. Hún hafi síðan reynt allt en þau hafi engu að síður komið vilja sínum fram. Sagð- ist hún hafa grátið og að Egill hafi í senn reynt að hugga hana og brotið á henni. Hún hafi beðið kærustu hans um hjálp en hún hefði ekki orðið við því, hún hafi hins vegar tekið þátt í ofbeldinu. Neita sök Þá lýsti stúlkan því einnig fyrir lög- reglu að þegar hún komst út hafi hún falið sig hjá vinkonu sinni sem býr á móti Agli og beðið eftir því að vinkonur hennar sæktu sig þangað. Stúlkan vildi ekki tjá sig við blaða- menn þegar þeir náðu tali af henni. Ekki náðist heldur í Egil en ítrekað- ar tilraunir hafa verið gerðar til þess. Kærasta hans vildi ekki heldur tjá sig vegna málsins: „Ég er ekki að fara að tala um þetta núna. Bara sorrí,“ sagði hún. Egill hefur þó lýst því opinberlega yfir að hann neiti sök. Hann sendi frá sér yfirlýsingu á föstudag þar sem segir meðal annars að það sé refsi- vert að saka fólk ranglega um lög- brot og gaf til kynna að stúlkan hefði reynt að kúga út úr sér fé með aðstoð handrukkara. „Tilgangurinn með þessum ásökunum er því augljóslega ekki að ná fram ákæru heldur ein- vörðungu að sverta mannorð mitt,“ sagði hann og lauk yfirlýsingunni svo með þessum orðum: „Ég hef falið lögmanni mínum að kæra viðkom- andi fyrir rangar sakargiftir.“ Egill og kærasta hans gáfu lög- reglu skýrslu á föstudag. Samkvæmt heimildum DV viðurkenna þau að hafa farið heim með stúlkunni en segja að hún hafi sjálfviljug tekið þátt í kynlífsathöfnum þeirra. Hringdi hágrátandi Eins og fyrr segir þá var stúlkan að skemmta sér með vinkonum sín- um þegar hún hitti Egil og kærustu hans á Austur. DV ræddi við þær vinkonur sem urðu viðskila við stúlkuna þegar hún fór í leigubíl- inn með parinu og sóttu hana síð- an um tveimur tímum síðar. Vinkonurnar sem fylgdu henni á Neyðarmóttökuna voru tvær. Önnur þeirra sagði að hún hefði ætlað að fara með stúlkunni í leigubílnum með Agli og kærustu hans. Kærastan hafi hins vegar sagt að það væri ekki pláss fyrir hana. „Seinna um nóttina hringdi hún hágrátandi og bað mig um að koma að sækja sig. Þá var hún heima hjá mér,“ segir vinkonan sem býr á móti Agli. „Hún sagði að hann hefði nauðgað sér. Við tók- um taxa og fórum með hana upp á spítala. Ég hef aldrei séð hana gráta svona mikið. Það var erfitt að sjá hana svona. Við grétum með henni.“ Þurfti aðgerð Vinkonan segir að stúlkan hafi verið komin sokkabuxur af kærustu Eg- ils. „Hún var komin í svona svartar, þykkar sokkabuxur en hafði verið í þynnri sokkabuxum þegar við fórum út um kvöldið,“ segir vinkonan. „Hún sagði mér strax hvað hefði gerst. Ég vissi líka með hverjum hún var. Ég sá hana fara í taxann með þeim. Hún er náttúrulega bara 18 ára,“ segir vinkonan og hikar, „hún sagð- ist hafa beðið taxann um að stoppa fyrir utan Players en hann hefði ekki viljað það.“ Vinkonan fylgdi stúlkunni upp á Neyðarmóttöku. „Þar biðum við í smástund áður en við sögðum hjúkr- unarfræðingi hvað hefði gerst og fengum að fara inn á stofu. Okkur var síðan vísað fram á meðan tekin voru af henni sýni og þess háttar. Hún þurfti einnig að fara í aðgerð þar sem hún var á blæðingum þetta kvöld og þurfti lækni til að fjarlægja túrtapp- ann sem var kominn svo langt inn að hann sat fastur.“ Vinkonan var hjá stúlkunni alla þessa nótt og næsta dag. „Ég hef ver- ið nánast stöðugt með henni frá því að þetta gerðist. Ég var til dæmis með henni þegar parið fór að senda henni skilaboð daginn eftir. Þá spurðu þau hvort þetta yrði ekki örugglega bara á milli þeirra. Hún var enn í sjokki og sagði bara jú. Hún áttaði sig svo strax og hefur ekki talað við þau síðan. Hún var hrædd.“ Biðu eftir henni á Players Hin vinkonan sem fylgdi stúlkunni á neyðarmóttökuna segir að sér hafi þótt það undarlegt hversu mikið kærasta Egils hafi spjallað við stúlk- una á Austur. „Hún lét eins og þær væru bestu vinkonur. Mér fannst það skrýtið en hélt kannski að þær þekkt- ust eitthvað en þær voru bara rétt að kynnast. Einhverra hluta vegna var hún samferða Agli og kærustunni á Players þar sem við ætluðum að hitt- ast en svo kom hún aldrei þangað. Við fengum skilaboð frá henni og hún sagði að þau vildu fara í „three- some“ með henni en hún vildi það ekki. Við sögðum henni að hætta þessu, koma bara niður eftir og pældum ekki meira í því. Við bjugg- umst ekki við þessu. Í klukkutíma eða tvo heyrðum við ekkert frá henni. Svo hringdi hún allt í einu hágrátandi. Þá sat hún í úti- ganginum hjá vinkonu okkar og bað okkur um að koma að sækja sig. Við tókum leigubíl og sóttum hana. Þeg- ar við komum var hún í algjöru rusli, titraði og skalf. Við þurftum eiginlega að bera hana inn í leigubílinn.“ Algjört sjokk Vinkonan segist ekki vita nákvæm- lega hvað gerðist heima hjá Agli þar sem hún var ekki viðstödd. „Kannski sagði hún já af því að hún hélt að þau væru að bulla í sér og var hrædd. Ég veit það ekki. Hann er mikið eldri en hún og þekktur maður í samfélaginu auk þess sem hann var fjarþjálfarinn hennar. Þannig að hún ætti alveg að geta spjallað við hann án þess að eitt- hvað svona gerist.“ Þegar þær sóttu stúlkuna var hún fullklædd en vinkonan segir að hún hafi verið komin í sokkabuxur af kærustu Egils. „Hún sagði að sokka- buxurnar sínar væru rifnar. Hún sagði strax í símanum að sér hefði verið nauðgað. Ég vissi ekki af hverjum og spurði hver hefði gert það. Gillz, sagði hún. Það var al- gjört sjokk fyrir mig að heyra það. Ég spurði hvar kærastan hans hefði verið og hún sagði að kærastan hans hefði ekki tekið mark á henni þegar hún bað um hjálp. Hún hefði hins vegar farið fram og pantað sér pítsu. Þau hefðu bæði misnotað sig. Kær- astan hans hefði sagt að hún ætti að hjálpa þeim að bjarga sambandinu. Hún sagði líka að hann hafi kallað hana dúlluna sína og reynt að hugga hana, sagt að þetta yrði í lagi á en haldið áfram að nauðga henni. Við fórum beint upp á Landspít- ala þar sem hún fékk læknisaðstoð. Hún var rosalega hrædd.“ „Grét eins og lítið barn“ Þessi vinkona stúlkunnar hringdi einnig í móður sína, sagði henni hvað hefði gerst og bað hana um að koma upp á spítala. „Stúlkan var að bíða eftir lækni þegar ég kom nið- ur á spítala. Hún var í mjög slæmu ástandi og það fór ekki á milli mála að það hefði eitthvað verulega slæmt hent hana. Hún grét mikið og með ekkasogum, hún grét eins og lítið barn. Það tók virkilega á mig að sjá hana,“ segir konan. Hún segir jafnframt að á milli þess sem hún grét hafi hún reynt að útskýra hvað gerst hefði. Frásögn hennar hefði verið slitrótt. „Mér fannst hún samt mjög skýr. Dóttir mín var búin að segja mér hvað hafði gerst og hún sagði mér nákvæmlega það sama og hún sagði þeim. Hún sagði að hún hefði verið mis- notuð. Að hún hefði tekið leigubíl með Gillzenegger og kærustu hans og þau farið með hana heim til sín þar sem þau hefðu misnotað hana. Hún sagði einnig að þau hefðu tal- að um að það myndi hressa upp á sambandið að fá þriðju manneskj- una inn, hún hefði grátið en hefði kannski getað barist meira um. Hún sá mikið eftir því að hafa ekki gert það. Hún sagðist einnig hafa beðið kærustuna um að hjálpa sér en hún hefði farið fram að panta pítsu og síðan tekið þátt í ofbeldinu,“ segir konan. „Hún skalf í fanginu á mér“ Hún segir einnig að stúlkan hafi ver- ið drukkin en ekki ofurölvi. „Mér fannst hún mjög trúverðug. Ég þekki fullt af ungum stelpum í gegnum dóttur mína og sé það strax ef það er verið að búa til eitthvað drama. Þessi stelpa lét ekki þannig, gráturinn kom frá hjartanu. Henni leið virkilega illa. Ég tók utan um hana og hún skalf í fanginu á mér og greip um hönd- ina á mér. Samt þekki ég hana lít- ið sem ekkert því þær eru nýorðnar vinkonur, dóttir mín og hún. En ég fann það bara hvað hún þurfti sterkt á einhverjum að halda. Þetta var svo rangt. Hún var eiginlega reiðust út í sjálfa sig fyrir að hafa ekki barist meira á móti en hún fékk bara algjört sjokk. Hún sagðist hafa sagt nei og það á líka að vera nóg.“ Konan var hjá stúlkunni þar til læknirinn kom á vettvang. „Þá var mamma hennar komin svo við fór- um heim. Ég vissi að hún hafði beð- ið um að fá að vera í friði fyrst á eft- ir svo ég var ekkert að ónáða hana. Ég sendi henni samt skilaboð og lét hana vita að ég væri til staðar ef hún vildi hjálp og að ég gæti komið henni n 18 ára stúlka kærði Gillz og kærustu hans fyrir nauðgun n Sagði lögreglunni að hún hefði reynt allt, leikið með, grátið og reynt að komast undan n „Hún var í mjög slæmu ástandi,“ segir móðir vinkonu Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is n Vinkonur fylgdu stúlkunni á Neyðarmóttökuna „Við grétum með henni“ „ Hún grét svo mikið að hún gat varla talað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.