Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Síða 22
22 Menning 20. júní 2012 Miðvikudagur „Þetta verður hnausþykkt og löðrandi“ n Sumarhátíðin Partíþokan verður haldin á Seyðisfirði V ið höfum aldrei haldið sumarhátíð en ætlum bara upp í rútu og sjá hvort það rætist ekki úr þessu,“ segir tónlistarmað­ urinn Svavar Pétur Eysteins­ son, einn þeirra sem standa fyrir tónlistarhátíðinni Partí­ þokunni sem haldin verður á Seyðisfirði helgina 22. og 23. júní, en um svokallaða flökku­ hátíð er að ræða. „Við byrjuðum á Akureyri í fyrra og fórum svo til Ísafjarð­ ar eftir áramót. Nú er það Aust­ urland. Við erum að dekka alla landsfjórðunga í partíþoku. Þessi hátíð er mjög breytileg og fer eftir árstíma. Hún hefur verið allt frá menningarlegri samkomu yfir í framhalds­ skólaball og svo tjaldútilegu. Það fer allt eftir því hvar við erum, hvernig veðrið er og hvað þokan er þykk. Á Ísafirði fengum við svo hlýlegar og góðar móttökur að við fengum á tilfinninguna að það hefði lítið sem ekkert verið í gangi í bænum í langan tíma. Á Akur­ eyri var stemningin önnur. Þar var eins og fólk væri orðið yf­ irkeyrt af menningu. Samt mættu margir og allir í góðu stuði. Við erum nefnilega öll eins. Það skiptir ekki máli hvar við erum á landinu. Við þrá­ um öll að komast á háværa tónleika og dilla okkur. Smjör­ ið er bara ekki alls staðar jafn þykkt þótt að þokan sé alltaf jafn mikil.“ Svavar Pétur er í hljóm­ sveitinni Prins Póló en að auki munu Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar, Ojba Rasta, Snorri Helgason, Mr. Silla og Hugleikur Dagsson koma fram. „Þetta er helgarfestival. Tónleikarnir fara fram inni í félagsheimili en þarna verð­ ur tímamótaafsláttur á tjald­ svæði. Sveitirnar sem munu troða upp eru stórkostlegar en meðlimir Ojba Rasta eru alls 11 talsins svo við þurfum sér rútu bara undir þau. Það er því algjört glapræði að fara með þau út á land. Seyðisfjörður er mesta þokubæli í heiminum og við erum mjög spennt að sjá hvernig Austfirðingar taka okk­ ur. Ég er viss um að þetta verður alveg hnausþykkt og löðrandi.“ Aðspurður segist Svavar Pétur oft hafa leitt hugann að því hvað fái menn til að taka sig til og skipuleggja útihátíð. „Ég er ekki viss hvaða hvöt þetta er. Ætli þetta sé ekki svipað og rak þá áfram sem stofnuðu hina upprunalegu Sumargleði. Fyrir tónlistarmenn sem búa í bæn­ um er þetta góð afsökun til að tengja sig við fólk úti á landi. Svona hátíðir sameina fólk. Það er líka allt annað fyrir hljóm­ sveitir í borginni að spila úti á landi. Sjarminn er allt annar. Þetta er svo íslenskt og það er mikilvægt fyrir marga tónlistar­ menn að komast í snertingu við uppruna sinn.“ indiana@dv.is Kenna á veturna, rokka á sumrin n Hafa allar komið nálægt kennslu n Allar góðar vinkonur K vennahljómsveitin Dúkkulísur að austan sem sló í gegn á Músík tilraunum og í Atlavík fagnar þrjátíu ára afmæli á árinu. „Við erum fyrst og fremst mjög góðar vin­ konur sem njóta þess að vera saman og spila tónlist. Í ár er gott tilefni til þess að koma saman. Við ætlum að taka árið með trompi,“ segir Erla Sig­ ríður Ragnarsdóttir, söngkona Dúkkulísa Dúkkulísur koma ekki oft fram opinberlega, en þær héldu tónleika á Aldrei fór ég suður og þar áður spiluðu þær á Innipúkanum. Þær ætla þó heldur betur að láta til sín taka á árinu og buðu konum í boð í Viðey, á baráttudegi kvenna, 19. júní. Plötum rokkgyðjuna með Gestir Dúkkulísa fögnuðu með þeim en þeirra á meðal eru Gerður Kristný sem las úr ljóðum sínum, Andrea Jóns­ dóttir, þáttagerðarkona á RÚV sem rýndi í stöðu kvenna í rokktónlist í erindinu „Þegar aldurinn færist yfir“, Helga Birgisdóttir (Gegga), mynd­ listarkona og rithöfundur, sem velti fyrir sér hugmynd­ um unglingsstúlkna um stríð, frið og tenginguna við skap­ arann í okkur sjálfum, og svo velti Valgerður Halldórsdótt­ ir félagsráðgjafi vöngum yfir stjúptengslum og stöðu stjúp­ móðurinnar árið 2012 í er­ indinu „Hvar er ég?“, en Val­ gerður hefur nýlega gefið út bók um þetta málefni. „Tengslanetið hefur stækk­ að, sjáðu til, og við ætlum því að hafa margar þessara kvenna með okkur í sum­ ar á tónleikum. Plötum Andreu rokkgyðju með okk­ ur í giggin og svona,“ segir Erla og hlær. „Við verðum með stóra afmælis tónleika í haust í Rósenberg og hitum reynd­ ar upp fyrir þá á sama stað á laugardaginn. Þá verðum við á Gærunni í Skagafirði og fleiri hátíðum. Við ætlum að flytja vinsælustu lögin okkar, spjalla við gesti og hafa gaman.