Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Page 18
Langaði í skraut í gluggann n Púslar saman vinnu, móðurhlutverki og hönnun É g er mikið jólabarn og hef alltaf haft gaman af jólunum. Og enn meira eftir að börnin mín komu í heiminn,“ segir Guð- rún Huld, grafískur hönn- uður, danskennari, ritari og tveggja barna móðir sem var að hanna sína fyrstu jólavöru en línan heitir Snjókorn falla. Þrátt fyrir annríki segir Guðrún að henni takist að púsla vinnu, hönnun og móðurhlutverkinu saman. „Ég á góðan mann og flott fólk á bak við mig svo þetta smellur allt saman. Þegar börnin eru farin að sofa á kvöldin huga ég að hönnun- inni en þessi lína er algjör- lega norðlensk framleiðsla. Ég er Akureyringur í húð og hár og skrautið er útskorið hjá Slippnum og pólýhúðað hjá Pólýhúðun hér í bænum,“ segir hún og bætir við að það veiti ekki af því að styðja við landsbyggðina eins og ástandið sé í dag. Guðrún Huld hafði lengi gengið með þá hugmynd í maganum að framleiða eigið skraut. „Mig langaði sjálfa í eitthvað fallegt í gluggann og byrjaði að gera skrautkúlu. Þetta vatt strax upp á sig og loks voru komnar fimm teg- undir. Mig langaði ekkert til að hætta og ákvað að byrja með þetta og sjá viðbrögðin,“ segir Guðrún og bætir við að hún hafi ákveðið að drífa hugmyndina í fram- leiðslu í stað þess að vera einungis með hana á tölvuskjánum. Guðrún hefur ekki enn farið með vörur sínar í verslanir. „Ég veit að það er áhugi á þessu en ég var bara að fá þetta í hendurnar. Í byrjun verð ég með þetta á Facebook-síðu minni og svo verð ég í hlöðunni í Litla-Garði á laugardaginn ásamt fleira handverksfólki,“ segir hún en Litli-Garður er rétt við flugvöllinn á Akureyri. Hægt er að skoða Snjó- korn falla á facebook.com/ grafiskhonnun 18 Menning 5. desember 2011 Mánudagur M agnús Th. Magnús- son, Teddi, er einn af þekktari myndlistar- mönnum þjóðar- innar og hefur notið velgengni síðustu tvo áratugi. Sýningar hans hafa jafnan vakið athygli og mesta athygli vekur hann sjálfur því hann er mikill ævintýramaður og leit hans að efnivið er mikill hluti verksins sem hann stillir fram. Viðardrumbar frá Afríku og rekaviður úr sjónum. Hver ein- asti hlutur nálægt Tedda á sína sögu. Teddi hefur hins vegar ekki selt mikið í kreppunni og hefur haft af því áhyggjur. Teddi finnur gjarnan efnivið í verk sín á gönguferðum. Hann er með gott auga fyrir hinum margvíslegu eiginleikum sem búa í viðnum. „Ég finn alltaf eitthvað sem vekur upp áhuga minn,“ segir hann glaðbeitt- ur. Það er ljóst að hann finnur margt, hugsar blaðamaður þeg- ar hann skimar seinna í kring- um sig á vinnustofu hans og heimili. Í hverjum krók og kima eru listaverk og efniviður. „Ég er ævintýramaður,“ segir hann og skellir upp úr. „Af gamla skólanum,“ bætir hann svo við og útskýrir að merk- ingin hafi breyst ansi mikið í gegnum tíðina. Menn ævin- týranna í dag séu fífldjarfir og grunnhyggnir. En þeir af gamla skólanum náttúruunnendur og vísindamenn. Á vinnustofu hans er efni- viður af alls kyns toga. Reka- viður er algengur, heilu bryggj- ustólpana hefur hann fengið að gjöf frá vildarmönnum sínum og hann fær eftir ævintýraleg- um leiðum fágætan við frá Afr- íku, svokallaðan járnvið, purp- urahjarta frá Chile, mahóní og ýmis önnur undur. Teddi virðist eiga sér fjölda ævintýralegra útsendara af gamla skólanum. „Áður fyrr var það ég sjálfur sem sigldi um höfin sjö að leita efniviðarins. Nú gera aðrir það fyrir mig en ég skoða mig um í næsta nágrenni og finn þar mín undur.