Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Blaðsíða 26
26 Fólk 20. júní 2012 Miðvikudagur Ö ryggisverðir Tom Cruise ráku bændur af gamla þjóð- veginum við Vaðlaheiði á þriðjudagsmorgun. Bænd- urnir voru að koma af fjöll- um en þangað höfðu þeir rekið fé sitt fyrr um morguninn eins og alltaf er gert á þessum tíma árs. „Það er eins og við séum stórkrimmar,“ seg- ir einn viðmælanda DV sem vill ekki láta nafns síns getið. Mikil öryggisgæsla Eins og DV hefur greint frá kom Tom Cruise til landsins fyrir helgi. Mikið umstang er í kring- um stjörnuna sem ferðast með- al annars með einkakokk með sér. Fyrstu dagana hélt hann til á for- setasvítu Hilton Reykjavík Nordica hótelsins við Suðurlandsbraut, en þá mátti sjá hann ásamt eiginkonu sinni, Katie Holmes, á vappi um miðbæ Reykjavíkur. Cruise, sem hefur gert garðinn frægan í fjöl- mörgum stórmyndum eins og Top Gun og Eyes Wide Shut, er einnig eins konar spámaður í trúarhópi Vísindakirkjunnar. Það var því mikil viðhöfn sem fylgdi því þegar stjarnan kom fljúg- andi á þyrlu og lenti við lúxusvillu þá er Jóhannes í Bónus átti áður, Hrafnabjörg í Vaðlaheiði, en þang- að kom hann með föruneyti sínu á mánudag. Gríðarleg öryggisgæsla er við húsið en bændur verða var- ir við að fylgst sé með þeim. Mikill kurr er í bændum á svæðinu sem margir hverjir eru hissa yfir þeim vinnubrögðum sem öryggissveit- ir leikarans ástunda. „Þetta er ekki Texas hérna sem við búum í,“ sagði einn þeirra sem DV ræddi við. Líklegt verður að teljast að hús- gögn Tom Cruise séu einnig kom- in í Hrafnabjörg en þau voru sér- staklega flutt hingað til lands með stjörnunni. Hann hyggst halda til í Hrafnabjörgum næstu vikurnar eða á meðan verið er að taka upp kvikmyndina Oblivion. Smalar mættu öryggisvörðum Einn ábúenda á Halllandi, næsta bæ við Hrafnabjörg, er á meðal þeirra sem lentu í öryggisvörðum á gamla þjóðveginum á Vaðlaheiði. „Við vorum að koma ofan af heiði, eftir að vera búnir að vera að smala þarna fyrir ofan,“ segir einn þeirra sem var með í hópnum. Hingað til hafa bændur og búalið á svæð- inu getað notast við gömlu leiðina um Vaðlaheiði án nokkurra vanda- mála. Með aukinni öryggisgæslu á svæðinu í kjölfar komu þessar- ar kvikmyndastjörnu og spámanns virðast hins vegar hafa orðið breytingar þar á. Þremur karlmönnum, sem smalað höfðu hópi af sauðfé upp á Vaðlaheiði fyrr um morguninn, var á heimleiðinni mætt af ör- yggisvörðum á vegum Öryggis- miðstöðvarinnar. Verðirnir beindu smölunum beinustu leið í burtu af svæðinu þrátt fyrir að um opna þjóðleið sé að ræða, en tún bæj- anna á svæðinu ná meðal annars að veginum. Viðmælandi DV seg- ir farir sínar ekki sléttar. Erfitt sé að sætta sig við það að verða fyrir áreiti af hálfu öryggisvarða þegar verið sé að ferðast í og við eigið land. Ekki Víetnam „Hann var greinilega eitthvað pirr- aður yfir því að við værum þarna,“ segir einn mannanna. Hann segir öryggisverðina hafa rekið þá félaga af veginum eftir að þeir stoppuðu til að virða fyrir sér þyrlu Tom Cru- ise sem sveimaði yfir landi þeirra. „En þetta er bara almennur vegur, þarna eru engin skilti eða ekki neitt sem bannar fólki að stoppa,“ segir maðurinn sem sýnir Hollywood- stjörnunni þó þrátt fyrir allt auð- mjúkan skilning. „Auðvitað er þetta óþarfa tilstand að okkar áliti en sjálfsagt er þetta fullkomlega eðlilegt í þeirra heimi þarna úti.