Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Blaðsíða 10
10 Fréttir 5. desember 2011 Mánudagur
A
rnar Geir Kárason titlar sig
sem ljósmyndara og held-
ur úti síðunni arnarg.is. Þar
kemur fram að hann taki að
sér allt frá auglýsingaljós-
myndun yfir í fjölskyldumyndatökur.
Þetta gerir hann þrátt fyrir að vera ekki
faglærður ljósmyndari.
Nýlega mátti finna tilboð inni á til-
boðsvefnum hópkaup.is þar sem hann
bauð fjölskyldumyndatökur fyrir jólin
með verulegum afslætti. 73 viðskipta-
vinir nýttu sér tilboðið og er það nú
uppselt. Ljósmyndun er löggild iðn-
grein og Arnari er því lögum sam-
kvæmt ekki heimilt að bjóða upp á
slíka þjónustu. Ófaglærðir ljósmynd-
arar hafa heimild til þess að
selja myndir sem þeir hafa
tekið og falast er eftir, en þeir
mega hins vegar ekki selja
ljósmyndunarþjónustu. Þá
er um að ræða heildarþjón-
ustu sem felur meðal annars
í sér að ljósmyndari býður
myndir til sölu áður en þær
hafa verið teknar.
Vísar í stjórnarskrána
Í kjölfar tilboðsins inni á
hópkaup.is hafa skapast
heitar umræður um starf-
semi Arnars á spjallvef síð-
unnar ljósmyndakeppni.is. Arnar
svarar þar fyrir sig fullum hálsi og við-
urkennir að með hátterni sínu sé hann
að brjóta reglugerð setta af iðnaðar-
ráðuneytinu. Hann telur sig hins vegar
ekki vera að brjóta lög. Í 9. grein iðn-
aðarlaga stendur þó: „Rétt til að kenna
sig í starfsheiti sínu við löggilta iðn-
grein hafa þeir einir, er hafa sveinsbréf
eða meistarabréf í iðngreininni.“
Arnar vísar á móti í 75. grein stjórn-
arskrárinnar þar sem segir: „Öllum er
frjálst að stunda þá atvinnu sem þeir
kjósa. Þessu frelsi má þó setja skorð-
ur með lögum, enda krefjist almanna-
hagsmunir þess.“ Hann vill meina að
ekki séu neinir almannahagsmunir í
húfi þegar kemur að ljósmyndun.
Almannahagsmunir ekki í húfi
Ef marka má ummæli Arnars á á spjall-
vef ljósmyndakeppni.is gerir hann al-
veg eins ráð fyrir að verða kærður fyr-
ir starfsemi sína. Hann virðist hafa
hugsað málið til enda, segist tilbúinn
að fara með málið alla leið í Hæsta-
rétt. „Ég á passlega von á því að félag
ljósmyndara leggi fram kvörtun og að
gefin verði út kæra á mig... og ég reikna
líka með að fyrir héraðsdómi yrði mér
gert að greiða sekt og hætta þessari
starfsemi enda eru ekki til fordæmi
á Íslandi fyrir því að héraðsdómur
hnekki reglugerðum eða lögum. Hins
vegar mun ég í því tilfelli fara með
málið fyrir Hæstarétt þar sem ég mun
halda því til streitu að ekki séu neinir
almannahagsmunir sem krefjist lög-
verndunar á þessari starfsgrein,“ segir
Arnar á síðunni. Honum finnst hann
ekki þurfa að kalla sig áhugaljósmynd-
ara þar sem hann hafi það að atvinnu
að ljósmynda. Þar af leið-
andi sé hann ljósmyndari.
Margir á spjallsíðunni
lýsa yfir óánægju með það
sem Arnar er að gera en
aðrir hvetja hann áfram og
vilja sjá lögunum breytt.
DV hafði samband við
Arnar en hann sagðist ekki
hafa tíma til að ræða við
blaðamann og vísaði á ummæli sín á
ljósmyndakeppni.is.
