Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2011, Qupperneq 21
Englendingar eru bara sárir
n Blatter segir þá ensku hafa misst öll völd
S
epp Blatter, forseti al-
þjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, segir að
Englendingar séu enn
sárir eftir að hafa ekki unn-
ið réttinn til að halda heims-
meistarakeppnina í knatt-
spyrnu árið 2018 eins og þeir
sóttust svo hart eftir. Englend-
inga langaði mjög til þess að
halda HM en mótið hefur ekki
verið á Englandi síðan 1966
þegar heimamenn báru sigur
úr býtum.
Það var Rússland sem fékk
þann heiður að halda HM árið
2018 en síðan það lá fyrir hef-
ur enska knattspyrnusam-
bandið staðið gegn Blatter í
endurkjöri hans til formanns
ásamt öðru og segir Blatter
Englendinga einfaldlega vera
sára.
„Á sjöunda og áttunda ára-
tugnum voru flottustu knatt-
spyrnusamböndin bresk. Það
er ekki lengur þannig. Eng-
lendingar hafa misst völdin
eins og sást þegar þeir töp-
uðu boðinu um að halda HM
árið 2018,“ segir Blatter í við-
tali í svissneska blaðinu Matin
Dimanche.
„Þá langaði mjög að halda
HM, meira en þá langaði að
halda Ólympíuleikana. Eng-
lendingum fannst tími til
kominn að fótboltinn kæmi
heim. Þeim fannst ekkert ann-
að í boði en þeir myndu vinna.
Englendingar mættu hingað
með Beckham, Vilhjálm prins
og forsætisráðherrann David
Cameron. Þeir voru alveg viss-
ir um að vinna. En á endanum
fékk England ekki nema tvö
atkvæði. Síðan þetta gerðist
hafa Englendingar leitað allra
leiða til þess að réttlæta tapið,“
segir Blatter.
Þessi orð forsetans eiga
án efa eftir að kveikja elda
hjá Bretum en breska blaðið
The Guardian færði sönnur
á, áður en kosið var um hvaða
land fengi að halda HM, að at-
kvæði sumra nefndarmanna
væru föl.
Sport 21Mánudagur 5. desember 2011
Kveikir eld Blatter er að gera
Englendinga brjálaða. Mynd ReuteRs
F
ótboltaheimurinn
heldur áfram að kveðja
sína dáðustu drengi en
brasilíski snillingurinn
Socrates féll frá aðfara-
nótt sunnudags, 57 ára. Bana-
biti hans var sýking í melt-
ingarfærum en Socrates hafði
glímt við veikindin í nokkurn
tíma og hafði tvívegis lagst inn
á sjúkrahús í haust. Socrates
var einhver alvinsælasti leik-
maður brasilíska landsliðsins í
gegnum tíðina en hann þekktu
allir á síða hárinu og hárband-
inu. Socrates var fyrirliði bras-
ilíska landsliðsins á heims-
meistaramótinu á Spáni árið
1982 en það er talið eitthvað
besta landslið sögunnar sem
ekki tókst að verða meistari.
Hann spilaði einnig á HM 1986
í Mexíkó en var þá ekki lengur
fyrirliði. Eftir knattspyrnuferil-
inn fór Socrates út í stjórnmál
í heimalandinu en hann var
alltaf róttækur baráttumaður
fyrir meira lýðræði í Brasilíu.
Frábær leikmaður
Socrates var einstaklega góð-
ur miðjumaður sem lék ávallt
sem leikstjórnandi. Hann hafði
frábært auga fyrir sendingum,
sérstaklega stungusending-
um sem samherjar hans þáðu
með þökkum. Socrates var,
þrátt fyrir óheilsusamlegt líf-
erni, mjög mikill íþróttamað-
ur, sterkur og fljótur og erfitt að
ná af honum boltanum. Þá var
hann jafnfættur með eindæm-
um og gat skorað auðveldlega
með hvorum fætinum sem var.
