Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 20. júní 2012 Miðvikudagur
Aldrei fleiri túristar
komið á einum degi
n Ríflega 6.000 erlendir farþegar og 2.300 áhafnarmeðlimir stigu á land í Sundahöfn á mánudaginn
F
jögur glæsileg skemmti-
ferðaskip lögðu að bryggju
í Reykjavík á mánudaginn
síðastliðinn. Þetta eru
skemmtiferðaskipin Clipper
Adventurer, Artania, Aidamar og síð-
ast en ekki síst Costa Pacifica, sem er
stærst af þeim öllum – metið á rúm-
lega 79 milljarða íslenskra króna.
Skipin voru ekki tóm heldur full af
frískum ferðamönnum úr öllum átt-
um – flestum frá Þýskalandi að sögn
Gísla Jóhanns Hallssonar, yfirhafn-
sögumanns Faxaflóahafna. „Þetta
er alger metfjöldi; 6.080 farþegar
og rúmlega 2.300 áhafnarmeðlim-
ir. Aldrei áður hafa jafnmargir ferða-
menn komið með skemmtiferða-
skipum á einum degi,“ segir Gísli og
bætir við að fyrra metið hafi verið í
kringum 4.500 ferðamenn.
Utanríkisráðuneytið, Íslands-
stofa og Ferðamálastofa höfðu litla
hugmynd um hversu miklum tekj-
um allir þessari ferðamenn myndu
skila þjóðarbúinu en Gísli segist hafa
heyrt í fjölmiðlum að 100 milljónir
myndu koma í ríkiskassann.
Blaðamaður og ljósmyndari DV
skunduðu niður að höfn vopnaðir
upptökutæki og myndavél og tóku
nokkra ferðamenn stuttlega tali.
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
„Draumi líkast“
Þ
ýsku hjónin Katrinkas og Eng-
elfried eru farþegar um borð
í lystiskipinu Costa Pasifica,
sem er systurskip Costa
Concordia sem strandaði við strönd
eyjunnar Giglio 13. janúar 2012 með
um 3.200 farþega og 1.000 áhafnar-
meðlimi um borð.
„Það er draumi líkast að vera
um borð. Við erum búin að vera í
fjóra daga en það er svo margt um
að vera að okkur finnst við hafa ver-
ið í fjóra mánuði! Hér eru fjölmargir
veitingastaðir, kvikmyndasalir, sund-
laugar, spilavíti og margt fleira,“ seg-
ir Katrinkas og Engelfried bætir við:
„Það er líka frábært að fá tæki-
færi til þess að skoða fallega landið
ykkar. Við erum búin að vera uppi
á miðhálendinu, skoðuðum stóra
jökulinn þarna [Vatnajökul, innsk.
blm.] og fórum í Bláa lónið. Ég gæti
ekki verið ánægðari. Hér er líka svo
bjart að við gleymdum að fara í hátt-
inn í gær – vöktum fram eftir öllu.“
Aðspurð segja þau 2.500 farþega
um borð í skipinu og 1.300 í áhöfn.
En er þetta ekki dýrt? „Við borg-
uðum 4.000 evrur á mann en káetan
okkar er reyndar ekki með svölum –
það kostar miklu meira.“
Ramil er einn 1.300 áhafnarmeð-lima um borð í Costa Pacifica. Hann segir aðspurður ótrúlega
gaman að vinna um borð.
„Ég sé um að þrífa káeturnar og
það veitir mér mikla ánægju. Ég
vinn tólf tíma á hverjum degi.“
Ramil, sem er frá Filippseyjum,
segir erfitt að fá vinnu í heimalandi
sínu. „Ég sá auglýsingu í dagblaði,
sótti um og datt í lukkupottinn.“ En
hvernig líst honum á Ísland?
„Ég hef ferðast um víða veröld en
aldrei komið til Íslands. Þetta er fal-
legur en óvenjulegur staður.“
Gaman um borð Ramil datt í
lukkupottinn.
Gaman að
þrífa skipið
Katrinkas og Engelfried
Vöktu fram eftir öllu.
Skoðar fugla
á lystiskipi
S
vend Runar er danskur raf-
virki og farþegi um borð í
lystiskipinu Klipper. „Ísland
er ágætt land – alveg hreint
ágætt. Ég hef verið hér einu sinni
áður.“
Aðspurður um lífið um borð í
Klipper segir Svend að ekki sé um
neinn lúxus að ræða. „Nei, þetta er
bara venjulegt skip. Engar sund-
laugar eða spilavíti – en mér er alveg
sama um það. Ég er bara hérna til að
skoða fugla.“
Svend segir að um borð séu 100
farþegar og 40 áhafnarmeðlimir –
aðallega Danir.
Svend Runar Rafvirki og fuglaskoðunarmaður. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
Erfiðar með bros á vör
B
alagtas er í áhöfn skips-
ins Artania. „Níutíu og
fimm prósent áhafnar-
innar eru frá Filippseyj-
um, þar á meðal ég.“ Aðspurður
um ástæður þess segir Balagtas:
„Það vita allir að Filippseyingar
vinna erfiðisvinnu með bros á
vör – fólk á skemmtiferðaskip-
um kann að meta það.“ Balagtas
segir lífið um borð hið skemmti-
legasta.
„Ég er búinn að vinna í átta
mánuði samfleytt og á þeim tíma
ferðast út um allt; Asíu, Evrópu og
Suður-Ameríku – ógleymanlegt
ævintýr.“
En eru launin góð?
„Já – sé þeim breytt í gjaldmiðil
heimalands míns.“
Balagtas Ævintýramaður frá Filippseyjum.