Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2012, Page 27
sagðist hún ekki vilja að slíkt kæmi
fram. „Nei takk! Mér finnst það nú
bara vera ávísun á að maður vilji láta
taka eftir sér. Við bara búum hérna og
viljum bara fá að sinna okkar vinnu í
sátt og samlyndi við alla.“ Hún sagði þó
að öll þessi öryggisgæsla þætti sérstök
í sveitinni.
„Furðulegt hvernig fólk þarf að
haga sér þó það sé eitthvað frægt,“
sagði konan í samtali við DV, en á bak
við hana mátti heyra í rödd bónd-
ans, sem hrópaði: „Þeir ættu bara að
skammast sín þessir menn.“ Konan
segist hissa á því að hægt sé að meina
fólki að fara sínar eigin leiðir, um land-
svæði sem liggur meðfram þeirra eig-
in, þar sem þau eru meðal annars með
tún og skepnur á beit. „Ég segi nú bara
hreint út að mér finnst þetta fáránlegt í
svona litlu landi eins og okkar.“
DV hefur að undanförnu fjallað um
mál þar sem einstaklingar hefta för
almennings að landsvæði sem áður
var opið öllum. Þannig má sem dæmi
nefna Kersmálið þar sem kínverskum
og íslenskum stjórnmálamönnum var
meinaður aðgangur sem og afleggjar-
ann sem liggur að fjallinu Skessu-
horni, en eigendurnir lokuðu honum
nýlega með hliði og hengilási. Þannig
virðist það færast í vöxt hér á landi að
fólk takmarki aðgengi að jörðum sín-
um.
Þarf ekki að hlýða
Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Ör-
yggismiðstöðvarinnar, segir öryggis-
verði fyrirtækisins ekki hafa neinar
heimildir til þess að loka opnum þjóð-
leiðum. Aðspurður út í umrætt atvik
segist hann ekki þekkja það en tekur
fram að öryggisverðir geti beðið fólk
um að flytja sig um set, fólki sé svo í
sjálfsvald sett hvort það verði við þeirri
beiðni. „Ef við teljum að það þjóni ör-
yggishagsmunum að biðja fólk um að
fara, þá gerum við það auðvitað.“
Aðspurður hvort honum finnist eðli-
legt að einkareknar öryggissveitir fari
um landið, banni fólki hitt og þetta, og
síðan sé það fólks að ákveða hvort það
hlýði slíkum skipunum segir Ómar:
„Mér finnst þú stilla þessu mjög ein-
kennilega upp þarna. Við erum að biðja
fólk um að sýna ákveðin viðbrögð við
því sem er í gangi og auðvitað er fólki í
sjálfsvald sett hvort það hlýði því.“
Aðspurður hvort hann hafi skiln-
ing á óánægju bænda segir Ómar eðli-
legt að leitast við að ná samkomulagi.
Hann segir að í svona tilvikum sé ávallt
eðlilegt að skoða hvaða erindi þeir eiga
sem vilja fara í gegnum slík svæði eða
hvort það sé nauðsynlegt til þess að
menn geti sinnt sínum störfum. Hafi
bændurnir nauðsynlega þurft að fara
um veginn hefðu öryggisverðir komið
til móts við þá. „Menn reyna að leysa
öll mál í sátt og samvinnu, þannig er
starf öryggisvarðanna.“
Þá bendir Ómar á kvikmyndafyrir-
tækið True North sem sér um málefni
Cruise á meðan hann er hér á landi. DV
náði ekki tali af neinum þar, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
Fólk 27Miðvikudagur 20. júní 2012
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900
BMW X5 3.0D E70
08/2007, ekinn aðeins 53 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, leður, fjarstýrð miðstöð.
Einn eigandi! Verð 6.990.000. Raðnr.
322002 Jeppinn fallegi er í salnum!
BMW X3 2.5SI
05/2007, ekinn 57 Þ.km, bensín, sjálfskipt-
ur, leður ofl. Verð 4.390.000. Raðnr.284140
- Jeppinn fallegi er á staðnum!