“ Unir sáttur við sitt Teddi hefur notið mikilla vin- sælda hjá íslenskri þjóð síðustu tvo áratugina og verk hans má sjá víða. Þau prýða stofnanir og heimili og sýningar hans vekja ávallt athygli. Hann er enda listamaður sem gerir hvað hann vill. Stendur fast við sína aðferð og hefur unun af því að móta efnivið sinn. Það er því leitt að heyra að velgengnin hefur látið á sjá í kreppunni. Hann selur mun minna af verkum sínum en fyrir hrun. „Já, það þykir mér leiðinlegt. En svona er þetta. Fólk hefur ekki jafnmikið milli hand- anna og áður. Ég verð að sætta mig við það,“ segir hann. „Ég uni samt alltaf sáttur við mitt, ég er það sem ég geri.“ Stirður við brasið Nýlega gekk yfir glóru- laust óveður og fyrir utan vinnustofu Tedda á Kjalarnesi var allt á rúi og stúi. Hann þurfti því að laga svolítið til og færa til lags. „Ég er orðinn svolítið stirður við þetta bras en ég er samt alltaf í svo góðu skapi. Ég er stirðastur á morgnana en svo færist svo mikið fjör í mig að aðrir hafa ekki við mér,“ segir hann og hlær. Teddi er ekki langskóla- genginn listamaður og hefur nýtt formskyn sitt úr prentiðn- inni. Hann lærði í stuttan tíma um myndlist í Finnlandi. Hann segir líklegt að langskólanám í myndlist hefði rænt hann nátt- úrunni. „Lærdómurinn sprett- ur af glímunni milli mín og efniviðarins,“ segir hann. kristjana@dv.is Sagan á bakvið Barfly Aðdáendur Bukowskis gleðj- ast yfir nýrri þýðingu Upp- heima sem gefur út bók hans; Hollywood. Í Holly- wood er að- alsöguhetj- an Henry „Hank“ Chinaski sem vill helst fara á veðhlaupa- brautina á daginn og fitla við ljóðagerð á kvöldin, gjarnan með vínflösku við hönd og út- varpið stillt á stöð sem leikur klassíska tónlist. Skrifa í mesta lagi smásögu. Skáldskapur- inn heldur honum óbrjál- uðum, veðreiðarnar minna hann á að hafa lífið einfalt – þannig komi sannleikurinn í ljós, þannig komist hlutirnir í verk. Nú hefur hann hins vegar verið ráðinn til að skrifa kvikmyndahandrit sem skal til Hollywood. Charles Bukowski var einn af áhugaverðari rithöfundum tuttugustu aldar, ótvíræður hæfileikamaður og stílisti en umdeildur vegna drykkju- skapar og óheflaðs orðfæris. Aðalsöguhetjan í Hollywood er í raun hliðarsjálf hans, Hank  Chinaski en Bukowski tók eitt sinn þátt í að skrifa kvikmyndahandrit. Það var myndin Barfly og hann gerði það aldrei aftur. Hjördís Sig- urðardóttir þýddi. Fær upp- reisn æru Ricky Gervais hefur verið ráð- inn aftur sem kynnir á Gol- den Globe-hátíðina. Hann var eins og margir vita rekinn eftir bráðfyndna en móðg- andi frammistöðu sína á síð- ustu hátíð. Hann er því kynnir í þriðja skiptið í röð þrátt fyrir það. Meðlimir Golden Globe- nefndarinnar eru ekki á eitt sáttir við ráðningu Rickys sem kynnir en nú er bara að bíða og sjá upp á hverju hann tekur í þetta skiptið. Flýgur á stórri býflugu Kynningarmyndband fyrir ævintýramyndina Journey 2 The Mysterious Island hefur vakið athygli. Í því sést stór- leikarinn Michael Caine fljúga um á risavaxinni bý- flugu og allt útlit er fyrir að myndin sé hin forvitnileg- asta. Í fyrstu myndinni, Jour- ney to the Center of the Earth, léku þau Brendan Fraser og Anita Briem á móti Josh Hutcherson. Í þetta sinn eru það Dwayne Jo- hnsson, Vanessa Hudgens og Michael Caine. Selur lítið í kreppunni n Magnús Th. Magnússon, eða Teddi, er ævintýramaður af gamla skólanum n Hefur notið mikillar velgengni síðustu áratugi n Orðinn svolítið stirður en er alltaf fjörugur Teddi á vinnustofu sinni Í hverjum krók og kima eru listaverk og efniviður. Myndir eyþór árnaSOn Með mörg járn í eldinum Guðrún Huld vílar ekki fyrir sér að vera í nokkrum störfum, hugsa um tvö börn og láta drauminn um eigin vörulínu rætast. Snjókorn falla Guðrún Huld er mikið jólabarn og því ekki skrítið að fyrsta línan hennar samanstandi af fallegu jólaskrauti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.