“ Allar viðloðandi kennslu Erla segir frá því að allar í Dúkkulísunum hafi helg­ að sig kennslu með einum eða öðrum hætti. Því sé nú rokkað á sumrin og kennt á veturna. „Það er gaman að segja frá því að ég og Edda María erum kennarar í Flens­ borg og kenndum stúlkun­ um í Ylju sem spiluðu með okkur á þriðjudagskvöld í Viðey. Það er í raun merki­ legt að við erum allar viðloð­ andi kennslu á einn eða ann­ an máta. Grunnskólakennari, framhaldsskólakennari, skólaliði, sem er reyndar í skrifstofustarfi í dag, og leik­ skólakennari. Þetta passar bara ágætlega með rokkinu og sumarballa­ stemningunni,“ segir Erla í léttum dúr. Hljómsveitin Dúkkulísur var stofnuð á Egils- stöðum 10. október árið 1982. Nafngift hljómsveitarinnar spratt upp úr fyrstu æfingum hljómsveit- arinnar en stelpurnar þóttu pjattaðar í sparslrykinu. Hljóðfær- in tóku þær hins vegar föstum tökum og fóru því Dúkkulísur fljótlega að láta á sér kræla og tóku meðal annars þátt í hljómsveitakeppni í Atlavík og í Músíktilraun- um, en þær sigruðu í keppninni árið 1983. Ári síðar, þann 19. júní, gáfu þær út sína fyrstu plötu, Dúkkulísur, sem innihélt lög eins og Pamela í Dallas. Plötuna Í léttum leik gáfu þær svo út árið 1986, en á henni var slagarinn frægi Svarthvíta hetjan mín. Mörgum árum síðar gáfu þær síðan út lagið Konur og blóm í tilefni dagsins og er því 19. júní Lísunum sérstaklega kær. Þegar sveitin var stofnuð voru meðlimir sveitarinnar: Erla R. söngur, Erla I. bassi, Gréta gítar, Guðbjörg trommur og Hildur hljómborð. Fljótlega eftir útkomu fyrstu plötunnar hætti Hildur og Harpa tók við hljóm- borðsleiknum. Þannig skipuð starfaði hljómsveitin næstu árin og gaf út plötuna Í léttum leik árið 1986. Árið 1987 fór hljómsveitin í langa pásu og kom ekki saman opinberlega í 10 ár og var endurvakin á 50 ára afmæli Egilsstaðabæjar 1997. Síðan þá hefur sveitin komið saman til að spila, af og til, og semja tónlist. Í þá gömlu góðu daga Dúkkulísurnar árið 1984 Um Dúkkulísurnar Dúkkulísurnar Hafa allar verið viðloðandi kennslu. Tónlist undir Jökli Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival 2012 – Undir Jökli verður haldin daganna 29. júní til 1. júlí næstkomandi á Hellissandi. Þetta er í þriðja skipti sem hátíðin er haldin, en hún á rætur sínar að rekja til 2008 þegar hljómsveitin Stereo Hypnosis dvaldi á Hellisandi við upptökur á breiðskífunni Hypnogogia. Hljómsveitar­ meðlimirnir Pan og Óskar Thorarensen voru það hrifnir af staðnum að þeir héldu árið 2009 útgáfutónleika vegna breiðskífunnar. Eitt leiddi af öðru og fyrsta hátíðin var svo haldin 2010 í Röstinni, gömlu bíóhúsi á Hellisandi. Röst var lengi vel eina stóra samkomu­ húsið á norðanverðu Snæ­ fellsnesi, að undanskildu fé­ lagsheimilinu í Stykkishólmi. Dansleikir voru tíðir og vel sóttir og kvikmyndasýningar voru tvisvar til þrisvar í viku. Dagskráin í ár verður með því móti að á föstudagskvöldið verða tónleikar í félagsheim­ ilinu og byrja þeir kl. 19.30. Á laugardeginum hefst dag­ skráin utandyra með lifandi flutningi og plötusnúðum frá kl. 13–19 og verður dagskráin svo færð inn í félagsheimilið Röst kl. 19.30 og mun standa fram á nótt. Reggísumar á Hverfisgötunni Öllum vinum og vel­ unnurum Bíó Paradísar er boðið á opnun Reggísum­ ars fimmtudaginn 21. júní. Í kvikmyndahúsinu verð­ ur sýnd myndin: Rise Up – margverðlaunuð heim­ ildamynd um reggítónlist á Jamaíku – kl. 20.00. Á hátíðinni munu Ojba Rasta spila ásamt RVK Soundsystem. Pilsner Urquell verður á tilboði og grillaður karabískur kjúklingur. Rise Up og tónlistar­ myndin Rockers verða svo sýndar út helgina. Sýnir á sum- arsólstöðum í Galtarvita Myndlistarmaðurinn Hrafn­ kell Sigurðsson dvelur nú í Galtarvita í Keflavík í Súg­ andafirði og vinnur að sýn­ ingu á staðnum sem verður opnuð á sumarsólstöðum. Sýninguna vinnur Hrafnkell einsamall í faðmi náttúrunn­ ar á Galtarvita. Sýningarhald á Galtarvita hófst síðastliðið sumar þegar sýningin Hljóm­ ur norðursins var sett upp í tilefni af að því 10 ár voru liðin frá því að fyrstu lista­ mennirnir sóttu Galtarvita heim. Fjöldi þekktra lista­ manna kom að sýningunni sem þótti vel heppnuð. Fyrir­ huguð sýning Hrafnkels hefst þann 20. júní og stendur til 7. ágúst.  Svavar Pétur Eysteinsson Svavar Pétur segir allt öðruvísi fyrir tónlistarmenn úr borginni að spila úti á landi. Það sé afar íslenskt og það sé afar íslenskt að komast í snertingu við upprunann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.