“ DV náði tali af syni manns- ins. Sá var nýkominn aftur á bæ- inn eftir að hafa verið á Akureyri, en hafði sterkar skoðanir á mál- inu rétt eins og aðrir viðmælendur DV. „Mér finnst þetta nú fulllangt gengið sko, þetta er nú bara Ísland, þetta er nú ekkert Víetnam hérna. Mér finnst þetta nú bara fulllangt gengið af Krúsanum að láta svona.“ Hann sagði málið í heild sinni reg- inhneyksli, enda hafi faðir hans og félagar hans í rauninni verið á eig- in landi þegar þeir voru reknir í burtu. „Pabbi er nú bara að sinna sínu starfi sko, að reka einhverjar rollur og ég meina ef það má ekki, þá getur hann [Tom Cruise] bara alveg sleppt því að koma og vera með einhverja stæla.“ Fylgst með bændum Þegar smalarnir þrír leituðu upp- lýsinga um hvort öryggisverðirn- ir hefðu heimild til þess að reka þá af veginum var gripið í tómt. „Hann gat ekki sýnt okkur neina pappíra upp á að hann væri með einhver lögregluvöld,“ segir viðmælandi blaðsins. Ómar Örn Jónsson, mark- aðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar, fyrirtækisins sem sér um öryggis- gæslu fyrir Tom Cruise, segir fólk verða að meta það sjálft hvort það hlýði öryggisvörðum. „Ef við teljum að það þjóni öryggishagsmunum að biðja fólk um að fara, þá gerum við það.“ Smalarnir þrír hlýddu öryggis- vörðunum á endanum: „Við fórum bara fyrir rest.“ Mikil öryggisgæsla er á svæðinu við hús Tom Cruise og fylgst er með öllum mannaferðum. Tom Cruise ætti að vera vanur slíku enda er Vísindakirkjan, þar sem hann fer fremstur í flokki, ekki síst þekkt fyr- ir að veita forystumönnum sínum góða vernd. Þegar blaðamann DV bar að garði á þriðjudag stóð þar einn vörður við hliðina á húsinu en annar sat inni í bíl. Grannt er fylgst með bændum sem búa í grennd við húsið eða eins og einn þeirra lýsti því í samtali við DV: „Við sáum það alveg í gær þegar við vorum að reka upp á fjall að það keyrðu oft bíl- ar löturhægt framhjá okkur til að athuga hvort við værum að gera eitthvað.“ „Ættu að skammast sín“ DV hafði samband við allnokkra sem búa í grennd við Hrafnabjörg, en enginn þeirra vildi koma fram undir nafni. „Við máttum ekki vera á veginum,“ lýsti kona á kúabúi nokkru atferli öryggisvarða Tom Cruise í samtali við blaðamann. Þegar hún var innt eftir nafni „Við vorum að koma ofan af heiði, eftir að vera búin að vera að smala þarna fyrir ofan. Tom Cruise í þyrlu Tom Cruise var í þyrlu við húsið þegar blaðamann bar að garði. Þyrlan var í gangi og það var fólk inni í henni en eftir smá stund kom maður út úr húsinu og fór inn í þyrluna sem tók á loft. „Við sáum það al- veg í gær þegar við vorum að reka upp á fjall að það keyrðu oft bílar löturhægt framhjá okk- ur til að athuga hvort við værum að gera eitthvað. Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is ráku bændur af þjóðleið n Öryggisverðir stórstjörnunnar Tom Cruise ráku bændur og búalið á brott af gamalli þjóðleið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.