FORD ESCAPE XLT CHOICE
4WD 05/2007, ekinn 56 Þ.M, sjálfskipt-
ur, mjög snyrtilegur jeppi! Tilboðsverð
aðeins 1.590.000. Raðnr. 379999 -
Jeppinn er á staðnum!
SUBARU IMPREZA STI
03/2004, ekinn 75 Þ.km, mikið
breyttur bíll, 6 gíra. Gríðarlega
fallegt eintak! Verð 2.990.000, áhv.
ca. 2,3mkr. Skoðar ýmis skipti! Raðnr.
270853 - Kagginn er á staðnum!
BMW 525XI 4WD
08/2007, ekinn 31 Þ.km, sjálfskiptur,
leður ofl. Umboðsbíll! Verð 5.980.000.
Raðnr. 250263 - Bíllinn er í salnum!
LEXUS GS430
03/2007, ekinn 68 Þ.km, sjálfskiptur,
leður, lúga ofl. Glæsilegur bíll! Verð
5.490.000. Raðnr. 282279 - Bíllinn er
í salnum!
VW JETTA COMFORTLINE
DIESEL 01/2006, ekinn 85 Þ.km, 6
gíra, flottur bíll sem eyðir engu! Verð
1.850.000. Raðnr. 284520 - Bíllinn
skynsami er á staðnum!
SUBARU LEGACY OUTBACK
WAGON 06/2008, ekinn 68 Þ.km,
bensín, sjálfskiptur. Verð 3.280.000.
Raðnr. 322237 - Bíllinn er á staðnum!
TOYOTA AVENSIS S/D TERRA
09/2000, ekinn 151 Þ.km, bensín,
sjálfskiptur. EINN EIGANDI! Verð
880.000. Raðnr. 284490 - Gullmolinn
er á staðnum!
Tek að mér
Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á
þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir
og tek að mér ýmiss smærri verkefni.
Upplýsingar í síma 847-8704 eða á
manninn@hotmail.com
Funahöfða 1, 110 Reykjavík
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
Flutningar
Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti-
vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur
,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690
SUZUKI LIANA 2WD
06/2006, ekinn 83 Þ.km, 5 gíra. Verð
1.180.000. Raðnr. 310220 - Bíllinn er á
staðnum!
BMW M5 E60.
Árgerð 2005, ekinn aðeins 38 Þ.km,
sjálfskiptur, og allt hitt, geðveikur
bíll. Verð 8.990.000. Raðnr.310224 -
Kagginn er í salnum!
SUZUKI SWIFT GLX
07/2007, ekinn aðeins 30 Þ.km, SJÁLF-
SKIPTUR; loftkæling, kastarar, lykla-
laust aðgengi, álfelgur. Verð 1.770.000.
Raðnr. 310216 - Bíllinn er á staðnum!
Rafskutla til sölu
Celebrity X rafskutla keypt ný
haustið 2009, lítið notuð og m.a.
aldrei verið notuð í rigningu, lítur
út eins og ný. Verð 300.000. Dóra
svarar fyrirspurnum í síma 662-3012
Tilboð
Gríðarleg gæsla Tom Cruise held-
ur til í Hrafnabjörgum en þar í kring er
gríðarlegt eftirlit og gæsla, svo mikið
að bændur verða varir við að fylgst er
með þeim úr öllum áttum.
„Ef við teljum að
það þjóni öryggis-
hagsmunum að biðja fólk
um að fara, þá gerum við
það.
Á verði Öryggisverðir Öryggismiðstöðvarinnar sjá um að vakta hús Tom Cruise og beita öllum brellum
í bókinni.
ráku bændur af þjóðleið
n Öryggisverðir stórstjörnunnar Tom Cruise ráku bændur og búalið á brott af gamalli þjóðleið