Socrates las leikinn einstak-
lega vel en það sem gerði hann
frægan voru hælsendingarnar
sem hann gerði alltaf blind-
andi. Það bæði opnaði ótrú-
lega mikið pláss fyrir samherja
hans og var skemmtun fyrir
áhorfendur úti um allan heim.
Vildi bara vera heima
Socrates hóf ferilinn með Bota-
fogo-SP en flutti sig snemma
til stórliðsins Corinthians. Þar
skoraði hann 172 mörk í 297
leikjum. Þegar Socrates var þrí-
tugur var hann kominn á fullt í
pólitíkina en hann hefur sagt
frá því að þeir sem hann leit
hvað mest upp til voru Fidel
Castro, Che Guevara og John
Lennon. Hann lofaði því fyrir
alþingiskosningarnar í Brasilíu
árið 1984 að ynni flokkur hans
ekki yfirgæfi hann heimaland-
ið. Svo fór að stjórnin hélt velli
og stóð Socrates við loforð sitt.
Tugir liða í Evrópu keppt-
ust um að fá Socrates til sín
en Brassinn magnaði endaði
í Flórens og spilaði fyrir Fior-
entina tímabilið 1984–1985. Í
æviminningum sínum segir
Socrates frá því hversu ótrú-
lega illa honum leið á Ítalíu.
Það var ekki vegna þess að
landið væri eitthvað slæmt,
fólkið vont við hann eða erf-
itt að aðlagast borginni. Ó nei.
Hann var bara með svo rosa-
lega mikla heimþrá að tíminn
sem hann var fjarri heima-
landinu varð honum óbæri-
legur. Hann snéri því strax
aftur heim og spilaði með Fla-
mengo og Santos áður en ferl-
inum lauk. Hann lék 60 leiki
með brasilíska landsliðinu á
árunum 1979–1986 og skoraði
22 mörk.
Keðjureykjandi læknir
Socrates var ekki bara snill-
ingur með boltann heldur
bara snillingur. Ásamt því að
vera atvinnumaður í fótbolta
lærði hann læknisfræðina og
útskrifaðist sem læknir. Eftir
að ferlinum lauk hóf hann
störf sem læknir í borginni Ri-
beirão Preto. Hann átti þó eftir
að snúa einu sinni til viðbót-
ar í fótboltann og það á stað
sem enginn hefði búist við að
sjá hann. Árið 2004, þá fimm-
tugur, skrifaði hann undir eins
mánaðar samning sem spil-
andi þjálfari enska utandeild-
arliðsins Garforth Town.
Socrates spilaði afar lítið
með liðinu, mestmegnis sat
hann bara á bekknum og
reykti. Socrates reykti nefni-
lega gríðarlega mikið alla sína
tíð og drakk líka mikið. Hann
lifði ekki heilsusamlegasta líf-
erninu en hann lifði lífinu til
fulls og skilur eftir sig mikla
arfleifð í brasilískum fótbolta.
Hans verður minnst sem eins
albesta knattspyrnumanns
sem þessi mikla fótboltaþjóð
hefur alið.
Doktorinn Dáinn
n socrates er látinn 57 ára að aldri n Var fyrirliði brasilíska
landsliðsins n Læknismenntaður og reykti eins og strompur
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Frábær leikmaður Socrates var læknir og knattspyrnumaður. Mynd ReuteRs
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
Newcastle - Chelsea 0-3
0-1 Didier Drogba (38.), 0-2 Salomon Kalou
(89.), 0-3 Daniel Sturridge (90.).
Blackburn - Swansea 4-2
1-0 Yakubu (20.), 1-1 Leroy Lita (35.), 2-1
Yakubu (45.), 3-1 Yakubu (57.), 3-2 Luke
Moore (66.), 4-2 Yakubu (83. víti).
Man. City - Norwich 5-1
1-0 Sergio Aguero (32.), 2-0 Samir Nasri
(51.), 3-0 Yaya Toure (68.), 3-1 Steve
Morrison (81.), 4-1 Mario Balotelli (88.), 5-1
Adam Johnson (90.).
