Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2013, Blaðsíða 8
É
g er ekki að berjast upp á líf og
dauða fyrir því að dóttir mín
eigi rétt á skaðabótum, það
er komið í hús. Ég er bara að
berjast fyrir bættum vinnu
brögðum í heilbrigðisgeiranum.
Þetta má bara ekki líðast,“ segir Hlé
dís Sveinsdóttir, móðir tveggja ára
stúlku, Sveindísar Helgu, sem hlaut
mikinn heilaskaða í fæðingu vegna
mistaka og gáleysis starfsmanna
á heilbrigðistofnun Vesturlands á
Akranesi. Þá var umönnun Svein
dísar eftir fæðinguna einnig ábóta
vant. Hlédís steig fram í Kastljósi
fyrir skömmu og sagði sögu þeirra
mæðgna.
Ekki uppfull af reiði
Það er óhætt að segja að Sveindís sé
gangandi kraftaverk en, en þrátt fyrir
að hafa hlotið mikinn heilaskaða
við fæðingu virðist hún þroskast og
dafna á svipaðan hátt og jafnaldrar
hennar. Erfitt er þó að segja til um
það strax hvort eða með hvaða
hætti áhrif skaðans muni koma í
ljós þegar hún eldist. Það þykir hins
vegar kraftaverki líkast að hún sé ekki
spastísk, blind eða heyrnalaus.
Þrátt fyrir skelfilega lífsreynslu er
Hlédís þó ekki uppfull af reiði yfir
þeim mannlegu mistökum sem áttu
sér stað við fæðingu dóttur sinnar.
Hún er reið yfir þeim vinnubrögð
um sem voru viðhöfð af hálfu starfs
manna á sjúkrahúsinu í kjölfarið.
Fjölmargar rangfærslur eru í lækna
skýrslum, greinargerðum og bréfum
sem Heilbrigðisstofnun Vesturlands
hefur látið frá sér vegna málsins. Þar
á meðal til landlæknisembættisins.
Mikið ósamræmi í skýrslum
„Alveg frá byrjun, þá hefur mér sem
betur fer borið gæfa til þess að líta á
þetta sem slys. Það ætlaði sér enginn
að valda barninu mínu neinum
skaða og ég hef ekki verið reið yfir því.
Ég er hins vegar reið yfir meðferðinni
eftir á. Ég væri bara eitthvað skrýtin
ef ég væri það ekki.“ Ósamræmis
gætti meðal annars í fæðingarskýrsl
unni sem var ljósrituð og því tvö ein
tök af henni í umferð. Unnið var með
bæði eintökin en þau eru töluvert
ólík. Inn á annað þeirra vantar til að
mynda heilmikinn texta og var sú út
gáfa send landlæknisembættinu sem
fór yfir mál Sveindísar.
Hlédís segir að misræmið sé það
mikið og rangfærslurnar það margar
að það geti ekki verið að um mann
leg mistök hafi verið að ræða þegar
gengið var frá gögnum í máli hennar.
„Getur verið að um tilviljun sé að
ræða þegar öll atriðin miða í þá átt að
fegra málið, fría einstaka starfsmenn
og sjúkrahúsið?“
Myndbandið skipti sköpum
„Landlæknir er búinn að álykta
okkur í hag, að þetta hafi verið van
ræksla og gáleysi, en það álit byggir
hann ekki á skýrslum frá Heilbrigðis
stofnun Vesturlands heldur á álits
gerð Ragnheiðar I. Bjarnadóttur,
sérfræðings í kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp á Landspítalanum,“
segir Hlédís. Ragnheiður byggði álit
sitt á myndbandi sem Hlédís átti af
fæðingunni og öðrum gögnum sem
hún var með. „Hefði ég ekki haft
þetta undir höndum þá hefði land
læknir þurft að byggja sitt álit á gögn
unum frá Akranesi og þá hefði hann
ekki endilega getað úrskurðað um
vanrækslu og gáleysi. Ekki miðað
við á hvaða þáttum hann byggði mat
sitt.“ Hlédís bendir á að ef það hefði
verið raunin þá hefði rétti dóttur
hennar til að geta sótt skaðabætur
verið fyrirgert af sömu aðilum og öllu
henni tjóni.
Skylda að gera gögnin opinber
Í ljósi þess að landlæknir er búinn að
álykta í málinu hafa hvorki Hlédís né
dóttir hennar persónulegan hag af
því að hún stígi fram með sögu þeirra.
