Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 20. júní 2012 Miðvikudagur
K
aupverð blokkanna sem
athafnamaðurinn Steinþór
Jónsson og viðskiptafé-
lagar hans í South Properties
keyptu í vor var 177 milljónir
króna. Eitt af skilyrðunum fyrir kaup-
unum voru hundruð milljóna króna
afskriftir, en Landsbankinn aflétti
veðböndum upp á 733 milljónir
króna svo að viðskiptin gætu gengið í
gegn. Þar var um að ræða skuldir sem
fyrri eigendur höfðu stofnað til. Þetta
kemur fram í kaupsamningi fasteign-
anna sem DV hefur undir höndum.
Viðskiptin voru meðal annars fjár-
mögnuð með láni, eða eins og Stein-
þór sagði í samtali við DV fyrr í vik-
unni: „Við fjármögnuðum kaupin
einfaldlega með eigin fé og láni eins
og hver önnur eðlileg viðskipti.“ Stein-
þór Jónsson, sem er fyrrverandi bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sat í
stjórn Sparisjóðsins í Keflavík á árun-
um fyrir hrun. Fyrirtæki tengd Stein-
þóri hafa að undanförnu fengið millj-
arða afskrifaða.
27 íbúðir
„Við bara gerðum tilboð í þess-
ar blokkir,“ sagði Steinþór í samtali
við DV fyrr í vikunni. Í blokkunum
eru alls 27 fokheldar íbúðir, á bilinu
98–121 fermetra að stærð, auk fimm
bílskúra. Blokkirnar sem staðsettar
eru við Bjarkardal 33 og Reynidal 1 í
Innri-Njarðvík, voru keyptar á bruna-
útsölu út úr þrotabúinu Týrus hf. í
byrjun maí. Týrus hf. sem var í eigu
verktakans Snorra Hjaltasonar og eig-
inkonu hans, Brynhildar Sigursteins-
dóttur, hét áður TSH Verktakar hf.
Í síðasta ársreikningi TSH Verk-
taka frá árinu 2009 er fyrirtækinu lýst
sem byggingarfyrirtæki sem sé víða
með framkvæmdir. Tap félagsins það
ár var 556 milljónir króna, eigið fé
um 1,1 milljarður en félagið skuldaði
þá þegar 2,3 milljarða króna. Stærsti
hluti þessara skulda var tilkominn
vegna blokkanna í Innri-Njarðvík. Sé
heildarveðsetningunni deilt á fjölda
íbúða kemur í ljós að hver íbúð hafi
að meðaltali verið veðsett upp á 27
milljónir króna, langt umfram mark-
aðsvirði.
Á árinu 2008 keyptu TSH Verktakar
allt hlutafé í félaginu Fossafli ehf. fyr-
ir 244 milljónir króna. Þá var félagið
meðal annars með leigusamning við
sveitarfélagið Árborg um fyrirhugaða
þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara
sem áformað var að koma á fót.
Von á miklum gróða
Í samtali við DV við Steinþór fyrr í vik-
unni var tilgangurinn með kaupun-
um sagður sá að koma íbúðunum í
stand til þess að selja þær á almenn-
um markaði. „Við erum auðvitað bara
að kaupa þær til að gera þær upp og
selja þær.“ Meðalverð á sambærileg-
um en fullkláruðum íbúðum á svæð-
inu er á bilinu 17–21 milljón króna
samkvæmt fasteignavef mbl.is. Sé
litið til kaupverðs blokkanna tveggja
er meðalverð hverrar íbúðar þar um
6,5 milljónir króna. Einfalt reikn-
ingsdæmi leiðir í ljós að gangi áform
Steinþórs og félaga í South Properties
upp, muni þeir græða háar fjárhæðir
á viðskiptunum.
„Það eru sumir sem hafa trú á
Suðurnesjum,“ sagði Steinþór í sam-
tali við DV þegar hann var spurður
út í kaupin. Steinþór á þriðjungshlut
í South Properties, en hinir hluthaf-
arnir eru athafnamaðurinn Sverrir
Sverrisson og Brynjar Guðmundur
Steinarsson. Steinþór og Sverrir
eru miklir viðskiptafélagar og hafa
viðskiptagerningar eignarhaldsfé-
laga þeirra á árunum fyrir hrun, sem
nær undantekningarlaust hafa tengst
sparisjóði Keflavíkur, verið mikið í
kastljósi fjölmiðlanna.
Þannig komu þeir saman að
rekstri eignarhaldsfélagsins Blikavalla
3 í gegnum þráð móðurfélaga, en 280
milljóna skuldir þess félags hafa ver-
ið afskrifaðar. Þá var Steinþór annar
eiganda Bergsins ehf. en kröfuhafar
félagsins – þar á meðal Sparisjóður-
inn í Keflavík, sem var á meðal helstu
kröfuhafanna – hafa afskrifað tæplega
3,8 milljarða króna vegna lánveitinga
til félagsins.