Skekkir markaðinn
Meðalnámstími í ljósmyndanámi í
Tækniskólanum er þrjú ár, að með-
töldu grunnámi upplýsinga- og fjöl-
miðlagreina. Samtals fimm annir og
24 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur
með sveinsprófi sem veitir réttindi til
að starfa í greininni og til inngöngu í
meistaranám.
Gunnar Leifur Jónasson, ljós-
myndari hjá Barna- og fjölskylduljós-
myndum, segir alla þessa umræðu
vera bjánalega og að hún gjaldfelli
störf faglærðra ljósmyndara. „Það eru
í raun bara þeir sem hafa farið í gegn-
um námið sem vita um hvað þetta
snýst. Þetta er ekki bara að kaupa sér
myndavél og ýta á takkann.“ Gunnar
segir starfsemi áhugaljósmyndara,
líkt og Arnar stundar, skekkja bæði
markaðinn og vitund fólks sem kaup-
ir ljósmyndaþjónustu. „Þetta er eina
starfsgreinin sem er að standa í þess-
ari vitleysu. Það eru mjög fáir að bjóða
fram þjónustu sína í að mála fyrir þig
eða smíða fyrir þig,“ bendir Gunnar
á. Hann segist þó síður en svo vera að
tapa á áhugaljósmyndurum og merkir
ekki mun á bókunum hjá sér.
Dæmd fyrir brot á lögunum
Í október í fyrra féll dómur í Héraðs-
dómi Reykjaness þar sem hjónin
María Krista Hreiðarsdóttir og Börkur
Jónsson, sem ráku heimasíðuna Bros-
börn, voru dæmd fyrir brot á iðnaðar-
lögum með því að reka ljósmyndastofu
án réttinda. Brosbörn nutu töluverðra
vinsælda fyrir barnamyndir sem og
aðrar tækifærismyndir. Það voru níu
atvinnuljósmyndarar sem kærðu
starfsemina. Vörn hjónanna fyrir dómi
byggðist á þeim réttindum sem María
Krista hefur sem löggildur grafískur
hönnuður með BA-gráðu í stafrænni
myndvinnslu meðal annars. Iðnaðar-
löggjöfin sem ver faglærða ljósmynd-
ara vó hins þyngra en háskólamennt-
un hennar.
n Arnar Geir titlar sig sem ljósmyndara þrátt fyrir að vera ófaglærður n Óheimilt
að selja ljósmyndaþjónustu n Auglýsir tilboð í myndatökur á hópkaup.is
Ljósmyndari vill
fyrir Hæstarétt
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Ég á
pass-
lega von á
því að félag
ljósmyndara
leggi fram
kvörtun og að
gefin verði út
kæra á mig
Skekkir markaðinn
Gunnar Leifur Jónasson
ljósmyndari segir áhuga-
ljósmyndara sem bjóða
ljósmyndaþjónustu bæði
skekkja markaðinn og
vitund fólks sem kaupir
þjónustuna. MynD photoS.coM
Ófaglærður Arnar Geir er ekki lærður ljósmyndari en býður engu að síður ljósmyndaþjónustu gegn gjaldi. Hann hefur meðal annars auglýst tilboð á hópkaup.is.
SkjáSkot Af hopkAup.iS
Rufu hefð um listamannalaun
n Lágkúrulegt og hrollvekjandi segir rithöfundur
A
llsherjar- og menntamála-
nefnd Alþingis ákvað á
föstudag að leggja til við
fjárlaga nefnd að Sigurður A.
Magnússon rithöfundur hljóti heið-
urslaun listamanna frá Alþingi. Þetta
var gert án samþykkis allra flokka eins
og venjan hefur verið. Skúli Helgason,
þingmaður Samfylkingarinnar, skrif-
ar um málið á bloggsíðu sinni á DV.is
og segir að með þessu hafi ákveðin
hefð verið rofin – að engum væri bætt í
flokkinn nema með samþykki fulltrúa
allra flokka. Skúli er ánægður með þró-
unina.
Skúli segir í pistli sínum að það
hafi glatt hann mikið að geta tek-
ið þátt í þessari ákvörðun allsherjar-
og menntamálanefndar. Skúli skrif-
ar: „Lengi hefur verið barist fyrir því
að Sigurði hlotnaðist þessi heiður en
skortur á pólitískri samstöðu kom
ævinlega í veg fyrir það og þeirri hefð
var jafnan fylgt að engum væri bætt
í flokkinn nema með samþykki full-
trúa allra flokka. Slík hefð getur hald-
ið verðugum mönnum endalaust úti í
kuldanum af pólitískum ástæðum og
því mikilvægt að geta rofið hana.“
Illugi Jökulsson rithöfundur ger-
ir þetta einnig að umtalsefni á sinni
bloggsíðu og gagnrýnir þá sem hjá
sátu: „Það er ótrúlega lágkúrulegt og
reyndar alveg hrollvekjandi að ein-
hverjar pólitískar (og persónulegar)
deilur fyrir 40 árum séu enn að hafa
áhrif á fólk sem var varla fætt þá.“ Það
voru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins sem sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna en aðrir sam-
þykktu tillöguna.
baldur@dv.is
illigi jökulsson gagnrýnir hjásetu Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Lokað í hálft
annað ár
Kolaportinu verður lokað vegna
framkvæmda í eitt og hálft ár ef
áform um byggingaframkvæmdir
á Tollhúsinu ganga eftir. Gunn-
ar Hákonarson, framkvæmda-
stjóri Kolaportsins, segist óttast að
rekstri Kolaportsins sé ógnað með
þessu, að lokunin myndi raska
margra ára uppbyggingu þar sem
fjöldi manns hefur sölumennsku
þar að atvinnu.
Næsta vor eiga framkvæmdir
að hefjast en það stendur til að
reisa rampa undir bílastæði fyrir
starfsmenn. Hægt verði að aka
upp á þak tollstjórahússins og
nýta bílastæði þar á þakinu. Síðan
verði gert við þakið og lagt nýtt
malbik. Gunnar telur að fram-
kvæma eigi þetta samtímis til að
framkvæmdatíminn verði ekki
jafn langur.
Áform hafa verið um breyting-
ar síðan árið 2008 en þá var undir-
rituð viljayfirlýsing af fjármála-
ráðuneytinu og Reykjavíkurborg
þar sem sagt var að þess yrði gætt
að starfsemi Kolaportsins yrði að
mestu leyti óröskuð.
Tveir óku út af
Tvö umferðaróhöpp urðu í
umdæmi lögreglunnar á Selfossi
aðfaranótt sunnudags. Bæði slysin
má rekja til slæmra akstursskil-
yrða en þarna er mikil hálka á
vegum.
Fyrra óhappið átti sér stað á
Eyrarbakkavegi, en þar fór bíll út
af og hafnaði á skilti. Ökumann,
sem var einn í bílnum, sakaði ekki,
en bílinn er nokkuð skemmdur.
Tilkynnt var um síðara óhappið
um klukkan hálf sjö í morgun. Þá
fór bíll út af í Kömbunum og var
ökumaðurinn fluttur til skoðunar
á heilsugæslustöðina á Selfossi,
en hann kenndi nokkurra eymsla
í baki.
Spilltari en
nágranna-
þjóðirnar
Ísland er í þrettánda sæti á ár-
legum lista Transparancy Inter-
national yfir lönd þar sem spilling
þrífst. Löndunum er raðað eftir
því hve mikil spilling fyrirfinnst
þar en minnsta spillingin mælist á
Nýja-Sjálandi og eru þeir því efstir
á listanum. Þar á eftir koma Norð-
urlöndin; Danmörk, Finnland og
Svíþjóð. Í fimmta sæti er Singapúr
og Noregur er í því sjötta. Athygli
vekur að Ísland er neðar á listan-
um en hin Norðurlöndin. Í Sómal-
íu og Norður-Kóreu er spilling
mest en þar fyrir ofan eru lönd
eins og Úsbekistan, Afganistan og
Mjanmar.