Umfjöllunin bætir dóttur hennar
ekki skaðann, líkt og hún bendir sjálf
á. Hlédísi fannst það einfaldlega sið
ferðisleg skylda sín að gera gögnin
opinber. Hún vonast til að fleiri leggi
henni lið í kjölfarið í baráttunni við
að ná fram bættum vinnubrögðum í
heilbrigðisgeiranum.
„Ég er að vona að með því að
koma fram þá muni einhver nálgast
þetta af einlægni. Ég myndi vilja sjá
forsvarsmenn heilbrigðisþjónustu
á Íslandi standa upp núna og ræða
þetta opinskátt. Hversu mikilvægt
það er að sjúkraskrár séu rétt útfylltar
þannig að bótaréttur sjúklinga sé al
veg klár. Það er ljótt að valda einstak
lingi skaða og svipta hann svo bótum
í ofanálag. “
Þurfa að geta viðurkennt mistök
Þá finnst Hlédísi einnig mega skoða
hvort það séu gerðar óeðlilegar
væntingar til heilbrigðisstarfsfólks.
Og hvort það sé ástæðan fyrir því að
brugðist sé við á þann hátt sem gert
var í hennar máli. „Við þurfum að
gefa læknum og öðru heilbrigðis
starfsfólki rými til að geta komið
fram af heilindum og viðurkennt
mistök. Það er ekki eðlilegt að fyrstu
viðbrögðin séu að reyna að firra sig
ábyrgð.“ Hlédís vill fá yfirmenn heil
brigðisstofnana með sér í lið til að
breyta þessu. Takist henni að vekja
umræðu hjá þeim sem geta virkilega
haft áhrif og stuðlað að breytingum,
er takmarki hennar náð.
Gott fólk gerir líka mistök
Fjölmargir hafa sett sig í samband
við Hlédísi eftir að hún kom fram
í Kastljósi og hrósað henni fyrir að
segja sögu sína opinberlega. Svo
margir að hún hefur ekki haft undan
að svara símtölum, Facbookskila
boðum og tölvupóstum. Hún segist
þakklát vegna viðbragðanna. Sum
ir hafa deilt með henni sinni eigin
reynslu af læknamistökum, en Hlé
dís hefur fullan skilning á mann
legum mistökum heilbrigðisstarfs
manna. „Ég er ekki hissa á að það
verði mistök inni á sjúkrastofnunum,
þar er fólk undir miklu álagi. Það er
ekki það sem málið snýst um, það
eru vinnubrögðin eftir á sem mér
svíður. Það er gott fólk í heilbrigðis
geiranum, alveg út í gegn, og ég er
ákaflega þakklát öllu því góða fólki.
En gott fólk gerir líka mistök og rang
færslur eru rangfærslur, jafnvel þó að
gott fólk standi á bak við þær.“
Hringdi í ljósmóðurina
Hlédís tekur það fram að hún hafi
tvisvar hringt í ljósmóðurina þegar
hún sat með Sveindísi á vöku
deildinni því hún fann svo til með
henni að hafa orðið þess valdandi að
dóttir hennar hlaut skaða. „Ég var svo
gjörsamlega meðvituð um, og er það
ennþá, að auðvitað þykir öllum þetta
ofsalega leiðinlegt. Enda er ég ekki
að tala um mistökin og gáleysið ég er
bara að tala um skýrslurnar á eftir að
það að þau hafi mögulega ætlað að
svipta dóttur mína bótarétti.“
Fjallað verður frekar um mál
þeirra mæðgna í miðvikudagsblaði
DV. n
8 Fréttir 25. febrúar 2013 Mánudagur
n Sveindís varð fyrir miklum heilaskaða í fæðingu vegna mistaka og gáleysis
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Þetta má bara
ekki líðast”
„Getur verið að um
tilviljun sé að ræða
þegar öll atriðin miða í þá
átt að fegra málið, fría
einstaka starfsmenn og
sjúkrahúsið?
Þroskast og dafnar
Erfitt er að segja til um
það strax hvernig áhrif
skaðans birtast þegar
hún eldist.
Sveindís hlaut heilaskaða við fæðingu Hlédís er reið vegna þeirra vinnubragða sem
viðhöfð voru af hálfu starfsmanna á sjúkrahúsinu.
„Alveg frá byrjun,
þá hefur mér
sem betur fer borið
gæfa til þess að líta á
þetta sem slys.