Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 23
Fólk 23Mánudagur 25. febrúar 2013
EinhlEypar og
Eftirsóttar
U
m daginn birtist listi í DV yfir eftir-
sóttustu piparsveinana og því er ekki
úr vegi að gera svipaðan lista yfir
einhleypar og eftirsóttar konur. Pip-
arsveinarnir geta farið að láta sig
dreyma því hér eru alvöru drottningar á ferð.
Líklega myndu fáir karlmenn neita stefnumóti
við sjálfa alheimsfegurðardrottninguna Lindu
P og hvað þá sjónvarpskonuna Rikku.
Rikka, 35 ára Sjónvarpskonan
gullfallega, Friðrika Hjördís Geirs-
dóttir, er líklega sú kona á þessum
lista sem flestir karlmenn láta sig
dreyma um. Rikka er hrikalega
kynþokkafull, ákveðin, full af sjálfs-
trausti og getur töfrað fram góm-
sæta rétti í eldhúsinu. Ekki slæmir
kostir. Það bara hlýtur að vera biðröð
vonbiðla við hús hennar.
n 18 sjóðheitar píur
Margrét Jónasar, 44 ára Margrét R.
Jónasdóttir, eða Magga í Make Up Store, er ávallt
með puttana á púlsinum þegar kemur að tísku og
förðun. Magga heldur einnig úti eigin vefsíðu þar
sem hún deilir því allra heitasta sem er að gerast
í heimi tískunnar hverju sinni.
Elva Ósk, 49 ára Leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir
er ein af fallegustu konum landsins og einnig ein besta
leikkonan.
María Birta, 25 ára Það virðist ekki skipta
máli hvað María Birta Bjarnadóttir tekur sér fyrir
hendur. Hæfileikarík, kynþokkafull og einfaldlega
góð í öllu!
María Lilja,
27 ára María Lilja
Þrastardóttir, blaða-
kona og femínisti, er
töff pía.
Ásdís Rán, 34 ára Þær gerast varla mikið heitari
en sjálf ísdrottningin, Ásdís Rán Gunnarsdóttir. Ásdís
Rán er heimsfræg í Búlgaríu og fyrrverandi eiginkona
knattspyrnumannsins og fyrrverandi herra Íslands,
Garðars Gunnlaugssonar. Líklega sú kona þessa lista
sem prýtt hefur flestar forsíður um allan heim.
Sigrún Birna, 31 árs
Dansarinn og útvarpskonan
Sigrún Birna Blomsterberg er
hress.
Margrét Erla, 29 ára
Magadansarinn og sjónvarpskonan
Margrét Erla Maack er skemmtileg.
Ása, 33 ára Ása Ottesen hefur lengi
verið meðal helstu tískudrottninga
borgarinnar. Hún er eigandi verslunar-
innar Lakkalakk og stílisti ásamt því
að vera nýútskrifuð með BA-gráðu í
félagsfræði frá Háskóla Íslands.
Heiða Rún, 26 ára Leikkonan Heiða Rún
Sigurðardóttir útskrifaðist úr leiklistarskólanum
Drama Center í London og hefur gert það gott
síðan. Heiða Rún lék til að mynda í mynd með
stórleikkonunni Anne Hathaway og er komin með
umboðsmanninn sem „uppgötvaði“ Hugh Grant.
Brynja Þorgeirs, 39 ára Sjónvarps-
konan úr Kastljósi, Brynja Þorgeirsdóttir, er
stórglæsileg kona með bein í nefinu.
Tinna Bergs, 28 ára Fyrir-
sætan Tinna Bergsdóttir er sjúklega
sæt og eftirsótt fyrirsæta.
Hanna Eiríks, 34 ára Hanna Eiríksdóttir
verkefnastýra hjá UN Women er hress og ýkt sæt.
Linda P, 44 ára Fyrrverandi alheims-
fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir verður
fallegri með hverju árinu! Linda hlýtur að vera
á listanum yfir eftirsóttustu konur heims!
Erla Tryggva, 34 ára
Útvarpskonan Erla Tryggva-
dóttir er bæði eldklár og
fyrrverandi fyrirsæta. Einhver
heppinn á eftir að næla í Erlu.
Selma Björns, 39 ára
Leikkonan, leikstjórinn og söngkonan
Selma Björnsdóttir er ein af þeim
konum sem geta allt!
Kristrún Ösp, 23 ára Kristrún Ösp Barkar-
dóttir var á tíma á föstu með knattspyrnumann-
inum Dwight Yorke og stjörnulögfræðingnum
Sveini Andra. Kristrún er falleg ljóska, nýbökuð
móðir og rekur sinn eigin fjölmiðil, hun.is
Sara María, 33 ára
Fatahönnuðurinn Sara María
Júlíusdóttir er alvöru töffari.
Flippuð og flott!