Hringbraut stofnaði South
Properties
Kaupsamningurinn á milli South
Properties og Týrus ehf. var undirrit-
aður 4. maí síðastliðinn. Í kaupsamn-
ingnum segir meðal annars: „Hið
selda er veðsett Landsbankanum hf. á
1.-16. veðrétti með tryggingarbréfum,
samtals að nafnverði kr. 773.000.000.“
Þá er sérstaklega tekið fram að skuld-
irnar sem hvíli á eignunum verði af-
skrifaðar: „Þá hefur Landsbankinn
hf. sem veðhafi samþykkt kaupverðið
fyrir sitt leyti og skuldbindur sig með
áritun á kaupsamning þennan að
aflétta áðurgreindum veðböndum
sínum af hinu selda, eigi síðar en 15
dögum eftir að greiðsla samkvæmt
ákvæði þessu hefur verið innt af
hendi“
Ennfremur er tekið fram að
Lands bankinn muni ráðstafa kaup-
verðinu inn á þær kröfur sem
eru tryggðar samkvæmt framan-
greindum tryggingarbréfum. South
Properties ehf. er skráð að Lyngholti
4 í Reykjanesbæ en eigið fé og skuld-
KEYPTI BLOKKIRNAR
Á BRUNAÚTSÖLU
n Landsbankinn afskrifaði hundruð milljóna svo að Steinþór gæti keypt blokkir
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
13. júní 2012
Kaupa og selja „Við
erum auðvitað bara að
kaupa þær til að gera
þær upp og selja þær,“
sagði Steinþór Jóns-
son í samtali við DV.
177 milljónir Steinþór og félagar í
South Properties greiddu 177 milljónir
fyrir blokkirnar en áður hvíldu 773
milljónir á þeim. Mynd eyþór árnaSon
Leitar þjófa
„Ég ætla að finna þá,“ sagði Sig-
urður Jónsson, sumarbústaðar-
eigandi sem varð fyrir því tjóni að
brotist var inn í sumarbústað hans
í nágrenni Laugavatns, á þriðju-
dag. Talsvert miklu var stolið af
verðmætum hlutum og sakn-
ar hann meðal annars listaverka,
kengúruskinns og skotvopna, ætt-
argripa sem höfð voru til skrauts
í bústaðnum. Sigurður sagðist
ákveðinn í að finna þjófana og
hefur því heitið 250 þúsund krón-
um í fundarlaun fyrir þann sem
kemur gripunum í réttar hend-
ur. „Þeir voru ótrúlega snyrtileg-
ir,“ sagði hann og bætti við: „Það
er kannski þess vegna sem maður
hefur svo mikla ónotatilfinningu
gagnvart þessu. Þetta er algjört
brot á friðhelgi,“ segir hann, en
þjófarnir virðast ekkert hafa rót-
að heldur gengið mjög hreint til
verks. Sigurður óskar eftir því að
haft verði samband við lögregluna
á Selfossi hafi fólk upplýsingar um
stuldinn.
Lét bóka
mótmæli
Þór Saari, þingmaður Hreyfingar-
innar, lét bóka mótmæli á fundi
atvinnuveganefndar Alþing-
is á þriðjudag vegna starfa fimm
manna þingmannahóps sem
vinnur að samantekt eða greinar-
gerð sem leggja á til grundvallar
frekari vinnu við stjórn fiskveiða.
„Slíkur hópur hefur enga formlega
stöðu samkvæmt þingsköpum Al-
þingis og það er óásættanlegt að
vinna við þingmál fari fram með
þessum hætti,“ sagði í bókun þing-
mannsins, sem sjálfur er fulltrúi í
nefndinni. „Hreyfingin krefst þess
að hópurinn, sem samanstendur
af fulltrúum í atvinnunefnd, vinni
að málinu með nefndinni allri og
að hún hafi beina aðkomu að öll-
um fundum og tillögum hópsins.“
Gat ekki áfrýjað
nálgunarbanni
Hæstiréttur vísaði á mánudag frá
kæru úrskurðar um nálgunarbann
og brottvísun á heimili. Héraðs-
dómur Suðurlands úrskurðaði
þann 8. maí síðastliðinn að karl-
manni yrði gert að yfirgefa heimili
sitt þar sem hann býr ásamt eigin-
konu sinni og að honum yrði jafn-
framt gert að sæta nálgunarbanni
í sex mánuði. Verjandi manns-
ins kærði úrskurð héraðsdóms
til Hæstaréttar en málinu var vís-
að frá vegna þess að ekki var að
finna í lögum heimild til að kæra
til æðra dóms úrskurð héraðs-
dóms en 7. júní síðastliðinn tóku
hinsvegar gildi lög sem fela í sér
umrædda kæruheimild. Lögð var
fram kæra vegna líkamsmeiðinga
mannsins gegn eiginkonu sinni
þann 29. apríl 2012 á heimili
þeirra.