Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Page 6
6 Fréttir 5. desember 2011 Mánudagur
Spáir hvítum jólum
n Desembermánuður verður mjög kaldur
Á
gætar líkur eru á því að í flest-
um landshlutum verði hvít
jól. Þetta segir Sigurður Þ.
Ragnarsson veðurfræðingur
í samtali við DV. Mestar líkur eru á
að hvít jól verði á Norður- og Aust-
urlandi.
„Samkvæmt veðurlagsspám,
sem segja lítið um veðrið frá degi til
dags en gefa vísbendingar um líklegt
veðurfar í mánuðinum, verður des-
embermánuður kaldur. Þá erum við
að tala um að líkur á hvítum jólum
víða á landinu séu allgóðar,“ segir
Sigurður. „Ég myndi segja að mest-
ar líkurnar á hvítum jólum séu fyr-
ir norðan. Við suðurodda landsins
gætu jólin orðið svolítið rauð,“ segir
Sigurður og bætir við að höfuðborg-
arsvæðið verði líklega „svona medi-
um rare“ eins og hann orðar það.
„Það verður smá rautt í því.“ Hafa
ber í huga að enn getur margt breyst
enda enn tæpar þrjár vikur til jóla.
Kalt hefur verið á landinu undan-
farna daga og segir Sigurður að sam-
kvæmt langtímaspám verði áfram
kalt í veðri, líklega alveg til jóla. Sig-
urður segir að það sé ekki endilega
slæmt að hafa kuldapoll yfir land-
inu. Hann skýli landinu fyrir djúp-
um lægðum. „Það eru kostir og gall-
ar við allt. Það má segja að það séu
engin stórviðri í kortunum,“ segir
hann. Hann leggur þó áherslu á að
allt sé breytingum háð þó ekkert
bendi til þess að það muni breytast
eins og staðan er í dag. Samkvæmt
veðurspám verður mjög kalt á land-
inu í vikunni og gæti frost farið niður
í allt að þrjátíu stig, til dæmis á Mý-
vatni. „Þannig að það er rétt að fólk
klæði sig vel næstu daga,“ segir Sig-
urður að lokum. Nánar má lesa um
veðurspá næstu daga á baksíðu DV
í dag.
Njótum aðventunnar saman
N
eytendastofa og talsmaður
neytenda eru komin í hár
saman. Ástæðan er sú að
Neytendastofa vill að emb-
ætti talsmanns neytenda
greiði leigu. Embætti talsmanns
neytenda er með skrifstofuaðstöðu
í sama húsnæði og Neytendastofa
en greiðir samkvæmt þjónustu-
samningi ekki leigu fyrir húsnæði
þótt greitt sé fyrir símaþjónustu.
Þessu vill Neytendastofa breyta og
tilkynnti stofnunin talsmanni það
árið 2008 að embættinu bæri að
greiða leigu fyrir aðstöðuna. Ekk-
ert hefur gengið að semja um málið
síðan stofnunin hóf að rukka tals-
mann um leigu á síðasta ári. Innan-
ríkisráðuneytið hefur af báðum að-
ilum verið beðið um að hlutast til
um málið. „Persónulega finnst mér
þetta mál mjög óheppilegt og við
hefðum betur leyst þetta mál okkar
á milli,“ segir Gísli Tryggvason, tals-
maður neytenda.
Báðir aðilar harma deiluna
Forstjóri Neytendastofu tekur und-
ir með Gísla og segir málið kjána-
legt. „Auðvitað er þetta mál óþarft.
Ég hef hins vegar höfðað til sann-
girni talsmanns. Það er einfaldlega
þannig að allar forsendur breytt-
ust eftir hrun og því hef ég óskað
þess að talsmaður taki sinn þátt í
kostnaði við húsnæðið enda nýt-
ir hann húsnæðið að fullu,“ segir
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt-
endastofu. Innanríkisráðuneytið
hefur ítrekað fengið málið inn á
borð hjá sér, síðast í september, en
formleg niðurstaða liggur ekki fyrir.
Neytendastofa hefur óskað þess að
ráðuneytið hlutist til um málið og
geri talsmanni að greiða uppsetta
leigu. Talsmaður neytenda hefur
sömuleiðis óskað þess að ráðherra
skikki Neytendastofu til að semja
við sig en ekki hækka leigu ein-
hliða. „Samningar eiga að gilda og
samningsfrelsi eiga allir að virða,
líka forstjóri Neytendastofu,“ segir
Gísli sem segist einnig hafa óskað
þess við forstjóra Neytendastofu að
um málið verði samið.
Gísli segir samningsvilja
Neytendastofu lítinn
Embætti talsmanns neytenda var
stofnað árið 2005 og þá var um-
ræddur þjónustusamningur emb-
ættisins og Neytendastofu gerður.
Þar er kveðið á um að talsmaður
neytenda greiði rúmlega 70 þús-
und krónur fyrir símsvörun á mán-
uði en ekkert fyrir leigu á húsnæði.
Krafa Neytendastofu er að tals-
maður greiði að auki rúma millj-
ón króna fyrir húsnæðið á ári. Því
hefur talsmaður ekki orðið við. Það
er því deilt um tæplega tvær millj-
ónir samkvæmt túlkun Neytenda-
stofu. „Það er ekki rétt að talsmaður
neytenda sé í vanda með að greiða
leigu,“ segir Gísli Tryggvason sem
segir ágreininginn fyrst og fremst
snúast um upphæðina. „Ég lít svo
á að forstöðumaður Neytenda-
stofu hafi rift samningnum með
einhliða ákvörðun um hækkun.
Í dag greiðum við Neytendastofu
fyrir símsvörun og ýmsa þjónustu
en ekki leigu á húsnæði. Sé gerð
krafa um slíkt er eðlilegt að ég fái að
skera niður í aðkeyptri þjónustu frá
stofnuninni í staðinn,“ segir Gísli og
bætir við að greitt hafi verið inn á
skuld talsmanns við Neytendastofu
um síðustu áramót. Líklega verði
haldið áfram að greiða ákveðinn
hluta einhliða. „Allavega á meðan
forstöðumaður Neytendastofu ætl-
ar sér ekki að semja,“ segir hann.
Aðspurður segir Tryggvi Axels-
son forstjóri Neytendastofu það
ekki í bígerð að krefjast útburðar
á embætti talsmanns. „Það hefur
ekki verið tekin ákvörðun um það
en auðvitað óskar maður þess að
þeir sem leigja hjá manni greiði
leigu fyrir,“ segir Tryggvi.
Krefst húsaleigu
af talsmanninum
n Neytendastofa krefst þess að talsmaður neytenda greiði húsaleigu n Innanríkis-
ráðuneytið komið í málið n Neytendastofa hyggst ekki bera talsmann neytenda út„Samningar
eiga að gilda
og samningsfrelsi
eiga allir að virða,
líka forstjóri
Neytendastofu
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Borgar ekki leigu Gísli
Tryggvason, talsmaður
neytenda, segir Neytenda-
stofu ekki vilja semja.
Jólasnjór Sigurður segir að ágætar líkur
séu á að jólin verði hvít í ár.
4.500 sæti
á góðum prís
Iceland Express hefur aukið sæta-
framboð félagsins um tæplega
fimm þúsund sæti í desember-
mánuði með tilkomu nýrra Airbus
A320-flugvéla. Þetta kemur fram í
tilkynningu sem félagið hefur sent
til fjölmiðla en þar kemur fram að
fjárhagslegri endurskipulagningu
félagsins sé að ljúka og er félagið
sagt standa vel til að mæta sam-
keppni í farþegaflugi til og frá
landinu.
Þar segir einnig að landsmönn-
um bjóðist að kaupa 4.576 flug-
miða á starfsmannakjörum. „Að-
eins eru þá greiddar 2.475 krónur
hvora leið fyrir flugfarið auk flug-
vallarskatta. Með þessu vill félagið
gefa fólki tækifæri til að kynnast
þeim frábæra flugvélakosti sem
Iceland Express býr nú yfir. Til-
boðið gildir í tólf klukkustundir,
frá hádegi mánudaginn 5. des-
ember til miðnættis.“
Sakar Ögmund
um dylgjur
„Ég verð að segja alveg eins og
er að ég varð undrandi á því að
hann skuli ætla okkur að gera
eitthvað slíkt og skuli ákveða að
dylgja um slíkt án þess að tala
við kóng eða prest áður en það
er gert,“ sagði Katrín Júlíusdóttir
iðnaðarráðherra í samtali við RÚV
um ummæli Ögmundar Jónas-
sonar sem sagði íslensk stjórnvöld
verða að gæta þess að leiðbeina
ekki mönnum framhjá íslenskum
lögum. Í samtali við RÚV á laugar-
dag sagði Katrín íslensk stjórnvöld
vera að leiðbeina kínverska fjár-
festinum Huang Nubo í gegnum
íslenskt lagaumhverfi svo hann
geti fjárfest á Íslandi. Í hádegis-
fréttum Ríkisútvarpsins sagðist
Ögmundur eiga erfitt með að átta
sig á þessum ummælum Katrínar.