QPR - West Brom 1-1
1-0 Heiðar Helguson (20.), 1-1 Shane Long
(81.).
Tottenham - Bolton 3-0
1-0 Gareth Bale (7.), 2-0 Aaron Lennon (51.),
3-0 Jermain Defoe (61.).
Rautt: Gary Cahill, Bolton (18.).
Wigan - Arsenal 0-4
0-1 Mikel Arteta (28.), 0-2 Thomas
Vermaelen (29.), 0-3 Gervinho (61.), 0-4
Robin van Persie (78.).
Aston Villa - Man. United 0-1
0-1 Phil Jones (20.).
Everton - Stoke 0-1
0-1 Robert Huth (15.).
Úlfarnir - Sunderland 2-1
0-1 Kieran Richardsson (51.), 1-1 Steven
Fletcher (72.), 2-1 Steven Fletcher (80.).
Staðan
1 Man. City 14 12 2 0 48:13 38
2 Man. Utd 14 10 3 1 31:13 33
3 Tottenham 13 10 1 2 29:16 31
4 Chelsea 14 9 1 4 31:17 28
5 Arsenal 14 8 2 4 30:23 26
6 Newcastle 14 7 5 2 19:15 26
7 Liverpool 13 6 5 2 17:12 23
8 Stoke 14 5 3 6 14:23 18
9 Aston Villa 14 3 7 4 16:18 16
10 Everton 13 5 1 7 15:17 16
11 Norwich 14 4 4 6 20:26 16
12 QPR 14 4 4 6 15:25 16
13 WBA 14 4 3 7 13:21 15
14 Swansea 14 3 5 6 14:20 14
15 Wolves 14 4 2 8 15:24 14
16 Fulham 13 2 6 5 15:16 12
17 Sunderland 14 2 5 7 16:17 11
18 Blackburn 14 2 4 8 21:32 10
19 Bolton 14 3 0 11 19:34 9
20 Wigan 14 2 3 9 12:28 9
Enska B-deildin
Cardiff - Birmingham 1-0
Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði
Cardiff en var tekinn af velli á 48. mínútu.
Leeds - Millwall 2-0
Blackpool - Reading 1-0
Brighton - Nott. Forest 1-0
Doncaster - Southampton 1-0
Hull - Leicester 2-1
Ipswich - Watford 1-2
Peterborough - Barnsley 3-4
Portsmouth - Coventry 2-1
West Ham - Burnley 1-2
Bristol C. - Middlesbrough 0-1
Staðan
1 Southampton 20 13 3 4 42:21 42
2 West Ham 20 12 4 4 36:17 40
3 Cardiff 20 10 7 3 34:22 37
4 Middlesbr. 20 9 8 3 24:17 35
5 Leeds 20 10 4 6 35:28 34
6 Brighton 20 9 5 6 23:21 32
7 Blackpool 20 8 6 6 31:25 30
8 Hull 19 9 3 7 21:21 30
9 Leicester 20 8 5 7 27:22 29
10 Burnley 20 8 3 9 31:30 27
11 Reading 20 7 6 7 23:22 27
12 Cr.Palace 19 7 6 6 19:18 27
13 Barnsley 19 7 6 6 25:25 27
14 Birmingham 17 7 5 5 23:19 26
15 Derby 20 7 4 9 24:30 25
16 Peterborough 20 7 3 10 39:38 24
17 Watford 20 6 6 8 21:29 24
18 Portsmouth 19 6 5 8 22:22 23
19 Millwall 20 5 7 8 23:24 22
20 Bristol City 20 5 5 10 20:31 20
21 Ipswich 19 6 2 11 26:39 20
22 Nottingham F. 20 6 2 12 18:35 20
23 Doncaster 20 4 4 12 16:33 16
24 Coventry 20 2 7 11 17:31 13
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík